Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Page 28
FRETTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Verðbólga í 9,1% - aðhaldssemi er lykilatriði, telur Pétur H. Blöndal Þjóðhagsstofnun gaf út endur- skoðaða og kolsvarta skýrslu um framvinduna í þjóðarbúskapnum á þessu ári. Þar segir að verðlagshorf- ur hafi versnað til muna að undan- fómu. Nú er talið að verðbólga gæti orðið 9,1% frá upphafi til loka þessa árs og 6,5% milíi áranna 2000 og 2001. Verulega hægir þó á verðbólgu- hraðanum eftir því sem á árið líður og á næsta ári er reiknað með 3,5% verðbólgu frá upphafi til loka árs. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, segir erfitt að setja einhvem sérstakan lit á þessa spá. í henni séu bæði dökkar og ljósar hliðar. „Aðalatriði er að það eru horfur á að umsvif í þjóðarbúinu og vöxtur útgjalda og hagvaxtar verði mun hægari á þessu og næsta ári.“ „Skýrslan er því miður í sam- ræmi við það sem maður gat búist við. Það er alltaf að staðfestast betur að mikil og margvíslegt mistök hafa verið gerð í hagstjórninni undanfar- in ár. Þetta hefur leitt okkur í þá stöðu sem ekki þýðir lengur að af- neita. Menn lentu út á kantinn á ár- unum 1998 og 1999 og nú eru vagn- k> inn kominn með önnur hjólin útaf. Það þýðir ekkert fyrir bílstjórann, sem var mjög hróðugur af sínum Proskaþjálfar: Þokast Annar fundur launanefndar sveit- arfélaga og þroskaþjálfa var haldinn í gær. Að sögn Guðnýjar Stefánsdóttur gætir nokkurrar bjartsýni eftir fund- inn. Guðný segir hins vegar að við- ræður þroskaþjálfa við Reykjavíkur- borg þokist ekkert. „Því miður var enginn árangur af þeim fundi og lítið tilefni til bjartsýni," sagði Guðný í samtali við DV í morgun. 43 þroska- þjálfar hjá Reykjavíkurborg hafa ver- ið í verkfalli frá 18. maí sl. m Þroskaþjálfar efna í dag til útifund- ar við Þvottalaugamar í Laugardal. Á fundinum, sem hefst kl. 17, verða flutt ávörp og listamenn koma fram. -aþ Féll 30 metra Mikil mildi þykir að ekki urðu slys á mönnum þegar byggingarkrani við Vatnsfellsvirkjun féll á annan bygg- ingarkrana í gærkvöld. Einn maður var innanborðs í krananum þegar óhappið varð og féll hann 30 metra og hafnaði ofan í skurði. Maðurinn hlaut mar við fallið en slapp að öðru leyti við meiðsl. Annar virkjunarstarfs- maður náði að forða sér undan á hlaupum. Kraninn gjöreyðilagðist við fallið en tildrög óhappsins eru ókunn. Liklegt er þó talið að undirstöður hafi gefið sig. Lögregla og Vinnueftirlit ríkisins hafa málið til rannsóknar. -aþ Guöjón Arnar Pétur H. Blöndal. Kristjánsson. akstri á meðan allt lék í lyndi, að kenna nú farþeg- unum í aftursætinu um útafakstur- inn.“ segir Steingrímur J. Sigfússon formaður VG. „Mér sýnist þetta þýða að það megi ganga vel það sem eftir er ársins til að verðbólgan nái því að vera innan við tíu prósent." „Það eru margar vísbendingar til þess að kostnaður fari hækkandi og þar af leiðandi muni verðbólgan fylgja með. Ég hef mestar þó mestar áhyggjur af skuldum fólks. Heimilin eru verulega skuldsett. Aukin verð- bólga eykur greiðslubyrgði fólks og þetta er því mikið áhyggjuefni. Þá er útgerðin líka verulega skuldsett svo afleiðingamar geta orðið slæmar. Við verðum auðvitað að vona að þetta verði tímabundið ástand," seg- ir Gpðjón Amar Kristjánsson, þing- maður Frjálslyndaflokksins. Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir að þetta sé skammtímaskot út af gengisfelling- unni. „Hún er að mínu mati of mik- il þó það kunni að vera að þetta yf- irskot festist í sessi vegna sálfræði- Stelngrímur J. Sigfússon. Friojonsson. legra áhrifa. Van- traust fólks verði meira en efni standa til. Það getur því verið að of lágt gengi festist í sessi og valdi skammtíma verðbólgu. Það sem ég hef heyrt af forsendum um við- skiptahalla, þá sé ég ekki annað en að Hann eigi að hjaðna af sjálfu sér. Honum er ekki lengur haldið uppi með ríkisábyrgð og sá hluti þjóðar- innar sem eytt hefur gífurlega mik- ið um efni fram er í því núna að borga niður skuldir. Hann er bara búinn með kvótann sinn og hefur ekki lengur veð eða ábyrgðir til að halda áfram að auka skuldir með kaupum á jeppum eða öðru slíku. í því sambandi þarf að benda á að nú fara að aukast kröfur um ábyrgðar- menn og uppáskriftir. Ég vara