Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Blaðsíða 20
The Dismemberment Plan er ein þeirra hljómsveita sem Hljómalind er að flytja inn um þessar mundir og munu þer leika á Café Vidalín næsta fimmtudagskvöld og í Norður- kjallara MH daginn eftir. Fókus sló á þráðinn tii Erics Axel- son bassaleikara hljómsveitarinnar. Pönk meS R&B og Hip-Hop „Við hlökkum mikið til að koma þangað, við tölum ekki um annað“ er það fyrsta sem Eric segir um landið. Engu að síður er hann ekki að skjalla blaðamanninn með þessu því strax í upphafi snýst viðtalið við og Eric tekur til að við að bauna spurningum á blaða- manninn um land og þjóð. Þær birtast héreftir í nokkuð styttri mynd: „Eigið þið ekki lón til að synda í?“ Jú, það er blátt." - “Flott, við verðum fara þangað. Hversu kalt er þarna núna?“ - “5 C' alskýjað og skúrir. Smá vindur." -“Ökei, tek með mér úlpu. Finnst ykkur gaman að drekka á Islandi?" Við fáum okkur stundum aðeins neðan i því, já. “ -“Gott mál, er áfengið jafndýrt og ( Svíþjóð?11 Nei, en það er heldur ekki ókeypis" - “Flott, gin og tónik kostar nefnilega þúsundkall í Svíþjóð. Mamma mín kom til íslands ‘61 eða 62 og spilaði á saxófón á herstöðinni. Er herstöðin ennþá þarna?“ -“Já, og hún er sennilega ekki að fara að hverfa úr þessu." „Er Vídalín stór staður?“ Nei, en húsið er búið að standa þama síðan 1765 og er elsta hús Reykjavíkur. “ -“Það er gamalt, henær var ísland eigininlega numið’" “Við erum vön að segja um 874.“ -“Það er mjög gamalt:,, Samplervæddir pönkarar „Einhver hefur lýst okkur sem Talking Heads í bland við Fugazzi og De La Soul. Það er rétt að mörgu leyti, við höfum hlustað mikið á þess tón- listarmenn og dregið dám af þeim. Svo erum við ekki bara með venjulega hljóðfæraskipan, bassa, gítar og trommur, heldur skipt- umst við líka á að leika á „sampler" sem skapar stærri vídd í hljóðinu. Við erum tvímælalaust pönk-hljóm- sveit en það heyrist langar leiðir að við ólumst líka upp við R&B og Hip-Hop." Tón- leikaferð þeirra félaga hefst á komu þeirra hingað en eftir að þeir félagar ljúka sér af hérlendis halda þeir beint til Bretlands þar sem þeir munu dveljast í viku. „Síðan förum við á meginlandsflakk, kíkj- um til Italíu, Belgíu, Hollands, Þýskalands, Sviss og Frakklands og síðan end- um við á að fara aftur til Bretlands, enda er „The Garage" þar sem er án efa stærsti staðurinn sem við munum spila á. Eitthvað í kringum 600 manns“ Mishressir áhorfendur „Það er allur gangur á því hvemig áhorfendur bregðast við tónlistinni okkar. Sumir eru mjög ró- legir og standa bara og hlust á meðan aðrir láta öll- um illum látum og reyna að troða hvorn annan undir. I Washington er svo lang skrýtnasta fólkið, það dansar og hreyfir mjaðmirnar. Reynslan hefur sýnt okkur að við getum aldrei vitað við hverju má búast af áhorfendum og því erum við mjög spennt- ir að sjá hvernig íslenskir áhorfendur haga sér á tónlcikum." flllt tölvugert Síðastliðinn miðvikudag var kvikmyndin Final Fantasy: the Spirits Within frumsýnd. Myndin á að gerast ( nánustu framtíð en jörðin er í heljarg- reipum eftir árás geimvera. Allar