Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Síða 20
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 tölvu-i takni og vísinda Kynin hlæja ólíkt - samkvæmt nýrri rannsókn um hlátur Samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var fyr- ir stuttu er hlát- ur mun flóknara fyrirbæri en bara verkfæri til að tjá mikla gleði. Jo-Anne Bachorowski, prófessor í sálfræði við Vanderbilt-háskólann, og Mich- ael Owren, prófessor í sálfræði við Cornell-háskólann, einbeita sér að þvi að safna upplýsingum um hlát- ur sem lítið hefur verið vitað um hingað tU. Menn á háa C-inu í rannsóknum sínum fengu þau sjálfboðaliða til að horfa á 11 mynd- skeið, þ.a. tvö fyndin. Annað var gervifullnægingaratriðið úr When Harry Met Sally og hitt var líksöfn- unaratriðið úr Monty Python and the Holy Grail. Þetta gaf 1024 stykki af hláturrokum. Rokurnar voru teknar upp og hljóðgreining sýndi fram á að breidd hljóða sem notuð eru í hlátur er mjög mikil, auk þess sem hlátur kynjanna var ólíkur. Menn nota oftar hrotu- og rýthljóð á meðan hlátur kvenna minnir meira á einhvers konar laglínu vegna þess að þær nota sömu hluta raddband- anna og notaðir eru til að mynda sérhljóða og skyld hljóð. Auk þess er tíðni hláturs afskaplega há. Tíðni hláturs hjá konum er yfirleitt um Hlátur er talinn hafa þróast sem tæki til að tryggja vinabönd meðal frummanna. Menn nota oftar hrotu- og rýthljóð á meðan hlátur kvenna minnir meira á ein- hvers konar laglínu vegna þess að þær nota sömu hluta radd- handanna og notaðir eru til að mynda sér- hljóð og skyld hljóð. tvisvar sinnum hærri en eðlileg tal- hæð og hjá karlmönnum 2,5 sinnum hærri. Þeir náðu jafnvel háu C-i á við sópransöngkonu. Ekki bara aö tjá tilfinningar Bachorowski og Owren telja að hlátur hafi þróast sem hjálpartæki til að mynda vinabönd hjá frum- mönnum. í fyrstu telja þeir að bros hafi verið látið duga en þar sem slíkt er auðvelt að falsa þá hafi flóknari aðferð komið til, hláturinn, sem er mun erfiðara að gera sér upp. Með hlátrinum hafi verið mynduð vinabönd sem aftur þýddi meiri möguleika á að komast af. Þessi kenning tengist einnig þeirri kenningu prófessoranna tveggja að hlátur sé ekki aðeins til að tjá til- finningar okkar heldur einnig til að hafa áhrif á tilfinningar annarra. Þessa kenningu eru þau Bach- orowski og Owren að rannsaka núna með því að nota fullkomna tækni til að skanna heila einstak- linga um leið og þeir heyra mis- munandi útgáfur af hlátri. Klippt á háhraðanettengingar - ef tölvan er sýkt af tölvuormum Tölvufyrirtæk- in Speakeasy og DSL Inc. í Bandarlkjun- um og Telewest í Bretlandi eru farin að klippa á háhraöatenging- ar til viðskiptavina sem taka ekki á málunum ef tölvur þeirra fá í sig einhvern af þeim fjölmörgu *> netormum sem eru á sveimi í dag. Þetta er í fyrsta lagi gert til að koma í veg fyrir að tölvurnar haldi áfram að smita aðrar nettengdar tölvur. Einnig geta ormar á borð við Code Red og Nimda valdið ákaf- lega miklum gagnaflutningum. Þetta gerir í sjálfu sér lítið við Netið í heild sinni. Það eru hins vegar smærri hlutar Netsins sem finna fyrir þessu, t.d. hjá við- skiptavinum netmiðlunarfyrir- tækis. Gagnaflutningarnir verða oft á tíðum svo miklir að öll um- ferð um Netið verður hægari og netþjónar eiga það til að bila vegna of mikillar umferðar. í tilkynningu sem slóðar sem nenna