Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001 Fréttir Kolsvört niðurstaða sögð úr seiðamælingaleiðangri Bjarna Sæmundssonar: Viðkomubrestur í þorskstofninum - stærsti hrygningarfiskurinn nær uppurinn vegna gegndarlausrar sóknar Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson Sérfræöingar Hafrannsóknastofnunar vinna nú úr niöurstööum seiöamælinga og veröa niöurstööur kynntar ráöherra á miövikudag eöa fímmtudag. Rannsóknarskip Hafrannsóknastofn- unar, Bjami Sæ- mundsson, er vænt- anlegur úr árlegum seiðarannsóknum á þriðjudag. Sam- kvæmt heimildum DV er fullyrt að niðurstaðan sýni viðkomubrest í stofninum. Sjó- menn segja orsökina vera ofveiði á stórþorski og vísa m.a. til stóraukn- ingar á hrognaútflutningi undanfar- inn áratug. Rannsóknarskipið Bjami Sæ- mundsson var við Suðausturland í gærkvöldi þegar DV hafði samband viö leiðangursstjórann, Svein Svein- bjömsson. „Við erum búnir með nánast öll hol sem tekin verða. Við eigum einungis eftir sjórannsókna- vinnu hér vestur með landinu og á Selvogsbanka." Hann sagðist þó ekkert tjá sig um niðurstöðu fyrr en hún hefði verið kynnt ráðherra á miðvikudag eða fimmtudag. - Er viðkomubrestur? „Ég hef ekkert um það að segja. Ég hvorki játa því né neita,“ sagði Sveinn Sveinbjömsson. Kaldur verulelki „Ég hef heyrt þetta utan að mér, þótt það sé ekki orðið opinbert, að það sé ekki mikils að vænta vegna hrygningar þorsksins í ár,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, alþing- ismaður Vestfirðinga. „Ég hef veitt því athygli vestur á ijörðum að maður sér ekki mikið af þorskseiðum í höfnunum þar eins og veriö hefur, síðast á síðasta ári. Þetta segir manni eitthvað þótt það sé í sjálfu sér enginn algildur mæli- kvarði. Það kunna að vera margar skýringar á þessu, við erum búnir að vera að veiða ofan af stofninum, möskvar hafa verið stækkaðir og leigukerfiö hefur ýtt á menn af miklum krafti að koma með stærsta fiskinn að landi. Þetta er bara sá kaldi veruleiki að menn verða að taka stærsta fiskinn ef þeir ætla að standa undir því að leigja til sín kvótann á yflr 100 krónur kílóið. Það ýtir allt undir það að menn veiði fyrst og fremst stóra fiskinn, hrygningarfiskinn. Samt kemur þetta ástand nú manni á óvart, því skilyrði eru góö og árferði, sjórinn hlýr og maður hefði e.t.v. ekki búist við öðru en sæmilegri hrygningu. En þegar maður horfir á þetta þá liggur það auðvitað fyrir að það að veiða alltaf stærsta fiskinn, hrygningarfiskinn, þá minnkar hrygningarstofninn og það virðist einmitt vera það sem fiskifræðingarnir hafa nú komist að,“ segir Guðjón Arnar. Guðmundur Halldórsson, skip- stjóri í Bolungarvík, segir að sam- kvæmt sínum upplýsingum, þá sé þarna um skelfileg tíðindi að ræða. Niðurstöðurnar séu nær algjör við- komubrestur hjá þorskinum. Kenn- ir hann því um aö búið sé að út- rýma stórþorski úr stofninum. Það sé afleiðing af kvótakerfinu og því að heimila veiðar meö 10 tommu netamöskvum sem hirði nær ein- göngu stórþorsk. Þá hafi útflutning- ur á þorskhrognum aukist hröðum skrefum undanfarin