Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Blaðsíða 25
29 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 I>V Tilvera Bíófréttir MS Vinsælustu myndirnar í Bandaríkjunum: Lara Croft á marga aðdáendur Það var búist við hörkukeppni' á milli tveggja kvikmynda um síðustu helgi. í boði voru Tomb Raider, æv- intýrakvikmynd þar sem vakin er til lífsins ein mesta tölvuleikja- hetja nútímans, Lara Croft, og Disney-teikni- myndin Atlantis. Atl- antis fékk mun betri viðtökur hjá gagn- rýnendum en það dugði ekki, Lara Croft burstaði Disney þrátt fyrir að gagnrýnendur væru nánast sammála um að myndin væri endaleysa sem engan botn væri hægt að fá í. Þeir voru þó sammála um að það væri þess virði að sjá myndina vegna Angelinu Jolie. Einn lét svo ummælt að Lara .Croft HELGIN 15. . 17. júní Tomb Raider Angelina Jolie í hlutverki Löru Croft. í meðfórum hennar væri draumur hvers karlmanns. Um mynd- ina sjálfa sagði annar gagnrýnandi að spenn- an væri i slíku lág- marki að það væri meira gaman að horfa á einhvern leika sér með tölvuleikinn en að horfa á myndina. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar Atlant- is um hina týndu borg í Atlantshafmu sem í áranna rás hefur verið rithöf- undum og kvikmyndagerðarmönnum óþrjótandi brunnur ævintýra. Að öðru leyti er allt hefðbundið á listan- um, Shrek nálgast 200 milljón dollara markið og Pearl Harbor er enn i sæmilegri aðsókn þó ekki sé hún jafn- vinsæl og Shrek. -HK ALLAR UPPHÆÐIR I PUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA titill INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O _ Tomb Raider 47.735 47.735 3308 O 13 Atlantis: The Lost Empire 20.342 20.843 3011 O 2 Shrek 13.181 197.528 3317 O 1 Swordfish 12.725 39.779 2688 o 3 Pearl Harbor 9.859 160.358 3140 o 4 Evolution 6.615 25.562 2613 o 5 The Animal 5.804 45.471 2741 o 6 Moulin Rouge 5.030 36.629 2091 o 7 What’s the Worst That Could.... 3.007 27.723 1927 © 8 The Mummy Returns 2.701 193.482 1777 © 11 Memento 733 18.425 398 © 9 A Knight’s Tale 715 54.286 925 © 10 Bridget Jones’s Diary 696 68.676 666 © 16 With a Friend Like Harry... 384 2.537 220 © _ Lagaan 245 245 34 © 14 Along Came a Spider 194 72.752 308 © _ The Anniversary Party 186 356 16 © _ Sexy Beast 170 214 9 © 15 0 Brother, Where Art Thou? 166 44.938 274 © h —: The Golden Bowl 162 1.968 101 Vinsælustu myndböndin: Raunir hjúkr- unarfræðings SÆTI Q o o o o o Q Q Q © 0 0 ftt. FYRRI VIKA Meet the Parents fer beint í efsta sæti myndbandalistans þessa vikuna. Um er að ræða eina vinsælustu gam- anmynd ársins. Fjallar hún um stirt samband tilvonandi tengdafóður og tengdasonar og þykja þeir Robert De Niro og Ben Stiller fara á kostum í hlutverkum sínum. Ben Stiller leikur Greg Focker sem er að læra að verða hjúkrunarfræðingur og er í góðu ást- arsambandi við Pam Byrnes (Teri Polo). Dag einn ákveða þau að heim- sækja foreldra hennar. Greg hefur verið að manna sig upp í að biðja hennar en Pam kemur honum í skilning um að hann verði að biðja pabba hennar um leyfi. Pam hefur alla tíð sagt að pabbi hennar sé fyrr- um blómasali sem nú sé sestur í helgan stein og telur Greg að karl- inn geti nú varla verið mikill á velli. Þegar á leiðarenda er komið mætir honum ógnvekj- andi sjón sem er Jack Byrnes (Robert De Niro) því það er aug- ljóst frá fyrstu kynnum að hann er ekki allur þar sem hann er séður. Eftir þetta rekur hvert óhappið annað þegar aumingja Greg reynir að ganga í augun á verðandi tengdafor- eldrum. -HK © - Meet the Parents