Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Blaðsíða 6
4
Leikfélagið The lcelandic Take Away Theatre var stofnað af þremur konum
í Lundúnum árið 1996 en hóf þó ekki starfsemi sína hérlendis fyrr en á síð-
asta ári. Þær eru nú í óða önn við að leggja lokahönd á nýja sýningu sem
ber heitið Veröidin er vasaklútur og verður verkið frumsýnt næstkomandi
miðvikudag í Kaffileikhúsinu. Við litum inn á æfingu og fengum að vita
hvað væri um að vera.
SÚrsætur gamortleikur
„Við erum núna að klára allan
frágang f sýningunni s.s ljós, hljóð
og önnur svona tæknimál," segir
Agústa Skúladóttir leikkona og
einn af stofnendum leikfélagsins.
Hún stofnaði leikfélagið The
Icelandic Take Away Theatre
ásamt vinkonum sínum, Völu
Þórsdóttur og Onnu Hildi
Hildibrandsdóttur, fyrir um það
bil fimm árum þegar þær voru bú-
settar í London. „Við Agústa leik-
um bara tvær í þessari sýningu en
hinir í leikfélaginu taka einnig
þátt í að semja leikritið en það eru
þau Neil Haigh sem leikstýrir
verkinu og Katrín Þorvaldsdóttir
sér svo um búninga og leikmynda-
hönnun. Tónlistin er svo í hönd-
um Péturs Hallgrímssonar en Jó-
hann Bjarni Pálmason er svo sér-
legur lýsingarmeistari sýningar-
innar.
Um grín
og ekki
grín
Kristján skrifar:
Eg vildi bara koma þvf á framfæri
að mér finnst alveg með ólíkindum
hvernig sumt fólk leyfir sér að snúa
árásunum á Bandaríkin upp í ein-
hvern skrfpaleik. Flestir eru sem
betur fer greinilega með á nótunum
og átta sig á hvers lags harmleikur
þetta er en aðrir haga sér bókstaf-
lega barnalega. Ég hef til dæmis
rekist á klausur í fjölmiðlum þar
sem fólk virðist gera lítið úr alvar-
leika atburðanna og talar um að
ekki skipti miklu máli þótt nokkrir
hafi verið steiktir eða verði steiktir
í gagnárásum Bandaríkjanna. Skilur
þetta fólk ekki að hér er um manns-
líf að ræða? Líf saklausra einstak-
linga í flestum tilfellum? Hvernig
dirfist þetta fólk að leyfa sér að snúa
svona harmleik upp í gamanleik?
Getur það ekki séð að þetta er ekk-
ert til að grínast með? Ég vona svo
sannarlega að þetta fólk fari að
komast til vits og ára og hætti þess-
ari vitleysu. Það er nefnilega nóg af
kjánalegri umræðu í gangi í þjóðfé-
laginu fyrir.
Annars fagna ég þessum nýja
dálki í blaðinu ykkar. Það er alltaf
gaman þegar rödd fólksins fær að
heyrast. Þó menn séu nú misgáfaðir
er oft eins gaman að lesa kjánaleg
skrif og þau sem eitthvað vit er í. Þó
ég fagni þessum vettvangi umræðna
hér vil ég vara ykkur við að fara að
leyfa einhverjum ungpólitíkusum
að viðra skoðanir sínar. Það er
nefnilega fátt eins leiðinlegt og
ungt fólk sem telur sig þurfa að vera
á móti öllu. Sérstaklega það fólk
sem er í leiðinni að reyna að koma
sjálfum sér á framfæri. í Guðs bæn-
www.menw-
holookli-
kekenn-
yrogers.com
Það vita allir að Kenny Rogers er
snillingur. Það vita líka allir að það
er fátt fyndnara en eiga sér tvífara.
Enn fyndnara er þó þegar tvífarinn
er frægur. Það er því ekki skrýtið að
síða sem þessi skuli njóta nokkurra
vinsælda úti í hinum stóra heimi.
Síðan er líka stórskemmtileg, fjöldi
þeirra sem líta út eins og Kenny er
ótrúlegur. Og þeir virðast bara
nokkuð ánægðir með það..
Skakkir Uncverjar
Þær Vala og Ágústa eru eins
konar stýrur félagsins en saman
hafa þær sett upp fjölda sýninga.