ár. Stórþorskur nær horfinn í júní birtist frétt í DV um ótta manna við að stórþorskur sem skil- aði bestu hrygningunni að jafnaði væri nær horfinn af miöunum. Krókabátasjómenn sögðu þetta beina afleiðingu af ráðgjöf stofnunarinnar og botnlausri sókn netabáta og snur- voðarbáta í stórþorsk á miðunum. Vildu þeir því banna notkun niu og tíu tommu netamöskva. Hafrannsóknastofnun gerir ráð fyrir að uppistaðan í þorskaflanum næstu árin verði fjögurra og fimm ára þorskur en stóri hrygningarfisk- urinn, sem gefur af sér bestu hrogn- in, virðist nær uppurinn á miðun- um. Fjöldi stórþorska, 10 ára og eldri, var áætlaður 85 miiljónir ein- staklinga árið 1955, en samkvæmt upplýsingum fyrr í sumar er fjöldinn aðeins talinn vera um ein milljón. Þess má geta að þorskhrognaútflutn- ingur jókst stöðugt allan síðasta ára- tug sem bendir til stöðugt vaxandi sóknar i stórþorsk. Fór hann úr 591 tonni árið 1990 í 1.606 tonn árið 2000. Guðrún Marteinsdóttir fiskvist- fræðingur sagði þá að erfitt gæti reynst að ná upp fjöldanum á ný og hefur uppi efasemdir um að það tak- ist nokkurn tíma. Hún taidi þó að minna magn af stórþorski væri ekki aðalvanda- málið. „Menn byggja ekki upp stofninn ofan frá. Það er mín sann- færing að ekki taki því að vera að banna þessa stórmöskva þar sem fiskur af þessari stærð fæst ekki nema í litlum mæli. Fjöldinn er of lítill til að þaö skipti nokkru máli. Hann stendur ekki undir almenni- legri nýliðun. Það eru ‘98- og ‘99-ár- gangarnir sem þarf að fylgjast með og hjálpa upp í 9 til 11 ára aldur,“ sagði Guðrún í samtali við DV í byrjun júní. -HKr./gk M j ólkurk vótinn: Aukning um milljón lítra - á nýju verðlagsári „Það bendir aUt til að aukning sé í neyslu mjólkur og þá er því kalli svarað með því að auka framleiðsl- una,“ sagði Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra um þá ákvörðun að auka greiðslumark mjólkur um eina miUjón lítra á nýbyrjuðu verð- lagsári. Landbúnaðarráðherra gerði grein fyrir þessari aukningu í framsögu sem hann flutti á ársþingi Eyþings, sambands sveitarfélagi á Norður- landi eystra, fyrir helgi. Áætlunin gerir ráð fyrir þvi að tekjur mjóik- urframleiðenda aukist um 70 miUj- ónir króna. Kostnaðarauki bænda sé hins vegar hverfandi. „Þetta þýðir að meðaltali 70 þús- und króna tekjuauka á hvert bú,“ sagði landbúnaðarráðherra. -JSS Langur biölisti: Einkatónskóla var hafnað - nefnd í málið Bæjarráð Akur- eyrar hefur hafnað erindi Michaels Jóns Clarke tónlistar- manns um styrk tU að starfrækja einka- rekinn tónlistarskóla á Akureyri. Ósk Michaels Jóns laut að því að fá greidd laun kennara og hafði hann sent inn rekstraráætlun fyrir skólann sem hefði þá tekið tU starfa i haust. Lang- ur biðlisti er eftir plássi í Tónlistar- skólann á Akureyri og hefði þessi nýi valkostur hugsanlega getað saxað á hann og hafa biðlistamálin og stofnun nýs skóla verið spyrt saman í meðferð málsins í kerfinu. Skólanefnd Akur- eyrarbæjar hafði áður lagst gegn því að styrkja stofnun þessa nýja skóla en þess i stað lagt til að 2 miUjónum af