Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Page 8
8
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001
DV
Mótmæli í Islamabad
Mótmæli viö árásunum á Afganistan
voru hvaö höröust í Pakistan.
Námsmenn mót-
mæla árásunum
Viðbrögð arabaríkja við árásum
Bandaríkjamanna og Breta á Afgan-
istan hafa verið misjöfn og hvergi
komið til blóðugra átaka nema á
Gazasvæðinu og í Pakistan. í Egypta-
landi komu til dæmis um 20 þúsund
námsmenn saman til mótmæla í Alex-
andríu þar sem árásunum var harð-
lega mótmælt á meðan yfirvöld sögðu
ekki orð. Þaö sama gerðist í Óman, en
þar voru það líka námsmenn sem
mótmæltu. í Sádi-Arabíu var allt með
kyrrum kjörum og sýndu yfirvöld í
landinu engin viðbrögð.
Viðbrögð annarra múslímskra
ríkja voru mismunandi, en hvað hörð-
ust í íran og írak, en þar voru árásirn-
ar fordæmdar. Þaö sama er að segja
um Líbani sem drógu málefni Palest-
ínu inn í málið. Önnur arabaríki, eins
og Bahrin, Jórdanía og Sameinuðu
furstadæmin hörmuðu árásimar, en
sögðust styðja aðgerðir gegn hryðju-
verkum svo framarlega sem þau
bitnuðu ekki á saklausum borgumm.
Kjell Magne Bondevlk
Kjell Magne Bondevik verður næsti
forsætisráðherra Noregs fái hann til
þess stuðning Karls Hagens,
formanns Framfaraflokksins.
Minnihlutastjórn
Bondeviks í
fæðingu í Noregi
Ný minnihlutastjórn Hægri ílokks-
ins, Kristilega flokksins og Vinstri er
í burðarliðnum í Noregi og var stjóm-
arsáttmáli flokkanna kynntur á blaða-
mannafundi í gærkvöldi. í sáttmálan-
um er væntanleg ríkisstjóm nefnd
„Samstarfsstjórnin", til að leggja
áherslu á hinn mikla samstarfsvilja
stjórnarflokkanna, en ráðherralisti
hefur þó ekki verið birtur. Það eina
sem er fullkomlega öruggt i þeim mál-
um er að Kjell Magne Bondevik, leið-
togi Kristilega flokksins, verður næsti
forsætisráðherra Noregs fái ríkis-
stjómin þingmeirihluta, en hún verð-
ur að reiða sig á stuðning Framfara-
flokksins og hefur Karl Ivar Hagen,
formaður flokksins, tekið sér umhugs-
unarfrest til morguns hvort hann
styður þríeykið.
Á blaðamannafundinum í gær lýstu
allir leiðtogar flokkanna þriggja því
yfir að þeirra flokkur væri sigurveg-
ari við gerð stjómarsáttmálans og
lýsti til dæmis Jan Petersen og Hægri
yfir mikilli ánægju með hina miklu
skattalækkun sem lofað er á meðan
Kjell Magne Bondevik var kátur yfir
því að fá Hægri til að styðja fjöl-
skyldustefnu KristOegra. Hann fékk
þó ekki Hægri flokkinn til að hvika
frá stefnu sinni í gasorkuversmálinu
sem varð til að fella Bondeviksstjórn-
ina fyrir rúmlega hálfu öðra ári.
Loftárásir á Afganistan aðra nóttina í röð:
Ekki búist við
skjótum sigri
Afganskir björgunarsveitarmenn
grófu í morgun í rústum skrifstofu,
sem Sameinuðu þjóðirnar fjár-
magna og skipuleggur eyðingu jarð-
sprengna, þar sem fjórir menn
týndu lífi í loftárásum Bandarikja-
manna í nótt. Mennimir voru sof-
andi í húsinu þegar bandarískt flug-
skeyti hitti það.
Bandarískar flugvélar gerðu loft-
árásir á skotmörk í Afganistan í
nótt, aðra nóttina í röð. Embættis-
menn vestan hafs drógu hins vegar
úr væntingum manna um skjótan
hemaöarlegan sigur á talibana-
stjórninni.
