Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Qupperneq 22
íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára___________________________ Baldvin Sigurösson, Eyvindarhólum 2, Rangárvallasýslu. 80 ára_________________________ Kristín Jónsdóttir, Espigeröi 4, Reykjavík. Sveinn Guölaugsson, Skálagerði 9, Reykjavík. Lilja Emilía Gunnlaugsdóttir, Vogatungu 93, Kópavogi. 75 ára_________________________ Haraldur Sigurösson, Vogatungu 97, Kópavogi. Eiríkur Nielsen, Rfulind 15, Kópavogi. Guörún Katrín J. Ólafsdóttir, Suðurgötu 4a, Keflavík. Þorsteinn Björgvin Júlíusson, Kjalarsíðu 16d, Akureyri. Júlíus D. Friöriksson, Svarfaðarbraut 4, Dalvík. 70 ára ________________________ Valgeröur Á. Siguröardóttir, Funalind 13, Kópavogi. Siguröur Th. Ingvarsson, Lyngholti 1, ísafirði. 60 ára_________________________ Hafsteinn Oddsson, Barðaströnd 16, Seltjarnarnesi. Hulda Sóley Petersen, Björtuhlíð 31, Mosfellsbæ. Þórir Adolf Kristjánsson, Ennisbraut 4, Snæfellsbæ. 50 ára_________________________ Lárus Konráösson, Hverfisgötu 32b, Reykjavík. Þórhallur Geir Gíslason, Vallarási 2, Reykjavík. Ólafur Sigmar Andrésson, Þverási 21, Reykjavík. Sigurjón Matthíasson, Krókahrauni 8, Hafnarfiröi. Guömundur R. Reynisson, Grenigrund 4, Akranesi. Sigurveig M. Andersen, Fossheiði 52, Selfossi. 40 ára_________________________ Herborg Þorláksdóttir, Vesturhúsum 11, Reykjavík. Sif Þorsteinsdóttir, Eiðismýri 10, Seltjarnarnesi. Hrafnhildur Bergsdóttir, Hlaðbrekku 7, Kópavogi. Bjarni 0. Sigursveinsson, Breiövangi 16, Hafnarfirði. Valdimar Pétursson, Breiðvangi 24, Hafnarfirði. Anne Karin Vik, Suðurbraut 20, Hafnarfiröi. Ásta Guöný Kristjánsdóttir, Hjallalundi 7d, Akureyri. löunn Dísa Jóhannesdóttir, Áshamri 53, Vestmannaeyjum. Ingunn Lísa Jóhannesdóttir, Búhamri 42, Vestmannaeyjum. Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 Andlát Jón Trausti Gunnarsson, Hjallavegi 37, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudagskvöldið 28.9. Jarðarförin hefur farið fram I kyrrþey að ósk hins látna. Steinunn Ágústsdóttir, Bjarkarlundi, Hofsósi, andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki, að kvöldi miövikud. 3.10. Smáauglýsingar 550 5000 ÞRIDJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 I>V Fólk í fréttum Þórir Guðmundsson upplýsingfulltrúi Rauöa kross íslands Þórir Guömundsson, upplýsingafulltrúi Rauða kross íslands. Þórir hefur starfaö á vegum Rauða krossins frá 1996 en var áður blaðamaður við Vísi og DV, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og loks á Stöð 2. Þórir Guðmundsson, upplýsinga- og fræðslufulltrúi Rauða kross ís- lands, hefur sl. tvær vikur unnið við að koma upp flóttamannabúðum í Pakistan í nánd við Afganistan. Hann telur að langvarandi vatns- skortur á svæðinu geti haft alvar- legar afleiðingar fyrir flóttafólkið sem Rauði krossinn býst við á þess- um slóðum. Starfsferill Þórir fæddist í Reykjavík 18.10. 