Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001
Fréttir I>V
Óviðunandi umgengni umhverfis náttúruperluna Goðafoss:
Löðrandi í mannasaur
Umgengni feröamanna sem
koma að Goðafossi er með ólík-
indum. Mannasaur og salernis-
pappír er um alla móa beggja
vegna fossins. Maður sem hafði
samband við DV, kvaöst hafa ver-
ið á ferð við fossinn ásamt barna-
barni sínu. Hann hafði ljóta sögu
að segja:
„Við ætluðum að hyggja að
berjum í móunum við fossinn,“
sagði hann. „Mér brá heldur betur
við þá sjón sem mætti mér. Þarna
var allt löðrandi í mannaskít og
salernispappír. Þetta var um allt.“
Á Fosshóli við Goðafoss er veit-
ingarekstur og verslun. Þar eru
salerni, en þau virðast ekki anna
þeim straumi ferðamanna sem
leggja leið sína að fossinum.
Hólmfríður Eiriksdóttir, sem
rekur veitingaaðstöðuna á Foss-
hóli, kannaðist við lýsingu ferða-
langsins. „Þegar skemmtiferða-
skipin stoppa á Akureyri þá eru
- í móunum báðum megin viö fossinn
Náttúruperla
Umgengni feröamanna í nágrenninu viö Goöafoss er meö ólíkindum.
að koma hingað 15-20 rútur á einu
bretti,“ sagði hún. „Þá hefur fólk-
ið svo lítinn tíma aö það getur
ekki staöið í löngum biðröðum
við salernin. Þá grípur það til
annarra ráða.“
Kvenfélag Ljósavatnshrepps
hefur séð um aö þrífa svæöið í
kringum fossinn og sinnt því af
miklum myndarskap. „Við förum
vikulega og þrífum planið og
göngustígana," sagöi Kristin Sig-
urðardóttir á Ingjaldsstöðum, for-
maður kvenfélagsins. „En við get-
um ekki með nokkru lifandi móti
farið að tína upp eftir fólk sem
gengur þarna örna sinna. Þaö
vantar sárlega fleiri salerni á
staðinn. Þarna er óskaplega mikil
umferð og salernisaðstaðan virð-
ist hvergi anna þörfum ferðafólks-
ins.“
Ekki náðist í fulltrúa Ferða-
málaráðs né oddvita Ljósavatns-
hrepps vegna málsins í gær. -JSS
Kræfir innbrotsþjófar:
Voru að safna
upp í fíkni-
efnaskuldir
Tveir karlmenn voru um helgina
úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarð-
hald i Héraðsdómi Reykjavíkur en
mennimir hafa viðurkennt á annan
tug innbrota á höfuðborgarsvæðinu
sem þeir hafa framið að undanfómu
og hefur mikið þýfi fundist heima hjá
öðmm þeirra.
Við yfirheyrslur yfir mönnunum
tveimur kom fram að þeir eru mjög
skuldugir innan fikniefnaheimsins og
var ætlun þeirra að greiða þær skuld-
ir með þýfinu eða andvirði þess ef
þeim tækist að selja það. Innan fikni-
efnaheimsins komast menn ekki upp
með að standa ekki í skilum og dæmi
um að svokallaðir handrukkarar séu
gerðir út til að lemja á mönnum fyrir
skuldir sem em nokkur þúsund krón-
ur.
Þýfið sem mennirnir tveir vom með
í fóram sínum er hins vegar nokkurra
milljóna króna virði og með því mesta
sem lögreglan hefur fundið í einu. Þar
vora m.a. um 10 dýrar tölvur, ljósrit-
unarvélar og skotvopn, svo eitthvað sé
nefnt af þýfinu. -gk
Frá ísafjaröarhöfn.
ísafjörður:
Innbrot í bát
Brotist var inn í bátinn Baldur
Áma RE-102 í ísafjarðarhöfn um helg-
ina og talið að úr bátnum hefði verið
stolið lyfjum og einhverju fleiru, auk
þess sem skemmdir voru unnar.
