Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 7
7 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001 x>v Fréttir Óvissa um rekst ur Fjallakaffis DV, AUSTURLANDl: Þjóðvegur eitt liggur ekki lengur við hlaðið á Möðrudal á Hólsfjöllum eftir að nýi vegurinn um fjöllin var tekinn í notkun og hefur þessi breyting komið illa niður á rekstri Fjallakaffis sem stendur við veginn í Möðrudal. Ásta Sigurðardóttir sem rekur Fjallakaffi segir að í sumar hafi ekki komið nema um þriðjungur þess ferðafólks sem hefur komið undanfarin sumur. Ásta segir aö ferðatraffikinni hafi lokið um miðj- an ágúst þótt einstakir hópar hafi komið seinna. Óvíst er hvort hún heldur rekstrinum áfram næsta sumar og væri mikil eftirsjá ef ekk- ert Fjallakaffí yrði á Hólsfjöllum. í sumar hefur Ásta boðið gestum sínum kjötsúpu, kaffi og heitar DV-MYND JÚLlA IMSUND Fyrsti Volvo-brunabíllinn Hér eru fulltrúar Brunamálastofnunar ásamt MT-mönnum á Ólafsfiröi þegar fyrsti Volvo-slökkvibíllinn var tekinn út og prófaöur. Glæsilegur og öflugur gripur sem fer til Qrundarfjaröar. MT-Bílar afhenda nýjan slökkvibíl DV, HORNAFIRDI: Það var mikið að gera á verkstæði MT-Bíla í Ólafsfirði á dögunum, einu slökkvibílasmiðju landsins, þegar DV bar þar að garði. Verið var að gera úttekt og prófun á nýjum slökkvibíl sem verið hefur í smíðum hjá fyrir- tækinu fyrir Grundfirðinga. Slökkvi- bíllinn er fjórhjóladrifinn 380 hest- afla Volvo FM 12 með yfirbyggingu út trefjaplasti og samanstendur af vatnstönkum og skápum. Vatnstank- ar taka 3.500 lítra af vatni og froðu- tankur tekur 350 lítra. Þetta er fyrsta Volvo-bifreiðin sem gegnir hlutverki slökkvibfls hér á landi. MT-Bílar eru með sams konar slökkvibíl í smíðum fyrir Akranesbæ og verður hann afhentur seinna í sumar. Framkvæmdastjóri MT-Bíla, Sig- urjón Magnússon, sagði að verið væri að ganga frá samningum um smíði á tveim slökkvibíium af sömu stærð fyrir Slökkvilið Reykjavíkur en undirvagnar þeirra verða frá Scania. Starfsmenn MT-Bíla eru sjö og tekur smíði hvers bíls 5 til 6 mán- uði. JI Fjallakaffis-skáli Góö aöstaöa er til að njóta veitinga úti því stór sólpallur er viö veitingaskál- ann og útsýni eins og best veröur á kosiö. kleinur sem eru alveg sérstaklega góðar. Aðeins tekur örfáar mínútur að aka þá 8 kílómetra sem eru frá þjóð- veginum að Fjallakaffi og vonandi geta þyrstir og svangir vegfarendur notið góðu heimilisveitinganna hennar Ástu áfram. -JI DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND Kleinubakstur Ásta er hér viö kleinupottinn góöa sem oröinn er svartur af margra ára kleinusteikingu eins og Ásta komst aö oröi. DANS - HOLL, ANDLEG OG LÍKAMLEG ÍPRÓTT FYRIR ALLA starfsár m 6 tíma námskeið Línudans _ _____ AuSveldur og skemmtilegur. Bók fylgir með lýsingu á dönsunum. _____ Gömíu dansarnir 10 tíma námskeið og þú lærir þá alla. Freestyle - Hip Hop Erla Haraldsdóttir kennir. Sa/sa Social Foxtrot - jbað nýjasta Þú verður fær um aS dansa viS 90% af öllum lögum sem leikin eru á venjulegum dansleik eftir 6 tíma. Break Ásgeir, margfaldur Islandsmeistari, og Gummi kenna. 6 tíma námskeiö. Samkvæmisdansar - barnadansar Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlega kennslu. 14 vikna námskeið fyrir fullorðna 14 vikna námskeið fyrir börn Dansleikur í lokin. Dansinn sem fer sigurför um heiminn. Keppnisdansar Svanhildur Siguröardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir, frábærir þjálfarar í keppnisdönsum. 14 vikna námskeið. Mæting lx, 2x eða 3x í viku. Brúþarvaísinn Kenndur í einkatíma. ó tíma námskeiS Upprifj unartímar Einn tími á sunnudögum Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti. 1 0 tíma námskeiS. Dans ársins Kennsla hefst 10. sept. Innritun fer fram í síma 551 3129 milli kl. 15 og 22 daglega til 9. sept. * i* i Kortasalan er hafin! Leikáriö 2001-2002 Stóra sviðið: Vatn lífsins Anna Karenina Cyrano - skoplegur hetjuleikur Strompleikurinn Jón Oddur og Jón Bjarni Hollendingurinn fljúgandi Frá fyrra leikári: Syngjandi í rigningunni Með fulla vasa af grjóti Laufin í Toscana Blái hnötturinn • Áskriftarkort, fastar sýningar Litla sviðið • Smfðaverkstæðið Vilji Emmu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? Viktoría og Georg Rakstur Veislan Lífið þrisvar sinnum Áskriftarkort - þitt saetil Með áskriftarkorti tryggirðu þér þitt sæti á fimm sýningar, þar af eina valsýningu sem þú getur valið hvenær sem er á leikárinu. Þú getur einnig skipt út föstum sýningum á Stóra sviðinu. Verð kr. 8.750 Opið kort - þitt vall Með opnu korti velur þú á hvaða fimm sýningar þú vilt fara og hvenær en nýtur að ööru leyti sömu fríðinda og handhafar áskriftarkorta. Verð kr. 8.750 Kortagestum sem ganga frá kortum sfnum fyrir 15. september gefst kostur á að fara á hinn vinsæla söngleik Syngjandi í rigningunni á verði venjulegrar sýningar. Kortasalan hefst 1. september. Miðasölusími: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is mni WÓDU'IKHllSin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.