Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001
r>v
Frelsum Milosevic
Stuöningshópar fyrir meinta stríös-
glæpamanninn Milosevic hyggjast
verja hann ásökunum Nató.
Vilja verja sak-
lausan Milosevic
Kanadíski lögfræðingurinn
Christopher Black, leiðtogi alþjóð-
legra stuöningssamtaka Slobodans
Milosevic, segir Júgóslavíuforset-
ann fyrrverandi vera blásaklausan.
Auk þess séu sannanir um fjölda-
grafir grunsamlegar. Hann segir
Serba og bandamenn þeirra víða
um heim munu verja Milosevic fyr-
ir ákærum Nató.
Black hitti Milosevic i fangelsi
Stríðsglæpadómstólsins í Haag í
byrjun vikunnar. Hann sagöi forset-
ann fyrrverandi vera hvergi af baki
dottinn. Fregnir um yfirvofandi
sjálfsmorð hans væru uppspuni.
Alþjóðleg samtök um vörn Milos-
evic voru stofnuð i mars síðastliðn-
um. 24 menntamenn stofnuðu sam-
bærileg samtök í Búlgaríu fyrir
tveimur dögum.
FBI spáir fleiri
hryðjuverkum
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
spáir því að stórar hryðjuverkaárás-
ir verði gerðar á bandaríska aðila
erlendis á hverju ári næstu fimm
árin. Þá segir hún yfirvofandi að
hryðjuverkamenn beiti gjöreyðing-
arvopnum í Bandaríkjunum. Með
gjöreyðingarvopnum er átt við efna-
vopn, sýklahernað eða kjamorku-
vopn. FBI berast 25 hótanir um
hryðjuverkaárásir á hverjum degi.
Síðastliðið árið hefur beiting gjör-
eyðingarvopna verið hótað 257 sinn-
um. Helst er óttast að Osama bin
Laden láti til skarar skriða.
Skæruliðar skjóta
við vör u narskotu m
Hápunktur göngutímabils mót-
mælenda í Óraníureglunni verð-
ur í dag. Mikill viðbúnaður er
viðhafður af lögreglu og breska
hernum. Til átaka kom í gær-
kvöldi á milli öryggissveita og
mótmælenda í bænum Porta-
down. Einnig kom til átaka þar í
fyrra á sama tímabili.
Lögregla og her sprautuðu
vatni með háþrýstibyssum og
skutu plastkúlum að mótmælend-
um til að dreifa mannfjöldanum.
Átökin hófust þegar lögregla og
hermenn stöðvuðu mótmælendur
þegar þeir reyndu að vinna
skemmdarverk á eignum kaþ-
ólikka. Mótmælendur hófu þá að
henda bensínssprengjum, grjóti
og hvellhettum að lögreglu- og
hermönnum. Auk þess var einni
sprengju fleygt að þeim.
Forsvarsmenn mótmælenda
kvörtuðu undan ruddaskap lög-
reglunnar eftir að hún gerði hús-
leit að bensínsprengjum á heimil-
um mótmælenda í Portadown.
Þeir telja að réttur fólksins hafi
Viðvörunarskot
Frelsishermenn Uister skjóta hér upp í loftiö
á brennu í Belfast.
verið brotinn vegna eins eða
tveggja manna sem hent hafi slík-
um sprengjum.
í Belfast sýndu hryðjuverka-
menn í tveim mismunandi fylking-
um styrk sinn. Þeir komu fram á
brennum mótmælenda og lýstu því
yfir að þeir væru viðbúnir því að
fara í stríð við IRA ef þeir fara að
láta kræla á sér á ný. Auk þess
gagnrýndu þeir hversu mikla lin-
kind IRA og kaþólikkar fengju í
friðarferlinu á Norður-lrlandi á
kostnað mótmælenda. Að því
loknu skutu þeir úr skammbyssum
og litlum vélbyssum upp í loftið til
að undirstrika orð sin.
Að minnsta kosti 19 göngur
fara fram í dag sem ber dagsetn-
ingu sigurs mótmælenda á kaþ-
ólikkum í orrustu sem átti sér
stað fyrir mörgum öldum.
Nokkrum göngum hefur verið
bannað að fara í gegnum hverfi
kaþólikka, eitthvað sem mótmæl-
endur eiga erfitt með að sætta sig
við. Búist er við vandræðum þess
vegna og er viðbúnaður mikill.
Hannelore fylgt til grafar
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, sést hér ásamt tengdadóttur sinni, Elif, vinum og vandamönnum fylgja
konu sinni Hannelore til grafar. Hannelore framdi sjálfsmorö í seinustu viku eftir aö hafa þjáöst af Ijósofnæmi og
verkjum vegna þess undanfarin ár. Uósofnæmiö olli því aö Hannelore þurfti aö búa í myrkvuöum herbergjum 15
mánuöi á ári. Sonur þeirra hjóna, Walter, sést þerra tárin fyrir aftan Kohl.
