Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Side 6
6
MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001
Fréttir
Frjálsar fiskveiðar við ísland kvaddar með neyðarblysum:
Aðgerðir stjórn-
valda hörmulegar
- segir Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður
DV-MYNDIR GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Róið í frelsi
Ólafur Ragnarsson heldur í róöur sem frjáts fiskimaöur viö íslandsstrendur
en segist nú veröa aö leggja bátnum til aö vernda fiskistofnana.
Einar Oddur
Kristjánsson, annar
tveggja þingmanna
Sjálfstæðisflokksins
á Vestfjörðum, seg-
ist líta á gildistöku
kvótasetningarlaga
á smábáta 1. sepem-
ber sem óskaplega
ógæfu af hendi
stjómvalda.
Að kvöldi síð-
asta fostudags söfnuðust smábáta-
sjómenn á Vestfjörðum saman hver
á sínum stað og skutu upp neyðar-
flugeldum í tilefni þess að nýtt fisk-
veiðiár gekk í garð fyrsta septem-
ber. Á Flateyri söfnuðust smábáta-
menn saman og var nokkur fjöldi
þorpsbúa mættur til að sýna þeim
samstöðu vegna nýrra laga sem tal-
in eru draga verulega úr mögleikum
þessara litlu báta til að komast af og
er nokkur uggur meðal íbúanna
sem byggja afkomu sína nær ein-
vörðunga á afla smábátanna.
Einar Oddur Kristjánsson alþing-
ismaður var meðal þeirra sem fylgd-
ust með aðgerðum sjómannanna á
Flateyri. Hann hefur sem kunnugt
er boðað harða andstöðu við þessar
nýju reglur og hefur sakað sjávarút-
vegsráðherra um að svíkja sam-
komulag sem samtök smábátaeig-
enda gerðu við ríkisvaldið.
„Það er verið að kveðja þá von
sem var búin til með því samkomu-
lagi sem við gerðum 1996 og hefur
verið eini vaxtarbroddurinn í út-
gerð hér um slóðir og ég lít á þetta
sem óskaplega ógæfu af hendi
stjórnvalda að hafa orðið til þess að
drepa þetta. Ég stend heils hugar
með byggðunum héma sem eiga allt
sitt undir þessu. Okkar hugsun með
þessu samkomulagi var aö með því
gæfum við þeim lífsvon og það
sýndi sig að það gekk eftir og að við
hefðum gert rétt. Ég harma enn og
aftur að stjómvöld hafi með aðgerö-
um sínum verið að eyðileggja það,“
sagði Einar Oddur þar sem hann
fylgdist með neyðarblysum smá-
bátamanna á Flateyri í tilefni fisk-
veiðiáramóta.
Rothögg fyrir okkur
Ólafi Ragnarssyni, skipstjóra á
Popparanum ÍS, leist ekki vel á út-
litið fyrir þessar útgerðir.
„Við erum að kveðja síðustu
frjálsu fiskveiðamar við íslands-
strendur. Þessar nýju reglur um
kvótasetningu á ýsu og steinbít em
rothögg fyrir okkur á smábátunum.
Ég sé ekki fram á annað en að ég
muni tapa húsinu mínu og bátnum
og eftir stend ég sem stórskuldugur
og gjaldþrota öreigi með bagga sem
ég næ aldrei að vinna mig út úr eft-
ir að ríkisvaldið hefur slegið mig af.
Á nýliðnu fiskveiðiári fiskaði ég lið-
lega 40 tonn af ýsu og 70 tonn af
steinbít, auk þess sem ég fiskaði 120
tonn af þorski. Nú má ég veiða um
30 tonn af þorski og ekki eitt einasta
kíló af ýsu og steinbít. Ég mun að
sjáifsögðu fiska þessi tonn en eftir
að meðaflinn hverfur sé ég ekki
fram á að geta leigt eitt einsta tonn
af þorski því það stendur ekki und-
ir sér án hinna tegundanna. Ég er
ekkert einn um þessa stöðu. Það er
fjöldi báta i sömu sporum enda er
þegar farið að draga saman seglin
og fækka fólki,“ segir Ólafur og er
verulega svartsýnn á framhaldið.
Nokkur hluti ýsuaflans hefur ver-
ið smærri ýsa en vegna þess að hún
hefur verið utan kvóta hafa sjó-
menn séð sér akk i því að koma með
hana að landi og gera úr henni verð-
mæti.
Hendum ýsu og steinbít
„Það liggur alveg ljóst fyrir að ég
mun henda bæði ýsu og steinbít
sem ég fæ og það verður gaman að
sjá hvemig fiskifræðingar meta það
þegar ýsuveiðar nánast leggjast af á
Vestfjarðamiðum. Kvótakerfið átti
að vera vemdarstefna til að byggja
upp. Það hefur mistekist hrapallega
enda kemur hver skerðingin á fæt-
ur annarri en hins vegar hefur tek-
ist bærilega að vemda nokkrar út-
valdar útgerðir og það er kannski
tilgangur kerfisins.
Það er augljóst að það verður að
stýra fiskveiðum en að setja 6 tonna
bát undir sama hatt og þúsund
tonna togara er alveg út í hött og
við komumst ekki að hérna á
grunnslóðinni fyrir þessum
ryksuguskipum. Það er stunduð
mikil rányrkja á miðunum en það
er ekki gert með krókabátum," seg-
ir Ólafur og var heitt í hamsi. Þó
bindur hann vonir við að einhverjir
þingmenn muni reyna að sporna
við því sem í uppsiglingu er og nefn-
ir í því sambandi yfirlýsingar Ein-
ars Ódds Kristjánssonar og Kristins
H. Gunnarssonar og vísar til þess að
sjávarútvegsráðherra sé þekktur að
því að skipta um skoðun.
