Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Blaðsíða 12
+ Fyrir fáeinum árum þekktist það varla að íslenskir fótboltamenn fengju greitt fyrir knattspyrnuiðkun sína en síðastliðin ár hefur þetta tekið örum breytingum. Sífellt fleiri leikmenn leita á erlenda grund til þess að leika knattspyrnu og laun leikmanna hér heima fara hækkandi með hverju ári. Miklar vangaveltur hafa verið um hversu háar upphæðir sé hér um að ræða en yfir því virðist ríkja mikil leynd. Við leituðum því til nokkurra sérfræðinga innan knattspyrnuheimsins til þess að forvitnast um kaup og kjör íslenskra knattspyrnumanna. Hér á eftir fylgja niður- stöðurnar - þetta segja heimildarmenn Fókuss að strákarnir fái borgað. Milljónabransirm Uncir leikmenn á Íslandi Þegar ungum og efnilegum leikmönnum á Islandi er kippt upp í meistaraflokk til að spila með aðalliði félagsins verða þeir ekki löglegir fyrr en þeir hafa skrifað undir samn- ing við viðkomandi félag. Mjög algengt er að þeir séu settir á svokallaðar bónusgreiðslur þar sem þeir fá ákveðna upphæð fyrir hvem leik sem þeir spila, svo framarlega sem sá leikur vinnst. Upphæðimir eru á bilinu 15—25.000 krónur fyrir hvem leik sem þeir byrja en 5-10.000 krónur ef þeir koma inn á sem varamenn. Þessum greiðslum er síðan safnað saman og heildarupphæðin greidd leikmanninum í lok tímabils. Þetta er gert svo að ekki þurfi að setja hvem einn og ein- asta leikmann á fastar mánaðarlegar greiðsÞ ur enda myndi það stórauka launakostnað félaganna. Þess í stað fær leikmaðurinn laun eftir því hversu mikið hann spilar og hversu vel hann stendur sig. Reyndari leikmenn á Íslandi Leikmenn sem hafa fest sig í sessi innan íslensku knatt- spymunnar og kannski leikið við góðan orðstír í nokkur ár hafá það flestir mun betra en þeir yngri, launalega séð. Það er að sjálfsögðu allt háð getu félagsins og fjárhag þess hversu mikið menn fá í laun en ekki er óalgengt að leikmenn haldi áfram að þiggja þessar svokölluðu bónusgreiðslur. Það gefur augaleið að þeir bestu fá mest og hinir lakari minna en eins og áður sagði fer það alfarið eftir fjárhagsstöðu og getu við- komandi félags. Þegar leikmenn hafa náð svo langt innan knattspymunnar geta þeir einnig byrjað að fara fram á enn ffekari bónusgreiðslur. Þá geta menn fengið sér-. staklega greitt fyrir t.d. hvert mark sem ' þeir skora eða leggja upp. Hins vegar er það einnig vel þekkt að menn í þessum klassa fái greidda mánaðarlega einhverja ákveðna upphæð. Ofan á það geta síðan bæst við bónusgreiðslur sem sérstak- lega er samið um. TOPP LEIKMENN Á ÍS- LANDI Þeir leikmenn sem spila hér- lendis og teljast til topp leikmanna em flestir seldir til stærri liða eins fljótt og unnt er enda em miklir peningar í boði fyrír ís- lensku félögin sem og leik- ■ mennina. Flestir okkar leik- menn em seldir til Noregs þar sem þeir spila í nokk- ur ár og ef þeir taka framförum og standa sig vel geta þeir átt von á því að stær- iBHKB ri lið á megin- landi Evrópu fái áhuga á _____ þeim og kaupi þá til >fn. Ef leik- menn standa sig hins vegar ekki eins og til var ætlast eða lenda f meiðslum er lítið sem þeir geta gert að samningi sínum loknum. Því er ansi algengt að þeir leiti aftur heim á klakann til að spila knattspymu þar sem þeir hafa ekki í nein önnur hús að vemda. Það em einmitt þessir leikmenn sem verða að teljast til topp leikmanna á íslandi og þeir fá hæstu