ekki að redda tölvunni sinni fá er bent á að til að fá teng- inguna aftur þá þurfi þeir að hringja í þjónustuborð viðkom- andi netmiðlunarfyrirtækis. Þar er þeim leiðbeint um hvemig hreinsa á orminn úr tölvunni og hvemig eigi að setja upp forrit sem verja tölvuna fyrir þessum leiðindafyrirbærum. Þegar það er búið og staðfest er að tölvan er ósýkt er sambandinu hleypt á aft- ur. Tölvuormar taka upp mikið pláss með gagnaflutningum á Net- inu sem getur hægt á umferð og boriö net- þjóna ofurliöi í minni einingum Netsins. Microsoft í vandræöum í Suöur-Kóreu: Lögbannskrafa á Windows XP Suður-kóreska fyrirtækið Daum Comm- unications fór í seinustu viku fram á lögbann á sölu Windows XP, nýja stýrikerf- inu frá Microsoft, sem kemur á markað í lok októbermánaðar. Ástæðan fyrir lögbanninu er sú að Daum telur að Windows XP komi til með að kæfa alla sölu á net- Friöhelgi persónuupplýsinga notenda Windows XP er talin í hættu vegna þess magns af persónuupplýsingum sem fólk þarf aö slá inn þegar þaö set- ur stýrikerfiö upp í tölvunni sinni. skilaboðaforriti þess. Microsoft er með sitt netskilaboðaforrit, MSN Messenger, innbyggt í Windows XP. Daum telur að með því að hafa j MSN Messenger innbyggt í stýri- ; kerfiö, auk fjölda annarra forrita, þá sé Microsoft með óréttlátt for- skot á keppinauta sína í hverju landi fyrir sig þar sem notkun á Windows-stýrikerfinu er mjög út- ; breidd. Daum er ekki eitt í þessari 1 baráttu því önnur 18 suöur-kóresk • fyrirtæki taka þátt í þessum mála- rekstri. Talsmenn Daum benda einnig á að friðhelgi persónuupplýsinga I notenda Windows XP sé í hættu. j Þeir segja þetta vegna þess magns I af persónuupplýsingum sem fólk : þarf að slá inn þegar það setur j stýrikerfið upp í tölvunni sinni. Talsmenn Microsoft hafa ekki vilj- j að tjá sig um málið og segjast ekki : ætla að gera það fyrr en dómstólar í Suður-Kóreu hafi tekið ákvörðun ; um hvort taka skuli málið fyrir. I Microsoft er hins vegar tilbúið að leysa deiluna utan réttarsalar ef I Daum fellst á það. Markaðsrann- sóknir á handtölvum Gallup á ís- landi hefur ný- lega keypt hug- búnað frá Handtölvum ehf. (hand- Point) sem ger- ir fyrirtækinu kleift að fram- kvæma markaðsrannsóknir á handtölvum. Hugbúnaðurinn, sem kallast handPoint Orbit, er þannig uppbyggður að notandinn getur á einfaldan hátt hannað skoðana- kannanir á PC-vél og flutt þær yflr á handtölvur, WAP-síma eða sent þær sem vefhlekk í tölvu- pósti. Hugbúnaðurinn kemur að miklu leyti í staðinn fyrir hefð- bundnar skoðanakannanir á papp- ír hjá Gallup og sparar þannig all- an innslátt á gögnum auk þess sem innsláttarvillur heyra sög- unni til. „Við erum að spara okk- ur nokkurra daga innsláttarvinnu með því að nota handtölvur í stað hefðbundinna pappírseyöublaða," segir Helena Jónsdóttir hjá Gallup. „Kerfið flýtir auk þess allri úrvinnslu á gögnum og trygg- ir betri gæði á niðurstööum." Hugbúnaðurinn er framleiddur af hugbúnaðarhúsinu Handtölvum ehf. sem er fyrsta og eina hugbún- aðarhúsið á íslandi sem sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum fyrir handtölvur. Fyrirtækið þróar hug- búnað fyrir iðnaðar-, verslunar- og heilbrigðisgeirann sem gerir fyrirtækjum mögulegt að fram- lengja gagnagrunna sina þangað sem þeirra er þörf. r—--------- í ö 1711 i' Irtwti -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.