Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Qupperneq 20
24 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 Tilvera DV Skilia sátt Julia Roberts ræddi í fyrsta skipti opinberlega ura sambandsslit sín og Benjamin Bratt í þætti David Letter- man nú í vikunni. Á meðal þess sem hún hafði að segja er að þvert á þaö sem slúður- blöðin hafa haldið fram þá hafi sam- bandsslitin farið fram í mesta bróð- emi. Hún bætti við að hún og Bratt séu góðir vinir í dag. Vangaveltur um ástæður fyrir þess- um óvæntu endalokum hafa verið ýmsar. Bratt á að hafa gefist upp á að lokka Roberts að altarinu, þau hafi verið of upptekin af vinnunni og að Julia hafi verið að dúllast með George Clooney. Allt er þetta víðs fjarri raun- veruleikanum, segir Julia. Alvöru hetja Leikarinn góðkunni, Harrison Ford, sýndi þaö í vikunni að hann er ekki bara fær um að drýgja hetjudáö- ir á hvíta tjaldinu. Síðastliðinn þriðju- dag tók hann þátt í leit að 13 ára göml- um skáta sem villst hafði í útilegu í Yellow Stone þjóðgarðinum í Banda- rikjunum. Eftir að drengurinn hafði verið týndur í eina rigninganótt í stutt- ermabol, stuttbuxum og sandölum fór björgunarlið til leitar. Ford kom með eigin þyrlu og sveimaði yfir svæðinu sem leitað var á. Þegar drengurinn fannst kom þyrlan hans Ford að góð- um notum þar sem hún var notuð til að flytja strákinn. Destiny’s barbídúkkur Nú eru í burðarliönum áætlanir um að fara að klóna stúlkurnar úr _ gellusveitinni Destiny’s Child. Ekki er ~um raunverulega klónun að ræða heldur einungis afsteypur úr plasti, s.s. Destiny’s barbídúkkur. Hægt verður að fá alls kyns aukahluti, þ.á.m. kjólana glæsilegu sem þær klæddust á Grammy-verðlaunahátíð- inni í ár. Annars eru þær stöllurnar í raun- . veruleikanum aðtaka upp lög fyrir jóladisk sem kemur út í nóvember. Þær ætla einnig að taka þátt í jóla- þætti NBC-sjónvarpstöðvarinnar. Herratískan 2002: Ermalaust, klassískt og jafnvel gegnsætt Röndóttar skyrtur, rauðir ermalausir bolir, leður- jakkar og jafnvel hálsmen eru meöal þess sem verð- ur i tisku næsta sumar fyrir karlmennina. Tísku- hús á borð við Christan Dior, Kenzo og Paul & Joe kynntu herralínur sínar með glæsilegum tískusýningum í París um síðustu mánaða- mót og þar mátti sjá margs konar strauma og stefnur. Fatahönnuöimir sem áttu heið- urinn af fatnaðinum sem sýndur var að þessu sinni komu víðs vegar að, til að mynda frá Japan, Belgíu, Danmörku, Bretlandi og auðvitað heimalandinu, Frakklandi. Fjölbreytni var allsráðandi eins og svo oft áður og það þarf því enginn að óttast um að finna ekkert til að vera í næsta sumar. Skyrturnar voru í alla vega litum og sniðum, til dæmis röndótt- ar, gegnsæjar, ermalausar og fagurlega skreyttar með fuglamynstrum. Jakkaföt- in og leðurjakkinn eru alltaf klassísk og það eina sem breytist eru litimir og sniðin. Einnig mátti sjá ýmiss konar fylgihluti fyrir herramennina eins húf- ur, belti og hálsmen. Hér á síðunni gef- ur að líta nokkur sýnishom af vor- og sumartískunni fyrir karlmennina 2002. -MA Glæsilegur herrafatnaður Herrafatnaðurinn frá breska hönnuöinum Oswald Boateng varglæsi legur eins og |nr | \ sést á þess- ari mynd. Svart og klassiskt Jakkafötin eru alltaf klassísk, og hjá hinum japanska Masatomo eru þau svört meö bleikri tölu. & 7 - § Hermannablær Fatnaöur Sophie Albou haföi yfir sér hermannablæ og kannski aö ein- hverjir hermenn fari aö ráöi hennar og breyti til frá hin- um heföbunda her- mannafatnaöi. Leöurog belti í stíl Leöurjakkar eru alltaf vin- sælir hjá karl- mönnunum og næsta sumar er um aö gera aö fá sér fallegt belti í stíl. Gegnsæjar skyrtur Fatahönnuöurinn Hedi Slimane var fulltrúi Christan Dior í París þetta sumariö og hjá henni mátti til aö mynda sjá gegnsæjar skyrtur. Fjölbreytlleg hönnun Hönnun danska fatahönnuöarins Roy Krejberg, sem er einn þeirra sem hanna fyrir Kenzo, var mjög fjölbreytt aö þessu sinni. Rautt, svart og ermalaust Rauöir ermalausir bolir og svartar buxur eru meöal þess sem Belginn Dirk Schonberger leggur fram fyrir karimennina næsta sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.