Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 11
Frönsk tónlist hefur átt töluverðum vinsældum að fagna undanfarin misseri með dans- tónlistarmönnum eins og Air, Dafl Punk og Dimitri From Paris. Vinsælasti franski tónlistarmaðurinn í heiminum í dag er samt að gera allt öðruvísi hluti. TVausti Júlíusson kynnti sér Manu Ohao í tilefni af út komu annarrar sólóplötu hans, Proxima Estacion: Esperanza. Þegar EMI útgáfurisinn gerði áætlanir um þær plötur á árinu 2001 sem fara ættu I forgang í kynningu og dreifmgu út um allan heim þá vakti eitt nafn nokkra athygli, nefni- lega nafn franska tónlistarmannsins Manu Chao. Fyrsta sólóplata Man- us, Clandestino, sem kom út árið 1998, er ein af mest seldu frönsku plötunum út um allan heim frá upp- hafi. Hún er komin langt á þriðju milljón og nýju plötunni hans, Prox- ima Estacion: Esperanza, er auðvit- að ætlaö að gera a.m.k. jafnvel. Við skulum kíkja aðeins á Manu. leiörétting Þau mistök urðu á poppsíðunni hér í Fókus í síðustu viku að um- fjöllun um Stereo MC’s birtist ekki í heild sinni. Áhugasamir geta lesið greinina í heild sinni á Fókusvefnum á Vísi.is. Slóðin er www.visir.is/fokus. plötudómar Ævintýramaður af gamla skólanum Manu Chao - farandsöngvari og flökkudýr. Fyrrum meðlimur Mano Negra Manu Chao, sem verður fertugur á þessu ári en lítur út fyrir að vera tíu árum yngri, byrjaði í tónlist fyrir tutt- ugu og funm árum. Hann var þá í pönkhljómsveitum eins og Joint de Culasse og Hot Pants. Árið 1987 var hann einn af stofnendum Mano Negra. Mano Negra varð til úr nokkrum hljómsveitum á grin-pönk senu París- ar, þ.á m. Hot Pants, Los Carayos, Chihuahua, Kingsnakes og Les Wampas. Mano Negra var jafnframt ein af þeim hljómsveitum í París á þessum tíma sem blönduðu saman rokktónlist með pönk attitúdi og alls konar annarri tónlist, hjá Mano Negra var blandan suður-amerísk tónlist, reggae, karíbahafstónlist og rokk og þeir kölluðu hana patchanka. Tóku ástfóstri við Suður- Ameríku Mano Negra starfaði í sjö ár og sendi frá sér fimm stórar plötur. Á tímabili náði hún nokkrum vinsæld- um í Bretlandi, m.a. með laginu King Kong Five og plötunum Puta’s Fever og King of Bongo. Hún var samt ekki mikið að reyna við Bretland eða Bandaríkin en sneri sér þess í stað að Suður-Ameríku. Þeir félagar fóru í tvær stórar tónleikaferðir um áifuna, í þeirri fyrri, Cargo 92, sigldu þeir á milli helstu stórborganna en í þeirri seinni ferðuðust þeir með lestum og húsvögnum. Mano Negra var á samn- ingi við Virgin í Frakkland, en þeir félagar voru ailan tímann miklir hug- sjónamenn og áttu í stöðugu stríði við útgáfuna um að halda verðinu á plöt- unum þeirra og aðgangseyri á tón- leika í lágmarki. Flökkulíf Eftir útgáfu síðustu plötunnar þeirra Casa Babylon leystist hljóm- sveitin upp. Manu Chao lagðist þá í fjögurra ára ferðalag, aðallega um Suður-Ameríku, þar sem hann lifði hálfgerðu flökkulífi, tók að sér þá vinnu sem bauðst hverju sinni en skrifaði líka dagbók og tók upp ógrynni af tónlist. Þessar upptökur mðu grunnminn að hans fyrstu sóló- plötu, Clandestino, sem kom út árið 1998. Clandestino er að mörgu leyti eins og framhald af tónlist Mano Negra. Það má á henni heyra áhrif frá latin, reggae og karíbahafs- tónlist en í staðinn fyrir að það ægi öllu saman hefm platan einn hljóm sem er aðallega byggður á einfóldum gítargrunnum og söng. Inn í þetta blandast svo ólíkir hlutir (blástm, tal- mál, bakraddir) en gítarleikurinn og söngur Manu (sem er jafnt á spænsku, ensku og frönsku) eru alltaf í forgrunni. Hann flutti svo til Barcelona og hóf upptökm á Proxima Stacion: Esper- anza, sem eins og áður segir er ný- komin út. Nýja platan er vægast sagt mjög lík þeirri fyrri og hefur verið kölluð „litli bróðir" Clandestino. Bæði er stíllinn sá sami og eins notast sum lögin við sömu grunnana og lög á fyrri plötunni. Lagið Mr. Bobby er t.d. ný útfærsla á laginu Bongo Bong. Manu viðurkennir þetta en segir að það sé engin ástæða til þess að henda einhverju þó að það sé ekki nýtt. „Ég er örugglega búinn að búa til átta lög með Bongo Bong grunninum," segir hann. „Það er engin ástæða til þess að búa til eitthvað glænýtt bara til þess að búa til eitthvað glænýtt." Tónleikaferð og pólitískar aðgerðir Á næstu vikum ferðast Manu með Radio Bemba og spilar á tónleikum til þess að kynna nýju plötuna. Stór hluti af hans tíma þessa dagana fer samt í að undirbúa aðra uppákomu. 