stærstu borgir heims hafa verið yfirgefnar af mannfólkinu auk þess sem flestallir mennskir jarðarbúar eru látnir. Þeir sem eru á lífi verða að finna einhverja leið til þess að þrauka og berjast gegn geimver- unum til þess að reyna að ná aftur yfir- ráðum á jörðinni. Tvö þeirra sem eru á lífi eru Aki Ross og lærisveinn hennar Dr. Sid. Saman vinna þau að því að finna leið til þess að losna við geimver- urnar en til þess ætla þau að búa til mótefni sem gerir þeim það á einhven hátt mögulegt. Með þessum aðgerðum sínum ætla þau að losna við óvininn á friðsamlegan hátt en General Hein og hans menn eru hins vegar að undirbúa þungahernað gegn geimverunum og því hafa Aki og Dr. Sid ekki ýkja langan tíma til stefnu. Leikkonan Ming-Na ljær Aki Ross rödd sína í þessari mynd en Donald Sutherland talar fyrir Dr. Sid. Aðrir sem tala inn á myndina eru James Wood, Steve Buschemi og Matt McKenzie. Myndin er framleidd af Chris Lee en tæknibrellurnar í þessari mynd eru hreint ótrú- legar. Final Fantasy, the Spirits Within er sýnd í Smárabíói, Nýja bíói Keflavík, Borgarbíói Akur- eyri og (Smárabíói. •Klúbbar ■ DODDIÁ 22 Doddi litli veröur í búrinu á Club 22 að spila allt frá tölvupoppi til rokks. Hann lætur gamminn geysa frámiðnætti til morguns. Fritt inn til klukkan 02:00, handhafar stúdentaskírteina fá fritt inn alla nóttina. •Krár ■ BUFF Á VÍDALÍN í kvöld munu þeir Pétur, Berg- ur og Hannes i Buff sjá um að trylla gesti Vídalíns með hressum og þekktum lögum. ■ DJ. ANDREA Á DILLON Hin óviöjafnanlega Dj. Andrea Jónsdóttir heldur uppi fjörinu á Dillon. Opið á báðum hæðum ■ GAMMEL DANSK Hin bráðskemmtilega Gammel Dansk sér um fjörið á hverfisknæpunni Catalinu i kvöld. Allt fiæðandi að vanda og þvi vissara að mæta tímanlega. ■ GEIR ÓLAFS Geir Ólafs og furstarnir veröa á Rauða Ijóninu i kvöld. Allt flæðandi að venju og stemmning að hætti hússins ■ GOTT Á GRAND ROKK One man band tjúttar upp gesti Grand rokks. ■ HAFRÓT Á KRINGLUKRÁNNI Hljómsveitin Haf- rót leikur fyrir dansi og heldur uppi dansstemning- unni langt fram á nótt á Kringlukránni. ■ LE CHEF Á NELLYS Fjörkálfurinn Dj. U Chef sér um stuðið á Nellys. ■ LÉTTIR SPRETTIR Á GULLÖLDINNI Hinir óvið- jafnanlegu Léttir sprettir leika á Gullöldinni i kvöld og eins og allir vita klikkar stuðið ekki þegar þeir leika. ■ PAPAR Á KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin Papar heldur uppi þeirri rifandi stemmingu sem þeim ein- um er lagið á Kaffi Reykjavík. Snúðurinn Dj. Best- boy mun bakka þá upp með frábærri tónlist úr búr- inu. ■ PENTA Á AMSTERDAM Hljómsveitin Penta skemmtir á Kaffi Amsterdam fram eftir nóttu. ■ SPILAFÍKLAR Á DUBLINER Hljómsveitin Spilafiklar munu leika fýrir dansi á Dubliner í kvöld af sinni alkunnu snilld. ■ TJÚH Á GAUKNUM Gleðipinnarnir í sveitinni í svörtum fötum sjá um heijarinnar gleði á Gauki á Stöng fram eftir nóttu. •Klassík ■ KVENNAKÓR Á AKUREYRI Kvennakórinn Létt- sveit Reykjavíkur heiðrar höfuðstað Norðurlands með nærveru sinni og tónleikum sem hefjast i Gler- árkirkju kl. 17. Efnisskráin er afar fjölbreytt. íslensk og eriend lög