Fréttir bárust um það í morgun
frá Kandahar, þar sem andlegur
leiðtogi talibana hefur bækistöðvar
sínar, að árásir hefðu verið gerðar á
borgina eftir að birta tók af degi.
Það munu vera fyrstu árásimar í
björtu eftir að aðgerðirnar hófust á
sunnudagskvöld.
Embættismenn í Bandarikjunum
juku mjög allan viðbúnað til að
koma í veg fyrir hugsanlegar hefnd-
araðgerðir harðlínumúslíma.
Bresk stjómvöld, sem eru dygg-
ustu bandamenn Georges W. Bush
Bandaríkjaforseta í baráttunni við
hryðjuverkamenn, sögðust eiga von
á að fyrsta þreki aðgerðanna í
Afganistan yrði lokið eftir nokkra
daga.
„Ég býst við að þetta verði frekar
dagaspursmál en spurning um
nokkrar vikur. Þetta er fyrsta þrep
árása okkar á talibanastjórnina,"
sagði Geoff Hoon, landvarnaráð-
herra Bretlands, í viðtali við breska
sjónvarpið BBC. Hann sagðist vona
að talibanar sæju að sér og fram-
seldu Osama bin Laden, sem grun-
aður er um að hafa skipulagt
hryðjuverkin í Bandaríkjunum í
síðasta mánuði.
Bandarísk stjómvöld sendu í gær
bréf til Öryggisráðs SÞ þar sem þau
ýja að því að árásir kunni að verða
gerðar á önnur lönd en Afganistan í
baráttunni gegn hryðjuverkamönn-
um.
Bretar, sem tóku þátt í hernaðar-
aðgerðunum á sunnudagskvöld, ítr-
ekuðu aftur á móti að aðgerðirnar nú
beindust eingöngu að Afganistan.
Sérfræðingar segja enn of
snemmt að meta skemmdirnar af
völdum lofthernaðarins. Fyrstu töl-
ur um mannfall bentu til að tuttugu
hefðu týnt lifi í árásunum en aðstoð-
arheilbrigðisráðherra Afganistans
sagði síðar að átta hefðu látið lifið.
Bandarískir ráðamenn sögðu í
gær að miklar skemmdir hefðu orð-
ið á loftvörnum talibana en þær
hefðu þó ekki veriö eyðilagðar.
Þá sögðu ráðamenn að ekkert
benti tO að truflanir hefðu orðið á
fjarskiptum milli hermanna á jörðu
niðri.
TfTr?'l
nfÝai^á
REUTER-MYND
Hreinsað til í rústum í Kabúl
Jaröýtu var beitt i morgun á rústir stofnunar í Kabúl, höfuöborg Afganistan, sem Sameinuöu þjóöirnar hafa fjármagn-
aö og hefur unniö aö því aö fjarlægja jarösprengjur. Bandarískt flugskeyti eyðilagöi bygginguna og týndu aö minnsta
kosti fjórir menn lífi. Þeir voru i fastasvefni þegar flugskeytið hitti húsiö.
Rannsóknin beinist aö ratsjá sem ekki var í sambandi:
Versta flugslys á Ítalíu
kostaði 118 manns lífið
Rannsóknarnefnd flugslysa á ital-
íu og rannsóknardómarar reyna nú
að komast að ástæðum flugslyssins
á flugvellinum í Mílanó í gær, sem
varð að minnsta kosti 118 manns að
bana, og átta sig á því hvort einhver
beri lagalega ábyrgð á þessu versta
flugslysi á Ítalíu.
Þota frá norræna flugfélaginu
SAS rakst á litla einkavél i niða-
þoku í gærmorgun og endaði för
sína á byggingu þar sem farangur
er flokkaður. Allir sem voru um
borð í vélunum tveimur, 110 manns
í þotunni og fjórir í einkavélinni,
létust, svo og fjórir starfsmenn í
flokkunarstöðinni.