18. júlí halda átta stærstu efnahagsveldi heims fund í Genova á Ítalíu og Manu er í óða önn að undirbúa mótmælaað- gerðirnar. Hann er nýkominn úr vett- vangsrannsókn á Ítalíu þar sem hann hitti fyrir fulltrúa margra hinna ólíku félagasamtaka sem ætla að mótmæla fundinum. Hann er sjálfur félagi í Attac sem eru alþjóðleg samtök sem berjast gegn alþjóðavæðingunni og samþjöppun auðs. Radio Bemba mun líka spila á tónleikum til styrktar bar- áttunni. Það hljómar kannski undar- lega en þó að hann sé eitt af stóru nöfnunum á útgáfuáætlun EMI þá er Manu Chao fúlasta alvara! Varð til fyrir slysni Manu segir reyndar í nýlegu viðtali að það hafi verið fyrir tilviljun sem hann datt niður á þennan hljóm. Upp- haflega var hann að vinna með upp- tökumanninum Renault Létang að plötu sem átti að vera byggð yfir teknógrunn. Þeir voru komnir eitt- hvað áleiðis með að vinna plötuna þegar græjurnar klikkuðu eitthvað, þykkur teknógrunnurinn hvarf og eft- ir stóð berstrípaður ryþmagítarinn og söngurinn. Útkoman hljómaði það vel að þeir ákváðu að sleppa teknóinu, eða réttara sagt geyma það um sinn. Vinsældir Clandestino urðu hins veg- ar þvílíkar að það er ekki mjög líklegt að Manu rifji upp teknóið alveg í bráð. Proxima Estacion: Esper- anza Ári eftir að Clandestino kom út hóaði Manu saman nokkrum félögum og stofnaði hljómsveitina Radio Bemba. Hún fór í mikið tónleika- ferðalag, m.a. um Suður-Ameríku. hvaöf fyrir hvernf sksmmti legar staöreyncfi r ★★★★ Flytjandi: Autechre Platan: Confíeld Útgefandi: Warp/Japis Lengd: 62:05 mín. Confield er sjötta plata breska raftón- listardúósins Autechre í fullri lengd. Autechre, sem er skipuð þeim Sean Booth og Rob Brown, hefur lengi veriö í fararbroddi þeirra bresku sveita sem leika „danstónlist fyrir höfuðið" en sú tónlistarstefna kom fram meö Artifici- al Intelligence safnplötunum sem Warp gáfu út snemma á tíunda ára- tugnum. Autechre eru brautryöjendur og spá- menn og það er þess vegna alltaf ástæða til þess að tékka á nýju efni frá þeim. Eins og U-ziq, Aphex Twin og Squarepusher þá eru þeir störstjörnur f teknógeiranum og eiga sér marga harða aðdáendur. Áhangendur Warp útgáfunnar ættu auðvitað að skoða plötuna svo og þeir sem mættu á tðn- leika Autechre í MH á sínum tfma. Eftir frekar rólegt ár það sem af er hjá Warp-útgáfunni eru nú aö koma út nýjar plötur með nokkrum af hennar helstu hetj- um. Ný Plaid plata er komin út sem og ný smáskffa frá Squarepusher og það styttist Ifka f stóra plótu frá honum. Fyrr á árinu kom reyndar mjög flott plata sem frekar lít- ið hefur farið fyrir en þaö er „Lipswítch" meö Richard Devine. Fyrsta flokks hávaði þar á ferðinni eins og Warp er von og vfsa. ★ ★ FlytjandhFeeder piatan: Echo Park Útgefandi: The Echo Label/Japis Lengd: 40:05 mín. Echo Park er þriðja plata þríeykisins f Feeder. Áður hefur sveitin gefið út Polythene, 1997, og Yesterday Went Too Soon, 1999. Af þessum plötum ættu einhverjir að kannast við lögin High og Yesterday Went Too Soon. Lög af nýju plötunni hafa einnig heyrst í út- varpi hér á landi. Feeder ætti að virka ágætlega á þá sem fíla hávaðagítartónlist af hvaða stefnu sem hún er. Einnig ættu frjáls- lyndir brit-popparar að geta samsam- að sig að einhverju leyti við trióið þar sem það virðist ekki alveg hafa farið varhluta af þeirri tónlistarstefnu sem öllu tröllreið fyrir eigi allt of löngu. Félagarnir í Feeder eru duglegir við að túra heiminn og hafa verið meira og minna á tónleikaferðalagi síðustu fjög- ur árin. Til marks um það hversu harð- ir þeir eru við að túra þá kláraði gítar- leikarinn og söngvari Grant Nicholas seinni helming tónleikaferðalags um Bretland kinnbeinsbrotinn. Auk