af ýmsu tagi en þó ber lagavalið nokkurn keim af árstíðinni á norðurslóð. Miðasala veröur við innganginn. Fyrir léttum söngsystrum fer stjórnandi kórsins Jóhanna V. Þórhallsdóttir og und- irleikarar eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Tómas R. Einarsson. Aðalheiður hefur jafnframt útsett flest þau lög sem kórinn syngur. ■ NORÐURUÓS j HAFNARBORG Tónleikar eru haldnir í tengslum við Norðurijós, Tónlistarhátíð Musica Antiqua í Hafnarborg, lista og menningar- miðstöð Hafnarfjarðar kl. 18. Yfirskrift tónleikanna er: „Le Gratie d¥Amore“ ítalskir dansar, söngvarog kansónur. Dagskráin er samvinnuverkefni Musica Antiqua, Tónlistarskólans í Reykjavik, Leiklistar og tónlistardeildar Listaháskóla íslands og Listdans- skóla íslands. Gestur M.A. í ár er franski listdansar- inn og danshöfundurinn Véronique Daniels sem er sérfræðingur i dönsum endurreisnartímans. Átón- leikunum mun Véronique ásamt þáttakendum í námskeiðinu sem hún stýrði sýna þessa dansa við undirleik 12 manna söng- og hljóðfærahóps. Fluttir verða ítalskir dansar, söngvar og kansónur frá lokum sextándu aldar og upphafi þeirrar sautjándu eftir tvo frægustu danshöfunda þess tíma, Fabrizio Caroso og Cesare Negri, en einnig tónlist eftir Gastoldi, Monteverdi o.fi. •Sveitin ■ BUTTERCUP í EYJUM Stuðsveitin Buttercup tjúttar feitt meö nýtt efni i farteskinu á Prófastinum í Vestmannaeyjum. ■ EINAR ÖRN Á PI22A 67 Trúbadorinn Einar Öm spilar á Pizza 67 á Eskifirði í kvöld. Austfirðingar, fjöl- mennið á þessa einstöku skemmtun! ■ fiiinBUMF77 Odd-Vitinn á Akureyri veröur her- tekin af hljómsveitinni Gildrumezz en þeir munu sjá um fjörið með CCR-lögum allt kvöldið. ■ HÖRÐUR TORFA Á NESKAUPSTAÐ Hinn eini sanni Hörður Torfa spilar og syngur í Egilsbúð á Nes- kaupstað. ■ HÓRÐUR TORFA Á SIGLUFIRÐI I kvöld leikur Hörður Torfa á Ábæ á Siglufirði. ■ JET BLACK JOE FYRIR NORÐAN Jet Black Joe tónleikar verða haldnir í íþróttahóllinni á Akureyri í kvöld. Ásamt gömlu kempunum koma fram nokkrir Dj-ar ásamt heimamönnunum í Toymachine. ■ STAPINN Hljómsveitin Ný dónsk með Björn Jör- und í broddi fylkingar verða með ball á Stapanum i Reykjanesbæ um helgina. ■ SÍN Á VH) POLUNN Danssveitin SÍN ásamt söngkonunni Ester Guðmundsdóttur heldur uppi fjörinu á Við pollinn, Akureyri. ■ SÓLDÖGG Á AKUREYRI Rokkararnir i Sóldögg rokka feitt á Sjallanum, Akureyri. ■ ÁMS Á HEIMASLÓÐUM Hljómsveitin Á móti sól leikur á árlegu Blómaballi Iþróttafélagsins Hamars í Hveragerði. Dansleikurinn fer fram í Þinghús Cafe og verður mikið um dýrðir, m.a. verður Blómadrottn- ingin 2001 krýnd. •Leikhús ■ ENGLABÖRN í HAFNARFJARÐARLEIKHÚSINU Hafnarfjarðarleikhúsiö sýnir í kvöld leikritið Engla- böm eftir Hávar Sigurjónsson. í aðalhlutverkum eru tveir nýútskrifaöir leikarar og hafa þau hlotið mikið lof fýrir framistöðu sína. Sýningin er stranglega bönnuð börnum. ■ HVER ER HRÆDDUR VH) VIRGINÍU WOOLF? í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið leikritið margfræga Hver er hræddur við Virginíu Woolf? eftir Edward Albee. Sýn- ingin hefst kl. 20 og enn eru örfá sæti laus. ■ KRISTNIHALD UNDIR JÓKU Leikfélag Reykjavik ur mun í kvöld setja upp leikritið Kristnihald undir jókli eftir Halldór Laxness og hefst sýningin kl. 20. Tónlistin er eftir Sölva Blöndal og sér hljómsveit hans, Quarashi, um að flytja tónlistina. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Leikritið Með fulla vasa af grjóti verður sýnt í kvöld á stóra sviði Þjóð- leikhússins kl. 20 en leikritið er eftir Marion Jones. ■ PÍKUSÓGUR Píkusögur eftir Evu Ensler veröur sýnt á þriðju hæö Borgarieikhússins i kvöld kl. 20 og eru örfá sæti laus. ■ TÖFRAFLAUTAN íslenska óperan sýnir i kvöld Töfraflautuna eftir Mozart. Sýningin hefst kl. 19. ■ VILJIEMMU í kvöld verður sýning á leikritinu Vilji Emmu á laugardagskvöld á Smíðaverkstæði Þjóð- leikhússins. Sýningin hefst kl.20 og eru örfá sæti laus. •Opnanir ■ FJÓRIR LISTAMENN í USTASAFNI KÓPAVOGS í dag kl. 15 verður opnuö sýning á verkum fjögurra listamanna í Listasafni Kópavogs. Þetta eru þau Erla Þórarinsdóttir, Hulda Hákon, Jón Óskar og Steingrimur Eyfjórð. Listamennirnir eru af sömu kynslóð, hafa þekkst frá blautu barnsbeini og eru góðir vinir. Þau hafa nokkrum sinnum sýnt saman en aldrei öll i einu eins og nú. Verk þeirra eru unnin með ólíkum aðferöum og efnum. Viðfangsefnin eru líka mismunandi en þó eiga verkin á þessari sýningu það sameiginlegt að meðhöndla likamlega og fé- lagslega tilveru mannsins. Erla Þórarinsdóttir sýnir að þessu sinni syrpu málverka sem hún nefnir Tíma- setningar. Eins og nafnið gefur til kynna er áhersla lögð á tilurðartima verkanna og birtingarform tím- ans í oxunarferli silfurs, sem listakonan notar I myndir sínar. Formin í myndunum eru mennsk i stærð og lögun enda markast skynjun tímans af lífs- klukku líkamans. Viðfangsefni mynda Jóns Óskars er bræðingur héðan og þaðan - undraheimur austur- þýsks veggfóðurs, Castors Polluxs og vina hans í Hate, CCP og GGRN. Verkin eru unnin með blandaöri tækni og þau eru gerð úr málverkum, Ijósmyndum, veggfóðri og ýmsu öðru. Hulda Hákon sýnir frá- sagnakenndar lágmyndir með textum sem meðal annars fjalla um kjóann sem flaug til íriands. Verkin eru steypt í gifs og máluð og þau sýna fólk, eld- og blómahaf. Steingrimur EyQörö á þrjú verk á sýning- unni. Eitt verkið, Ljóðaljóðin á Miklubrautinni, lýsir líkamshlutum kvenna sem sjö karlar sjá fýrir sér og færa í líkingar. Annað verkið kallast Vörpun. Það er um rifinn kvenundirkjól, rifnar kvenmannsnærbuxur og smádulu sem hangið hefur fýrir útidyrahurð. Listamaðurinn fór með flíkurnar og duluna, sem fundust í földum skáp, til tiögurra miðla til að fá inn- sýn i atburði sem tengdust þeim. Þriðja verkið eru stórar vatnslitamyndir sem lýsa hvernig upplifun það er að borða kiló af konfekti í einu. Listasafn Kópa- vogs er opið alla daga nema mánudaga frá 11-17. Á meðan á sýningunni stendur er hægt að skoða hana á veraldarvefnum. Slóðin er: www.jesh.org. ■ HILDUR BJARNADÓTTIR í GALL- ERÍeHLEMMUR.IS í dag kl. 17 opnar Hildur Bjamadóttir sýningu í galleri@hlemmur.is, Þverholti 5. Reykjavík. Á sýningunni eru verk sem flest eru

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.