Yfirvöld útilokuðu að um hryðju-
verk hefði verið að ræða og sögðu
nær víst aö flugmanni einkavélar-
REUTER-MYND
Brunnið flugvélarflak
Slökkviliösmaöur gengur fram hjá
brunnu flaki SAS-þotunnar í Mílanó.
innar væri um að kenna. Og að
slæmt veður hefði aðeins gert illt
verra.
í ljós hefur komið að ratsjá sem
gerir flugstjórnarmönnum kleift að
fylgjast meö umferð véla á vellinum
hafði ekki verið sett í samband
vegna skriffinnskuklúðurs. Vist
þykir að dómarar muni beina rann-
sökn sinni að þessum þætti.
SAS-þotan, sem var á leið til
Kaupmannahafnar, var komin á 300
km hraða eftir flugbrautinni og nef-
hjól hennar hafði lyfst frá jörðu þeg-
ar hún rakst á einkavélina. Litla
vélin hafði fengið leyfi til flugtaks
og var á leið í flugtaksstöðu þegar
slysið varð. Flestir farþeganna í þot-
unni voru ítalir og margir voru frá
Norðurlöndunum.
Schröder heimsækir Bush
Gerhard Schröder
Þýskalandskanslari
heimsækir George
W. Bush Banda-
ríkjaforseta í Hvíta
húsið 1 dag til að
ræða við hann um
baráttuna gegn al-
þjóðlegum hryðju-
verkamönnum. Schröder hefur lýst
yfir einörðum stuðningi við hernað-
araðgerðimar i Afganistan en hefur
ekki greint frá því hvernig Þjóöverj-
ar muni leggja lið.
Miltisbrandur á ný
Annað tilfelli militisbrandseitr-
unar hefur komið upp á Flórida.
Samstarfsmaður manns sem lést af
völdum eitrunarinnar í síðustu
viku hefur smitast. Verið er að
kanna hvort smitið geti verið
hryðjuverk.
Flugfélög lækka miöaverð
Evrópsku flugfélögin Aer Lingus
frá Irlandi og Swissair frá Sviss
hafa ákveðið að lækka fargjöld sín á
nokkrum leiðum til að örva við-
skiptin sem hafa minnkað í kjölfar
hryðjuverkanna í síðasta mánuði.
Kristnu fangarnir hræddir
Átta erlendir hjálparstarfsmenn,
sem eru í haldi talibana í Afganist-
an ákærðir fyrir kristniboð, eru
óttaslegiiir en óhultir eftir loftárásir
Bandaríkjamanna á Kabúl.
Blair í arabísku sjónvarpi
aTony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands,
kom fram í arabískri
sjónvarpsstöð í gær
til að reyna að vinna
á sitt band þá araba
sem hafa gagnrýnt
hernaðaraðgerðimar
gegn Osama bin
Laden. Blair sagði að bin Laden
misnotaði málstað Palestínumanna
til að réttlæta hryðjuverk sín.
Veðurofsi í Belize
Margir íbúar Mið-Ameríkuríkis-
ins Belize lögðu í morgun á flótta
undan fellibylnum Irisi sem búist er
við að eigi eftir að valda miklum
skemmdum á mannvirkjum.
Cheney á öruggum stað
I “| Dick Cheney,
~l varaforseti Banda-
M ríkjanna, hefur ver-
& J ið fluttur á ókunnan
^ 1 en öruggan stað
-'j vegna hernaðarað-
ijypsj gerðanna i Afganist-
I an. Cheney var flutt-
ur frá Washington á
sunnudag þegar árásirnar byrjuðu.
ESB styður árásir
Evrópusambandið lýsti í gær yfir
fullum stuðningi sínum við hernað-
araðgerðir Bandaríkjamanna og
Breta í Afganistan og hvatti jafn-
fram til að talibanastjórninni yrði
skipt út fyrir stjórn sem er verðugri
fulltrúi afgönsku þjóðarinnar.
Kúrsk upp af hafsbotni
Flaki rússneska kjarnorkukaf-
bátsins Kúrsk var lyft af botni Bar-
entshafsins í gær og farið með það
til hafnar. Kúrsk sökk fyrir rúmu
ári og fórust allir 118 mennirnir
sem voru um borð. Fimmtán tíma
tók að lyfta flakinu.