„Við stofnuðum leikfélagið í
London þar sem við höfum sett
upp nokkrar sýningar.Þar
komumst við í kynni við Neil sem
lék með okkur í okkar stærsta
verki hingað til, Dóttur skáldsins.
Þar fór hann með hlutverk nokk-
urra kappa úr Egilssögu og Lax-
dælu en hann hefur verið með
okkur síðan,“ segir Ágústa. Leikfé-
lagið hefur sett upp tíu leikverk og
farið víða til að sýna þær. „Við fór-
um á tvær leikhátíðir í vor. Fyrst
fórum við til Búdapest þar sem við
settum upp Háaloft sem var sýnt
hér á landi en þar fórum við líka
með einleik, sem Neil gerði leik-
gerðina af, upp úr Englum al-
heimsins. Þar kynntumst við mjög
áhugaverðu fólki eins og sviðs-
manninum okkar sem talaði ekki
stakt orð í ensku og var þar að
auki meira eða minna skakkur all-
an tímann. Þrátt fyrir það fékk
leikfélagið gagnrýnendaverðlaun
hátíðarinnar fyrir þessi tvö verk,“
segir Vala um ferðir þeirra á fjar-
lægum slóðum. „Því næst fórum við með
leikritið Háaloft á kvennaleikhúshátíðina í
Finnlandi og þar fengum við fyrstu verð-
laun,“ bætir Vala við.
Skyndibitaleikhús
„Þessi hátíð er hún stofnuð til að styðja
við bakið á konum í leikhúsum vítt og
breitt um heiminn sama hvort þær eru
leikkonur, leikhússtýrur, höfundar eða
hvað sem er,“ segir Ágústa um hátíðina. „Á
þessari hátíð voru líka strákar þótt svo að
þeir hafi verið t talsverðum minnihluta,“
segir Vala. Nafn leikhússins, The Icelandic
Take Away Theatre, er nokkuð frábrugðið
öðrum leikhúsnöfnum en það kom til
vegna hugsanlegra ferðalaga félagsins. „Við
erum alltaf eitthvað að bögglast út t' heim
og þess vegna stendur leikfélagið undir
nafni sem „Take Away Theatre", við erum
búin að vinna meirihlutann af starfstíman-
um í Bretlandi en svo komum við heim í
fyrra til að taka þátt í leiklistarhátíðinni Á
mörkunum," segir Ágústa. Leikfélagið hef-
ur einnig fengið boð um að taka þátt í leik-
listarhátíðum á næsta ári á Ítalíu og f
Kanada.
Veröldin er vasaklútur
Nýjasta leikrit þeirra, sem sýningar hefj-
ast á í næstu viku, heitir Veröldin er vasa-
klútur en þar fara þær stöllur, Agústa og
Vala, með hlutverk tveggja bakara. „Leik-
ritið fjallar um tvo bakara sem flækjast inn
í andspymuhreyfingu og hvernig þær snúa
sér í þeim málum því þær eru fyrst og
fremst bakarar en eru ekki þjálfaðar í ein-
hverjum björgunarstörfum eða neitt slíkt.
Það er alltaf stutt í grínið og þá má eigin-
lega segja að þetta sé súrsætur gamanleik-
ur,“ segir Vala. „Þegar við segjum frá þessu
með andspyrnuhreyfinguna hugsa allir til
Frakklands á tímum seinni heimsstyrjaldar
en í leikritinu er hins vegar um óræðan
tíma að ræða og það getur í raun gerst hvar
sem er hvemær sem er. Þetta er ekki beint
einhver ákveðinn söguþráður heldur förum
við fram og aftur í tíma,“ segir Ágústa um
uppfærsluna. Þær segja ennfremur að bak-
ararnir séu einu hlutverkin sem þær leika í
raun og veru en þó séu fleiri karakterar í
leikritinu. „Við komum öðrum karakterum
til skila án þess að leika þá, við vinnum
með hluti sem taka á sig karakter eins og
t.d. lampa,“ segir Ágústa. Leikritið verður
frumsýnt, eins og áður sagði, á miðviku-
dagskvöld í Kaffileikhúsinu.
Á þessum vinnustað
skíta yfirmennirnir á efri
hæðinni.
f ó k u s 12. október 2001
Fókus giskar á að maðurinn í bakgrunni
komi til með að éta horið sem hann er að
næla sér í á myndinni.
Þarna fer ófeiminn sæðisbanki.