Lögreglan á ísafirði vildi litið segja
um málið i gær annað en það að það
væri í rannsókn. Tveir drengir vora
handteknir og yfirheyrðir vegna máls-
ins en þeim var sleppt að yfirheyrslum
loknum. -gk
Reykjanesbær:
Fjölmenni á
Ljósahátíð
Mikið fjölmenni var á Ljósahátíð
í Reykjanesbæ um helgina og telur
lögreglan að 10-12 þúsund manns
hafi safnast saman í miðbænum.
Allt fór vel fram en nokkur ölvun
var í bænum þegar leið á nóttina án
þess að til stórvandræða kæmi af
þeim sökum. -gk
Stórt Ólfusárhlaup dv-mynd njörður helgason
Sex hundruð manns voru í viöbragösstööu á Ölfusárbrú á laugardag þegar ræst var í 11. Brúarhlaupiö á Selfossi.
Keppt var í nokkrum flokkum og keppnin hörö sem endranær. Heldur færri tóku þátt aö þessu sinni en í fyrra, líklega
hefur veöriö eitthvaö spilaö þar inn í.
Skiptar skoðanir um úrskurð Skipulagsstofnunar:
Finnst menn taka
mikla áhættu
- segir Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur
„Ég tel hinn jákvæða úrskurð vegna
álvers í Reyðarfirði auka stórlega lík-
umar á því að virkjað verði við Kára-
hnjúka enda er ljóst að álverið þarf
mikla orku og ég sé ekki hvaðan hún
ætti að koma nema farið verði í virkj-
unarframkvæmdirnar fyrir austan,"
segir Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar. Hann segir Lands-
virkjun vera að leggja lokahönd á
kæra vegna úrskurðar Skipulagsstofn-
unar um Kárahnjúkavirkjun enda
renni skilafrestur út á miðnætti á mið-
vikudag. Aðspurður um undirbúnings-
vinnu Landsvirkjunar fyrir austan
segir hann hana eingöngu felast í
rannsóknum, meðal annars á Héraðs-
flóa. Vegagerðin hafi hins vegar flýtt
fyrirhuguðum vega- og brúarfram-
kvæmdum í Fljótsdal.
Má ekki mikið út af bera
„Ég hafði reiknað með stífari skil-
yröum í úrskurði skipulagsstjóra
vegna álversins. Mér finnst menn taka
mikla áhættu," segir Hjörleifur Gutt-
ormsson náttúrufræðingur en vill
engu spá um hvort úrskurðurinn
verði kærður. Mengunin er honum of-
arlega í huga: „Það dylst engum að
þessi APH-efni, sem þama á að losa
vegna rafskautaverksmiðjunnar, eru
mjög varhugaverð. Rafskautaverk-
smiðjan var mjög falin í matsskýrsl-
unni þannig að erfitt var að átta sig á
henni. Að mínu viti hefði átt að meta
hana sérstaklega. Það er lokað alger-
lega á búsetu innan svokallaðs þynn-
ingarsvæðis en þéttbýlið á Reyðarfirði
er í innan við eins kílómetra fjarlægð
frá því. Það má því ekki mikið út af
bera til að fólk sé í haettu."
Hjörleifur telur einnig félagslega
þáttinn stórlega vanmetinn og dregur
mjög í efa að mannlífið verði jafn gott
fyrir austan og nú, ef af þessum stór-
iðjufamkvæmdum verði. Hann hefur
enga trú á að Kárahnjúkavirkjun
verði að veruleika. „Það væri mjög
skrýtið ef virkjun sem hefur fengið
margfalda falleinkunn hjá sama aðila
og hefur fleytt þessu stóriðjuveri fram
á að verða framkvæmd. Ég vona sann-
arlega að svo verði ekki,“ segir Hjör-
leifur.
