Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Page 21
unnin á þessu ári og fjalla eins og fyrri sýningar
listamannsins um mörkin milli nytjalistar og myn-
dlistar. Hildur bjó í New York í 6 ár en hefur núna
flust til Portland, Oregon á vesturströnd
Bandaríkjanna. Meö henni á sýningunni verður
Mark R. Smith, myndlistarmaður frá Portland,
þau hlutu bæði verðlaun fyrir verk sín á The
Oregon Biennial í The Portland Art Museum fyrr
á þessu ári.
■ MARGRÉT______MARGEIRSDÓniR________í
STÖÐLAKOTI Margrét Margeirsdóttir opnar
sýningu á Ijósmyndum í Stöðlakoti við
Bókhlöðustíg 6 í dag, laugardag, kl. 15. Margrét
er áhugaljósmyndari og hefur stundað Ijósmyn-
dun til fjölda ára. Helstu viðfangsefni hennar eru
ýmis fyrirbæri í náttúru landsins. Á þessari
sýningu eru flestar myndirnar af klettum, hrauni
og steinum i ýmsum formum og litum. Myndirnar
eru teknar í Skagafirði, í Breiðafjarðareyium og
víðar á sl. þremur árum.Margrét hefur áður
haldið tvær Ijósmyndasýningar, aðra á
Sauðárkróki 1999 og hina i Hveragerði sama ár.
Ennfremur hafa birst myndir eftir hana i bókum,
tímaritum og dagblöðum á undanförnum árum.
Sýningin er opin daglega kl. 15-18 og lýkur sun-
nudaginn 28. október.
■ USTAMAÐURINN Á HORNINU NR. 5 í dag
klukkan 15 opnar fimmta sýningin í
sýningarröðinniListamaðurinn á Horninu austan-
til á Tjarnarbakkanum. Að þessu sinni er það
Magnús Sigurðarson sem sýnir verkið 2001 i
hólmanum á Tjörninni okkar Reykvíkinga.
Magnús hefur haldið flölda einkasýninga og
tekið þátt í enn fleiri samsýningum bæði hér
heima og erlendis.
■ ELÍSABET ÁSBERG í n»i I ■ ict Elísabet
Ásberg opnar sínu sjöttu einkasýningu í dag
klukkan 17 i sýningarsal Galleri Ust, Skipholti
50d. Þar sýnir hún lágmyndir unnar úr silfri, nýsil-
fri, tré og sandblásnu gleri.ÝSýningin er öllum
opin og stendur til 27 október.ÝOpnunartími er
virka daga frá 11-18 og laugardaga 11-18.
Elísabet hefur unnið við hönnun og smíði skart-
gripa frá árinu 1990.ÝHún byrjaði á grófari hlu-
tum úr steinum og leðri en þróaði svo skartið í
fínni silfursmíði. Elisabet bjó í Bandaríkjunum frá
árinu 1991 til ársins 1996 þar sem hún sótti
kúrsa í silfursmíði og hóf að sýna og selja skar-
tið í gallerium þar. Eftir að hún flutti aftur heim og
bætti við sig fleiri kúrsum í silfursmiði, þróaði
hún hönnun sina í lágmyndir sem unnar eru úr
silfri, nýsilfri, tré og sandblásnu gleri. I verkum
þessum eru krossar og lífshringir mjög ráðandi
form og eru þau nú seld víða.
■ UÓSLIFANDI HJÁ HANDVERKI OG
HÓNNUN í dag kl. 16 verður opnuð sýningin
Ljóslifandi i sýningarsal Handverks og hönnunar
í Aðalstræti 12. Markmiðið með sýningunni er að
skapa skemmtilega hauststemningu með því að
sýna annars vegar margvíslega lampa, kertast-
jaka og kerti og hins vegar púða og ábreiður.
