Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Betri byggö óttast um flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli:
Vill flugið til Keflavíkur
- ekkert slíkt á döfinni, segir fulltrúi Flugmálastjórnar
Samtökin Betri
byggð í Reykjavík
hafa ítrekað sent
frá sér athugasemd-
ir varðandi hættu
sem þau telja stafa
af flugi um Reykja-
víkurflugvöll. í kjöl-
far hryðjuverka í
Bandarikjunum
hafa samtökin lýst
áhyggjum vegna
þess hversu opinn Reykjavíkurílug-
völlur sé gagnvart mögulegum
hryðjuverkum.
örn Sigurðsson, varaformaður
Betri byggðar, segir ástandið í raun
skelfilegt. Á sama tíma og utanríkis-
ráðherra lýsir möguleikum á að
taka heilu þjóðirnar i gíslingu þar
sem t.d. farþegaflugvélar eru nýttar
sem vopn þá séu engar ráðstafanir
gerðar varðandi Reykjavíkurflug-
völl. Samt sé flugvöllurinn í næsta
nágrenni helstu stjórnsýslumiðstöð
íslendinga. Þess má geta að um 20
þúsund millilandafarþegar lentu á
Reykjavikurflugvelli árið 1999, mest
vegna Færeyja- og Grænlandsflugs.
„Viö vöruðum við þessu fyrir
einu ári og báðum Almannavamir
að gefa álit sitt á málinu. Þá sendum
við erindi á einar tíu stofnanir en
um helmingur þeirra hefur svarað.
Við teljum því að það verði strax að
flytja allt flug tii Keflavikurflugvall-
ar. Þann 14. september og aftur 1.
október sendum við öllum borgar-
fulltrúum og varaborgarfulltrúum
ásamt þingmönnum Reykvíkinga
erindi um málið. Eins sendum við
fjölmiðlum afrit af erindinu. Við
höfum hins vegar ekki fengið nein
viðbrögð," segir Örn og vill að í
kringum Reykjavík verði skilgreint
flugbannssvæði til að koma í veg
fyrir tjón.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar, segir
engin áform uppi um að flytja flug-
umferð sem nú fer um Reykjavíkur-
flugvöll til Keflavíkur. Hann segir
eriendar vélar sem koma til Reykja-
víkur flestar fá
þjónustu hjá Flug-
þjónustunni. Til
þeirra berist upp-
lýsingar um hvaðan
vélar koma og
hvernig flug sé um
að ræða. Þá fái
Flugstjórn líka upp-
lýsingar um allar
vélar sem hingað
koma. „Langmest af
þeim ferjuvélum
sem koma eru með þekkta flugmenn
innanborðs. Einkaþotur sem hingað
koma senda líka sín flugplön og er
þá yfirleitt vitað hvaða fólk er þar á
ferðinni. Þeir sem koma hingað á
einkavélum líta á það sem ótviræð-
an kost að geta lent á Reykjavíkur-
flugvelli. Það hefur því ekki komið
til tals að flytja þetta flug til Kefla-
víkur.“
Heimir segir það ekki rétt sem
Betri byggð haldi fram að erlendis
séu flugbannssvæði í kringum flug-
velli í borgum. í London sé t.d. flog-
ið yfir miðborgina og kastala
drottningar. Að vísu hafi þó alltaf
verið nokkur hundruð metra flug-
bannssvæði í kringum Hvíta húsið í
Bandaríkjunum.
-HKr.
Örn
Sigurðsson.
Heimir Már
Pétursson.
.. Fjárlögin:
Okuprófin
einkavædd
Kolbrún Hall-
dórsdóttir, þing-
maður Vinstri
grænna, lýsti á
þingi í gær yfir
áhyggjum af fyrir-
huguðum breyting-
um á framkvæmd
ökuprófa. Sam-
kvæmt fjárlögunum
munu framlög til
Umferðarráðs
lækka um tugi milljóna þar sem lík-
ur eru á að framkvæmd bílprófa
verði tekin úr höndum Umferðar-
ráðs. Kolbrún spurði dómsmálaráð-
herra, Sólveigu Pétursdóttur, á
hverra vegum framkvæmdin yrði
næsta ár, hver rökin væru fyrir fyr-
irhuguðúm breytingum og hvort
starfsmönnum úti á landi yrði fækk-
að vegna þessa.
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra svaraði að
heppilegt væri að
bjóða út fram-
kvæmd ökuprófa en
ekki væri frágengið
hvemig breytingin
yrði. Vonir stæðu
til að ekki yrði
fækkun hjá starfs-
mönnum Umferðar-
ráðs vegna þessa og óvíst væri
hverjir hlytu hnossið. „Ég tel að
breytingar sem þessar geti haft já-
kvæð áhrif,“ sagði ráðherra.