launin af þeim sem spila hérlendis. Þetta em lfka einu leikmennimir sem lifa alfarið á knattspymuiðkun sinni þó svo að flestir þeirra vinni eitthvað með. Dæmi um slíka menn em Guðmundur Benediktsson hjá KR, Hilmar Bjömsson hjá FH, Haukur Ingi Guðnason Keflvíkingur, Val- ur Fannar Gíslason, leikmaður Fram, og Sverrir Sverrisson sem leikur með Fylki. Allt em þetta menn sem keyptir vom til liða í Evrópu en stóðust ekki væntingar og urðu að snúa heim aftur. Mjög misjafnt er hversu mikið þessir leikmenn fá svo í laun þegar heim er komið enda fjárhagur liðanna mis- góður. Vitað er að leikmenn líkt og Guðmundur Benedikts- son hjá KR em með eitthvað í kringum 400.000 krónur á mánuði, óháð frammistöðu á vellinum. Sfðan leggjast bónus- greiðslur ofan á þá upphæð þannig að ef leikmaður- inn stendur sig vel getur hann hækkað laun sín töluvert og eflaust náð yfir hálfa milljón á mánuði, aðrir fá þó eitthvað minna enda greiðir KR mjög há laun á íslenskan mælikvarða. Leikmenn Fram vom einnig margir hverjir á svimandi háum launum sumarið 2000 enda var mikill fjöldi leik- manna fenginn til liðsins til f v, Ik að bæta gengi þess. Svo fór að allt gekk á aftur- ______________________________ fómnum hjá Fröm- umm og á end- anum þurftu þeir að rifta samningum við fjölda ' leikmanna vegna fjárhags- vandræða. Oft snúa reyndir leikmenn heim til Islands að lok- inni dvöl sinni hjá erlendum liðum til að spila eitt lokatímabil. Nærtækasta dæmið er Amór Guðjohnsen sem fenginn var til Valsmanna til að bjarga þeim frá falli sumarið 1998. Valsmönnum hafði gengið afleitlega fram- an af tímabilinu og eitthvað þurfti að gerast til að liðið félli ekki f fyrsta skipti í sögunni. Heyrst hefúr að það hafi kostað um 5 milljónir að fá kappann til að leika með sínum gömlu félögum en einnig er vitað að fjárhagsstaða Valsmanna var ekkert sérstaklega góð á þessum tíma og því var leitað til „bakvarða" félagsins til þess að endar næðu saman. Með þessu herbragði náði Valur að koma í veg fyrir fall það tíma- bilið þó að ekki gengi eins vel árið eftir. Aðrir reynsluboltar sem snúið hafa heim til að spila síðustu árin í „rólegheitum" heima á Islandi eru t.d. Sigurður Jónsson, Atli Eðvaldsson, núverandi landsliðsþjálfari, og mikið er rætt um að Eyjólfúr Sverrisson muni gera slíkt hið sama næsta tímabil. Útlendincar á Íslandi Fyrir nokkrum árum hófu íslendingar að flytja inn erlenda leikmenn til þess að spila með félögum hér- lendis. 1 fyrstu var mikið um að leikmenn frá fyrrum Júgóslavfu kæmu hingað til lands til að leika knatt- spyrnu enda auðvelt að fá þá hingað vegna ástandsins í beimalöndum þeirra og kostnaður við að fá þá til landsins var í lágmarki. Leikmenn líkt og Izudin Daði Dervic, Lúkas Kostic, Mihajlo Bibercic, Salih Heimir Porca og Zoran Micovic eru dæmi um leikmenn sem fengnir voru hingað til lands á fyrri hluta síðasta ára- tugar. Þessir leikmenn hafa margir sest hér að og feng- ið íslenskan ríkisborgararétt eins og nöfnin bera með sér. I framhaldi af því komu síðan leikmenn frá öðrum löndum. Nú leikur talsverður fjöldi erlendra leik- manna í efstu deild karla og er kostnaðurinn við það talsverður. Knattspyrnufélagið Leiftur fékk t.d. á sín- um tíma leikmenn frá Brasilíu og fleiri löndum og var kostnaður við það mikill en félagið hafði sterka bak- hjarla sem stóðu straum af honum. Fjárhagsstaða félag- anna hefur þó batnað