þess spilaði trommarinn John Lee ökkla- brotinn f annarri tónleikaferð. ★ ★★ Fiytjandi: Cappadonna piatan: The Yin & The Yang Útgefandl: Epic/Skífan Lengd: 48:45 mín. „The Yin & The Yang" er önnur sólóplata Wu-Tang liðans Darryl Hill, öðru nafni Cappadonna. Sú fyrri, „The Pillage", kom út fyrir þremur árum og þótti mjög góð. Á nýju plötunni nýtur Cappadonna m.a. full- tingis pródúsera eins og True Master (sem var áberandi á fyrri plötunni), Goldfingaz, Inspectah Deck og Neonek og rappara á borö við Ghostface Killah, Killah Priest, Raekwon og Da Brat. Þar sem það ætlar að verða einhver bið á næstu Wu-Tang plötu, sem þeir félagar skelltu á útgáfuplan sumarsins i einhverju bjartsýniskasti f byrjun árs- ins, þá er þessi plata auðvitað smá- huggun. Þetta er frekar poppað efni, flott sánd og húkkar auðveldlega þannig að það ætti aö höfða til rapp- unnenda sem gera ekki of miklar kröf- ur um frumlegheit og ferskleika. Eins og áður sagði verður einhver bið á næstu Wu-Tang Clan plötu. Það er hins vegar von á Ghostface Killah plötu fljót- lega og RZA stefnir á að senda frá sér Bobby Digital plötu nr 2. „Digital Bullet" seinnipart júlf. Method Man, Raekwon, U-God og GZA eru svo allir að huga að nýjum plötum en komnir mislangt. Loks má geta þess að The W-DVD útgáfa er að koma út þessa dagana. ★ Flytjandi: LÍfehoUSe piatan: No Name Face Útgefandi: SKG Music/Skífan Lengd: 55:17 mín. No Name Face er fyrsta plata tríósins Lifehouse, skipuð strákum á tvítugs- aldri frá Los Angeles. Hún skaust ný- veriö inn á vinsældalista í Bandaríkjun- um með smáskífulaginu Hanging By a Moment og hefur einnig eitthvað heyrst á „rokkstöðinni" Radíó X. Tónlistin á No Name Face passar vel fyrir þá einstaklinga sem eru of pirrað- ir út f lífið til að hlusta á sveitaballa- popp og R&B en þola hins vegar ekki ofurpirring, hrjúfan gítarhávaða eða öskur hljómsveita á borð viö Pearl Jam, Deftones eða Nirvana. Þrátt fyrir að vera tríó þá, á einhvern einkennilegan hátt, eru fjórir menn á flestum myndum af hljómsveitinni. Þetta kemur til vegna þess að fyrrver- andi gítarleikari Lifehouse, Rick Woolstenhulme, sem spilaöi með sveitinni áður en þeir tóku plötuna upp, spilar enn með sveitinni á tón- leikum. Hann telst því víst enn hálf- gerður meðlimur. niöurstaöa Þetta er mjög flott plata. Það eru níu stykki á henni, sum eai frekar einfóld, önnur flóknari. Autechre halda áfram að leika sér með sánd og misflókna ryþma. Tónlistin er bæöi hörö og mjúk, bæði falleg og harkaleg, bæði nýstárleg og kunrr ugteg. Platan er öll góð og virkar best ef hún er leikin i heild sinni. Hámarkið kemur bá í lokalag- inu „Lentic Catachresis" sem er magnaö stykki sem fer rólega af stað eins og nudd en endar með barsmiðum. -trausti júlíusson Echo Park er mjög góð bakgrunnstón- list og nær jafnvel að lyfta sér fram í forgrunninn á nokkrum köflum með kröftugu gítarrokki og finum melódí- um. Það sem truflar bó er að stundum skýtur upp kollinum óþægilega mikið brit-popp, jafnvel inni i miðjum lögum, eitthvað sem dregur dálítið úr stjörnu- fjölda. -hafstelnn thorarensen Þetta er þokklegasta plata. Hún kemur kannski ekki á óvart en hún er nokkuð vel samsett. Lög in eru flest i lagi, en „Supermodel" sem Cappa donna flytur með Ghostface Killah, poppsmellur- inn „Love Is The Messags" sem skartar Ra ekwon og „We Kncw" þar sem Jermanie Dupri og Da Brat eru gestimir eru bestu lögin að mínu mati. Ekkert snilldarverk en ágætis plata samL Alveg þess viröi að kippa henni upp á einhverri út- sölunni... traustijúTiusson No Name Face er ekki skemmtileg plata. Greinilega er um að ræða afuið sveitar sem er undir of sterkum áhrifum rokkbylt- ingarinnar í Bandarikjunum seinasta ára- tuginn. Tónlistin virðist vera eitthvert sann- bland af Síattelgrönsi og saktórokki og er á köflum næstum gripandi en megn sætu- keimur kemur í veg fyrir að rokkið fái að njóta sín. Sömu sögu er að segia um sönginn. -hafsteinn thorarensen r* -r v 15. júní 2001 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.