Greg (Robert DeNiro) hittir titvonandi tengdason (Ben Stiller). VIKUR ÁUSTA 1 2 4 3 2 3 5 1 7 5 4 9 5 4 7 1 8 5 10 6 TITILL (DREIFINGARAÐIU) Meet the Parents isam myndbönd) The 6th Day (SKífan) 0 Brother, Where Art Thou iháskólabíó) The Family Man (sam myndbönd) The Replacement isam myndböndi Llttle Nicky (MYNDFORM) Bedazzled (skífan) Urban Legends: The Flnal Cut (skífani Charlie’s Angels iskífani Bring It On <sam myndbönd) Space Cowboys <sam myndböndi 10 Art of War (myndform) 11 Dr. T and the Women (myndformi 12 Woman on Top (skífan) 14 Gun Shy (am myndbönd) _ Girlfight (GÓÐAR STUNDIR) Saving Grace (háskólabíó) _ Red Planet (sam myndböndj 13 What Lies Beneath iskífan) 15 Shriek If You Know What (MYNDFORM) Athafnamaöurinn Guðmundur Sigurðsson „/ umræöum á götuhornum hér í bænum hafa menn stundum veriö aö velta því fyrir sér hvaöa atvinna geti staöiö á bak viö hina miklu fjölgun íbúa hér á undanförnu árum ... Þjónustustarfsemi í bænum hefur stórlega aukist, gestir í sumarhúsunum fimm þúsund sem eru hér í kring veita alveg ótrúlega mörgum vinnu. “ Fossmenn selja lóðir í Fosslandinu á Selfossi sem eru eftirsóttar: Fara á skemmri tíma en ætlað var - helmingur íbúa í hverfinu aðfluttur, segir Guðmundur Sigurðsson Mikil og hröð uppbygging hefur verið að undanfórnu i svonefndu Fosslandi á Selfossi þar sem kapp- samir húsbyggjendur hver á fætur öðrum reisa nú hús á eignarlóðum þeim sem Fossmenn ehf. selja. Gert er ráð fyrir um 350 lóðum i hverfinu öllu og að sögn Guðmundar Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra Foss- manna, hefur um helmingur lóð- anna verið seldur nú þegar. Sala lóðanna allra átti að taka um tíu ár en fyrirsjáanlegt er nú að þær fari allar á helmingi skemmri tíma en ætlað var í fyrstu. Spár gera ráð fyr- ir að íbúar í hinu nýja hverfi full- byggðu verði rúmt þúsund. Umhverfið er ægifagurt Uppbygging hverfisins hófst fyrir um ári en Fosslandið er sunnan Sel- fosskirkju og svonefndra Fossbæja og þar niður með Ölfusá. Umhverfið þykir ægifagurt og margar lóðanna hafa verið mjög eftirsóttar, ekki síst þær sem standa á bökkum árinnar. Það eru jafnframt lóðirnar sem Fossmenn selja hæstu verði. Eigna- lóðir eru nýlunda i lóðaúthlutunum á Selfossi - þar sem stefnan hefur til skamms tíma verið sú að bærinn eigi lóðirnar og leigi svo út. Jafnað- arverð lóða í Fosslandinu er í kring- um hálf milljón kr. „í fyrsta áfanga Fosslands eru 120 lóðir og þær fóru mjög fljótt. Það voru mest einbýlis-, rað- og par- húsalóðir sem og lóð fyrir eitt fjöl- býlishús. í öðrum hluta hverfisins, sem við erum nú að úthluta lóðum úr, eru um 120 lóðir og mér sýnist að um helmingur þeirra sé farinn nú þegar,“ segir Guðmundur. Fjórt- án fyrirtækjalóðir eru einnig í hverfinu og hefur níu þeirra verið úthlutað nú þegar - sumum raunar til stórtækra manna sem þurftu gott betur en eina lóð undir sína starf- semi. Þar má nefna Húsasmiðjuna sem nýlega opnaði 4.400 fermetra verslun við neðanverðan Eyraveg. Þar ekki langt frá hefur Olíufélagið hf. fest sér lóð fyrir bensinstöö sem opnuð verður næsta haust. Árvirk- inn er kominn með lóð á svipuðum slóðum, rétt eins og Gunnar B. Guð- mundsson, kaupmaður í Horninu. Um áhuga fyrirtækja á því að byggja upp aðstöðu sína við neðan- verðan Eyrarveg segir Guðmundur hann meðal annars vera vegna þess að fyrirsjánlegt er að nýr Suður- strandarvegur frá Grindavík til Þor- lákshafnar komi á allra næstu árum. „Það hlýtur aftur að auka umferð inn í bæinn úr suðri þannig að menn