fjárhagsáætlun bæjarins í ár yrði var- ið í að stytta biðlista í Tóniistarskólan- um. Bæjarráð tók hins vegar ekki und- ir það með skólanefnd að koma með aukafjárveitingu tU Tónlistarskólans þannig að biðlistamálin verða óbreytt hjá skólanum en óvenjumikU ásókn hefur verið í tónlistamám á Akureyri í haust. Bæjarráð tók hins vegar und- ir áform skólanefndar um að skipa starfshóp i að endurskoða rekstrarfyr- irkomulag tónlistarkennslu í bænum og var þess óskað að hópurinn hraðaði störfum. Oddur Helgi Halldórsson, fulltrúi L- lista í bæjarráði, óskaði bókað að hann sæti hjá. -BG Horft út úr hafnarmynni dv-mynd e.ól. Esjan blasir viö sjófarendum á leiö úr Reykjavíkurhöfn. Margir fylgjast grannt með fjallinu á sumrin og þá hvort allur snjórinn hverfi. Vedríð í kvold [ Sólargangur og sjávarföll [ Veöriö á morgun REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 20.36 20.26 Sólarupprás á morgun 06.19 05.58 Síðdegisf!ó& 19.03 23.36 Árdegisfló& á morgun 07.17 11.50 Skýríngar á veðurtáknum Þykknar upp Hægviöri og aö mestu leyti þurrt en þykknar upp meö hægt vaxandi sunnanátt vestanlands. Annars skýjaö meö köflum. Hiti 8 til 14 stig. ^*-«.VINDÁTT *—HITI ,1j0o ^M/iNDSTYRKUR Nvfros, 1 metrum á sekúndu 1 HEIÐSKÍRT *> 'O IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAÐ fW w . RIGNING SKÚRIR SLYODA SNJÓKOMA O ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Al.lt eftir ierin á lynginu 5ar sem milt veröur í veöri næstu Jaga ættu berin aö haldast óskemmd s iynginu og jafnvel auka viö vöxt sinn )g safa. Þótt væta sé í spánni þá íefur þaö aldrei gerst aö ekki stytti jpp um síöir. Því er ráö aö hafa fötur )g tínur til taks. Hlýtt í veðri Sunnanstrekkingur, 8-13 m/sek. og rigning sunnan- og vestanlands en suövestlægari og skúrir vestan til síöar um daginn. Skýjaö noröaustan til. Hiti 10-15 stig. Miöviku Brnmxm Wv Fostud Vindur: v 5-10 m/% Hiti 9° til 14" Vestan 5-10. Skýja& me& köflum og skúrlr. Hltl 9 tll 14 stlg. 4-8 m/» Hiti 8° til 14° 4Va 4 Fremur hæg suðaustlæg e&a breytlleg átt. Fer a& rlgna sunnan- og vestanlands en annars úrkomuliti&. Mllt ve&ur. aaSi Vindur: 5-10 Hiti 8° til 13° AVa" Breytileg átt, vætusamt og fremur milt. 'O AKUREYRI BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI BERGEN HELSINKI KAUPMANNAHÖFN ÓSLÓ STOKKHÓLMUR ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR ALGARVE AMSTERDAM BARCELONA BERLÍN CHICAGO DUBLIN HALIFAX FRANKFURT HAMBORG JAN MAYEN LONDON LÚXEMBORG MALLORCA MONTREAL NARSSARSSUAQ NEW YORK ORLANDO PARÍS VÍN WASHINGTON WINNIPEG BBBBB alskýjaö skýjað skýjaö skýjaö alskýjaö alskýjaö alskýjaö þokumóöa þokumóöa skýjaö skýjaö rigning alskýjaö EE alskýjaö skýjaö léttskýjaö alskýjaö léttskýjaö skýjaö léttskýjaö skýjaö léttskýjaö skýjaö rigning skýjaö skýjaö skýjaö léttskýjaö heiöskírt súld léttskýjað skýjaö skýjað skúr á síö. klst. 18 léttskýjaö 16 heiöskírt 17 gagai.-aw.d«gcsa 10 10 9 10 11 11 8 11 12 13 15 15 13 16 14 15 27 18 24 18 11 16 14 20 15 4 20 16 27 10 8 16 24 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.