Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Síða 8
Efnið Það verður að vera kokkteilsósulicaði Pólóinn minn sem sér um að koma mér á milli staða á ör- uggan og áreiðanlegan hátt. Þar á eftir kemur líklega tölvan mín sem sér mér fyrir sambandi á Internetið góða. Að lokum er það síðan DVD- diskasafnið sem er í raun efnislega hliðin á efni fyrir andann. Andinn Internetið er það sem nærir andann hvað mest. Þar held ég úti síðunni Núlleinn.is og sinni mínum hugðarefnum. Bíómyndir á áður- nefndum DVD-diskum sjá mér einnig fyrir óveraldlegri fæðu. 1 sumar notaði ég svo mikið sundlaugarnar til að slaka á. Eg fékk hins vegar slæman svepp á fótinn eftir sundferð og hef lát- ið slíkt liggja á milli hluta um tfma. Það er samt aldrei að vita nema maður taki upp þráðinn þegar sveppurinn er horfinn. imulikcifmm Játningar graðrar appelsínu Samuli Kosminen er finnskur tónlistarmaður sem hefur starfað með ýmsum íslenskum tónlistarmönnum í gegnum tíðina. Nú er hann staddur hérlendis um nokkurra vikna skeið ásamt söng- og leikkonunni Ona Kamu en saman mynda þau dúettinn Matala sem mun leika fyrir að minnsta kosti tvisvar fyrir okkur íslendinga í næstu viku. Bamatónlist fyrir fullorðna Samuli kemur sterkur inn ( viðtalið og lætur vaða á súð- um um land og þjóð. „Við fórum út að borða þegar við ný- komin hingað og gengilbeina sem afgreiddi okkur spurði: Af hverju komið þið hingað til að vera í fríi? Þetta er hræðilegt land!“ Hún var greinilega ekki f gamla íslenska „How do you like Iceland?“-stuðinu.“ (Hér dettur blaðamanni ekkert betra í hug en að spyrja ein- mitt að þessari gömlu góðu sþurningu) - „Ég hef komið hingað þrisvar áður þannig að það ætti að vera óhætt að fullyrða að mér þykir nokkuð vænt um land og þjóð,“ svarar Samuli og er þar með búinn að slátra 90% af því efni sem mögulegt hefði verið að búa viðtalið til úr. Bömmer. Finnskur stefnu- MÓTAÞÁTTUR Þó er enn hægt að ræða um hvers vegna Samuli kom fyrst hingað til lands. „Ég tók þátt í stefnumótaþætti,“ segir hann skömmustulegur, „... og ég vann ferð til hvað lands sem ég vildi heimsækja. Ég hafði hitt Kristján Eldjárn gítarleikara á Hróarskelduhátíð- inni ‘94 og langaði til að sækja hann heim þannig að ég bað um að fá að fara til íslands. Reyndar þurfti ég að hafa stelpuna sem vann líka með mér í þessa „deit-ferð“ og Island var kannski ekki einmitt landið sem hana langaði til að fara til en það hlaut allt saman farsælan endi. Við gistum í sitt- hvoru herberginu hjá Hjálpræðishernum og höfum ekki sést síðan. Ég veit ekki til þess að hún hafi komið aftur síðan þá,“ segir hann og skellir upp úr. Samuli átti þó eftir að snúa aft- ur eins og sjá má. Djammað með Bubba Samuli var staddur uppi í FIH einn góðan veðurdag á meðan á seinni heimsókn hans til ísland stóð, þegar honum var boðið að leika inn á plötu með Bubba Morthens sem hann og gerði. „Það var mjög gaman að vinna með Bubba. Ég held að ég hafi aldrei hitt mann sem hefur jafn gaman af kvennahnefaleikum og hann.“ Samuli er einnig að leika inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar múm (skrifað með litlu emmi) sem hann kveður vera í miklu uppáhaldi hjá sér. „Við kynntumst mikið af þessum Tilraunaeldhússkrökkum þegar þau komu til Finnlands og spiluðu fyrir okkur þar. Núna erum við að endurgjalda þeim greiðann.11 Annars kveðst Samuli helst vera ve) að sér í neðanjarðar/undirgrund/jaðar- tónlist íslendinga. „Ég þekki ekki mikið af poppurunum, en ég fór reyndar á tónleika með Stuðmönnum um daginn. Það var mjög gaman, ég var reyndar skiljanlega frekar utanvelta þar sem ég hef ekki heyrt mikið í þeim, nema reyndar Röggu Gísla, en það var svo pakkað og svo mikil stemning og það skein svo í gegn hvað þessi tónlist skipti heimamenn miklu máli. Finnar eiga svipaða hljómsveit sem heitir „Mestarit AreenaIIa“ sem ég held að Islendingar ættu einnig frekar erfitt með að sökkva sér (.“ Matala Samuli mun næstkomandi miðvikudag koma fram í Djúpinu ásamt Onu Kamu sem er hinn helmingur dúetts- ins Matala og sér um að manna söngdeild þess. Aðspurð hvað stefnu tónlist þeirra falli undir kveða þau hana vera „barnatónlist fyrir fullorðna" og eru ekkert að grínast með það. Tvíeykið kom fram á dögunum hjá einmitt Tilrauna- eldhúsinu og hlaut ágætis undirtektir. „Það var mjög vel tekið í okkur þar, reyndar voru áhorfendurnir flestir frekar vel inni í „experimental“-senunni þannig að það var svona frekar mikið umburðarlyndi í gangi með tónlistina okkar en það var engu að síður mikil upplifun. Manni virðist sem að hérna sé frekar eðlilegt að vera óeðlilegur." Samuli slær nú botninn í þetta viðtal með því að segjast helst vilja koma hingað til lands á hverju ári og kemur þarmeð nokkuð til móts við blaðamanninn sem vildi skrifa hreinræktað „how OFIJKIIETJIJR IIVEllSKAOSIXS Ég er þroskuð. Ég er alltaf mjúk og blaut þegar ... og til í hvað sem er... berkinum er flett af... 12. október 2001 ... svo lengi sem það eru bara munnmök. 5‘mco > §?§■ ^ - 5' Qj. O" 05 tn CD (D O " 7C -> c S§-cp. 3 W ? 3 3 Q«§ W ■ c 5 o ^ (DCQ S>3-g, = « m I? < <A 9? CD rt- 0(Q w =r“ ÍS. 0) 5*T3 u CP c 3 æ £D 0-0 öT'? 3"ÖJ § & = oj » 3 -I. OJ ■ o oj-H < g w íScq a JD ÍD ö) CT CD 7T 7T D C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.