eru að hugsa fram í tím- ann en ekki aðeins um líðandi stund þegar byggt er á þessum stað í bænum“. Hálfl í hálft og hópur úr Eyjum Nýlega hefur verið lagt malbik á fyrstu göturnar í Fosslandi, það er Fossnes, Fosstún og Sóltún. Aðrar götur í hverfinu eru Langamýri, Fagramýri og Kringlumýri og Lækj- arbakki, Hellubakki, Árbakki og Laxabakki. Húsin í hverfinu hafa verið að rísa hvert á fætur öðru og það er ekki sist aðkomufólk sem byggir í Fosslandinu með það fyrir augum að eiga sér þar samastað í tilverunni. „Ég gæti trúað því að hlutföllin væru svona hálft í hálft,“ segir Guð- mundur Sigurðsson. „Að helmingur ibúanna hér væri fólk sem hér hef- ur búið fyrir - en hin helftin sé fólk sem kemur annars staðar frá, til dæmis út sveitunum, margir koma frá Vestmannaeyjum og einnig nokkur hópur úr Reykjavík. Það er fólk sem ætlar sér að keyra úr og í vinnu til Reykjavíkur og sér þá beinlínis hag í því að búa hér í streituminna samfélagi. Þar sem vegalengdir innanbæjar eru skemmri og ekki þarf að keyra krakkana úr og í skóla. í mörgum tilvikum útheimtir þetta í Reykja- vik að tveir bílar séu til á heimilinu og annar makinn jafnvel bundinn í skólaakstri alla daga. Hér getur við- komandi hins vegar verið úti á vinnumarkaðnum og einn bíll dug- að. Ábatinn er margháttaður." Aldrei nein skakkaföll og sveiflurnar lltlar Samkvæmt nýjustu tölum Hag- stofu íslands eru íbúar í sveitarfé- laginu Árborg nú 5.886 - og þar af á Selfossi um 4.860. Á tímabilinu jan- úar til mars sl. fjölgaði íbúunum um 35 og má ætla að meginhluti þeirrar fjölgunar sé á Selfossi. „í umræðum á götuhornum hér í bænum hafa menn stundum verið að velta því fyrir sér hvaða atvinna geti staðið á bak við hina miklu fjölgun íbúa hér á undanfornum árum. Spurningin er áhugaverð, ekki síst í ljósi þess að þau fyrir- tæki sem löngum voru hér burðar- ásarnir í atvinnulífinu, Kaupfélag Árnesinga og Mjólkurbú Flóa- manna, eru gjörbreytt frá því sem var áður og veita færri atvinnu. En á móti kemur hins vegar að þjón- ustustarfsemi í bænum hefur stór- lega aukist, gestir í sumarhúsunum fimm þúsund sem eru hér í kring veita alveg ótrúlega mörgum vinnu. Sömuleiðis hefur Selfoss byggst mikið upp sem skólabær og margir hafa atvinnu af því. Hér hafa með öðrum orðum aldrei komið nein skakkaföll í atvinnulífinu og sveiíl- urnar verið minni, sama til hvorrar áttar sem það er.“ Raunverulegt úthverfi austan fjalls En hver eru brýnustu hagsmuna- mál Selfossbúa, nú þegar íbúum þar fjölgar ört og uppbygging í bænum er mikil. Hjá Guðmundi Sigurðs- syni er ekkert hik í huga þegar hann svarar því til að lýsing vegar- ins yfir Hellisheiði hljóti þar að vera efst á blaði. Á útmánuðum vetrar stóðu Guðmundur og félagi hans Sigurður Jónsson fyrir söfnun undirskrifta á sjötta þúsund ein- staklinga sem skoruðu á stjórnvöld að fara í þessar framkvæmdir hið fyrsta. Segist Guðmundur vera mjög vongóður um að af þessum fram- kvæmdum verði strax í haust og segir yfirlýsingar Árna Johnsens, þingmanns Sunnlendinga og for- manns samgöngunefndar Alþingis, á aðalfundi SASS á aðalfundi Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga nú nýverið til marks um það. „Upplýst Hellisheiði hefði afskaplega mikið að segja og myndi svo sannarlega gera Selfoss og aðrar byggðir hér fyrir austan fjall að raunverulegu úthverfi. Hugarfarið og betri bílar hafa stytt þessa leið mikið á undan- förnum árum og upplýstur vegur myndi gera það enn frekar." -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.