Neyðarblys á lofti
Smábátasjómenn á Vestfjöröum skutu upp neyöarblysum til aö minna á
stööu sína þegar nýtt fiskveiöiár gekk í garö.
Hestamenn
hittast
DV, SKAGAFIRDI:'
Hinir árlegu hestadagar, sem
hestamannafélögin í Ólafsfirði,
Siglufirði og austanverðum Skaga-
firði (Svaði) standa fyrir, voru
haldnir fyrir skömmu. Safnast var
saman í Fljótunum þar sem félagar
í Hestamannafélaginu Svaða höfðu
komið upp ágætri aðstöðu fyrir
hrossin en mannskapurinn hafði
Sólgarðaskóla til umráða. Þarna
komu liðlega 100 hross og fóru um
70 manns í reiðtúrinn á laugardeg-
inum þegar farin var skoðunarferð
fram Flókadalinn undir leiðsögn
heimamanna.
Þorvaldur Gestsson, formaður
Svaða, sagðist telja að hestadagarn-
ir hefðu tekist vel, veðrið var frá-
bært þessa helgi og létt yfir mann-
skapnum. Dagamir náöu hámarki á
laugardagskvöldiö með grillveislu
sem yfir eitt hundraö manns mættu
í. Þar voru einnig skemmtiatriði
sem Svaða-félagar sáu um. Tilgang-
ur þessarar samkomu er að hesta-
menn af þessu svæði hittist og
kynnist án þess að sérstök keppni
sé háð. -ÖÞ
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Frá hestadögunum
Fljótin skörtuöu sínu fegursta þegar fólk var aö gera klárt til heimferöar á lokadegi hestadaganna.
Á innfelldu myndinni er Þorvaldur á Krossi meö barnabörnin Fríöu Rún og Þorvald Inga á hestadögunum í Fljótunum.
Umsjón: Birgir Guömundsson
„Come back“ hjá Birgi
í pottinum hafa menn verið að
ræða um hið mikla „come back“
hjá Birgi ísleifi Gunnarssyni í
hlutverki
seðlabanka-
stjóra og for-
manns banka-
stjómar bank-
ans. Telja
menn að hann
hafi tæplega
verið jafn flott
ur og valds
mannslegui
fyrr - ekki einu sinni á ráðherraár-
um sínum - og því sé greinilegt að
honum henti betur að vera valda-
mikill embættismaður en pólitíkus.
Hins vegar er því ekki að neita að
þær raddir heyrast líka sem eru
mjög óánægðar með Birgi og telja
þrjósku hans við að lækka vexti til
marks um að maðurinn sé óalandi
og óferjandi. í þeim kreðsum heitir
hann einfaldlega: „Maðurinn sem
tapaði borginni"! ...
Pirraðir á VG
í pottinum heyrist nú að tals-
verður pirringur sé í gangi hjá að-
ildarflokkum Reykjavikurlistans,
ekki síst út í Vinstri græna vegna
þess að menn
óttast að sam-
komulag náist
ekki um að
bera fram
sameiginlegan
lista undir for-
ustu Ingi-
bjargar Sól-
rúnar Gísla-
dóttur. Bæði
framsóknarmenn og samfylkingar-
menn tala um að þeim þyki Vinstri
grænir draga lappirnar og að
sumra mati til þess að skapa sér
sterkari stöðu í samningsviðræðun-
um. Slíkt hefur fallið í grýttan jarð-
veg ýmissa flokkshesta og eru nú
farnar að heyrast raddir á ný inn-
an beggja flokka sem hvetja til þess
að Framsóknarflokkur og Samfylk-
ing hætti þessum eltingaleik og
bjóði fram i eigin nafni...
Nýr forstjóri Kaupáss?
Einn helsti samkvæmisleikur
manna sem gerst þekkja til í við-
skiptalífinu hefur að undanfórnu
verið sá að geta sér til um hver
verði ráðinn
næsti fram-
kvæmdastjóri
Kaupáss. Sem
kunnugt er
kunngerði
Þorsteinn
Pálsson það
snemmsumars
að hann.va
á forum
ekki hefur verið upplýst enn hver
taki við starfmu. Til sögunnar hafa
þó verið nefndir þeir Thomas
Möller, sem er einn af helstu
stjómendum OLÍS, og Steinþór
Skúlason, forstjóri Sláturfélags
Suðurlands, sem hefur þó opinber-
lega þvertekið fyrir að vera á for-
um frá kjötinu ...
Telja Ómar hlutdrægan
Ómar Ragnarsson fréttamaður
hefur flutt manna mest fréttir af
virkjunarmálum i Ríkissjónvarp-
inu og reykvískir framsóknarmenn
spyrja á vef-
síðu sinni,
Hriflu.is,
hvort menn
telji Ómar
sýna hlutleysi
í umflöllun
sinni. Því er
skemmst frá að
segja að Ómar
er ekki talinn
óvilhallur fréttamaður af framsókn-
armönnum, því 72% þeirra tæplega
300 framsóknarmanna sem greitt
hafa atkvæði á vefnum segja hann
ekki hlutlausan. Um 28% hins veg-
ar telja hann sýna hlutleysi í
fréttaflutningi sínum ...