Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Qupperneq 24
36
MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001
Tilvera 30 "V
DV-MYND: HARI
Hluti listafólksins sem leiöir sýninguna
Gunnar Þórðarson tónlistarmaöur, Kjartan Rágnarsson leikstjóri, Lára Stefánsdótir dansari, Sigurbjörn Báröarson hestamður og Benedikt Erlingsson
leikari.
Hestagaldur í Laugardalnum:
Dansað við gæðing
lí f ið
Vatnslitamyndir
í Kaffi Rót
Um síðustu helgi opnaði
myndlistarmaðurinn Pierre-Alain
Barichon sýningu í Kaffi Rót þar
sem hann sýnir vatnslitamyndir.
Pierre-Alain er íslenskur
ríkisborgari en fæddur í París.
ísland gefur hinum innblástur og
fegurð landslagsins heillar hann.
Sýningin stendur yfir til
septemberloka og er opin á sama
tíma og kaffihúsið.
Klassík
SONGVAKA Rósa Kristín
Baldursdóttir og Hjörleifur
Hjartarson munu í kvöld flytja
síöustu söngvöku þessa sumars j
Minjasafnsklrkjunni á Akureyri. Á
dagskránni, sem er í tali og tónum,
eru flutt sýnishorn þeirrar tónlistar
sem íslendingar hafa leikiö og
sungiö í gegnum aldirnar og fram á
okkar daga. Tónleikarnir hefjast
klukkan níu og eru í rúma
klukkustund.
Myndlist
GUÐNI HAROARSON í GALLERÍ
FOLD Um helgina opnaði Guöni
Haröarson málverkasýningu í
baksalnum í Gallerí Fold, Rauðarár-
stíg 14-16. Sýninguna nefnir lista-
maðurinn íhugun en á henni eru um
20 verk, unnin meö akrýllitum á
striga. Opið er daglega frá 10-18,
laugardaga frá 10-17 og sunnudaga
frá 14-17 en sýningin stendur til 9.
september.
BJÖRG ÖRVAR Í ÁLAFOSSKVOS
Listakonan Björg Orvar sýnir ný mál-
verk í sýningarsal Álafossversiunar-
innar í Aiafosskvos í Mosfellsbæ.
Sýningin er opin 9 til 18 virka daga
og 9 til 16 laugardaga til 27. októ-
ber.
JAKOB SMÁRI ERLINGSSON
OPNAR SYNINGU I EDEN
Þessa dagana stendur yfir 1 Eden í
Hveragerði myndlistarsýning á
verkum Jakobs Smára Erlingssonar.
Um er að ræða 40 akrýl- og
vatnslitamyndir sem Jakob hefur
málað á síðustu þremur árum.
Flestar myndirnar eru af fuglum en
einnig eru landslagsmyndir á
sýningunni. Þetta ertíunda
einkasýnings Jakobs Smára sem
búsettur er í Vestmannaeyjum og
fyrsta sýningin uppi á landi. Sýningin
er opin á sama tíma og Eden og
stendur yfir til 10. september
næstkomandi.
ALBERT MERTZ í GALLERÍ KAMBI
Um síðustu helgi var opnuð sýning á
verkum danska myndlistarmannsins
Alberts Mertz í Gallert Kambl.
Sýningin er valin af Gunnarl Erni
staðarhaldara í samvinnu við Lone
Mertz, ekkju listamannsins. Hún
inniheldur breitt úrval af verkum,
unnin meö gouachelitum á papplr og
verkin Rddt og Blaat Huskors. Lone
Mertz tekur þátt í aö mála tilbúna
hluti á sýninguna í rauöum og bláum
litum. Ameríski listamaðurinn
Lawrence Welner fylgir sýningunni
úr hlaði meö ritsmíö um Mertz.
JÓN INGIBERG í GALLERÍ GEYSI
Síöastliöinn laugardag opnaöi Jón
Ingiberg Jónsteinsson fyrstu
einkasyningu slna I Gallerí Geysi. Þar
sýnir hann málverk unnin á þessu ári
og er heiti sýningarinnar Vígvellir. Jón
Ingiberg er nú á lokaári á listasviði
Fjólbrautaskólans I Breiðholti. Hann
hefur verið virkur meölimur frá
upphafi I myndasöguhópnum sem
gefur út Blekblaöiö. Sýning stendur
til 15.september og eru allir
velkomnir.
