Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 28
Kjúklingakönnun: Engin mengun Engin campylobactermengun né salmonella fannst í 59 sýnum úr ferskum kjúklingum sem rannsök- uð voru i nýrri könnun. Hún var gerð á vegum Hollustuvemdar rik- isins og heilbrigðiseftirlits sveitar- félaganna dagana 21. maí til 7. júní —s? sl. Sýni bárust frá 8 heilbrigðiseftir- litssvæðum þannig að könnunin á að gefa góða mynd af ástandinu um allt land. Sýnin voru frá Reykja- garði, Móum, Ferskum kjúklingum og ísfugli. -JSS Varmá: Sjóðandi vatn drap fugl og fisk „Þetta var mjög ljót aðkoma að Varmánni þegar 90 gráða heitt vatnið rann út í ána og drap fugla og flska, töluvert mikið af ungviði" sagði Páll Skúlason, sem var við Varmá í Mosfellsbæ í gærkvöld, þegar hitaveituæðin opnaðist og sjóðandi heitt vatnið rann út í Varmá með þeim afleiðingum að allt kvikt drapst. „Ég fann fjóra fiska, tveggja punda, sem voru dauðir og síðan komu fuglar að sem lentu í veislu og fengu nóg að éta niður með allri á,“ sagði Páll i lokin. -G.Bender Kynþokki og kjaftasögur í helgarviðtali DV segir Andrea Ró- bertsdóttir frá frægðinni, frétta- mennskunni og ekki síst kjaftasögun- um. Gunnlaugur Briem trommari segir frá landvinningum í tónlistinni og erfiðum skilnaði. Þann 17. júní er eitt ár liðið frá Suð- urlandsskjálftunum. Rifjaðar eru upp þær hrikalegu hamfarir og jafnframt skoðað hvernig mál standa nú á Suð- urlandi. Einnig segir Þórhildur Lín- dal, umboðsmaður barna frá glóðinni í brjósti sér og Júlíus Vífill Ingvars- son, borgarfulltrúi og bílakóngur, seg- ir söguna alla, en hann stendur nú á fimmtugu. SPENNIÐ SELTIN! FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FOSTUDAGUR 15. JUNI 2001 DV-MYND TEITUR Hálfklæönaöur Ungar stúlkur sýndu sig og sönnuöu að svokallaöur erótískur fatnaöur er í mikilli sókn, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Dömurnar sýndu fatnaöinn á Sportkaffi í Reykjavík í gærkvöld viö mikinn fögnuö viöstaddra. Lyf j averslunin: Ásakanir á víxl Búnaðarbankinn sendi frá sér ályktun þar sem bankinn harmar að hann skuli hafa verið dreginn inn í deilur sem geisa nú innan Lyfjaversl- unar ríkisins. Kemur yfirlýsingin i kjölfar yfirlýsingar Gríms Sæmund- sens, stjórnarformanns Lyfjaverslun- ar íslands hf., í gær vegna samskipta sinna við Búnaðarbankann þar sem hann sagði stjórn LÍ fara fram á rann- sókn Fjármálaeftirlitsins á Búnaðar- bankanum Verðbréfum varðandi við- skipti með hlutabréf í LÍ. Málið snýst um kaup sem stjórnin samþykkti á næturfundi aðfaranótt þriðjudags að gera á Frumafli ehf. sem er í eigu Jóhanns Óla Guðmunds- sonar sem jafnframt er stærsti ein- staki hluthafi í LÍ. Grími var falið að leita eftir því við Búnaðarbankann að hann gerði mat á verðmæti þessara viðskipta sem sögð eru snúast um 860 milljónir króna. Heimildir DV herma að bankinn hafi óformlega metið verð- mæti Frumafls mun lægra svo muni hundruðum milljóna króna. Lárus Blöndal stjórnarmaður fór fram á það við sýslumanninn í Reykjavík að lögbann yrði sett á þessi kaup og verður úrskurðað í þvl eftir helgi. Hann segist hættur að botna í þessu máli og kannist ekki við að stjórnarfundur hafi verið haldinn varðandi kröfu um rannsókn. Nærmynd af Jóhanni Óla á bls. 4. -HKr. Nýr tónn hjá Sjálfstæðisflokknum: Horö lending i aösigi - en það hefur sína kosti að mati formanns efnahags- Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, er ekki sammála Rannveigu Sigurðardóttur, hagfræðingi ASÍ, sem sagði i DV í gær að rangt hefði verið að lækka skatta á einstaklinga árið 1997. Hins vegar kveður við nýjan tón hjá sjálfstæðismönnum. Allt tal um mjúka lendingu eða jafn- vel snertilendingu, eins og Geir Haarde fjármálaráðherra boðaði á þingpöllum i vor, heyrir sögunni til. í samtali frá útlöndum við DV í gær sagði Vilhjálmur að skatta- lækkunin hefði gert útslagið og hjálpað til við að skapa þann upp- gang sem orðið hefði í þjóðfélaginu. Hann er hins vegar sammála Rann- veigu um að lendingin verði hörð. „Þetta verður miklu hraðara en menn héldu vegna þess að gengið hefur breyst svo hratt. En það þýðir þá líka að það skapast meiri mögu- leikar til að fara af stað næsta ár. Eftir því sem aðlögunin verður hraðari því betri eru möguleikarn- ir.