1960 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Verslunarskóla Islands 1976-77, við Rhode Island School of Photography 1979-80, lauk BS-prófi í fjölmiðlafræði við University of Kansas 1984, og MA-prófi í alþjóða- samskiptum við Boston University Brussels 1994. Þórir var blaöamaður við Vísi og síðar DV, í fullu starfi eða meðfram skóla á árunum 1976-85, var frétta- maður á fréttastofu Ríkisútvarpsins 1985-86 og yfirmaður erlendra frétta á fréttastofu Stöðvar tvö 1986-96. Þórir starfaði við hjálparstörf á vegum Alþjóða Rauða krossins sem sendifulltrúi Rauða kross íslands 1996-99, fyrst sem upplýsingafull- trúi á svæðisskrifstofu fyrir Mið- Asíu í fyrrum Sovétríkjunum og siðar sem upplýsingafulltrúi í Asíu- og Kyrrahafslöndum. Hann hefur verið upplýsingafulltrúi Rauða kross íslands frá 1999. Þórir var umsjónarmaður íjölda sjónvarpsþátta um alþjóðleg mál- efni og skrifaði bókina Úr álögum, ásamt eiginkonu minni, Öddu Steinu Björnsdóttur. Fjölskylda Þórir kvæntist 27.8. 1988 Öddu Steinu Björnsdóttur, f. 14.10. 1963, guðfræðingi. Hún er dóttir Björns Friðfinnssonar, f. 23.12. 1939, ráðu- neytisstjóra og k.h., Iðunnar Steins- dóttur, f. 5.1. 1940, rithöfundur í Reykjavík. Börn Þóris og Öddu Steinu eru Unnar Þór Þórisson, f. 14.9. 1991; Björn Þórisson, f. 1.5. 1995. Systkini Þóris eru Erlendur Guð- mundsson, f. 2.1.1968, kafari, búsett- ur í Mosfellsbæ; Kristinn Guð- mundsson, f. 15.10. 1969, kvik- myndagerðarmaður og útsendinga- stjóri, búsettur á Seltjarnarnesi. Dætur Guðmundar, kjörföður Þóris, frá fyrra hjónabandi: Hafdís Guðmundsdóttir, f. 5.8. 1964, versl- unarmaður, búsett í Reykjavík; Berglind Magneudóttir, f. 10.8. 1962, verslunarmaður, búsett í Reykjavík. Foreldrar Þóris: Guðmundur Kristinsson 17.8. 1936, innrammari, búsettur á Seltjarnarnesi, og k.h., Þórunn Erlendsdóttir, f. 31.7. 1935, skólastarfsmaður. Ætt Guðmundur er sonur Kristins, togarasjómanns í Reykjavík, Guð- mundssonar, verkamanns í Reykja- vík, Þorsteinssonar frá Geldingalæk á Rangárvöllum. Móðir Kristins var Gróa Hannesdóttir, b. á Stéttum í Hraunshverfi við Eyrarbakka, Hannessonar, b. á Landi, Þorleifs- sonar, b. á Minnivöllum, Jónssonar. Móðir Gróu var Kristbjörg Gott- vinsdóttir yngra Gottvinssonar. Móðir Guðmundar var Dýrleif Árnadóttir, b., búfræðings og smiðs á Akri í Hrísey, Sigurðssonar, frá Rútsstöðum í Austur-Húnavatns- sýslu. Móðir Dýrleifar var Guðrún Jónasdóttir. Þórunn er dóttir Erlends, bíl- stjóra hjá Kveldúlfi í Reykjavík, Guðjónssonar, bátasmiðs í stein- bænum að Lindargötu 22 í Reykja- vík, Einarssonar. Móðir Erlends var Þórunn, systir Vigdísar, móður Maríu Hallgrímsdóttur læknis og Önnu kennara, móður Hallgríms Magnússonar geðlæknis. Þórunn var dóttir Erlends, hreppstjóra á Breiðabólsstöðum á Álftanesi, Er- lendssonar og Þuríðar Jónsdóttur, b. Hraunshjáleigu í Ölfusi, Ólafssonar, b. og formanns i Tungu í Grafningi, Jónssonar, hreppstjóra og formanns á Ölfusvatni, Snorrasonar, b. í