Kolbrún taldi aðgerðina dæmi um
enn eina einkavæðingarfram-
kvæmd rikisstjórnarinnar og hún
varaði við því að farið yrði í breyt-
ingar á svo alvarlegum málaflokki
án þess að búið væri að ígrunda
dæmið til enda. Sólveig minnti á að
hún hefði margt gott látið af sér
leiða, s.s. ýmiss konar umferðar-
átök, herta löggæslu og hækkun
sekta. -BÞ
Sólveig
Pétursdóttir.
Kolbrún
Halldórsdóttir.
Selfossprestakall verður auglýst:
Þjóðkirkjan aldrei
samstæðari
- segir prófasturinn á Eyrarbakka
Selfossprestakall
verður auglýst þar
sem sóknarprestur-
inn sr. Þórir Jökuil
Þorsteinsson hefur
verið skipaður til
embættis prests ís-
lendinga í Kaup-
mannahöfn. Ekki hef-
ur þó verið ákveðið
hvenær prestakallið
verður auglýst enda
eru uppi hugmyndir um að breyta
sóknarmörkum til að koma á meira
jafnvægi í prófastsdæminu.
Upphaflega sótti Þórir Jökull um níu
mánaða námsleyfi. Honum var veitt
það 0g Gunnar Bjömsson settur prest-
ur á Selfossi í níu mánuði. Síðan
breyttust aðstæður og Þórir Jökull var
skipaður prestur i Kaupmannahöfn.
Sr. Úlfar Gunnarsson, prófastur á
Eyrarbakka, sagði við DV að skipting-
in í prófastsdæminu væri orðin mjög
ójöfn. Söfnuðurinn á Selfossi teldi tæp-
Úlfar
Guömundsson.
Gunnar
Björnsson.
I lega fimm þúsund
manns og væri það
nær helmingur sókn-
arbama í öllum tíu
prestaköllunum inn-
an prófastsdæmisins.
Spumingin væri því
hvort rétt væri að
| breyta sóknarmörk-
unum. Mikil endur-
skipulagning hefði
þegar farið fram inn-
an kirkjunnar til þess að reyna aö nýta
starfskrafta innan hennar sem best.
Úlfar sagði að þessar breytingar
hefðu ekki verið ræddar tfl hlítar enda
ekkert ákveðið í þeim efnum enn.
Ræða þyrfti málið við viðkomandi
presta og sóknamefndir. Ákvörðunar-
valdið væri biskups.
Þá benti hann á að ekkert prestsset-
ur væri á Selfossi. Ailt þyrfti þetta að
liggja ljóst fyrir áður en auglýst yrði
þannig að menn vissu hvað þeir væm
að sækja um.
Um þann ágrein-
ing sem risið hefur
innan kirkjunnar
vegna skipunar í
embætti innan henn-
ar sagði Úlfar að þjóð-
kirkjan hefði aldrei
verið samstæðari
heldur en um siðustu
aldamót. Áður hefðu
Þorsteinsson. verið uppi hatramm-
ar deilur sem rist
hefðu djúpt, um trúmál og helgisiði,
spíritisma og fleira.
„Þetta er allt saman horfið," sagði
Úlfar. „Predikun prestanna hefur ekki
verið eins samstæð lengi eins og hún er
á okkar dögum. Það hefur verið ágrein-
ingur um persónulega framgöngu ein-
staklinga. Þau tilvik má telja á fingram
annarrar handar. Það er ekki svo mik-
ið hjá svo fjölmennri grasrótarhreyf-
ingu sem þjóðkirkjan er, með fleiri þús-
und manns að störfum, bæði á launum
og í sjálfboðavinnu." -JSS
Snerra hjá forsætisráðherra og formanni Vinstri grænna:
Davíð segir sýn Stein-
gríms óviðfelldna
- lög sniögengin meö því að kalla ekki saman utanríkismálanefnd að mati VG
Skoðanir Steingrims J.
Sigfússonar, formanns
Vinstri grænna, eru óvið-
felldnar í utanríkismálum að
mati Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra. Þetta kom
fram í óundirbúnum fyrir-
spurnum á Alþingi í gær en
Steingrímur benti á að hann
hefði fullan rétt á sínum
skoðunum þótt öðruvísi
væru en hugmyndir forsætis-
ráðherra. Steingrímur sagðist langt
í frá vera einn um sína sýn á við-
brögð vegna refsiaðgerða Banda-
ríkjamanna gegn Afganistan.
Óbreyttir borgarar væru þegar
fallnir vegna loft-
árásanna.
Tilefni orðaskipt-
anna var að Steingrím-
ur gagnrýndi að utan-
ríkismálanefnd hefði
ekki verið kölluð sam-
an áður en ríkisstjórn
landsins lýsti opinber-
lega stuðningi við loft-
árásir Bandaríkja-
manna. Formaður
Vinstri grænna hélt því fram að rík-
isstjórnin hefði farið á skjön við lög
með því að kalla ekki nefndina sam-
an en Davíð svaraði að viðbrögð ís-
lenskra stjórnvalda væru í sam-
.Œim við tvær ályktanir Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna og í samræmi við fyrri
ályktanir utanríkismála-
nefndar. Davíð vísaði sér-
staklega til þess að formaður
Samfylkingarinnar væri á
öðru máli en Steingrímur í
þessu máli.