mikið undanfarin ár vegna þess hversu mörgum félögum hefur verið breytt í hlutafélög og því hafa félögin meira svigrúm til að greiða mönn- um laun og versla með leikmenn. Oft eru leikmenn lánaðir frá stærri félögum í Evrópu til íslands, líkt og Stoke-leikmennirnir tveir sem léku með ÍBV hluta úr síðasta sumri, en kostnaður við slík lán er ekki eins mikill og ef leikmennirnir eru hreinlega keyptir til liðanna. Kostnaður við slíkt er þó mjög mismunandi og fer það að sjálf- sögðu eftir getu leikmannsins. Moussa Dagnogo er franskur leikmaður sem £ fenginn var til KR síðastliðið sumar og átti hann glæstan feril að baki. Samningur hans hljóðaði upp á litl- ar 700.000 krónur á mánuði. Þetta er upphæð sem vesturbæingar hefðu eflaust sætt sig við að greiða ef leikmaðurinn hefði gert það sem honum bar að gera, þ.e. að skora mörk. Þau Iétu hins vegar á sér standa og skoraði hann aðeins eitt mark í deildarkeppninni. Hann var í herbúðum KR frá byrjun maí og þangað til í byrjun ágústmánaðar. Þetta gerir u.þ.b. 3 mánuði og kostn- aðurinn er því í heild um 2 m milljónir króna. Þetta eina mark hans verður þv( að telj- ast dýrasta mark sem skorað hefur verið á Islandsmótinu í knattspyrnu ÍSLENDINCAR í NORECI Islendingar eiga atvinnumenn í knattspymu víðs vegar um Evrópu en hvergi eru þeir fleiri heldur en í Noregi. Knattspyman þar í landi hefur verið í mikilli sókn síðustu ár en eftir olíufund Norðmanna hafa þeir dælt peningum í uppbyggingu íþrótta. Það virðist vera mjög hentug og árang- ursrík leið fyrir íslenska knattspymumenn að halda til Nor- egs. Þar fá þeir að spila með betri leikmönnum, fá betri þjálf- un og umfram allt betri laun. Einnig ná þeir sér í dýrmæta reynslu og ef þeir standa sig vel getur áhugi stærri liða í Evr- ópu vaknað. Rúnar Kristinsson, Auðun Helgason, Ríkarður Daðason og Heiðar Helguson eru dæmi um leikmenn sem hófu atvinnumannsferilinn hjá norskum liðum en hafa far- ið þaðan til stærri liða. Launin í Noregi þykja bara nokkuð góð en ungir leikmenn þar, t.d. Indriði Sigurðsson, Veigar Páll Gunnarsson og Marel Baldvinsson, fá á bilinu 4-500.000 krónur á mánuði sem verður að teljast dágóð summa fyrir svo óreynda leikmenn, en aðrir t.d. Stefán Gíslason fá minna. Reyndari leikmenn í Noregi, lfkt og Tryggvi Guðmundsson, Pétur Marteinsson og Ami Gautur Arason, fá hins vegar nokkuð hærri summur. Pétur er launa- hæstur tslensku leikmannanna í Noregi með um 2 milljón- ir á mánuði en Tryggvi Guðmundsson mun fá eitthvað að- eins minna. Ámi Gautur Arason leikur nú með liði sínu Rosenborg í Meistaradeild Evrópu og fyrir það fær hann gre- itt aukalega þannig að samtals fær hann um 1,5 miljónir á mánuði. Laun fslensku leikmannanna í Noregi eru því á bil- inu 250.000 -2 milljónir á mánuði. ÍSLENDINCAR í HEIMSKLASSA Islendingar eiga ekki marga knattspymumenn sem geta talist f heimsklassa en þau nöfn sem koma upp í hug- ann em Eiður Smári Guðjohnsen sem var seldur til Chelsea ffá Bolton á 460 milljónir króna og Her- mann Hreiðarsson sem gekk á sínum tíma kaupum og sölum á milli liða á Englandi en endaði loks hjá ^ Ipswich Town en þeir greiddu um 530 milljónir fyr- ^ ir kappan. Eyjólfur Sverrisson er einnig vafalaust einn besti leikmaður íslands en hann spilar í Þýska- landi með Herthu Berlín. Guðni Bergsson hefur ein- nig spilað vel upp á síðkastið með liði sínu Bolton sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. Aðrir sem vert er að nefna em Jóhannes Karl Guðjónsson sem var ný- verið seldur til Real Betis á Spáni fyrir um t 600 milljónir króna og Amar Gunnlaugs- son sem var á sínum tíma seldur til k Leicester, einnig f ensku úrvalsdeild- inni, fyrir tæpar 300 milljónir króna. Auk þessara leikmanna spila margir íslendingar í neðri deildunum á Englandi og með öðmm liðum_ í Evrópu. Sem dæmi leika fjórir Is- lendingar með Lokeren í Belgíu en það eru þeir Amar Viðarsson, Rún- ar Kristinsson, Auðun Helgason og Amar Grétarsson. Þeir em all- ir mjög góðir leikmenn en kanns- ki ekki alveg nægilega góðir til þess að komast að hjá stærstu lið- unum en verðmiðinn á þeim er á bilinu 40-70 milljónir króna og laun þeirra eitthvað í kring um 1-2 milljónir á mánuði en Rúnar mun víst vera með eitthvað meira. Laun þessara svokölluðu toppleikmanna em ekki beint opinber en þó er nokkum veginn vitað hvað þeir fá í vasann. Laun knattspymumanna em yfir- íeitt greidd vikulega en ekki mánaðarlega og sem dæmi fær enski landsliðsmaðurinn Michael Owen um 60.000 pund í viku- laun eða um 9 milljónir íslenskra króna. Þetta eru aðeins þau laun sem menn á borð við hann fá frá félögum sínum en slíkir menn em að sjálfsögðu með alls kyns auglýsingasamninga sem færa þeim meira í aðra hönd. Við íslendingar eigum því mið ur engan kappa sem getur talist svo stór enda em ekki margir sem fá slík laun þótt Owen sé fjarri því að vera hæst launaði leikmaður heims. Launahæsti íslenski leikmaðurinn er hins vegar Eyjólfur Sverrisson og þótt hann fái ekki nærri jafn há laun og áðumefndur Englendingur halar hann inn upphæðir sem flestir myndu sætta sig við. Vegna þess hversu vel honum og hans liði hefur gengið upp á síðkastið hef- ur hann grætt dágóða summu á alls konar bónusgreiðslum. Lið hans Hertha Berlin tók þátt í Meistaradeild Evrópu fyrir tveimur ámm og fyrir það fá leikmenn greiddar háar summur. Ef ffá em taldir bónusar sem enginn veit í raun hve háir em fær Eyjólf- ur yfir 100 millj- ónir á ári f laun eða rúmlega tvær milljónir á viku. Fast á hæla honum kemur Eiður • Smári Guðjohnsen en hann fær um 15.000 sterlingspund á viku eða um 2 milljónir. Margt er þó á huldu um hin ýmsu fríðindi og bónusa sem leikmenn á borð við Eið Smára hafa í samningum sínum. Líklegt þykir að hann fái aukalega greitt fyrir hvem sigurleik sem hann tekur þátt í, hvert mark sem hann skorar eða leggur upp og svo fá leikmenn oft greitt aukalega ef liðið nælir sér í einhver titil. Að auki birtist andlit Eiðs á vörum frá Ölgerð Eg- ils Skallagrímssonar og væntanlega hefur hann fengið ein- hverjar krónur fyrir það. Jóhannes Karl Guðjónsson skip- ar svo að öllum líkindum þriðja sætið ásamt H e r m a n n i Hreiðarssyni og bróður sín- um Þórði Guðjónssyni, eftir nýgerðan samning hans við spænska liðið Real Betis en talið er að sá samningur muni tryggja honum á bilinu 50-60 milljónir f árslaun. Hermann Hreiðarsson fær eitthvað um 8000 pund á viku eða um 60 milljónir á ári og Þórður Guðjónsson fær að lfkindum slíkt hið sama hjá liði sínu Las Palmas á Spáni. Am Þaö þarf tæplega 25 eintök af Guömundi Benediktssyni til að fylla upp í einn Eið Smára Guöjohnsen. Mörkin sem Eiður er farinn aö raða inn í vetur geta svo ekkert annaö en breikkað það bil. f ó k u s 12. október 2001 12. október 2001 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.