Bakkárholtsparti, Ásbjörnssonar. Móðir Þuríðar var Þórunn Jónsdóttir Móðir Þórunnar var Sigurfljóð Olgeirsdóttir, skósmiðs og hárskera í Stykkishólmi, Kristjánssonar, og Guðfinnu Árnadóttur. Fertug in i Bryndís Sævarsdóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri Unnur Jóna Sigurjónsdóttir skrifstofumaður í Vestmannaeyjum Bryndis Sævarsdóttir, hjúkrunar- fræðingur og deildarstjóri við Hjúkrunardeild Heilsustofnunar Suðurnesja, Óðinsvöllum 6, Kefla- vik, er fertug í dag. Starfsferill Bryndís fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Hún var í Barnaskóla Keflavíkur, stundaði nám við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, lauk stúd- entsprófi þaðan, stundaði síðan nám við Hjúkrunarskóla íslands og útskrifaðist þaðan sem hjúkrunar- fræðingur. Bryndís var í fiskvinnslu og stundaði verslunarstörf á unglings- árunum, starfaði við Sjúkrahúsið i Keflavík með námi og hefur síðan starfað við Heilsustofnun Suður- nesja þar sem hún er nú deildar- stjóri á almennri legudeild. Bryndis hefur starfað í Sor- optimistaklúbbi Suðurnesja og starfað í Félagi hjúkrunarfræðinga á Suðurnesjum í nokkur ár og sat í stjórn félagsins. Fjölskylda Bryndís giftist 2.4. 1983 Einari Þ. Magnússyni, f. 30.8. 1959, skipstjóra og útgerðar- manni. Hann Geirs Þórarinssonar, f. 20.9. 1937, d. 8.1. 1988, skipstjóra og útgerðarmanns í Keflavík, og k.h., Ástu Einarsdóttur, f. 1.8. 1938, húsmóður. Börn Bryndísar og Einars eru Sævar Magnús Einarsson, f. 23.8. 1986, nemi; Unnar Geir Einarsson, f. 27.12. 1994, nemi; Einar Sveinn Einarsson, f. 4.11. 1998. Bræður Bryndísar eru Hafliði Sævarsson, kerfisfræðingur í Reykjavík, kvæntur Kolbrúnu Hjartardóttir listakonu og eiga eina dóttur, Ingibjörgu Ýri Hafliða- dóttur; Brynjólfur Ægir Sævarsson, háskólanemi og skrifstofumaður Póstbrunni, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Bryndisar eru Sævar Brynjólfsson, f. 15.2. 1942, skipstjóri og útgerðarmaður, búsettur í Reykjavík, og k.h. Ingibjörg Hafliðadóttir, f. 25.11. 1940, starfsmaður við Borgarbókasafnið í Reykjavík. Unnur Jóna Sigurjónsdóttir, skrifstofumaður hjá Flutningaþjón- ustu Magnúsar í Vestmannaeyjum, Hásteinsvegi 34, Vestmannaeyjum, er fimmtug í dag. Starfsferill Unnur Jóna fæddist í Vestmanna- eyjum og ólst þar upp. Hún var í Barnaskóla Vestmannaeyja og lauk gagnfræðaprófi frá Bóknámsdeild Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Unnur Jóna hefur stundað ýmis almenn störf um ævina, verið í fisk- vinnslu, stundaö verslunar- og skrifstofustörf og unnið við leik- skóla. Hún hefur verið búsett í Vest- mannaeyjum alla tíð, að undan- skildu einu og hálfu ári á meðan á gosinu stóð en þá var hún búsett á Selfossi. Fjölskylda Unnur Jóna giftist 27.7. 1974 Benno Georg Ægissyni, f. 7.5. 