Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Page 24
28
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
Tilvera DV
lí f iö
Stórsveitin á
Ingólfstorgi
Stórsveit Reykjavíkur heldur
tónleika á Ingólfstorgi í dag kl.
17. Gestasöngvari er Páll Óskar
Hjálmtýsson og stjórnandi er
hinn sænski Daniel Nolgard.
Efnisskráin er létt og
aðgengileg. Verði veður slæmt
færast tónleikarnir inn í
Tjamarsalinn.
Leikhús ___________
FÉÐGÁRA'FERÐFeðeáFnÍFArnÍ
Tryggvason og Orn Árnason eru höf-
undar og leikarar í leikritinu Feðgar
á ferö sem er sýnt kl. 20 í kvöld í
lönó. Nokkur sæti laus.
MEÐ VÍFH) í LÚKUNUM Leikritið
Meö vífiö í lúkunum eftir Ray Coon-
eyverður sýnt í kvöld klukkan 20 á
Stóra svlöi Borgarleikhússins. Leik-
stjóri er Þór Tulinlus og þýðandi Árni
Ibsen. Örfá sæti laus.
PÍKUSÖGUR Píkusögur eftir Eve
Ensler veröur sýnt í kvöld klukkan
20 á Þriöju hæö Borgarleikhússins.
Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdótt-
ir en leikkonur eru þær Halldóra
Geirharösdóttlr, Sóley Elíasdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Nokkur
sæti laus.
RÚM FYRIR EINN Hádegisleikhús
lönó sýnir klukkan 12 í dag leikritið
Rúm fyrir einn. Nokkur sæti eru
laus.
Böll
SÖNGKVÓLP í KAFFILEIKHÚSINU
Hið Olafsljaröarættaöa Kleifabanda-
lag, Menn frá Kleifum, sér um að
stjórna fjöldasöng og almennum
dansi í Kaffileikhúsinu þar sem allir
geta sungiö með vegna texta sem
varpað er á skjá. Miðasala í Kaffi-
leikhúsinu og hefst fjöriö kl. 22.15.
Kabarett
SPENNANDI HUOPVÉRK Í NÝ-
LISTASAFNINU l dag er boöið upþ
á Paul Lydon og IVCP (Haraldur
Karlsson og Marteinn Bjarnar Þórð-
arson) -Taktur sólkerfisins.
Dpnanir
jJÖÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS ís-
lenskar þjóösögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opn-
uð hefur verið í Safni Ásgríms Jóns-
sonar viö Bergsstaöastræti 74 í
Reykjavík. Á sýningunni, sem stend-
ur til 1. september, eru margar af
frægustu þjóðsagnamyndum lista-
mannsins og þar má einnig sjá
vinnustofu, heimili og innbú hans.
Ásgrímssafn er opið daglega frá kl.
13.30-16 en lokað á mánudögum.
LISTAVERK í SILFURTÚNI
Garðabær fagnar 25 ára afmæli og
hefur af því tilefni sett um sex
útilistaverk við Silfurtún, elsta
skipulagöa íbúðahverfi bæjarins.
Þar sýna verk sín þau Gabríela K.
Friðriksdóttir, Helgi Gíslason,
Magnús Tómasson, Pétur
Bjarnason, Rebekka Rán Samper
og Valgeröur Guölaugsdóttir.
IRAFAR A GAUKNUM Gaukur á
Stöng býður fólk velkomið og lofár
fjöri með Birgittu og strákunum í íra-
fári í stuðbílstjórasætinu.
EINAR OG KRISTJÁN í NESKAUP-
STAÐ Þeir kumpánar Elnar Agúst og
Kristján Grétars sjá fyrrum sam-
sveitungum Einars í Neskaupstaö
og nágrenni fyrir feiknaskemmtun í
Egilsbúö.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísl.is
Eini rithandarsérfræðingur lögreglunnar lætur af störfum:
Spennandi að leysa gátur
- segir Haraldur Árnason sem snýr sér nú að þjónustu við almenning
„Rithandarrannsóknir eru feiki-
lega lifandi og skemmtilegt starf.