Sjá nánar: Líflö eftir vlnnu á Vísi.is
Hestagaldur er heiti á sýningu
sem sett verður upp í Skautahöll-
inni i Laugardal 6.-9. september.
Þar munu þekktir knapar og lista-
menn landsins leika ýmsar kúnstir
umfram það sem þeir gera hvunn-
dags. Meðal þeirra sem koma fram
er Sigurbjöm Bárðarson hesta-
maður og hann verður fyrir svör-
um þegar DV forvitnast um sýn-
inguna: „Þarna verða farnar
ótroðnar slóðir,“ segir Sigurbjörn.
„Þama verða meðal annars tekin
atriði úr íslensku þjóðsögunum,
hvarf séra Odds frá Miklabæ,
Djákninn á Myrká, Ólafur Liljurós
og ýmislegt fleira. Þetta er allt
mjög magnað. Kjartan Ragnarsson
leikstýrir sýningunni og skrifaði
handrit ásamt Benedikt Erlings-
Á síöustu tveimur árum hefur
landslagið í íslenskri kvikmynda-
gerð verið að breytast. Ný kynslóð
kvikmyndagerðarmanna hefur
verið að hasla sér völl, ungt fólk
með ferskar hugmyndir og
kannski fyrst og fremst meiri víð-
sýni heldur en hefur tíðkast. Og
hvað varðar framtíðina þá er hún
björt þegar tekið er mið að þeim
þremur stuttmyndum, sem Fil-
mundur sýnir í Háskólabíói. Þeim
leikstýra ungir menn, nýkomnir
úr kvikmyndaskóla eða eru við
nám, og satt best að segja kom það
verulega á óvart hversu þessar
myndir eru unnar af mikilli fag-
mennsku þrátt fyrir að tvær þeirra
séu útskriftarverkefni og sú þriðja
gerð með litlum tilkostnaði hér
heima. Leikstjórar stuttmyndanna
þriggja, sem allar eru leiknar, eru
Ámi Óli Ásgeirsson (PS), Þorgeir
Guðmundsson (BSÍ) og Dagur Kári
Pétursson (Lost Weekend). BSÍ og
Lost Weekend hafa verið sýndar
áður, en PS hefur ekki verið sýnd
hér á landi áður
Fyrst í röðinni á sýningu mynd-
anna 1 Háskólabíó var PS, sem seg-
ir frá ungri pólskri stúlku, sem
syni en Þórunn Sveinsdóttir sér
um búninga. Svona sýning hefur
aldrei verið sett upp því samstarf
listafólks og fagfólks í hesta-
mennsku er alger nýlunda,"
Lára Stefáns
dansar viö hest
Einn af hápunktum sýningar-
innar er tangódans sem Sigurbjöm
fær hest til að dansa móti Láru
Stefánsdóttur dansara. Hann er
beðinn að lýsa því atriði nánar:
„Þetta hefur aldrei verið gert á ís-
landi fyrr að okkar þekktasti ball-
ettdansari dansi erótískan dans á
móti gæðingi. Ég sit á hestinum og
er búinn að leggja mikla vinnu í
þjálfun á honum. Lára hefur líka
starfar í London og er að fara að
gifta sig. Hún tekur sér ferð á
hendur til heim til Póllands til að
nálgast brúðarkjól sem hún vill
gifta sig í. Þótt hún geri sér
kannski ekki ljóst strax þá er hún
einnig að gera upp fortíðina. Hún
hafði hlaupist á brott frá unnusta
sem hún var heitbundin, manni
sem hún ber enn þá sterkar tilfinn-
ingar til, en aftur verður ekki snú-
ið. Hún er breytt manneskja á með-
an unnustinn fyrrverandi stendur
í stað.
PS er litil saga um fábrotnar
manneskjur. í augum þorpsbúa er
stúlkan frá London heimsmann-
eskja, en í London er hún aðeins
þjónn á veitingahúsi sem hafði
einu sinni afgreitt Jane Seymour
og í raun jafn fábrotin og heimfólk
hennar. Samt er hún breytt og
komin með önnur lífsviðhorf. í
meðförum Árna Óla verður at-
burðarásin þétt, örlítið þung í vöf-
um en mannleg og vel gerð.
BSÍ vann síðastliðið vor til
fyrstu verðlaun á Stuttmyndadög-
um í Reykjavík og það verðskuld-
að. Þorgeir Guðmundsson leiðir
saman í mynd sinni tvær persónur
æft sig af kostgæfni." Ekki vildi
Sigurbjörn upplýsa hvaða hestur
þarna yrði í aðalhlutverki, sagði
það meðal þess sem ætti að koma á
óvart.
