Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Page 9
9
MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001
X>V____________________________________________________________________________________________Menning
Það er ekki heiglum hent að ráð-
ast til atlögu við óperuformið og
ekki að ófyrirsynju sem mörg tón-
skáld geyma sér það þar til þau
hafa viðað að sér reynslu og þekk-
ingu með öðrum einfaldari skrif-
um. Á laugardagskvöldið sl. var
frumsýnd í Dráttarbrautinni
gömlu í Keflavík ný islensk ópera,
Z Ástarsaga, eftir Sigurð Sævars-
son, flutt af félögum í Norðurópi.
Sigurður færist hér mikið í fang,
semur ekki aðeins tónlistina held-
ur líbrettóið líka en það er byggt á
samnefndri skáldsögu Vigdísar
Grímsdóttur. Útkoman varð
mónótónsk og rislítil tónlist og
handrit þó að eitt og annað væri
vel gert og má þar nefna ágæta
frammistöðu söngkvennanna
þriggja, Ingveldar Ýrar Jónsdóttur,
Jóhönnu Linnet og Bryndísar
Jónsdóttur, og hljómsveitarinnar
sem skipuð var fimm hljómborðs-
leikurum.
Z Ástarsaga er líklega sú bók
Vigdísar Grímsdóttur sem verst er
til þess fallin að semja upp úr óp-
erulíbrettó. Sagan hefur litla
dramatíska framvindu og byggist
að mestu á hugleiðingum og minn-
ingum dauðvona konu. í óperu-
handriti Sigurðar stíga persónum-
ar þrjár fram til skiptis og syngja
einar um hugleiöingar sínar með-
an hinar hlusta og engin raunveru-
leg átök eiga sér stað fyrr en í lok-
in að Z hittir Önnu sem segir
henni að hún sé að deyja. Fyrir
áhorfanda sem ekki var búinn að
lesa bókina hefði verið erfitt að
átta sig á um hvað verkið fjallaði
og er hér því ekki um sjálfstætt
handrit að ræða sem getur staðið
óháð bókinni heldur er brotum úr
bókinni raðaö saman á nokkuð til-
viljanakenndan hátt. Úr verður
handrit sem er allsendis ófært um
að bera uppi heila óperu og kemur
sögu Vigdísar illa til skila.
Óperan hófst á snotru upphafs-
stefi í píanói, og í byrjun virtist
tónlistin ætla að verða fallega
tregafull eins og ljúfur söngleikur.
En fljótlega fór að. gæta einhæfni
sem jókst þegar á leið, og nánast
má segja að litlar eða engar breyt-
ingar hafi orðið frá einum þætti til
annars. Eflaust hefur verið ætlun
höfundar að mynda með þrástefj-
um og síendurteknum hljómum
hið sérstaka andrúmsloft doða og
tímaleysis þegar setið er yfir veik-
um ættingja (sbr. viðtal við höf. í
efnisskrá) og er hugmyndin áhuga-
verð sem slík, en hér skorti eitt-
hvað í þrástefm og endurtekning-
arnar til þess að þær yrðu ekki
leiöigjamar. Annað vakti einnig
furðu þegar liða tók á hversu lítill
munur var á resítatífunum annars
vegar og aríunum hins vegar, en á
löngum köflum hljómaði óperan
eins og eitt langt resitatif. Útkom-
an í heild bar því reynsluleysi höf-
undar sterkt. vitni.
Söngkonurnar þrjár sungu allar
mjög fallega og leikur hljómsveit-
arinnar var með ágætum með hinn
örugga píanista Jónas Sen í farar-
broddi. Flytjendur létu ekkert á sig
fá þó að vél til hliðar við sviðið
tæki að ýlfra fljótlega eftir að óper-
an byrjaði og linnti ekki látum í
næstum tvo heila þætti þar til
starfsmaður að lokum þaggaði nið-
ur i henni. Leikstjórinn Helga Vala
Helgadóttir hefur sjálfsagt reynt
sitt besta til að skapa dramatískt
andrúmsloft milli persónanna, en
stöður þeirra voru mjög statískar
sem hjálpaði ekki upp á tilbreyt-
ingarleysið sem almennt sveif yfir
óperunni. Kannski má segja að
samræmis hafi gætt varðandi end-
urtekningar og kyrrstöðu milli
ólíkra þátta hennar en hér skorti
alveg neistann í tónlistina til að
gera kyrrstöðuna áhugaverða.
