Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Síða 11
11 FÖSTUDAGUR 13. JÚLt 2001_____________________________________________________________________________________________ py__________________^ Útlönd Munu líklega brjóta ABM-samninginn innan mánaða: Bandaríkjamenn flýta Samkvæmt minnisblaði sem ut- anríkisráðuneyti Bandaríkjanna sendi til sendiráða úti um allan heim munu Bandaríkin brjóta ABM-samninginn innan mánaða, ekki margra ára. ABM-samningur- inn var gerður við Sovétmenn árið 1972 og leggur hann blátt bann við þróun eldflaugavarnakerfis. Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Paul Wolfowitz, sagði vopnasölunefnd Öldunga- deildar þingsins í gær að Pentagon hygðist hefja byggingu eldflauga- varna á nokkrum stöðum í apríl næstkomandi. í upphafi verða gerð- ar þar tilraunir en reiknað er með að starfsemi eldflaugavarnakerfis fylgi þar í kjölfarið. Að sögn Wol- fowitz verður einungis tímaspurs- mál hvenær þróun tilraunanna leið- ir til áreksturs við takmarkanir og bönn ABM-samningsins. „Slíkur at- burður mun líklega verða Innan mánaða, ekki ára,“ segir hann. Bush mælir fyrir eldflaugavörnum George Walker Bush Bandaríkjaforseti talar fyrir eldflaugavarnakerfi. Stjórn hans ætlar aö hraöa þróun kerfisins. ABM-samningurinn verður ekki látinn standa í vegi fyrir því. Hershöfðinginn Ronald Kadish, yf- irmaður eldflaugavarnadeildar her- málaráðuneytisins Pentagons, hefur lagt tii að eldflaugavarnatilraunir muni í upphafi fara fram í Alaska. Hann segir að þar geti frá upphafl verið staðsettar 10 gagneldflaugar. Talið er að Bandaríkjamenn muni reyna að fá einhvers konar sam- þykkt Rússa við tiiraununum. Don- ald Rumsfeld varnarmálaráðherra sagði fréttamönnum á miðvikudag að þeir myndu „setjast niður með Rússunum á skynsamlegan og fag- mannlegan hátt“. Þá bætti hann því við að Bandaríkin ætluðu sér ekki að brjóta ABM-samninginn. Það stangast hins vegar á við minnis- blöðin sem send voru tU sendiráða Bandaríkjanna úti um allan heim í gær. Tilraunir með leysigeisla á lofti sem gætu skotið niður eldflaugar gætu hafist árið 2003. Varnir á jörðu niðri gætu verið tilbúnar 2004, segir í minnisblaðinu. lain Duncan Smlth Er óvænt meö næstmest fylgi, á undan Kenneth Clarke. Portillo enn efstur Michael Portillo fékk flest at- kvæði í endurtekinni fyrstu umferð í leiðtogavali íhaldsflokksins breska. Endurtaka varð fyrstu um- ferðina þar sem tveir neðstu fram- bjóðendurnir voru jafnir að atkvæð- um. Neðsti frambjóðandinn dettur út í hverri umferð. Michael Ancram varð í gær að bíta í það súra epli að detta út. Hann bar sig vel og sagðist frekar hafa viljað berjast og tapa en að berjast ekki. Á eftir PortiUo kom Iain Duncan Smith sem óvænt hefur náð næst- mestu fylgi á undan Evrópusinnan- um Kenneth Clarke. Bilið miUi þeirra og PortiUo minnkaði í um- ferðinni í gær. Næsta umferð er í næstu viku og er talið nokkuð ör- uggt að þá muni David Davis detta út. Frambjóðendurnir eru nú upp- teknir við að krækja í atkvæði Ancrams fyrir næstu umferð. Vetur á suðurhveli Nýsjálenski fjárhiröirinn Michael Nicholl rekur hér hóp af nýsjáienskum