Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 Fréttir I>V Byggingarefni tekið út í nafni Þjóðleikhússins og sent til Vestmannaeyja: Starfsmaður Byko klagaði þingmann - sem strikaði út nafn leikhússins. Mistök, segja Árni Johnsen og yfirmenn Byko V4 Stefán Baldurs- son. Þann 2. júlí sl. barst söludeild Byko á Skemmuvegi 2 pöntun á byggingar- efni fyrir rúmlega milljón króna. Þar var um að ræða yfir 2.500 metra af panO auk þilullar, burðarefnis, hefta og ýmislegs þess er þarf til að byggja hús frá grunni. Pöntunin var gerð í nafni Þjóöleikhússins og í skýringu neðst á tiltektarseðli segir að það sé v/leikmunageymslu og GSM-sími Áma Johnsens alþingismanns skráð- ur á seðilinn. Þegar pöntunin hafði verið tekin til mætti alþingismaður- inn í Byko með flutningabíl frá Vöru- bílastöðinni Þrótti. Þegar hluti af efn- inu var komið upp á pall tók Árni til við að endurmerkja vöruna. í stað þess að skráður móttakandi og eig- andi væri Þjóð- leikhúsið, Lindar- götu 7,101 Reykja- vík, skrifaði hann, Ámi Johnsen, Vestmannaeyjum. Sölumaðurinn sem tók niður pöntunina af Áma var á staðnum og passaði upp á að pöntunin kæmist öll tO skOa. Ekið var með byggingarefnið í flutningamiðstöðina Flytjanda þaðan sem það var sent tO Þorlákshafnar með bíl en áfram með Herjólfi til Vest- mannaeyja. Þegar þangað kom var efninu, sem kostaði rúmlega milljón króna, komið fyrir á lóð Árna þar sem hann hefur byggt veglegt hús úr bjálkum og er að reisa grillskála í garðinum. Starfsmönnum Byko var bmgðið þegar efnið var merkt upp á nýtt að þeim ásjáandi. „Þetta var ótrúlega bíræfið. AOir þekkja Áma Johnsen í sjón og hann var ekkert að leyna því sem hann gerði á paUinum og á jörðu niðri,“ sagði einn þeirra. Málið komst í hámæli innan fyrir- tækisins og sölumaðurinn gerði yfir- mönnum sínum grein fyrir því að ver- ið væri að taka út efni í nafni Þjóðleik- hússins til að senda annað. Hann vildi láta athugasemd fylgja reikningnum um að varan hefði farið til Vest- mannaeyja. Þögull fjármálastjóri Brynja Halldórsdóttir, fjármála- stjóri Byko, þvertók á miðvikudags- morgun fyrir að kannast við málið þegar DV ræddi við hana. „Ég tjái mig ekki um málefni við- skiptavina fyrirtækisins og hef ekki heyrt á þetta minnst," sagði Brynja. Rétt er að geta þess að aðrir starfs- menn hafa tjáð DV að málið hafi verið i hámæli meðal starfsmanna allt þar til á fímmtudag og brandarar um að VJfHMiJlW 'fi oex*075 Pi. 7'Mfu «.;<•»» S7e« a’.sazju Tfe w*c vt íAifti* MM&.'JIbti f» t/jtJn&j fJS.PL. 74/>**.£<• *VG itféikáffJJ'J*. WáO i/. i » t.Ofi 9* pí 5+.0O V- 7 ,00 V 3::; ----- 33yrti c i.oo sr/, Z,‘JO S' > ?7f»7i*5 137070*0 VI SJSOMKtð Pir f U- P-ZZTZT bti* Wt I Otz+O Pfrv../yx */»/+ /v*i « ■ - i, ■■ '>*>7íiVf /rrr. CKM OPtlOH. líf lío 1036.00 lr "*xva. c-íj» éþo,ov im 'J07. Ptv-iiu. OK.N 6H&HfH.iKfYi/f 2l i.OO •* JiJ Jó' OjBimi v/L.