Ekki verður þó annað en tekið
ofan fyrir þeim bræðrum, Jóhanni
Smára og Sigurði og félögum
þeirra í Norðurópi, fyrir að hafa
ráðist í þessar óperuuppfærslur
þó að þessi væri síður lukkuð en
hin fyrri. Verður fróðlegt að sjá
DV-MYND BRINK
hvemig starf þeirra þróast í fram-
tíðinni.
Hrafnhildur Hagalín
Z Ástarsaga, ópera eftir Sigurð Sævars-
son, byggö á samnefndri skáldsögu Vig-
dlsar Grímsdóttur, sýnd í Óperuveislu í
Reykjanesbæ í gömlu Dráttarbrautinni í
Keflavík. Leikmynd: Jóhann Smári Sæv-
arsson. Ljós: Halldór Örn Óskarsson.
Hljómsveitarstjóri: Siguröur Sævarsson.
Leikstjóri: Helga Vala Helgadóttir.
Söngvara vantar
Æfingar heflast hjá Söngsveitinni
Fílharmóníu í næstu viku eftir óvenju
stutt sumarleyfi þar sem kórinn fór í
söngferðalag til Ungverjalands og Sló-
veníu í lok júní. í Búdapest hélt
Söngsveitin tónleika í Matthíasarkirkj-
unni og í kirkjunni í Eger þar sem
sungið var við guðsþjónustu og fluttir
tónleikar að henni lokinni. í Slóveníu
var Söngsveitin þátttakandi í menning-
arhátíðinni Imago Slóvenía og hélt tón-
leika bæði i Píran, ævafornri borg við
Adríahafið, og í Fransiskanakirkjunni
i Lljúbliana. í haust mun Söngsveitin
halda tónleika og bjóða landsmönnum
að hlýða á hluta efnisskrárinnar úr
ferðinni.
Á aðventutónleikum í desember í
Langholtskirkju flytur Söngsveitin
kirkjuleg verk af ýmsu tagi, bæði er-
lend og íslensk frá ýmsum tímum. Ein-
söngvari verður Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Aðalverkefni vetrarins er Messa
heilagrar Sesselju, verndardýrlings
tónlistarinnar, eftir Joseph Haydn.
Hún verður flutt í mars i Langholts-
kirkju. Ekki er fullljóst hvenær verkið
var samið en líkur eru leiddar að því
að það hafi verið á bilinu 1766-1773 og
að tilefnið hafl verið ráðning Haydns í
starf kantors í kastala Esterházy. Fjór-
ir einsöngvarar taka þátt í flutningnum
með kómum ásamt hljómsveit. Stjórn-
andi Söngsveitarinnar er Bemharður
Wilkinson og píanóleikari Guðríður St.
Sigurðardóttir. Raddþjálfun annast El-
ísabet Erlingsdóttir.
Æfingar Söngsveitarinnar eru á
mánudags- og miðvikudagskvöldum I
Melaskóla og verður sú fyrsta þeirra á
miðvikudagskvöldið kemur, 5. septem-
ber, kl. 20. Laus pláss em í öllum rödd-
um og era upplýsingar veittar í sima
kórsins 898 5290.
skoli olafs gauks
Innritun er hafin í síma flokka er í boði, bæði
588 -3730.
Fjölbreytt nám
fyrir alla aldurs-
Hægt er að fá leigða
heimagítara.
Kr. 2.500 á önn.
byrjendur og þá
sem kunna
eitthvað fyrir sér.
©588-3730
Innritun daglega kl. 14-17
VISA
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
SÓL hf. •
Ferðaskrifstofan
iréft - §
Sérferð Visa korthafa
Þrjár nætur í höfuðborg Portúgals og 4 nætur á sólarströnd.
Sól býður til skemmtilegrar dvalar í Lissabon sem oft hefur
verið nefnd San Francisco Evrópu. Dvalið verður á nýju og
stórglæsilegu íbúðahóteli Sólar í Albufeira, Paraiso de
Albufeira.
kr. á mann í tvíbýlí með sköttum
Skoðunarferðir greiðast sérstaklega.
Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sol.is
■heitar feröir