Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Side 24
28 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 Tilvera I>V Galdrar í Borgarnesi Samar, menning þeirra og saga er megininntak sýningar Sigrid Österby í Listasafni Borgarness. Þar eru grafíklist og verk unnin með blandaðri tækni. Listakonan hefur sjálf dvalist 1 Vestur-Finnmörku á ýmsum árstímum. Sýningin er opin virka daga frá 13-18 og á þriðjudags- og fimmtu- dagskvöldum til 20. Tónleikar i RÚSSÍBANAR Á HASKOLATONLEIKUM Háskólatónleikar verða haldnir á morgun, miðvikudag, kl. 12.30. í hátíðasal háskólans. Rússíbanar leika en hhljómsveitina skipa þeir Guðni Franzson, klarinett, Einar Kristján Einarsson, gítar, Jón Skuggi, bassi, Matthías M.D. Hemstock, á slagverk og Tatu Kantomaa á harmóníku. Síðustu forvöð ■ BUBBI I LISTHUSI OFEIGS I dag lýkur Bubbi, Guöbjörn Gunnarsson, höggmyndasýningu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, Reykjavík. Megin- þema t verkum Bubba eru andstæð- ur íslenskrar náttúru í deiglu tímans. jarðlögin, eldur og ís tvinna sögu landnáms. Hann notar efni eins og járn, stein og timbur sem megin- uppistöðu í verkum sínum. Fundir og fyrirlestrar ■ GAUTI KRISTMANNSSON Þýð ingarfræðingurinn Gauti Krist- mannsson mun í dag kl. 12.05 halda fýrirlestur I Norræna húsinu sem ber yfirskriftina Þjóð eöa óþjóðalýður? Togstreitan um Kelta og norræna menn um 1800. ■ KYNNINGARFUNDUR UM MBA Kynningarfundur um alþjóðlegt MBA- nám við Háskólann í Reykjavík verður í skólanum í dag kl. 17.15. ■ HVERNIG LESBLINDAN BRAUT NIÐUR SJALFSMYNDINA Geisli. félag um sorg og sorgarviöbrögð teldur fund í kvóld kl. 20 í Safnaðarheimili Selfosskirkju. Erindi tvöldsins heitir: Hvernig lesblindan braut niöur sjálfsmyndina og er haldið af Bjarna E. Sigurðssyni. Allir eru hjartanlega velkomnir. ■ HEIMSPEKIFYRIRLESTUR Saul Traiger, heimspekiprófessor við Occidental College og forseti Humi- félagsins, heldur hádegisfyrirlestur á vegum Hugvísindastofnunar á morgun, miðvikudag. Hann verður í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12. Titill hans er The Authority og the imagination. ■ HVAÐ VERÐUR UM VATNS- MYRINA? Morgunverðarfundur verður á Grand Hóteli á morgun, miðvikudag kl. 8.30. Yfirskrift hans er Hvað verður um Vatnsmýrina? Framsögumenn eru: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Páll Skúlason rektor, Árni Þór Sigurösson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, og Stefán Olafsson, forstóöumaður Borgarfræöaseturs. ■ KYNNINGARFUNPUR AMNESTY íslandsdeild Amnesty International efnir til kynninga-og umræðufundar í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20. Kynntar verða niöurstöður heimsþings samtakanna. ■ SAMKÓP - FUNDUR Aðalfundur SAMKOP verður haldinn í kvöld kl. 20 í Smárskóla í Kópavogi. DV-MYNDIR EINAR J Tröllvaxnir fjórhjólungar Alls kyns tryllltæki voru til sýnis fyrir framan Laugardalshöllina, sem og innandyra. Ferða- og útivistarsýning í Laugardalshöll: Torfærutröll og tryllitæki Áhugamenn um torfærutröll og önnur tryllitæki lögðu leið sina í Laugardalshöll um helgina þar sem ferða- og útivistarsýning fjölskyldunnar var haldin í áttunda sinn. Fjórhjóladrifnir jeppar og ijallabílar af öllum stærðum og gerðum fylltu Höllina og næsta nágrenni, auk þess sem aðilar í ferðaþjónustu og útivist kynntu starfsemi sína. Ferðaklúbburinn 4 sinnum 4 átti veg og vanda af sýningunni í ár eins og áður og er óhætt að segja að sýn- ingin hafi aldrei verið glæsilegri. Sungið af list Kór Flensborgarskóla í Hafnarfiröi tók nokkur útivistar- og ættjaröarlög viö setningu sýningarinnar. Minnie Driver slítur trúlofun Ekkert verður úr því að leikkonan Minnie Driver gerist tengdadóttir hinnar stórfenglegu Börbru Streisand. Þannig er að Minnie og Josh Brolin, sonur eiginmanns Börbru, hafa ákveð- ið að slíta trúlofun sinni sem var kunngerðu fyrir tæpu hálfu ári. Þau höfðu víst ekki ákveðið sjálfan brúð- kaupsdaginn sem nú hefur verið af- lýst. Ástarlíf Minniar hinnar bresku hef- ur áður verið fóður slúðurdálka. Margir minnast þess þegar þáverandi kærasti hennar, stórleikarinn Matt Damon, tilkynnti í sjónvarpsþætti að hann væri einhleypur. Minnie greyið kom af