Fram kom í umræðunum
að búast mætti við að íslend-
ingar myndu styrkja hjálpar-
starf vegna atburðanna enn frekar
en þegar er orðið. Ríkisstjórnin hef-
ur þegar samþykkt að veita 10 millj-
ónir króna til hjálpar flóttamönn-
um. -BÞ
Davíö
Oddsson.
Steingrímur J.
Sigfússon.
Umsjón: Bírgír Guömundssoíi
netfang: birgir@dv.is
Kristinn umdeildur
Mjög er nú rætt um stöðu Krist-
ins H. Gunnarssonar í þingflokki
Framsóknarflokksins eftir að hann
hlaut aðeins 7 atkvæði i kosningu til
formanns þingflokksins. Er þetta
talið endurspegla
hversu umdeildur
Kristinn er meðal
kollega sinna.
Kristinn mun hafa
notið stuðnings
ráðherra flokksins
enda Halldór Ás-
grímsson ákveðinn I
í að láta Kristin ekki gjalda sérstöðu
sinnar í sjávarútvegsmálum, þrátt
fyrir að á þvi sviði sé Kristinn sagð-
ur hafa farið fram á ystu nöf gagn-
vart formanni sínum. Fullyrt er að
þótt Halldór sé mjög ósammáia
Kristni telji formaðurinn það póli-
tískt óklókt að gengisfella þann þing-
mann sem opinberlega hefur talað
hvað mest gegn honum í sjávarút-
vegsmálum. Betra væri að halda
Kristni sem þingflokksformanni og
undirstrika lýðræðisást flokksins ...
Hver lak atkvæðatölunum?
En það eru fleiri hliðar á þessu
máli þvi í pottinum er líka fullyrt að
forustu flokksins hafi ekki verið
skemmt við það að niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar í þingflokknum
hafi lekið út. Er
talið víst að þar
hafi verið á ferð-
inni þingmenn
sem þyki ekki
verra ef staða
Kristins veikist,
enda er Kristinn
óhjákvæmilega ráð-
herraefni en margir þingmenn ganga
með ráðherra í maganum. Sú stað-
reynd að málið var komið í fjölmiðla
hefur jafnframt orðið til þess að nú
eru uppi margar kenningar í þing-
flokknum um hver hafi lekið þessum
atkvæðatölum og hvers vegna og fyr-
ir vikið hefur pirringurinn þar á bæ
ekki beinst að Kristni heldur að
meintum fjandmanni Kristins ...
Virkjaö af kappi
í pottinum hafa menn verið að
skoða drögin að landsfundarályktun-
um Sjálfstæðisflokksins. Heyrst hefur
að einn af höfundum ályktunar um
umhverfis- og virkjunarmál hafi ver-
ið Jónas Eliasson
sem er mikill
virkjunarsinni.
Fuflyrt er að á ein-
hverju stigi þegar
verið var að skrifa
drögin og menn að
kasta þeim á mifli
sín hafi Jónas verið
inni með setningu sem hljómaði eitt-
hvaö á þessa leið: „Landsfundurinn
hvetur til þess að virkjað verði af
kappi." Þetta mun einhverjum flokks-
mönnum og skoðanabræðrum Ólafs
F. Magnússonar hafa þótt heldur
bratt í málið farið og mótmælt. Segir
sagan að Jónas hafl þá verið tilbúinn
með málamiðlun: „Landsfundurinn
hvetur til þess að virkjað verði af
kappi - og forsjá." Ekki virðist þessi
málamiðlun þó hafa gengið eftir því
ekkert þessu líkt er að finna í endan-
legu ályktunardrögunum ...
„Ungir VG á Akureyri"
Hinir kratísku Kremlverjar geta
verið andstyggilegir á vef sínum,
sérstaklega ef VG er annars vegar.
Þar má nú finna eftirfarandi klásúlu:
„Ungir vinstri grænir á Akureyri
kunna svo sannar-
lega að nýta sér
vefinn tfl að koma
i málstað sínum á
framfæri. Þetta er
geysiöflugur miðill
sem þeir reka og
gaman að sjá að
það er kraftur í
unga fólkinu í heimakjördæmi
Steingríms Joð. Hressandi og vel
uppfærður vefur sem gleður í lá-
deyðu hversdagsins." Sé vefur ung-
liðanna skoðaður kemur í ljós að þar
eru fréttir af og hvatningar til fólks
um að koma í 1. maí-gönguna - sem
haldin var fyrir næstum hálfu ári...!