Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 22
26 d* Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson ÞRIDJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 DV X 85 ára Gunnþór Guðmundsson, Spítalastíg 3, Hvammstanga. Ingólfur Árnason, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavlk. 80 ára Eiríkur Elí Stefánsson, Hjúkrunarheimilinu Eir, 2.h. suöur, Hlíö- arhúsum 7, 112 Reykjavík, María Arnlaugsdóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavik. Sigvaldi Búi Bessason, Goöheimum 23, Reykjavik. 75 ára Sigríöur Guömundsdóttir, Sogavegi Vonarlandi, Reykjavík. 70 ára_________________________ Amalía Kristín Einarsdóttir, Engjavegi 16, Isafiröi. Birgir Sigurösson, Brimnesbraut 7, Ðalvík. Ingibjörg Rut Olsen, Torfnesi Hlíf 2, Isafiröi. 60 ára Baldur Þór Baldvinsson, Hjallabrekku 36, Kópavogi. Bergþór Guömundsson, Skúlagötu 76, Reykjavík. Dóra Erla Þórhallsdóttir, Sólheimum 27, Reykjavík. Einar Georg Einarsson, Reykjaskóla, Staöarhr., V-Hún. Eiríkur Pálsson, Hlíöarvegi 23, Hvammstanga. Guöleif Bára Andrésdóttir, Gunnlaugsgötu 12, Borgarnesi. Guömundur Jóhann Ólafsson, Skaftahlíö 31, Reykjavík. Gunnar Tryggvason, frá Arnarbæli, Fellsströnd, Ðalasýslu. Gunnar tekur á móti gestum að Krókabyggö 16 í Mosfellsbæ, milli kl. 17 og 20. Magnús Jóhannsson, Hraöastööum 4, Mosfellsbæ. Steinar Kjartansson, Austurvegi 23, Hrísey. 50j ara Anna Margrét Akadóttir, Úthliö 10, Reykjavlk. Guörún Kristinsdóttir, Smárahlíð 6e, Akureyri. Konráö Ásgrímsson, Huldubraut 16, Kópavogi. 40 ára Anna Birgitta Nicholson, Þverholti 11, Keflavík. Ágúst Lúðvíksson, Hringbraut 136k, Keflavík. Ásta Þórarinsdóttir, Suðurgötu 46, Keflavík. Ástríöur Hákonardóttir, Vesturbraut 12, Grindavík. Bjami Þór Ólafsson, Hjaltabakka 22, Reykjavík. Elfar Daöi Dagbjartsson, Litla-Saurbæ, Selfoss. Gísli Árnason, Hvannahlíð 4, Sauöárkrókur. Hafdís Rósa Bragadóttir, Dalbraut 39, Bíldudal. Halldór Garöarsson, Stekkjarhvammi 60, Hafnarfiröi. Hermann Agnarsson, Raftahlið 53, Sauöárkróki. Hrönn Fanndal, Hvanneyrarbraut 35, Siglufirði. Kjartan Sigurösson, Aftanhæð 2, Garðabæ. Kristinn Gunnarsson, Löngumýri 22c, Garöabæ. Magnús Þráinsson, Gautlandi 15, Reykjavík. Tómas Ásgeir Sveinbjörnsson, Skólavegi 48, Keflavík. Aðalheiður Hólm Þórarinsdóttir, frá Kollsvík, Rauöasandshreppi, lést á heimili sínu í Deltona á Flórída 9.6. Útförin hefur fariö fram. Maria Ragnarsdóttir, Gyöufelli 16 í Reykjavík, lést á heimili sínu 11.6. Matthildur G. Rögnvaldsdóttir, frá Hellissandi, Hrafnistu í Reykjavík, andaöist 13.6. Guöný Kristjánsdóttir, Rangárseli 18 í Reykjavík, veröur jarösungin frá Seljakirkju 19.6. kl. 15. Matthildur Siguröardóttir, Víöilundi 20, Akureyri, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju 19.6. kl. 13.30. Jónína Dýrleif Ólafsdóttir, Jens Bjelkegate 78, Ósló, Noregi, lést 15.5 sl. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju 19.6 kl. 15.00 Leifur Steinn Elísson aðstoðarframkvæmdastjóri Visa íslands Leifur Steinn Elísson er fimmtugur í dag Leifur Steinn Elísson, Silungakvísl 17, aðstoðarframkvæmdastjóri Visa íslands - Greiðslumiðlunar hf., er fimmtugur í dag. Starfsferill Leifur Steinn fæddist í Búðardal og ólst þar upp og einnig að Hrappsstöð- um í Dalasýslu. Hann var við nám í barnaskólanum í Búðardal og að Laugum í Dalasýslu. Leifur Steinn tók landspróf frá Reykjaskóla í Hrútafirði 1967 og stúdentspróf frá Menntaskól- anum að Laugarvatni 1971. Hann var við nám í viðskiptadeild Háskóla ís- lands 1971 til 1974. Fil. kand frá Lunds Universitet í Svíþjóð í hagfræði og skyldum greinum 1981. Leifur Steinn stundaði hefðbundin landbúnaðarstörf á unglingsárunum, vegavinnu, brúarvinnu og bankastörf á sumrin til tvítugs. Leifur Steinn var leiðsögumaður erlendra veiðimanna við Laxá í Döl- um 1974 til 1980. Hann starfaði á sjúkrahúsi í Svíþjóö samhliða náminu á árunum 1976 tÚ 1981. Eftir að hann kom frá námi kenndi hann einn vetur við Fjölbrautaskóla Suðurlands, síðan við sölu- og markaðsstörf hjá Aco hf. í Reykjavík 1982 til 1984, jafnhliða kennslustörfum viö Tölvuskólann Framsýn hf. Leifur Steinn vann við sölu- og markaðsstörf og fram- kvæmdastjórn Atlantis hf. 1984 til 1986. Leifur Steinn var ráðinn aðstoð- arframkvæmdastjóri Visa íslands í desember 1986. Fjölskylda Leifur Steinn kvæntist 27.9. 1975 Sveinbjörgu Júliu Svavarsdóttur, f. 18.5.1954, MA í félagsráðgjöf og yfirfé- lagsráðgjafa á endurhæfmgardeild Geðdeildar LSP - háskólasjúkrahúss. Hún er dóttir Svavars Júlíussonar kaupmanns og Unnar Kolbrúnar Sveinsdóttur, rannsóknarmanns hjá Iðntæknistofnun. Börn Leifs Steins og Sveinbjargar eru Elfa Dögg, f. 18.3. 1975, BA í sálar- fræði frá HÍ, rekstrarstjóri Samtaka auglýsenda, en hennar maki er Ómar Örn Jónsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri íslandsveija ehf. Sonur þeirra er Dagur Steinn, f. 16.12. 1999. Unnur Mjöll, f. 27.4.1979, stúdent frá FB, nemi í myndlist við listahá- skóla í New York en sambýlismaður hennar er Einar Þór Gústafsson, nemi í margmiðlun og skyldum greinum í New York. Sindri Snær, f. 12.6.1988 og Silja Ýr, f. 28.11. 1990. Systir Leifs Steins er Bjarnheiður, f. 13.5. 1954, starfsmaður Sjóvár-Al- mennra en hennar maki er Kári Stef- ánsson. Alvilda Þóra, f. 21.1. 1957, bankastarfsmaður og fyrrverandi bóndi að Hrappsstöðum í Dalasýslu en hennar maki er Svavar Jensson, húsasmíðameistari og fyrrverandi bóndi. Þau eru að bregða búi og flytja suður. Gilbert Hrappur, f. 23.9. 1959, vélamaður og verktaki í Búðardal en sambýliskona hans er Valgerður Ásta Emilsdóttir póstfulltrúi. Guðrún Vala, f. 28.11.1966, BA í mannfræði, uppeld- isfræði og kennsluréttindum, fyrrum skólastjóri í Laugagerðisskóla, nú grunnskólakennari í Borgarnesi. Hennar maki er Amþór Gylfi Árna- son, viðskiptafræðingur og starfsmað- ur Norðuráls. Foreldrar Leifs Steins eru Elís Gunnar Þorsteinsson, f. 5.7. 1929, fv. bóndi og vegaverkstjóri og Emilía Lilja Aðalsteinsdóttir, f. 12.1. 