Söguhetjur vaöa eld
Fjöldi áhættuatriða er í sýning-
unni sem reyna til hins ýtrasta á
samband hests og manns. Meðal
annars er riðið með fram 30 metra
eldvegg og söguhetjur vaða eld i
mögnuðum eltingaleik. Eldgleypar
sýna listir sínar og leikarar svifa i
lausu lofti. Einnig fer fram tölt-
keppni þar sem kostir íslenska
hestsins koma skýrt í ljós. Tónlist
er í höndum Gunnars Þórðarsonar
en einnig kemur fram í sýning-
sem finna til samkenndar. Það er
morgunn í Reykjavík, ung stúlka
sem á ekki fyrir leigubíl labbar inn
á BSÍ þar sem fáar manneskjur eru
á ferli. Um sama leyti kemur þang-
að inn ungur maður sem hefur
strokið af geðdeild Landspítalans.
Eitthvað í fari þeirra laðar þau
hvort að öðru, kannski tómleiki
sálarinnar, þau þarfnast eitthvers,
bæði hafa orðið fyrir lifsreynslu
sem þarf að fá botn í, en sjálfsagt fá
þau engin svör hjá hvoru öðru. BSÍ
er fagmannlega gerð. Innskot at-
riða eru á réttum stöðum og leikar-
ar ná vel saman. Það er helst að
þreytandi er að hlusta á heilan
sjónvarpsfréttatíma frá því fyrir
verslunarmannahelgi meðan á at-
burðrásinni stendur.
Lost Weekend, Dags Kára Pét-
ursson, er síðan rúsínan í pylsu-
endanum, áhrifamikil og vel gerð
lýsing á manni sem koksar á líf-
inu, getur hvorki verið kyrr né
hreyft sig úr stað. Mynd þessi hef-
ur farið víða og alls staðar vakiö
athygli enda sterk upplifun. Lost
Weekend gerist á litlu subbulegu
hóteli. Plötusnúður vaknar morg-
im einn og man eingöngu brot úr
unni dútettinn „Áhugamenn um
íslenska hesta“, skipaður þeim
Helga Bjömssyni og Jóhanni Sig-
urðarsyni sem taka nokkur vel val-
in lög.
Á von á góöri stemningu
Hestagaldur er hluti stórsýning-
arinnar Heimilið og Islandica 2001
sem fram fer í Laugardal 6.-10.
september. Selt er inn á Hestagald-
ur sérstaklega og kostar miðinn
2500 i sæti en 1500 í stæði. Aðeins
verða fjórar sýningar. „Ég get full-
yrt að þetta verður sýning við hæfi
ungra jafnt sem aldinna og allra
þar á milli og á von á geysilega
góðri stemningu," sagði Sigurbjöm
Bárðarson að lokum.
síðasta sólarhring. Hann yfirgefur
hótelið en kemst aðeins út á götu
áður en hann snýr við og biður um
sama herbergi aftur. Hann vill
frekar vera lokaður inn í búri
heldur en að takast á við lífið. í
framhaldi fylgjumst við með kynn-
um hans af hóteleigandanum,
furðufugli sem fundið hefur upp
vísindalega aðferð til að græða
sem mest á „mínibörum". Lost
Weekend er í svart/hvítu sem ger-
ir þá veröld sem hún lýsir enn nöt-
urlegri. Dagur Kári kemur vel til
skila ástandi plötusnúðsins og
myndin er í heild vel leikin. Það er
helst að mér fannst Ðagur Kári
finna of einfalda lausn í lokin, allt
í einu var kominn melódramatísk-
ur endir á skjön við raunsæið.
Ef eitthvað er hægt að finna
sameiginlegt með stuttmyndunum
þremur þá fjalla þær allar um
manneskjur á einhvers konar
timamótum, pólska stúlkan er að
gera upp fortíðina, unga stúlkan á
BSÍ hafði verið afmeyjuð um nótt-
ina og plötusnúðurinn lendir í
sjálfheldu sem hann kemst ekki út
úr. Að öðru leyti er þær ólíkar að
uppbyggingu og gerð.
Bíógagnrýní
* ■ > ■ ;’’j'
pBlÍISl
Þrír efnilegir
Háskólabíó - Þrjár stuttmyndir
Hilmar
Karlsson
skrifar gagniýni
um kvikmyndir.