Það er alltaf spenna því fylgjandi að
leysa gátur og í nokkrum tilfellum
hefur niðurstaða rithandarrann-
sóknar ráðið úrslitum fyrir dómi,“
segir Haraldur Ámason, en hann er
eini íslenski lögreglumaðurinn sem
hefur sérhæft sig í rithandar- og
skjalarannsóknum. Haraldur hefur
starfað í hartnær fjörutíu ár hjá lög-
reglunni en er nú á fórum og hyggst
starfa að skjalarannsóknum í einka-
geiranum.
Haraldur var starfsmaður rann-
sóknarlögreglunnar þegar hann hóf
að fást við skjalarannsóknir. Hann
segir að fyrir tíma tölvutækninnar
hafi fjölmörg mál komið upp sem
tengdust ritvélum.
„Þetta voru oft á tíðum umfangs-
mikil mál og i mörgum þeirra þurfti
að kanna hvort tiltekin ritvél hefði
verið notuð við gerð skjala. Ég
sökkti mér ofan í þessi fræði og las
allt sem ég komst yfir. Nokkru
seinna var ég spurður hvort ég vildi
ekki sérmennta mig í skjalarann-
sóknum og eftir nokkra umhugsun
ákvað ég að slá til,“ segir Haraldur
og árið 1989 hélt hann til Bretlands
þar sem hann nam skjalarannsókn-
ir hjá rannsóknardeild breska inn-
anríkisráðuneytisins í borginni
Birmingham. Haraldur segir námið
hafa verið fjölbreytt og erfitt á köfl-
um enda hafi hann oftar en ekki set-
ið sveittur við að leysa ýmis verk-
efni. „Þarna lærði ég mikilvægustu
lexíuna en hún er sú að hálfvelgja
dugir ekki í þessu fagi. Þaö þýðir
ekki að segja „ég held,“ menn verða
að geta sagt „þetta er mín niður-
staða.“
Erfiö fölsunarmál
Haraldi flnnst skorta mjög á að
almenningur geti leitað ásjár rit-
handarsérfræðinga því eins og stað-
an sé í dag starfi lögreglan einvörð-
Ætlar aö halda áfram skjalarannsóknum
Haraldur ætlar aö halda áfram aö sinna því sem honum þykir skemmtilegast, þ.e. skjalarannsóknum, þótt hann sé
hættur hjá lögreglunni. Hér er Haraldur ásamt starfsfélaga sínum hjá Vaktþjónustunni, Finni Beck.
ungu fyrir ákæruvaldið. „Það eru
dæmi þess að fólk hefur leitað til
lögreglu með skuldabréf þar sem
búið er að falsa undirskrift viðkom-
andi. Málið er kært til lögreglu og
hugsanlega leiðir rithandarrann-
sókn til þess að sannað þyki að und-
irskriftin sé fölsuð. Það er þó ekki
þar með sagt að hægt sé aö sanna
hver falsaði undirskriftina og málið
því lagt upp. Sá sem „á“ fölsuðu
undirskriftina verður að halda vöku
sinni því hann getur þurft að greiða
viðkomandi kröfu. Ef lögreglurann-
sóknin endar ekki með ákæru getur
fórnarlambið átt von á innheimtu-
kröfum. Það vantar farveg fyrir mál
sem þessi og það er meðal þess sem
ég ætla að snúa mér að í framtíð-
inni, veita bæði almenningi og lög-
fræðingum þjónustu af þessu tagi,“
segir Haraldur Árnason.