1934, húsmóðir. Þau eru búsett í Kópavogi. Ætt Elís Gunnar var sonur Þorsteins Gíslasonar, Ljárskógarseli, og Alvildu Maríu Friðriku Bogadóttur Sigurðs- sonar, kaupmanns frá Búðardal. Elís átti nokkur systkini, sem öll eru látin. Ragnar, lengst af kennari við Reykja- skóla. Hann átti m.a. Hrafn, útgerðar- mann á Ólafsfirði, Úlf, föður Karls Ágústs leikara og Hrein, mennta- skólakennara á Laugarvatni. Ingveld- ur á Vallá. Bogi Ingiberg, stundum kallaður faðir og afl körfubolta á ís- landi, yfirflugumferðarstjóri á Kefla- víkurílugvelli. Sigvaldi var lögfræð- ingur og starfaði m.a. hjá Verslunar- ráði. Gunnar var starfsmaður á Reykjalundi. Hálfbróðir sammæðra var Magnús Rögnvaldsson, vegaverk- stjóri í Búðardal. Hálfsystir samfeðra var Guðlaug Þorsteinsdóttir, gift Gesti Ólafssyni, menntaskólakennara á Ak- ureyri. Foreldrar Emilíu vora Aðalsteinn Baldvinsson, kaupmaður i Brautar-- holti 1 Dölum og Ingileif Sigríður Björnsdóttir, bónda í Brautarholti, Jónssonar. Móðir Ingileifar var Guðrún Ólafsdóttir, bónda á Vatni, Brandssonar og konu hans, Katrínar, systur Skarphéðins, föður Friðjóns, fv. ráðherra, og Pálma, fóður Guðmundar jarðeðlisfræðings og Ólafs, bókavarðar í Seðlabankanum. Katrín var dóttir Jóns, bónda í Stóra- Galtardal, Þorgeirssonar og konu hans, Halldóru Jónsdóttur, bónda á Breiðabólstað á Fellsströnd, Jónssonar. Systir Halldóru var Hólmfríður, langamma Ingibjargar, ömmu Ingibjargar Haraldsdóttur rithöfundar. Systir Halldóru var einnig Steinunn, langamma Auðar Eydal. Bróðir Halldóru var Þórður, langafi Friðjóns Þórðarsonar, sýslumanns í Dalasýslu, og Gests, föður Svavars sendiherra. Sjötugur Jón Reynir Magnússon fyrrverandi forstjóri SR-mjöls Jón Reynir Magnússon, efnaverk- fræðingur og fyrrverandi forstjóri, Þorragötu 5 í Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón Reynir varð stúdent frá MR 1951. B.S-próf í efnaverkfræði frá Rensselaer Polytechnic Institute I Troy, New York, 1956. M.S.-próf í matvælaiðnfræði frá Iowa State University í Ames, Iowa 1958. Lauk 9 mánaða framhaldsnámi í sölu og dreifingu matvæla við Cornell Uni- versity í Ithaca, New York 1960 á vegum OECD. Kennari við Iowa State University 1956-1958. Verk- fræðingur hjá Búvörudeild SÍS. 1958-1969. Forstöðumaður við gæða- eftirlit og þróun nýrra framleiðslu- vara hjá fiskverksmiðju Coldwater Seafood Corporation í Cambridge, Maryland 1969-1970. Ráðinn tækni- legur framkvæmdastjóri Sildarverk- smiðja ríkisins 1970 og fram- kvæmdastjóri þeirra 1971-1993. For- stjóri SR-mjöls hf. frá stofnun fyrir- tækisins 1. ágúst 1993, en þá yfirtók SR-mjöl hf. rekstur Síldarverk- smiðja ríkisins. Hætti störfum sem forstjóri vegna aldurs 1. ágúst 2000. Jón Reynir starfaði í ýmsum nefndum um sláturhúsamál á veg- um SÍS, Framleiðsluráðs landbún- aöarins og Framleiðnisjóðs land- búnaðarins. í stjórn efnaverkfræði- deildar VFÍ 1962 og í stjórn Stéttar- félags verkfræðinga 1967-1969. í Verðlagsráði sjávarútvegsins frá 1971. í stjórn Verðjöfnunarsjóðs flskiðnaðarins 1977 til 1990. í stjórn Lagmetisiðjunnar Siglósíldar 1973-1980. í stjórn Félags Isl. fisk- mjölsframleiðenda frá 1977 og for- maður stjómar 1977-1986. í ráð- gjafarnefnd Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins frá 1978 og í stjórn stofnunarinnar 1990-1994. f stjórn og ýmsum nefndum Alþjóðasam- bands fiskmjölsframleiðenda (The Intemational Association of Fish Meal Manufacturers, IAFFM. Nú IFOMA, International Fishmeal and Oil Manufacturers Association) frá 1973 og forseti samtakanna 1982- 1984. Félagi í Rotaryklúbbnum Reykjavík-Austurbær frá 1971, for- seti klúbbsins 1995-1996. Aðalræðis- maður fyrir Suður-Afríku á íslandi frá 1980. Fjölskylda Jón Reynir er sonur Magnúsar Jónssonar, f. 18.2. 