Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Side 9
Þátturinn með Hausverk um helgar hefur komið víða við og marga fjöruna sopið. Þátturinn var í eina
tíð öllum opinn en ókeypis en mál þróuðust þannig að herlegheitin enduðu á bak við læsta dagskrá
og var lengi vel í rugilnu. Nú fagna drengirnir því að dagskrá sú er þeir munu bjóða upp á á föstu-
dagskvöldum á sjónvarpsstöðinni Sýn í vetur verður opin og órugluð eins og í gamla daga og í tiiefni
af því tóku þeir Valli sport og Siggi Hiö sig til og röbbuðu aðeins um eðli þáttarins.
Erum
ekki
týpur
meS vind
í hórinu
Við erum eins og Séð og heyrt, það viðurkennir eng-
inn að hann horfi á okkur en það gera það samt allir...“
er það skásta sem Valla sport dettur í hug til að lýsa
skemmtiþættinum „Með hausverk um helgar“ sem hann
og Siggi Hlö hafa stjórnað saman seinustu þrjú ár. Til að
byrja með voru þeir félagar í ólæstri útsendingu hjá
fyrstu útgáfunni af Skjá einum en með tímanum færðu
þeir sig yfir í læstar útsendingar hjá Sýn með auknum
tilkostnaði. Drengirnir kveða þáttinn vera unninn úr
þvx sem til fellur hverju sinni og að hann eigi sér enga
sérstaka fyrirmynd. „Það er í mesta lagi að við eigum
eitthvað sammerkt með Wayne’s World í samnefndri
kvikmynd, tveir vitleysingar ( sófa að bulla...“ segir
Siggi Hlö og skellir upp úr.
BBC OC AÐRIR SKRÝTNIR ÞÆTTIR
Viðtölin í þáttunum hafa vakið athygli og sýnist sitt
hverjum um gæði þeirra. „Við förum bara ekkert í kring-
um hlutina, segir Valli, „við spyrjum í viðtölum spurn-
inga sem áhorfendur vilja fá svör við. Það fær enginn
sérmeðferð hjá okkur, það gengur jafnt yfir alla.“ Siggi:
— „Sumt fólk beinlínis neitar að koma í viðtöl til okkar
því það heldur að við séum svo vondir þegar við tökum
viðtöl. Það er ekki rétt, við förum bara eins langt og fólk
leyfir okkur. Sumir hafa ákveðin takmörk og segja
manni það bara þegar þar að kemur en aðrir ganga mun
lengra og oftar en einu sinni höfum við verið komnir í
hrókasamræður um kynlífsstellingar viðmælandans."
En hvaða fólk er það sem þorir ekki að mæta?" Pað er mis-
munandi. Aðallega eru það einhverjar týpur sem þora ekki
að mæta í þáttinn, lið sem heldur að það sé eitthvað mikil-
vægt í þjóðfélaginu og er hrætt við að koma illa út úr viðtal-
inu.“ Strákarnir þvertaka fyrir að það að birtast í þættinum
hjá þeim sé einhver ávísun á mannorðshnekki. - „Síður en
svo...“ segir Siggi, fullur ákafa, „...við pínum aldrei neinn
til að gera eitthvað sem hann vill ekki sjálfur gera. Einu
sinni var steggur með fimm hundruð kall standandi út úr
rassgatinu að dansa súludans í þættinum. Við báðum hann
aldrei um að gera það en að sjálfsögðu leyfðum við honum
það. En að sjálfsögðu var athæfið alfarið á ábyrgð hans
sjálfs..:,, Valli: „BBC fékk þetta myndbrot til afnota
þegar þeir voru að gera yfirlitsþátt um skrýtna sjón-
varpsþætti í heiminum. Það væri gaman að fá að berja
hann augum við tækifæri, sjá hvort þeir finni skrýtnari
þátt en okkar...“
ÓUNDIRBÚIN VITLEYSA
Vissulega er þátturinn skrýtinn, í það minnsta er
hann ekki að drepast úr meðalmennsku. „Við höfum
ákveðnar vinnsluaðferðir á þættinum. Við erum t.d.