Kærur vegna Kárahnjúka
„Það er líklegt að þessi úrskurður
skipulagsstjóra um álverið komi til úr-
skurðar umhverfisráðherra og því get
ég ekkert tjáö mig um hann á þessu
stigi. Allt sem ég segði yrði skoðað
sem úrskurður af minni hálfu,“ segir
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra.
Hún segir allmargar kærar komnar
inn vegna úrskurðar Skipulagsstofn-
unar um Kárahnjúkavirkjun og búast
megi við fleiri. Samkvæmt lögunum
kveðst hún hafa átta vikur til að fjalla
um þær. -Gun.
mSESSSm.
Una María formaöur
Una María Ósk-
arsdóttir var kosin
formaður Landssam-
bands framsóknar-
kvenna á þingi
landssambandsins
sem haldið var að
Bakkaflöt í Skaga-
firði um helgina.
Síðbúin ákæra
Maður, sem sakaður er um að hafa
otað hnífi að lögreglumönnum á
Bíldudal í maí árið 1999, var ekki
ákærður fyrr en í júlí á þessu ári. í
Héraðsdómi var því frestað að veita
honum refsingu fyrir athæfið héldi
hann almennt skilorð. Hámarksrefs-
ing fyrir athæfi eins og það sem mað-
urinn var kærður fyrir er 6 ára fang-
elsi en m.a. vegna þess að ákæran var
ekki gefin út fyrr en rúmlega tveimur
árum eftir verknaðinn var refsingu
hans frestað.
Eldur í Funa
Kælikerfi í sorppressu sorp-
brennslustöðvarinnar Funa á ísafirði
ofhitnaði í fyrrinótt með þeim afleið-
ingum að eldur kom upp. Slökkviliðið
á ísafirði kom fljótt á vettvang og
gekk greiðlega að slökkva eidinn.
Skemmdir urðu ekki miklar.
Bretinn ótrúverðugur
Breti, sem handtekinn var með 6 kg
af hassi í farangri sínum á Keflavík-
urflugvelli í júlí, hefur verið dæmdur
í 15 mánaða fangelsi. Maðurinn hélt
alltaf fram sakleysi sínu og sagðist
ekki hafa vitað um fikniefnin í far-
angri sínum. Dómnum þótti fram-
burður mannsins hins vegar ekki trú-
verðugur og dæmdi hann því til fang-
elsisvistar.
Tapið meira en spáð var
Tap Lyfjaverslunar fslands nam 32
m. kr. á fyrri hluta þessa árs en í
fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 32
m. kr. á sama tíma. Spá fjármálafyrir-
tækja gerði ráð fyrir 8 milljóna króna
tapi nú. Lyfjaverslun íslands hf. er
stærsta lyfjafyrirtæki á íslandi, með
um 54% markaðshlutdeild í dreifingu
lyfja.
600 á biðlista
Riflega 600 manns
eru á biðlista eftir fé-
lagslegu íbúðarhús-
næði í Reykjavík.
Lára Bjömsdóttir, fé-
lagsmálastjóri borg-
arinnar, segir að
menn súpi nú seyðið
af því að búið sé að
leggja niður félagslega kerfið. Færri
en áður komist gegnum greiðslumat,
vextir hafi hækkað og mönnum sé
gert erfiðara fyrir en áður. Morgun-
blaðið sagði frá.
Enginn með 5 réttar
Enginn var með allar fimm tölurn-
ar réttar í laugardagslottóinu um
helgina en potturinn var fiórfaldur. í
honum voru um 13 milljónir fyrir
fimm tölur réttar og er þess að vænta
að um næstu helgi, þegar potturinn
verður fimmfaldur, verði fyrsti vinn-
ingur um 20 milljónir króna.
Árekstur á Selfossi
Harður árekstur varð milli tveggja
bíla á Selfossi í gær. Ekki urðu slys á
fólki en eignatjón varð mikið. Óhapp-
ið átti sér stað á aðalgötu bæjarins.
-gk/Gun.