«r í /mwr+f+Y** 1 * 6<*«i10O X itlSJ tw íoo.oo É 6*0.00 k‘>, -OO v/Leí kmunapeym* 1 u öím* 1300 1 Tiltektarseöillinn Pöntunin skráö á Þjóöleikhúsið vegna leikmunageymslu. Farsímanúmer Árna Johnsen er gefiö upp neöst á blaöinu. Reikningur hefur nú veriö gef- inn út á kennitölu Árna Johnsens og hann hefur samiö um greiðslu. búið væri að „flytja Þjóð- leikhúsið til Éyja“ fuku. „Þetta mál var altal- að,“ sagði einn starfs- mannanna við DV níu dögum eftir að úttektin átti sér stað. Sölumaðurinn sem gekk frá pöntun þing- mannsins hafði í fyrra- dag ekki hugmynd um að reikningurinn hefði ver- ið færður á nafn Árna. Síðdegis á miðvikudag hafði Sigurður Ragnars- son, yfirmaður bygginga- deildar Byko, samband við DV og sagði að um mistök hlyti að vera því enginn reikningur hefði verið færður á kennitölu Þjóðleikhússins. Þegar honum var bent á að DV hefði tiltektarseðilinn undir höndum ítrekaði hann að um mistök hlyti að vera að ræða og heimtaði að fá að vita hvernig DV hefði komist yfir plaggið sem væri trúnaðarplagg. Reikningar sýndir Hann sagði jafnframt að Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri hefði leyft að hann sýndi DV viðskiptareikninginn fyrir júlímánuð sem sýndi svart á hvítu að einungis væri um að ræða úttekt fyrir örfá þúsund vegna Þjóðleik- hússins. HeOdarúttekt leikhússins á árinu væri samkvæmt bókhaldi Byko innan við 60 þúsund krónur. Þegar óskað var eftir því að hann sýndi blaðamanni önnur gögn sem varða umrædda úttekt neitaði hann því. Leyflð næði aðeins til þess að DV fengi aðgang að útgefnum reikningum en ekki sögu þeirra. Sigurður sagöi að reikningur vegna tiltektarseðilsins væri skráður á kennitölu Árna Johnsens og hann hefði þegar samið Bjálkahúsiö Árni Johnsen er að byggja mikiö bjálkahús í Vestmannaeyjum. Pönt- unin sem sölumaður skráöi á Þjóö- leikhúsiö var til þeirra framkvæmda. um greiðslu hans. Hann taldi líkleg- ustu skýringuna á þessu vera þá að Ámi hefði áður haft samband við Byko um að kaupa efni vegna fyrir- hugaðrar leikmunageymslu. Sölumað- urinn sem tók við pöntunni var aftur á móti ekki í neinum vafa um að skráð væri á tOtektarseöOinn nákvæmlega það sem um var beðið. Mörg járn í eldinum Árni Johnsen svaraði aðspurður Starfsmenn Byko rak í rogastans þegar atþingismaöur strikaöi yfir nafn Þjóöleikhússins á pöntun og merkti sjálfum sér. Yfirmönnum Byko var tilkynnt um atburöinn. því sama og Sigurður. Misskilningur hefði vald- ið því að tOtektarseðOl- inn var skráður á Þjóð- leikhúsið. Hann hefði sjálfur uppgötvað mistök- in og leiðrétt. DV er einnig kunnugt um að Ámi Johnsen hafi áður tekið út efni í Byko en þar hafi ekki verið um jafnmikið magn að ræða og í umræddu tilviki. Sjálfur segist hann ekki viss um það hvort sú pöntun hafi verið skráð á Þjóðleikhúsið en reikn- ingurinn hafi verið skráður á hans kennitölu. Árni er formaður bygg- inganefndar leikhússins og eini virki aðOinn þar. Nefndin var skipuö fyrir flölmörgun áram en þar sátu þrir menn. Einn nefndarmanna er látinn en eftir eru Stefán Bald- ursson þjóðleikhússtjóri og Árni. Stefán hefur dregið sig í hlé frá því starfi en Árni er mjög virkur og hefur að sögn kunnugra „lyft grettistaki". Árni hefur skrifað undir íjölda reikninga vegna fram- kvæmda „nefndarinnar" og sjálfur í sumum tOvik- um pantað tilfaOandi efni. Eini aðOinn, utan Árna, sem einhverja yfir- sýn hefur um það sem pantað er og framkvæmt í Þjóðleikhúsinu er húsvörðurinn. Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, hefur skrifað upp á reikningana en að hans sögn hefur aðeins einu sinni verið ósk- að skýringa Áma en þá vegna reikn- ings ístaks og framkvæmda í Þjóðleik- húsinu. Alþingismaðurinn gaf að sögn Óskars Valdimarssonar, fram- kvæmdastjóra Framkvæmdasýslunn- ar, skýringar á reikningnum. Að- spurður um það hvort hann væri ekki ábyrgur fyrir reikningum sem hann hefði skrifað upp á fyrir Árna taldi hann svo ekki vera. „Hann er formaður nefndarinnar og sem slikur ber hann fuUa ábyrgð. Við kvittum bara upp á þessa reikninga og spyrjumst fyrir ef eitthvað virðist óeðlOegt," sagði Óskar. Á vegum Þjóðleikhússins standa engar framkvæmdir yfir við leik- munageymslu. Fjárveitingar tO framkvæmdanna em uppurnar og engin áform um að gera neitt í þeim efnum á þessu ári. -rt Árni Johnsen alþingismaður segir úttektina vegna misskilnings: Þetta er svolítið klaufalegt - Nú var tekið út efni hjá Byko 2. júlí í nafni Þjóðleikhússins og það stO- að á heimOisfang Þjóðleikhússins að Lmdargötu 7 í Reykjavík. Er það rétt að þú hafir sjálfur mætt á svæðið og breytt áletrun og látið senda efnið á Árna Johnsen í Vestmannaeyjum? „Þetta er alveg rétt,“ sagði Árni Johnsen í samtali við DV. „Þarna var um að ræða mistök. Þetta var fært inn á verk sem verið er að kanna undirbúning á í Þjóöleikhús- inu. Þegar ég sá það iét ég leiðrétta þetfa', þvi þáð vár bara mitt mál. Þetta var svona einfalt en svolitið klaufaiegt." - Nú kemur ekki leiðrétting fyrr en þónokkru seinna, þú segir samt að þetta haFi verið hrein og klár mis- tök? Arni Johnsen. „Já, þetta voru bara mistök að færa þetta svona. Að visu voru það mistök hjá mér líka að hafa ekki tekið eftir því á úttektárs'eðli' áð' það væri skráð d Þjóðleikhúsið. Maður lítur nú ekki aOtaf á þessa seðla þegar maður er að taka út. Þegar ég sá þetta svona merkt fór ég að spyijast fyrir um þetta og lét auðvitað breyta því. Þetta var bara leiðrétt og fært yfir á mig. Mér brá svo- lítið í brún en þá var sölumaðurinn sem ég hafði talað við ekki við og ég breytti þessu þá sjálfur og lét svo vita. Þá var þetta fært rétt og það fór aldrei neitt inn á ÞjóðleOchúsið." - Það hafa samt streymt inn ábend- ingar um þetta. „Já, það er eins ög gengur. Það voru tvær úttektir og önnur hafði verið merkt svona og það var leiðrétt." - Var hin sendingin merkt svona líka? „Ég veit ekki um það, þetta er bara það sem ég sá. Ég tók bara tvisvar sinnum fyrir sjálfan mig.“ - Eru engar framkvæmdir í gangi hjá Þjóðleikhúsinu? „Það er verið að undirbúa að fara í þaö. Þegar maður er með mörg járn í eldinum þá á maður stundum á hættu að það komi upp einhver mistök." ................................