fjöllum. Josh er leikari eins og Minnie og hefur meðal annars leikið í hinni víð- frægu Hollow Man. Hann var áður kvæntur Alice Adair leikkonu. Weller á afmælis- tónleikum Oasis Maður Irfandi Súpergrúppan Oasis hóf um helg- ina hljómleikaferð sína í tilefni að tíu ára afmæli hljómsveitarinnar og voru þeir fyrstu haldnir fyrir framan 2500 manns á skemmtistaðnum „Shep- herds Bush Empire" í London. Djassgoðið Paul Weller tróð þar upp með hljómsveitinni, en Weller er góð- vinur Nigels Gallagers gítarleikara Oasis. Hljómsveitin, sem er vanari að spila á stærri leikvöllum, ákvað að einskorða afmælistúrinn við smærri sali og mun því strax hafa selst upp á alla tónleika sveitarinnar eftir að þeir voru auglýstir. Oasis mun ekki hafa brugðist aðdáendum sínum um helgina frekar en fyrri daginn og frumfluttu sveitin þar þrjú ný lög sem verða á næstu skífu hennar sem væntanleg er um áramótin. Stjórnmálamenn á fjölmiðlavakt Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar. Snemma beygist krókurinn Þeir sem ekki hafa aldur til aö aka gátu fengiö útrás á kassabílabraut fyrir utan Laugardalshöllina. Landgræöslan styrkt Viö setningu sýningarinnar var fulltrúa Landgræöslunn- ar afhentur styrkur frá Ferðaklúbbnum 4 sinnum 4 en klúbburinn leggur mikla áherslu á aö félagar gangi vel um náttúruna á feröum sínum. Alltaf er jafn hvimleitt að hlusta á stjórnmálamenn skamma fjölmiðla- fólk. Á dögunum var Halldór Blön- dal, forseti Alþingis, mættur í Viku- lokum Þorfinns Ómarssonar og með honum Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingar. Skyndi- lega hóf Halldór einkennilega tölu um RÚV og svæðisútvarpið sem ég botnaði lítið í. Fréttastofa RÚV skildi betur hvað Halldór var að segja og bjó úr orðum hans frétt þar sem niðurstaðan var sú að Halldór hefði farið meö fleipur. Það staðfesti sjálfur útvarpsstjóri í viðtali. Það var reyndar annað sem Hall- dór sagði í þættinum sem vakti óskipta athygli mína en þar hélt hann því fram að fréttastofa Ríkis- útvarpsins ætti til að stunda vill- andi fréttaflutning. Þorfinnur Ómarsson spurði Halldór hvort þetta væru ekki alvarlegar ásakanir og Halldór hváði við, rétt eins og orð hans ættu að vera öllum augljós sannleikur. Ég beið eftir því að Ein- ar Már tæki upp hanskann fyrir fréttastofuna en það gerði hann ekki. Eftir þáttinn sat fréttastofan á sakamannabekk. Þessari köldu kveðju Halldórs voru ekki gerð skil i fréttatímanum þótt önnur orð hans rötuðu í fréttatíma enda frétta- stofan ekki í góðri aðstöðu til að svara fyrir sig. Hvað áttu menn þar svosem að segja við fullyrðingum eins og þessari? Auðvitað gerir fréttastofa útvarps sér ekki að leik að stunda villandi fréttaflutning. Og hvað er villandi fréttaflutningur í huga Halldórs Blöndals? Getur ver- ið að það séu fréttir sem henta ekki flokknum hans? Nú er Halldór Blöndal ekki eini stjórnmálamaðurinn sem hefur skammað fjölmiðla opinberlega. Þetta tíðka þeir alltof margir. Meira að segja Jón Baldvin minn er enn að skamma fréttastofu Stöðvar 2 fyrir eitthvað sem þar var sagt og sýnt fyrir mörgum árum. Og í einkasam- tölum hefja stjórnmálamenn iðulega langa ræðu um einstaka fréttamenn eða fjölmiðla sem þeir telja snið- ganga sig eða vinna meðvitað gegn sér. Afar þreytandi ræður, satt að segja. Fjölmiðlafólk leggur ekki stjórn- málamenn í einelti heldur er það að vinna vinnuna sína, alveg óháð sín- um pólitísku skoðunum, ef þær eru þá einhverjar. Samt eru stjórnmála- menn alltof oft að leita að óvinum í „Auðvitað gerir frétta- stofa útvarps sér ekki að leik að stunda villandi fréttaflutning. Og hvað er villandi fréttaflutningur í huga Halldórs Blön- dals? Getur verið að það séu fréttir sem henta ekki flokknum hans?“ fjölmiðlafólki. Vinstri menn sjá sumir ungan frjálshyggjumann í Gísla Marteini og djöfluðust lengi í Kastljóssinnkomu hans og Elín Hirst átti heldur ekki rólega daga lengi vel. Hægri menn horfa grimmdarlega til fréttastofu Ríkis- útvarpsins og sjá þar komma í hverju horni. Stjórnmálamenn vilja mörgu ráða en það er ekki þeirra hlutverk að stjórna fréttaflutningi. Einkennilegt hvað þeir eiga erfitt með að sætta sig við það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.