skyn- sama íslendinga við að skrifa upp á fjárhagsskuldbindingar í þessari stöðu. Sama hvað á dynur. Ég sé hinsvegar engar forsendur til ann- ars en að staðan ætti að batna á næsta ári,“ segir Pétur H. Blöndal. - Sjá nánar bls. 8 - HKr. Ferðamálastjóri um Reykjavík: Brestir í ferða málaímynd Magnús Oddsson. Magnús Oddsson ferðamálastjóri seg- ir að brestir séu að koma í þá ímynd ís- lands, og þá eink- um Reykjavíkur, að hér sé öruggt fyrir ferðamenn að koma. Þar vísar hann til frétta, einkum frá liðinni helgi, þar sem m.a. var ráðist á ferða- menn frá Suður-Ameríku. Magnús segir reyndar ekki skipta máli hvort fréttir um ofbeldi snúist um öryggi innlendra borgara eða erlendra gesta - meginmálið sé að sú ímynd sem ís- lendingar hafa talið sig geta haldið fram um öruggt land sé ekki sú sama og áður var. Ferðamenn vilji ekki heimsækja lönd þar sem þeir efast um eigið öryggi. Inga Jóna Þórð- ardóttir borgarfull- trúi segist hafa heyrt gagnrýni frá fólki í ferðaþjón- ustu að miðborg Reykjavíkur sé ekki eins hrein og menn vildu hafa hana. „Morgnarnir eru ekki eins fallegir og áður var.“ „Meginatriðið er að við eigum að tryggja öryggi fólks,“ sagði Inga Jóna „Aðalsmerki okkar hefur verið að við höfum talið okkur óhætt hvenær sem er, mér finnst miður ef það er að breytast. Við verðum að skoða hvað er til ráða,“ sagði Inga Jóna. Ekki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu Gisladótt- ur borgarstjóra. -Ótt Inga Jóna Þórðardóttir. ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 Engar blöörur! Barn með blöðru fær ekki inngöngu í Hallgrímskirkju. Hallgrímskirk j a: Blöðrur á bannlista Bannað var að fara með gasblöðrur inn í Hallgrímskirkju á þjóðhátíðar- daginn, 17. júní. Var ákvörðun um þetta tekin af ótta kirkjuvarða og presta við að böm myndu sleppa blöðr- unum inni í kirkjusalnum og þær svífa upp í rjáfur. Þangað eru 25 metr- ar. „Þá heíðum við þurft að taka fram loftbyssuna og skjóta blöðrumar nið- ur. Það er ekki við hæfi að vera með skotvopn í kirkjum," sagði Kristján Þór Sverrisson kirkjuvörður sem stóð vaktina á 17. júní. „Hingað komu um 3000 manns á þjóðhátíðardaginn og menn geta gert sér í hugarlund hvem- ig ástandið hefði orðið ef aðeins brot af þessum fjölda hefði misst blöðrumar upp í loft. Það hefúr að vísu aldrei gerst hér en við sáum þetta fyrir,“ sagði Kristján Þór kirkjuvörður. Fyrir bragðið gripu margir foreldr- ar til þess ráðs að geyma blöðrar bama sinna í barnavögnum og kerrum á meðan á kirkjuheimsókn stóð og í nokkrum tilvikum var blöðmnum stolið: „Dóttir mín brast í grát þegar við komum út úr kirkjunni og henni varð Ijóst að blaðran var á burt. Við þurft- um að ganga aftur niður í bæ og kaupa aðra.“ -EIR Rafmagnað kvennahlaup á Vestfjörðum: Hárið stóð allt út i loftið Átján konur, sem þreyttu kvenna- hlaupið á Patreksfirði 16. júni, stóðu allt í einu frammi fyrir þeirri stað- reynd að hárið á þeim öllum stóð stíft út i loftið. Var hlaupið þá rétt hálfnað: „Við vorum eins og teiknimynda- fígúrur og gátum vart hlaupið fyrir hlátri. Við hófum hlaupið í góðu veðri við saumastofuna Strönd með stefnuna á Amarbílaá. Allt i einu skall á okkur skúr og í framhaldinu stóð hárið á okkur í allar áttir. Fyrir tilviljun erum við allar stuttklipptar, annars hefðum við litið út eins og geimverur," sagði Silja Björg Jó- Kvennahlaupskonur gátu vart hlauplð fyrir hlátri. hannsdóttir em var í hlaupahópi vestfirsku kvennanna. Ari Trausti Guðmundsson veður- fréttamaður segir fyrirbærið það sama og þegar fólk nuddar ull við greiðu og myndar við það rafmagn. Stöðurafmagn myndast í loftinu vegna mikilla hræringa sem verða við myndun skúraskýsins sem var yfir konunum og sjálfar eru konurn- ar rafmagnaðar þar sem þær hlaupa margar hverjar í fötum úr gerviefn- um: „Þegar þessum rafhleðslum lýst- ur svo saman lyftist það sem léttast er - hárið,“ sagði Ari Trausti. „Þetta veðurfar hélt áfram því dag- inn eftir sá ég að tíkin min stóð með feldinn stífan út í loftið. Það var eins og henni hefði verið stungið í sam- band,“ sagði Silja Björg, hlaupakona á Patreksfirði. -EIR Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 Kemísk WC / frá 10.900 Grensásvegi 3 s: 533 1414

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.