“ og viðskiptanefndar verður hörð eða mjúk eru getgátur en hættumerkin eru uppi og þegar berast fréttir af uppsögnum í ýms- um fyrirtækjum og það er mikið áhyggjuefni.“ Vilhjálmur Egilsson. Þóröur Friðjónsson. Svanfríöur Jónasdóttir. Ogmundur Jónasson. - Ertu að segja að því harkalegri lending, því betra? „Nú er það bara þannig að það hafa margir óvæntir hlutir gerst og margir munu tapa á þessari hörðu lendingu. Að því leyti er hún ekki góð en á hinn bóginn getur verið auðveldara að ná sér upp aftur ef aðlögunin verður hröð. Þetta hefur tvær hliðar,“ sagði Vilhjálmur Eg- ilsson. Engir kostir Svanfríður Jónasdóttir, ur Samfylkingar, sagði þingmað- i morgun: „Ég sé enga kosti við að lendingin verði hörð og við höfum varað við því að stjómvöld hafi neitaö að horfast í augu við hættumerkin sem hvarvetna hafa blasað við. Þó að sumir þeirra séu ekki lengur í af- neitun þá er ljóst að bæði forsætis- ráðherra og fjármálaráðherra berja áfram höfðinu við steininn." Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri grænna, sagði í morgun að brotlending hefði aldrei neina kosti. „Ef verðbólga fer úr böndunum bitnar það harðast á þeim sem hafa minnstar tekjur. Hvort lending Nokkurra missera aðiögun Þórður Friðjónsson, forstöðu- maður Þjóðhagsstofnunar, sagði í morgun: „Ég tel nú ekki jákvætt að lendingin í efnahagslífinu verði hörð, heldur sé þvert á móti mikil- vægt að hafa aðlögun að hægari hagvexti eins mjúka og hægt er. Það er ljóst að það verður hlé á ör- um hagvexti í bili, nokkur misseri a.m.k., og við það skapast oft aðlög- unarvandamál í efnahagslifinu. Það er ástæða til þess að draga úr slíkum vandamálum eins og kost- ur er. Hléið á hagvextinum gæti orðið styttra eftir því hvaða ákvarðanir verða teknar um stór- iðju. Hvorki náðist í fjármálaráð- herra né forsætisráðherra vegna málsins. -BÞ Hitað upp fyrir tónleika ársins: Rammstein í Skagafirði Hljómsveitin Rammstein hélt i gær- morgun yfir Kjöl með stefnuna á Skagafjörð þar sem hita átti upp fyrir tónleikana í Laugardalshöll í kvöld - með því að slappa af. Á dagskránni var rafting, sund í Steinsstaðaskóla Qg - málsverður 5 Varmahíið.'" „Þetta eru náttúrugaukar frá Aust- ur-Þýskalandi og vilja sjá eitthvað grænt frekar en að hanga á börunum í Reykjavík," sagði Þorsteinn Steph- ensen hljómleikahaldari sem fylgdi Rammstein ekki yfir Kjöl enda í nógu að snúast í Laugardalshöllinni þar sem tvennir tónleikar standa fyrir dyrum. í Varmahlíð i Skagafirði tók Tilbunir i slaginn Rammstein valdi náttúruna fremur en næturbarina. Magnús Sigmundsson, framkvæmda- stjóri Ævintýrferða, á móti Ramm- stein og fylgdarliði sem er um 20 manns: „Rafting er toppurinn á ferðaþjón- ustunni í ár. Þetta er það sem útlend- ingarnir vilja. Við fórum með liðið í Austari-Jökulsá sem fellur úr Hofsjökli um Austurdal og endar þar sem heita Héraðsvötn. Á þessu svæði verða Rammstein-strákarnir en mér skilst að þeir vilji helst slappa af og hafa það huggulegt," sagði Magnús í Ævintýraferðum. Hljómsveitin var væntanleg aftur á höfuðborgarsvæðið í nótt eftir skag- firsku ævintýraferðina; uppfull af orku fyrir átök kvöldsins 1 Laugar- dalshöÚ þar sem þúsundir aðdáenda bíða í ofvæni eftir að sjá þýsku átrún- aðargoðin sín. -EIR Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 Grensásvegi 3 C1frt%J s: 533 1414 >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.