Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Page 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001
DV
DV-MYND BRINK
Einbeiting
Hann ætlaði sér aö vinna leikinn, ef
ekki sigra allan heiminn, þessi
einbeitti golfari á Akureyri í gær.
Árekstur
á rauðu Ijósi
Tveir bílar skullu saman á Bú-
staðavegi skömmu fyrir miðnætti í
gærkvöld. Að sögn lögreglu er talið
að annar bíllinn hafi farið yfir á
rauðu ljósi með fyrrgreindum af-
leiðingum. Bílstjóri hins bílsins var
hins vegar grunaður um ölvun og
færður á stöð. Báðir bílarnir
skemmdust töluvert við árekstur-
inn og þurfti að flytja annan þeirra
á brott með kranabíl. -aþ
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Kirkja í kreppu
Þó að kirkjan sé í kreppu gefur séra
Geir Waage sér tíma til að gróöur-
setja tré á safnaðarsvæði sínu.
Séra Geir Waage:
Kirkjan í
kreppu
DV, REYKHQLTI:
Séra Geir Waage, prestur Reykholts-
safnaðar, sem á sínum tíma gagnrýndi
harkalega störf herra Ólafs Skúlasonar
biskups, segir að kirkjan sé ekki kom-
in úr þeirri kreppu sem hún hefur ver-
ið í af ýmsum ástæðum.
„Almennt talað held ég að kirkjan
standi mjög vel, hún stendur vel í öll-
um söfnuðum sínum eða víðast hvar
að minnsta kosti, held ég. Það er þrótt-
mikið og gott kirkjustarf hvarvetna í
landinu. Kirkjan er hins vegar ekki
komin úr þeirri kreppu sem hún hefur
verið í af ýmsum ástæðum og meðal
annars vegna þess að hún er að vinna
sig út úr kyrrstæðu samfélagi horfinna
alda yfir í allt annað umhverfi. Það
hefúr verið að gerast nú síðustu tutt-
ugu árin. Það gerist ekkert átaka- eða
þrautalaust og þar fyrir utan er ýmis-
legt sem á eftir að ráða til lykta í því
ferli til framtíðar," sagði séra Geir við
DV.
Þegar hann var spurður hvemig
honum fyndist biskupinn hafa staðið
sig sagðist hann ekki vilja ræða það
nema að spurt væri um einhver tiltek-
in mál. -DVÓ
Hópnauðgunum
fer fjölgandi
- einnota grinun neysluhugsun, segir yfirlæknir neyðarmóttöku
Hópnauðgunum hefur farið
fjölgandi, að sögn Guðrúnar Agn-
arsdóttur, yfirlæknis neyðarmót-
tökunnar. Aukningin hefúr eink-
um orðið á 2-3 síðustu árum, sé
tekið mið af fjölda slíkra fórnar-
lamba sem leitar til neyðarmóttök-
unnar. Hópnauðgun er skilgreind
þannig að tveir eða fleiri séu að
verki. Nú virðast vera komin upp
„gengi“ sem eru með yfirveguðum
hætti aö ná sér í stúlkur eða kon-
m- til að nauöga þeim. Samfara því
hefur hópnauðgunum fjölgað tals-
vert.
„Þetta hefur ekkert með kynlíf
að gera,“ sagði Guðrún. „Þetta er
fyrst og fremst ofbeldi, þar sem kyn-
færin eru notuð sem vopn. Þetta er
valdbeiting og niðurlæging á
annarri manneskju. Nauðganir
tengjast oft áfengis- og vímuefna-
neyslu. Það er tilefni til að hafa
áhyggjur af mikilli neyslu sem fylg-
ir skemmtanalífinu hér á landi.
Þessir atburðir gerast helst um
helgar. Kynlíf er orðið hluti af þess-
ari grimmu neyslu. Menn geta tæmt
flösku og hent henni. Þeim finnst ef
til vill að þeir
geti líka tekið
stúlku og hent
henni síðan.
Þetta er einnota
grimm neyslu-
hugsun, sem
virðist vera farin
að teygja sig yfir
á mannfólkið
líka. Vaxandi of-
beldi af ýmsum
toga sem fylgir neyslunni hvetur
okkur til að grípa til markvissra
forvarna meðal ungs fólks."
Neyðarmóttakan hefur starfað frá
1993. Um 100 einstaklingar leita tU
hennar á ári. Árið 1999 voru 10
hópnauðgunarmál af 103 málum
sem komu tU neyðarmóttökunnar.
Árið 2000 voru það 10 mál af 97. í
apríl 2001 höfðu komið inn 8 mál af
30, þar sem voru fleiri en einn ger-
andi.
Þjónustan við þá sem leita tU
neyðarmóttökunnar er samræmd og
skipuleg. Starfsfólkið vinnur saman
í teymi. Um er að ræða hjúkrunar-
fræöing, ráðgjafa, lækni, sálfræðing
og lögmann. Fagfólkið sem skipar
hópinn kemur inn i ferlið hvert á
fætur öðru. Þegar manneskja hefur
leitað til neyðarmóttökunnar fær
hún læknisskoðun, meðferð og
stuðning ætli hún að kæra málið.
„Við höfum einnig áhyggjur af
því að kærum fer fækkandi," segir
Guðrún. „Þar kemur vafalaust ým-
islegt tU, s.s. þeir dómar sem gengið
hafa. Þá hefur fólk sem tengist eða
lendir sjálft í nauðgunarmálum orð-
ið fyrir ofbeldi. Þar má meðal ann-
ars nefna hótanir með sms-boðum í
gegnum GSM-síma. Svo hefur
ákveðinn fjöldi sem leitar tU neyð-
armóttökunnar verið mjög ölvaður
þegar verknaðurinn var framinn.