1893 á Litlu-Heiði í Mýrdal, d. 8.4. 1971, húsasmíða- meistara í Reykjavík, og Halldóru Ásmundsdóttur, f. 8.4.1896 á Hnappa- völlum í Öræfum, d. 26.4. 1993, hús- móður í Vík í Mýrdal og í Reykjavík. Jón Reynir kvæntist, 11.6. 1955, Guðrúnu Sigríði Bjömsdóttur, f. 30.6. 1930 á Auðkúlu í Svínavatnshreppi, A-Hún. Guðrún Sigríður er stúdent frá MA 1951, húsmóðir í Reykjavík. Hún er dóttir Björns Stefánssonar, f. 13.3. 1881, d. 9.11. 1958, prests á Auð- kúlu og víðar, prófasts í Húnavatns- prófastsdæmi og seinni k.h. Vaigerð- ar Jóhannsdóttur, f. 26.4.1902, d. 29.3. 1980, á Húsabakka í Seyluhreppi í Skagaflrði. Börn Jóns Reynis og Guðrúnar Sigríðar eru Magnús Reynir, f. 22.10 1956 í Ames; Iowa í Bandaríkjunum, ljósmyndari i Reykjavík. K. (óg.) Bjarnveig Sigríður Guðjónsdóttir, f. 25.11. 1966, húsmóðir og kerflsfræð- ingur. Bam þeirra: Vala Rún, f. 27.11. 1996 í Reykjavík. Barn Magnúsar og Maríu Jónsdótt- ur, f. 9. 8. 1966, húsmóður og félags- ráðgjafa í Reykjavík, Jón Reynir, f. 2. maí 1990 í Reykjavík. Birna Gerður Jónsdóttir, f. 16.10. 1958 i Reykjavík, húsmóðir, hjúkrun- arfræðingur og ljósmóðir í Reykja- vík. Maki hennar er Guðlaugur Gíslason, f. 11.2.1956 í Reykjavík, tré- smiður. Börn þeirra: Guðrún Birna, f. 10.9. 1981 í Indónesíu, og Katrín Þorbjörg, f. 5.6. 1982 í Indónesíu. Sigrún Dóra Jónsdóttir, f. 22.7.1966 í Reykjavík, húsmóðir og kennari þar. M. Jóhann Gunnar Stefánsson, f. 21.4. 1964 í Reykjavík, frkvstj. í Reykjavík. Börn þeirra: Stefán Gunn- ar, f. 21.12.1990, Birna Sísí, f. 4.5.1998 og Inga Rannveig f. 20.12. 2000. í tilefni afmælisins tekur Jón Reynir á móti gestum á afmælisdag- inn í Versölum, Hallveigarstíg 1, kl. 17 til 19. Attatíu og fimm ára Svanhvít Unnur Ólafsdóttir húsfreyja Svanhvít Unnur Ólafsdóttir húsfreyja, búsett að Miðleiti 7 í Reykjavík, er 85 ára í dag. Starfsferill Svanhvít bjó lengst af á Suður- eyri við Súgandafjörð. Eiginmað- ur hennar var Páll Friðbertsson, f. 10.11. 1916, forstjóri og stofnandi Fiskiðjunnar Freyju á Suðureyri. Hann lést árið 1989. Fjölskylda Börn Svanhvítar eru Sævar Pálsson, f. 17.1. 1942, d. 1998. Gunnar Pálsson, f. 11.7. 1946, sam- býliskona hans er Hafdís Pálma- dóttir. Þau reka efnalaug. Gunnar á tvö böm; Pálma Þór og Svan- hvíti. Hafdís á tvær dætur; Lindu Björgu og Hrafnhildi Heiðu Þor- grímsdætur. Friðbert Pálsson, f. 28.4. 1951, framkvæmdastjóri Góðra stunda. Hann er kvæntur Margréti Theódórsdóttur skóla- stjóra. Þau eiga tvo syni; Guð- mund Pál og Theódór. Leo Páls- son, f. 22.7. 1955, sölustjóri mynd- banda hjá Háskólabíói. Hann er kvæntur Ingunni M. Þorleifsdótt- ur hárgreiðslumeistara. Þeirra börn eru Fannar og Unnur Ósk. Svanhvít ætlar að vera í hús- mæðraorlofi á afmælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.