Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 11
11
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001_____________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Mlchael Portillo
Er kominn langt á leiö meö aö veröa
formaður íhaldsmanna.
Stuðningur við
Michael Portillo
Stephen Dorrell, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra Bretlands, hefur
lýst yfir stuðningi við framboð
Michaels Portillos til formanns
íhaldsflokksins. Stuðningur
Dorrells þykir tíðindum sæta, ekki
síst þar sem hann studdi framboð
Kenneths Clarkes, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, áriö 1997. Clarke hef-
ur lýst yfir áhuga sínum á að bjóða
sig fram til formanns gegn Portillo.
Heilbrigðisráðherrann fyrrverandi
skýröi ákvörðun sína með því að
Portillo væri maður breytinga og að
hann gerði sér fulla grein fyrir al-
varleika ósigurs íhaldsmanna í
kosningunum 7. júní síðastliðinn.
Enn hefur enginn tekið ákvörðun
um að taka slaginn við Portillo en
meðal þungavigtarfólks innan
flokksins sem íhugar málið eru fyrr-
nefndur Clarke og Ann Widde-
combe. Samkvæmt reglum Ihalds-
flokksins velur þingflokkurinn tvo
frambjóðendur og flokksmenn allir
kjósa á milli þeirra.
Bush hnikar ekki um millímetra varðandi Kyotosáttmálann:
Fóstureyðingaskip við írland
Fiskiskipiö Aurora er komiö til írlands en þaö er meö útbúnaö til aö framkvæma fóstureyöingar. Hollenskir aöstand-
endur skipsins vilja vekja umræöur um bann viö fóstureyöingum í hinu kaþólska írlandi. Um 6000 írskar konur ferö-
ast til Bretlands árlega til að fá fóstrum eytt.
240 handteknir eftir
ófsmenn voru fluttir á sjúkrahús,
bitnir af hundum lögreglunnar.
Lögreglan hafði umkringt skóla
sem hundruð andófsmanna gistu í
gegn vægri greiðslu. Andófsmenn
höfðu sést bera múrsteina, kylfur og
fleira inn í skólann á miðvikudags-
kvöld. Hundruð ungmenna komu til
að mótmæla þvi að félagar þeirra
væru lokaðir inni og slógust við lög-
reglu.
Ungur andófsmaður inni í skólan-
um sagði að um stríð væri að ræða
og að hætta væri á einhver léti lífið.
Lögreglunni tókst að rýma skólann
rnn miðnætti.
Andstæðingar Evrópusambands-
ins ætla að halda áfram mótmælum
í dag, friðsamlegum þó að því er
þeir tilkynntu í gær.
Bush Bandaríkjaforseti hélt frá
Gautaborg í morgun til Varsjár í
Póllandi. Með í farteskinu hefur
hann gagnrýni leiðtoga Evrópusam-
bandsins vegna afstöðu sinnar til
Kyotosáttmálans. Fulltrúar Alþjóða-
bankans lýstu einnig í gær yfir
áhyggjum sínum vegna loftslags-
breytinga. Segja þeir þær bitna
harðast á fátækustu íbúum heims-
ins. Yfirmaður vísindanefndar
bankans, Robert Watson, kvaðst
telja að tugir milljóna manna yrðu
að flytja frá heimkynnum sinum
vegna hækkandi yfirborðs sjávar.
George W. Bush hefur ekki hnik-
að um einn millímetra varðandi af-
stöðu sína til Kyoto-sáttmálans.
Þetta er mat Görans Perssons, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, eftir frétta-
mannafund með Bandaríkjaforseta.
Á sjálfum fundinum var Persson
hógværari í orðavali. „Viö erum
sammála um að við erum ósammála
um Kyotosáttmálann," sagði sænski
forsætisráðherrann í Gautaborg í
gær.
Á meðan Bush snæddi dádýrs-
steik með leiðtogum Evrópusam-
bandsríkjanna gengu þúsundir and-
stæðinga Bush og stefnu hans um
Gautaborg og hrópu slagorð gegn
„eiturforsetanum". Kveiktu mót-
mælendur í bandaríska fánanum.
Bæði andófsmenn og lögreglumenn
særðust í átökunum sem fylgdu í
kjölfarið. Lögreglumaður var dreg-
inn niður af hesti sínum og tveir
aðrir særðust lítillega. Fjórir and-
Andófsmaður gripinn
Lögregla á hesti reynir aö handtaka andófsmann sem tók þátt í
mótmælunum í Gautaborg í gær gegn leiötogafundi Evrópusambandsins og
Bush Bandaríkjaforseta.
óeirðir í Gautaborg
Starfsmaður Bush:
Sendi Gore myndband
af Bush á æfingu
Fyrrverandi starfsmaður kosn-
ingabaráttu George W. Bush játar að
hafa sent myndbandsupptökur og
leynileg gögn til aðstoðarmanns A1
Gore. Myndbandið var klukkutíma-
langt og sýndi Bush á æfmgu við rök-
ræður en einnig fylgdu með í send-
ingunni 120 blaðsiður af leynilegu
efni um rökræður. Talsmaður Hvíta
hússins hefur lýst yfir vonbrigðum
með uppátæki starfsmannsins, Ju-
anitu Lozano. Áður hafði Bush lýst
þvi yfir að lekinn kæmi ekki úr röð-
um hans eigin kosningavélar.
Aðstoðarmaður Gores fékk gögnin
í hendurnar þann 13. september síð-
astliðinn og hann skilaði þeim til al-
ríkislögreglunnar. Þá dró hann sig út
úr undirbúningi Gores fyrir sjón-
varpsrökræður frambjóðendanna Aöstoöarmaöur hans fékk óvænta
tveggja. sendingu frá starfsmannaliöi Bush.
Al Gore
Engir ryksugupokar
• Ryksugað í gegn um vatn
• Hreinsar§iÞJÞÞI//É óhreininda
• Bjargvættur þeirra sem þjást af rykofnæmi
• Engin ólykt meðan ryksugað er
• Hreinn útblástur
Hrein og klár bylting
Með Kdrcher 5500 AquaSelect ryksugunni
Og veröið er aöeins 28.555,-
Umboðsaðilar viða um land
SKEIFAN 3E-F • SÍMI581 2333/581 2415 ■ WWW.RAFVER.IS
1) Vutnssía
2) Sia Jyrir meðalstómr ugnir
3) HliPA finkontosía
4) ÚtbiásturssUi