1945, myndlistarmanni og verkamanni frá Prag í Tékklandi. Hann er sonur Benno Juza, listmálara í Vimperk i Tékklandi, og Jarmilu Veru Frið- riksdóttur sem nú er látin, sjúkra- liða í Reykjavík. Fósturfaðir Bennos er Ægir Ólafsson, forstjóri i Reykja- vík. Dóttir Unnar og Bennos er Sús- anna Georgsdóttir, f. 4.3.1974, dans- kennari í Vestmannaeyjum, en sam- býlismaður hennar er Magnús Jóns- son sjómaður og er sonur þeirra Oliver Magnússon. Systkini Unnar eru Þóra Sigur- jónsdóttir, f. 26.4. 1939, starfsmaöur við leikskóla, búsett í Kópavogi; Sig- urgeir Linberg Sigurjónsson, f. 15.3. 1941, d. 28.9. 1993, verkstjóri i Vest- mannaeyjum; Guðmundur Sigur- jónsson, f. 27.9. 1944, verkstjóri á Eyrarbakka; Sigurlína Sigurjóns- dóttir, f. 15.5.1959, atvinnurekandi í Vestmannaeyjum. Foreldrar Unnar: Sigurjón Vídalín Guðmundsson, f. 27.9. 1911, d. 20.1.1999, sjómaður, verkstjóri og verkalýðsleiðtogi í Vestmannaeyj- um, frá Moldnúpi undir Vestur- Eyjafjöllum, og Guðlaug Sigurgeirs- dóttir, f. 1.3.1918, verkakona og hús- móðir í Vestmannaeyjum, frá Hlíð undir Austur-Eyjafjöllum. Unnur verður að heiman á afmælisdaginn. er sonur Magnúsar Merkir Islendingar Snorri Hallgrimsson, læknaprófessor og yfirlæknir, fæddist á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal 9. október 1912. Hann var sonur Hallgríms Sigurðssonar, bónda á Hrafnsstöðum, og Þorláksínu Sigurðar- dóttur húsfreyju. Margrét, dóttir Snorra, er læknir, gift Halldóri Baldurssyni yfirlækni og sömuleiðis Finnur, sonur hans, kvænt- ur Lise Bratlie hjúkrunarfræðingi. Þá er önnur dóttir hans, Auður, hjúkrun- arfræðingur, gift Ólafi Siemsen lyfja- fræðingi. Önnur börn Snorra og konu hans, Þuríðar Finnsdóttur, eru Hallgrím- ur hagstofustjóri og Gunnar raftæknir. Snorri lauk stúdentsprófi frá MA 1932, embættispróf í læknisfræði frá HÍ 1936, Snorri Hallgrímsson dr.med.-prófi frá Karolinska Institutet 1943 og öðlaðist sérfræðingsleyfi í handlækningum og bæklunarsjúkdómum 1948. Snorri var í hópi þekktustu lækna hér á landi. Hann var starfandi læknir í Reykjavík 1943-47 og síðan sérfræðing- ur þar 1948-62, deildarlæknir við Land- spítalann frá 1947 og prófessor i hand- læknisfræði við HÍ og jafnframt yflr- læknir við handlækningadeild Land- spítalans frá 1951 og til æviloka. Snorri var herlæknir í sjálfboðliði Svía í Finnlandsstyrjöldinni 1939-40. Hann var mikill áhugamaður um laxeldi og stofnaði, ásamt fleiri, fiskeldi að Öxnalæk í Ölfusi 1969. Snorri lést 27. janúar 1973. Vilborg Kristjánsdóttir, Miðholti 5, Þórs- höfn, verður jarðsungin frá Þórshafnar- kirkju laugard. 13.10. kl. 14.00. Henrik Jóhannesson, Holtsgötu 1, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Safn- aöarheimilinu í Sandgeröi föstud. 12.10. kl. 14.00. Útför Ólafar Sigurborgar Sylveríusdóttur, Litlageröi 8, Reykjavík, fer fram frá Bú- staöakirkju miðvikud. 10.10. kl. 10.30. Guðríður Jónsdóttir, Tjarnargötu 47, Reykjavík, veröurjarðsungin frá Foss- vogskirkju þriðjud. 9.10. kl. 15.00. Ólafur Þórólfsson, Skeiðarvogi 93, Reykjavík, verður jarösunginn frá Ás- kirkju miðvikud. 10.10. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.