^öötoupsveislur — úfcamtomur—skemmtanlr—tóntoítor—sýníngar—kynnJngor og fl. og <1. og fi.
i
Riscröjðtci
&
- mhhtjöld.
..og ýmsir fylgihlutir
Ekkl freysta á veðrið þeqar
skiputeggja á eftírminnilegan vlðburð -
Tryggíð yWcur og leiglð stórt fjald á
staðtnn - það marg borgar sig.
Tjöld af öHum sfœrðum
frá 20 - 700 m*.
Leígjum einnig borð
og stóla I tjöldin.
slml 550 9800 • fax 550 9801 • bU@*coutJs
Bandaríkin deila
um fósturvísa
Miklar umræður eiga
sér nú stað í Bandaríkjun-
um vegna frétta um að vís-
indamenn hjá einkareknu
frjóvgunarfyrirtæki hafi
ræktað mennska fóstur-
vísa eingöngu til að
stunda á þeim stofnfrumu-
rannsóknir.
George W. Bush Banda-
ríkjaforseti ætlar að hitta
líftæknisiðfræðinga, bæöi
með og á móti stofnfrumu-
rannsóknum, til að ræða
málið. Ríkisstjórn Bush þarf að
ákveða hvort fjármagna á slíkar
rannsóknir. Bush er sjálfur á móti
fóstureyðingum.
Tom Daschle, leiðtogi
bandarísku öldungadeild-
arinnar, hvatti i gær Bush
til að hefja fjármögnun á
rannsóknum af þessu tagi.
Hins vegar hafa trúarleið-
togar og íhaldsmenn í
Bandaríkjunum lagst mjög
gegn rannsóknum á fóstur-
vísum.
Stofnfrumur er aðeins
að finna í fósturvísum.
Þær eru ósérhæfðar og
geta því vaxið í hvaða
frumur sem er, s.s. húðfrumu eða
taugafrumu. Vonast er til að rann-
sóknir á frumunum geti leitt til
lækninga á ýmsum sjúkdómum.
Tom Daschle
Leiötogi demókrata
styöur rannsóknir.
HK<’
Áhorfandi
skakkafóllum þegar áhorfandi
reyndi að fremja harakiri. Gjörning-
urinn er hefðbundin sjálfsmorðsað-
ferð samúræja, þýðir magarista.
Sígaunar fari frá Noregi
Búlgörsk yfirvöld hafa ákveðið að
taka aftur við 650 þarlendum
sígaunum sem komu til Noregs í
júní og leituðu þar pólitísks hælis.
Þeir hafa búið í tjöldum og bröggum
fyrir utan Ósló síðan þeir komu.
Vietnömum fjölgar ört
Víetnömsku þjóðinni mun fjölga
um eina milljón á hverju ári næsta
áratuginn. íbúar landsins eru nú
um 80 milljónir.
Mótmælt kínverskum ÓL
Borgimar fimm sem keppa um að
halda Ólympíuleikana árið 2008
lögðu fram lokaumsókn i morgun.
Peking þykir standa vel að vígi, en
því hefur verið mótmælt mikið
vegna mannréttindamála í Kina.
Ákvörðun Alþjóða Ólympíunefndar-
innar er væntanleg á morgun.
Kóngur aftur til valda
Bnæsti forsætisráð-
andi konunglegur
valdhafi i austantjaldslöndum Evr-
ópu nær völdum aftur.
Gallabuxnaklædd kona
Kona sem klædd var í gallabuxur
og bol olli uppnámi á þingi
Marokkó í gær. íslamskir þingmenn
töldu konuna reyna að forfæra sig.
Hún starfar við að taka myndir fyr-
ir sjónvarpsstöð.
Berlusconi í mál við blað
Silvio
Berlusconi, mold-
ríkur forsætisráð-
herra Italíu,
hyggst lögsækja
breska vikublaðið
The Economist fyr-
ir andvirði meira
en 90 milljóna króna. Hann segh-
blaðið hafa rógborið sig fyrir þing-
kosningarnar í vor.
í mál við Coca Cola
Fjölskylda 19 ára kanadísks pilts
sem kramdist til bana undir
gossjálfsala fyrir tveimur árum ætl-
ar í mál við Coca Cola og fleiri.
Mótmælt morðum ETA
Þúsundir Spánverja mótmæltu í
gær morðum basknesku hryðju-
verkasamtakanna ETA. Lögreglu-
maður lést í bílsprengju í gær.
Dóttir Chiracs yfirheyrð
Dóttir Jacques Chiracs Frakk-
landsforseta var yfirheyrð af rann-
sóknardómurum í meintu spilling-
armáli forsetans. Hann er sagður
hafa nýtt sér opinbert fé í dýrar or-
lofsferðir fjölskyldunnar.