Falsanir af ýmsu tagi verða alitaf
til og Haraldur segir nútímatækni í
raun ekki hafa gert fölsurum svo
auðvelt fyrir. „í nánast öllum tilfell-
um þar sem skjalafals á sér stað er
hægt að koma upp um það. Þar
vinna margir þættir saman, allt frá
fmgrafarafræði til pappírfræða. Það
er mikilvægt að taka hverju verk-
efni af opnum huga og hætta ekki
fyrr en niðurstaða er fengin," segir
Haraldur Árnason, rithandarsér-
fræðingur hjá Vaktþjónustunni.
-aþ
Myndlistarmaöurinn Páll Guömundsson á Húsafelli
Hann spilar á steinaspil sitt sem margir hafa séd er heimsótt hafa vinnustofu hans á Húsafelli
Borgfirðingahátíð:
Hátíð að sveitamannasið
Vcsíurldhdsmótið í sveitafitness,
dragkeppni dráttarvéla, heimsins
stærsta tátilja, minni Skallagríms
Kveldúlfssonar, Guitar Islancio, dæg-
urlagapönksveitin Húfan, feðgarnir
Öm Árnason og Árni Tryggvason,
steinaspil Páls á Húsafelli og Stuð-
menn eru meðal atriða á Borgfirð-
ingahátíð 2001 um helgina. Þetta er
fjölskylduhátíð að sveitamannasið
sem stendur frá föstudegi tO sunnu-
dagskvölds vítt og breitt um Borgar-
íjarðarhérað. í dag verður til að
mynda líf og tjör í krmgum verslanir
í Borgarnesi, listsýningar í Reykholti
og Borgarnesi o.fl.
Á morgun verður meðal annars
„sveitasæla" á Hvanneyri þar sem
boðið er upp á leiki og létt gaman fyr-
ir aUa fjölskylduna. Má þar nefna hús-
dýragarð, dragkeppni dráttarvéla,
heyvagnaferðir, leitina að nálinni í
heystakknum og Vesturlandsmótið í
sveitafitness sem er ný „hvanneyrsk"
íþróttagrein sem byggist á brauðstriti
bóndans. Keppendur þurfa m.a. að
bjástra með heybagga, gera við búvél-
ar og moka skít.
Um kvöldið verður baðstofukvöld á
Hvanneyri þar sem fram koma félagar
í kvæðamannafélaginu Iðunni, Hall-
dóra Friðjónsdóttir sópransöngkona
og feðgarnir Örn Árnason og Árni
Tryggvason.
Á sunnudag verður vegleg þjóðhá-
tíð í Borgarnesi þar sem m.a. verður
minningarathöfn um landnámsmann-
inn Skallagrím Kveldúlfsson. Hátíða-
höldin enda síðan á stórtómeikum
með hinum einu og sönnu Stuðmönn-
um í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi.
Barber í Laugaborg
Á morgun kl. 15 verða haldnir sum-
artónleikar í Laugaborg, Eyjafirði.
Þar koma fram þær Gerður Bolladótt-
ir sópransöngkona og Júlíana Rún
Indriðadóttir píanóleikari. Á efnis-
skrá eru verk eftir Samuel Barber,
þar á meðal Knoxville: Summer of
1915, sem er þekktasta verk þessa
dáða bandaríska tónskálds, og sex
sönglög eftir Jórunni Viðar. Gerður
lauk burtfararprófi undir handleiðslu
Sigurðar Demetz Franzsonar árið
1995. Frá árinu 1995 til ársloka 2000
stundaði hún nám í Bandaríkjunum.
Júlíana Indriðadóttir lauk einleik-
araprófi árið 1989 frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssnar. Á árunum
1989-94 stundaði hún framhaldsnám í
Berlín. Eftir tveggja ára dvöl hérlend-
is hélt Júlíana til náms í Bandarikjun-
um og lauk meistaragráðu árið 1998.
Júlíana vinnur við kennslu, undirleik
og kórstjórn í Reykjavík. Árið 1995
hlaut Júlíana Tónvakaverðlaun Ríkis-
útvarpsins.
Geröur Bolladóttir.
Syngur verk eftir Barber og Jórunni
Viöar.