-RKr.J Umsjón: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Krassandi myndefni? Mikla athygli vakti er þýskar kór- stúlkur lögðu fram kæru á hótelstjór- ann á gistiheimilinu Tærgesen í Reyðarfirði vegna myndbandsupp- töku á sal- emi staðar- ins. Var hót- elstjórinn rekinn um- svOalaust er húseigendur fréttu af málinu. Lögregla eystra hafði snör handtök og tók til handar- gagns búnað og tölvugögn tO rann- sóknar. í heita pottinum vöktu fréttir gærdagsins athygli er upplýst var að lögreglan sæti enn og skoðaði gögn úr tölvubúnaði brottrekna hótelstjór- ans. Pottverjar telja víst að þar hljóti að hafa leynst krassandi myndefni fyrst löggan getur ekki slitið sig frá skjánum dögum og vikum saman... Getnaðarbann? Á vefriti ungra framsóknar- manna, Maddömunni, er greint frá bókun sem gerð var á fundi borgar- ráðs í vikunni. Þar var gerð eftirfar- andi bókun: „Borgarráð beinir þeim tilmælum tO 1 stjórnar Slökkvi- liðs höfuðborgar- svæðisins bs. að í skipulagi starfsem- innar verði aOra leiða leitað til að lágmarka útgjaldaauka vegna fæð- ingarorlofs feðra." Velta menn mjög vöngum yfir þessari bókun og hvort hún þýði t.d. að styrkja beri slökkvi- liðsmenn til ófrjósemisaðgerða, fara fram á eiðsvarnar yfirlýsingar um skírlífi eða hvort dreifa eigi smokk- um á kaffistofunni á slökkvistöð- inni. Maddaman veltir líka fyrir sér hvort Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sé komin í andstöðu við upphaíleg markmið sín um jafnrétti kynjanna. Jafnréttið sé kannski of dýrt fyrir stofnanir borgarinnar? Hugmynd frá Kastró? Jónas Garðarson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, hefur bor- ið Konráð Alfreðsson, formann Sjó- mannafélags Eyjafjarðar, þeim sök- um að hann sé málaliði hjá Sam- herjaveldinu. Hann geri aUt tO að þóknast Sam- herjamönnum og nú eigi að flytja sjáUan sjómanna- daginn fram á haust væntanlega til að riðla ekki uppskeru úr hafmu. Þessi dagur hef- ur verið sjómönnum öðrum dögum heilagri og er meira að segja með lögum negldur niður á fyrstu helgi júnímánaðar ár hvert. Pottverjar velta fyrir sér hvort Konráð og Sam- herjamenn hafi nokkuð verið í heim- sókn á Kúbu. Eitt frægasta afrek Kastrós Kúbuleiðtoga var nefnOega að fresta jólunum fram í júní tO að bjarga sykuruppskerunni... Á Guðni að borga? IUa er nú vegið að Guðna Ágústssyni gúrkumálaráðherra. Eft- ir harðar ádeilur um ofurálagningu toUa á grænmeti í vor brást ráðherr- ann snarlega við og skrúfaði inn- flutningstolla nið- ur við trog eða um heU 30%. Skyldi nú landinn fá gúrku á gjafverði eins og hann i sig gæti látið. í könn- un ASÍ kom hins vegar í ljós að inn- flutt grænmeti hefur ekkert lækkað. Það hafði þvert á móti hækkað um- talsvert. Stefán Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar- innar, telur kaupmenn hálfvita ef þeir eru að hrifsa tO sín toUaniður- feUinguna. Sagt er að Guðni standi nú ráðþrota. Hann vUji enn að landsmenn njóti lágs gúrku- og paprikuverðs, en líklega verði hann á endanum sjálfur að reiða fram fé tU að greiða niður álagningu inn: flytjenda...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.