Þær telja sig standa veikara að vígi
og eru meö sjálfsásaknir eins og
raunar flestir sem lenda i svona
málum.“
Guðrún sagði að tíðni nauðgana
hér á landi virtist vera svipuð og í
öðrum löndum. Hins vegar væri yf-
irbragð þeirra hér á landi að verða
ofbeldisfyllra og grimmilegra en
áður. -JSS
DV-MYND BRINK
Dyttað að gamla bænum
/ nepjunni í gær var unnið viö lagfæringar á gamla bænum í Laufási. Talsverð tímamót urðu þar einnig í gær en þá
var Minjasafninu á Akureyri afhent til eignar þjónustuhús við gamla bæinn. Þaö var Héraösnefnd Eyjafjaröar sem af-
henti þjónustuhúsið viö formlega athöfn.
Pláss fýrir nokkur
hundruð tonn af fiski
DV, NESKAUPSTAÐ:_______________
Fyrsta kvíin af sex sem Netagerð
Friðriks Vilhjálmssonar hf. gerir
fyrir Sæsilfur hf. fyrir laxeldið í
Mjóafirði er komin á flot. Poki var
settur í kvína i gær, mánudag, og ef
allt gengur samkvæmt áætlun fara
fyrstu laxaseiðin í kvína á morgun.
Hver kví er um 90 metrar að um-
máli og tekur nokkur hundruð tonn
af fiski. Netagerði F.V. hf. mun sjá
bæði Sæsilfri og Islandslaxi fyrir
búnaði til laxeldis. Netagerðin er í
samstarfi við tvö fyrirtæki í Noregi
varðandi búnað og virðist sem fyrir-
tækið verði leiðandi á þessu sviði
hér á landi, enda mikil sérfræði-
þekking til staðar í fyrirtækinu.
Aðstaöa til laxeldisins er nokkuð
DVJVIYND ELMA GUÐMUNDSDÖTTIR
Rlsaeldið að hefjast
Myndir af kvínni á floti og kví sem er verið að setja sam-
an. Fyrstu seiöin koma væntanlega í kvíarnar á morgun.
önnur í Kletts-
vík en í Mjóa-
firði og vegna
mikils vind- og
straumstyrks
verður að
styrkja búnað-
inn sérstaklega
og frágangur-
inn verður
öðruvísi en
venjulegt er.
Verða kvíarnar
í Klettsvík fest-
ar bæði í
Heimaklett og
Ystaklett.
-EG
Einkaleyfisgjald
Ríkisvaldið á að
koma til móts við
óskir Háskóla ís-
lands í byggingar-
málum með því að
dreifa einkaleyfis-
gjaldi vegna Happ-
drættis Háskólans.
Þetta er mat Bjöms
Bjarnasonar menntamálaráðherra
en Háskólinn greiðir 20% af
nettóarði happdrættisins í ríkissjóð.
Mbl.is sagði frá.
Sumarhveilur í Eyjum
Ofsaveður, 32 metrar á sekúndu,
var í Vestmannaeyjum í gærkvöld.
Bátur losnaði frá bryggju og þak-
plötur fuku af húsum.
Svipað og í Höfn
Heildarverð vörukörfu með 83
vörutegundum er svipað í Reykja-
vík og Kaupmannahöfn samkvæmt
nýlegri könnun Neytendasamtak-
anna. Mestur verðmunur mældist á
kvenfatnaði sem reyndist dýrari í
Reykjavík.
Hass á Blönduósi
Lögregla á Blönduósi gerði 20 g af
hassi upptæk í bíl tveggja ungra
manna. Atvikið átti sér stað um
helgina en auk hassins fundu lög-
reglumenn kannabisplöntu undir
framsæti bílsins.
Styttur afgreiðslutími
Miðborgarstjórn og lögreglan í
Reykjavík ha'fa lagt til við borgar-
ráð að afgreiðslutími vínveitinga-
húsa í miðborginni verði styttur.
Hverfjall eða Hverfell?
Máli 43 Mývetninga sem kröfðust
þess að Hverfjall yrði nefnt Hverfell
á landakortum Landmælinga Is-
lands hefur verið vísað frá í Hæsta-
rétti.
Lokaskýrslu frestað
Aiþjóðaflugmálastofnunin hefur
frestað útgáfu lokaskýrslu um út-
tekt á starfsemi Flugmálastjórnar
þar til niðurstöður könnunar sam-
gönguráðherra liggja fyrir. Sturla
Böðvarsson óskaði eftir sérstakri
könnun á starfsemi stofnunarinnar
og Rannsóknamefnd flugslysa í
kjölfar gagnrýni á störf þessara
stofnana í tengslum við flugslysið í
Skerjafirði.
Borgin taki afstööu
Ólafur F. Magn-
ússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðis-
flokks, vill að borg-
arstjóm Reykjavík-
ur lýsi yfir and-
stöðu við Kára-
hnjúkavirkjun.
Ólafur leggur fram
tillögu þess efnis á fundi borgar-
stjómar á fimmtudag.
Tillögur um brottkast
Formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, Arnar Sigurmundsson,
kveðst sáttur við skýrslu nefndar
þar sem gerður var samanburður á
starfsumhverfi í sjó- og landvinnslu.
Arnar segir brýnt að tillögur nefnd-
arinnar um brottkast afla komist til
framkvæmda.
Heimsækir Pútín
Forseti Rúss-
lands, Vladimír
Pútin, hefur boðið
Ólafi Ragnari
Grímssyni forseta í
opinbera heimsókn
til Rússlands.
Heimsóknin er fyr-
irhuguð á næsta
ári. Forseti Islands hefur ekki áður
farið í opinbera heimsókn til Rúss-
lands.
-aþ