ekki með handrit, bara svona tíu punkta sem við styðj-
umst við og svo látum við þetta bara gerast; grípum ein-
hvern í settið, látum símann hringja og reynum að
koma einhverju í gang.“ Strákarnir segja þáttinn hafa
byrjað sem hálfgerðan útvarpsþátt í sjónvarpi. — „En
síðan við byrjuðum hefur íslensk dagskrárgerð breyst
mikið...“ útskýrir Valli, ótrauður. Það kom fullt af ódýr-
um sjónvarpsþáttum í kjölfarið, og ekki bara á Skjá ein-
um heldur á öllum stöðvunum.“ Það er ekkert skrýtið að
við vorum með fyrsta ódýra þáttinn á markaðinum, við
neyddumst til að gera hann svona ódýran í upphafi því
að gamli Skjár einn, ef einhver man enn eftir honum,
hafði afar takmörkuð fjárráð." Drengirnir eru jafnvel á
því að þátturinn hafi breytt íslensku sjónvarpsefni um
ókomna tíð. Valli á orðið: „Einu sinni var alltaf verið að
gera grín að okkur fyrir það að það sást alltaf ( hnén á
okkur þegar við sátum í viðtalssófanum okkar. Það þótti
hallærislegt sjónarhorn. Eins var mikið skopast að því
hvernig við skiptum fólki út af settinu á milli viðtala. I
dag gerir Kastljós sömu hluti, enda er þetta það eina
sem vit er í, að hafa þetta nógu heimilislegt og eðlilegt.
Siggi:Enda erum við ekki svona þáttur þar sem allir eru
í geðveikum stellingum og með vind í hárinu..."
Leikum fyllibyttur oc perverta
Drengirnir hafa nú verið ( sjónvarpinu í fleiri klukku-
tíma samanlagt en Hemrni Gunn á sínum tíma, eða svo
segja þeir sjálfir. Valli: Ég reiknaði þetta út í gamni ein-
hvern daginn. En þetta merkir ekki neitt enda var
Hemmi líka með stuttan þátt. Við byrjuðum hins vegar
í fjögurra tíma þætti sem er alltof langt. Síðan sem bet-
ur fer minnkuðum við hann niður í þriggja tíma og í dag
er hann bara tveir tímar. Eruð þið ekkert hræddir um að
vera búnir að vera of lengi á skjánum?-“Nei, síður en
svo...“ svarar Valli umyrðalaust. „Um daginn héldum
við reyndar að við værum orðnir of gamlir til að vera að
fá okkur öl með íslensku þjóðinni helgi eftir helgi en
svo rifjaðist það upp fyrir okkur að karlmenn á aldrinum
20-40 ára eru tæp 30% af áhorfendum okkar. Þannig að
maður getur haldið áfram með góðri samvisku að drek-
ka bjór á launum um helgar. En eruð þið ekki á góðri leið
með að verða ykkur úti um áfengisvandamál á stærð við
Faxaflóa með því að drekka svona helgi eftir helgi? Siggi
svarar einbeittur á svip: „Pegar einhver spyr mig hvort ég sé
þessi fyllibytta og dónakall i alvörunni er ég vanur að svara:
George Clooney er ekki læknir, hann leikur lækni. Eg er
ekki fyllibytta og pervert, ég leik fyllibyttu og pervert."
-“Pað eru nú samt til margir pervertar á þessu landi," skýt-
ur Valli sport inn í. —“Laumupervertar" bætir Siggi Hlö við.
—“Já, þeir eru li'ka langhættulegastir, “ botnar Valli ,alvar-
legur á svip, og svei mér ef hann er ekki að meina það sem
hann segir.