rollum yfir freöna nýsjátenska jörö í Cardrona- dalnum á Suðureyju nú í vikunni. Á meöan íslendingar nýta hvern einasta sólargeisla sem býöst þessa dagana þá hefur rakt loft og frosthörkur undanfarna daga þakið gróöur meö nýútsprungnum frostrósum á Nýja-Sjálandi. Vetur konungur ræöur nú ríkjum á suöurhveli jaröar og hefur hitastig á Nýja-Sjálandi náö allt niöur í -8 gráöur á Celsíus undanfarna daga. Gary Condlt Barnaöi lærlinginn. Ekki opinberiega grunaöur af lögreglu um hvarf hans. Lærlingurinn var með barni Rannsakendur í máli týnda lær- lingsins Chöndru Levy hafa upplýs- ingar um að hún hafi verið ólétt þegar hún hvarf. Faðirinn var þing- maöurinn Gary Condit. Lögreglan hefur upplýsingamar frá félögum Levy. Hún var lærling- ur Condits áður en hún hvarf þann 30. apríl síðastliðinn. Condit hefur viðurkennt að hafa átt i ástarsam- bandi við hana. Umfangsmikil leit varð gerð í yfirgefnum byggingum í næsta nágrenni við heimili Levy í gær. Lögreglan fór með hunda sem þefnæmir eru fyrir líkum. Þá rann- sakaði lögreglan gögn úr húsleit sem gerð var á heimili þingmanns- ins. Einn blóðdropi fannst í baðher- berginu, ekki er vitað hvers. Lög- regla segir Condit þingmann ekki grunaðan í málinu. Vopnahlé heldur Þessir tveir makedónsku drengir feröast áhyggjulausir í sumarsólinni. Friðarviðræður í gang á ný Sérlegur sendifulltrúi Evrópu- sambandsins í málefnum Makedón- íu, Francois Leotard, sagði að skrið- ur væri kominn á viöræður póli- tiskra fulltrúa minnihluta Albana og fulltrúa meirihluta Slava í Makedóníu. Viðræðurnar hafa ver- ið fastar undanfama daga vegna óá- sættanlegra krafna Albana um breytingar á stjómarskrá landsins til að rétta hlut þeirra í landinu. Miðlunartillaga Leotard og James Pardew, sendifulltrúa Bandaríkj- anna, virðist hafa brúað bilið milli deiluaðila að einhverju leyti. Vopnahlé sem sett var á seinustu viku heldur enn. Þó fréttist af ein- hverjum skærum milli Makedóníu- hers og albanskra skæruliða í nótt. Einn makedónskur hermaður særðist í skærunum. Sverðmaður skotinn til bana Skytta í lögreglunni í Liverpool, Englandi, skaut í gærkvöldi mann til bana eftir að hann hafði gengið berserksgang veifandi sverði í fjöl- förnu hverfi í borginni. Meira en þrjátíu lögreglumenn vom kallaðir til að stöðva mann- inni, sem samkvæmt fréttum var íklæddur náttfötum og var æstur og líklegur til að beita ofbeldi. Eftir að hafa reynt að tala manninn til var reynt aö afvopna hann með því að t j r tl (i . . ■ i i í j i beita einhvers konar piparúða, án árangurs. Lögregla sá þann kost vænstan að gera manninn, sem var á fertugs- aldri, óvirkan með byssukúlu. Hann var siðar úrskurðaður látinn við komu á spítala. Lögregla yfirheyrði fólk í nágrenninu eftir atburðinn. Samkvæmt talsmanni lögreglunnar í Liverpool er þetta í fyrsta skipti sem hún fellir sakamann með byssuskoti. .i i n jíisfc 't ujjl i liii í:j 'itmn pub ■ shmmtistaður Skemmtistaður Akureyri Stjörnudansleikur laugardagskvöld Hljómsveitin BSG Björgvin Halldórs Sigríður Beinteins Gretar Örvars Kristján Gretar Kristinn Svavars t';

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.