Sýningin var öllum opin og valnefnd valdi úr
innsendum munum. Valdir voru munir frá 18
aðilum. Þeir sem sýna eru: Arndís Jóhannsdótt-
ir, Áslaug Höskuldsdóttir, Fríöa S. Kristinsdótt-
ir, Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir, Guðlaug Halldórs-
dóttlr, Guðrún Indriðadóttlr, Guðrún J. Kolbeins,
Halla Ásgeirsdóttir, Vaxandi, Hulda B. Ágústs-
dóttir, Inga Elín, Margrét Guðnadóttir, Nostra,
Ólöf Erla Bjarnadóttir, R3 & T9, Ragheiður
Ágústsdðttir, Sigriður Örvarsdóttir og TÓ TÓ.
Sýningarstjóri er Bima Kristjánsdóttir. Sýningin
stendur frá 13. október til 4. nóvember og opið
er alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Að-
gangur er ókeypis.
■ VIGNIR JÓHANNSSON í SLUNKARÍKI í dag
klukkan 16 verður opnuð sýning á verkum Vign-
is Jóhannssonar í Slunkaríki á ísafiröi. Vignir
nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og í Rhode Island School of Design í
Bandarikjunum. Auk þátttöku í flölda samsýn-
inga eru einkasýningar Vignis orðnar plmargar
hér heima og erlendis og verk hans má víða sjá
í opinberri eigu. Á sýningunni í Slunkariki sýnir
hann samsett glerverk og sex lágmyndir úr kop-
ar. Slunkaríki er opið fim-sun frá 16-18 og sýn-
ingu Vignis lýkur sunnudaginn 28. október.
•Síöustu forvöð
■ FINNSK HÓNNUN Sýningunni F1NNSK
sunnudagur
14/10
_______________________________z_______
•Krár
■ GEIR ÓLAFS Á GAUKNUM Sveiflukóngur íslands,
Geir Ólafsson, mætir ásamt big bandi sínu á Gauk
á Stöng og tjúttar feitt.
■ KVARTETT KÁRA ÁRNASONAR Á CAFÉ OZIO
Kvartett Kára Ámasonar trommuleikara heldur tón-
leika á Café Ozio í kvöld. Með Kára spila Sigurður
Flosason á saxófón, Ómar Guöjónsson á rafgítar og
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa. Á efnisskránni
eru vel þekktir og aðrir minna þekktir jazz-standard-
ar frá síðustu öld. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er
aðgangseyrir 800 kr.
•Djass
■ SUNNUDAGSJAZZ Á OZIO Kvartett Kára Áma-
sonar trommuleikara heldur tónleika á Café Ozio.
Meö Kára spila Siguröur Flosason á saxófón, Ómar
Guöjónsson á rafgítar og Þorgrímur Jónsson áÝ-
kontrabassa.Ý Á efnisskránni eru þekktir og minna
þekktir jazz standardar frá síðustu öld.ÝTónleikarnir
hefjast kl. 21.30.
•Klassík
■ KLASSÍK í SALNUM Það er nóg að gerast í Saln-
um í Kópavogi i dag. Klukkan 16:30 leikur Kammer-
hópur Salarins Mozart en nánari dagskrá er að finna
á heimasíðu Salarins.
•Sveitin
■ HANDVERKSMARKAÐUR Á EYRARBAKKA Það
verður boðið upp á handverksmarkað á Stað á Eyr-
arbakka í dag. Markaðurinn stendur yfir frá 14-18 og
verður Rauða húsið með kaffi og vöffiur til sölu með-
an á honum stendur. Allt milli himins og jarðar verð-
ur til sölu og að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
•Leikhús
■ BEÐfÐ EFTIR GODOTI dag kl. 17 frumsýnir Leik-
félag Reykjavikur Beðið eftir Godot á nýja sviði Borg-
arleikhússins eftir Samuel Beckett í þýðingu Árna Ib-
sen. Það eru Hilmir Snær Guðnason og Benedikt Er-
lingsson sem fara með hin rómuðu hlutverk Estra-
gons og Vladimirs.
■ BLÁIHNÓTTURINN Barnaleikritið Blál hnötturinn
eftlt Andra Snæ Magnason verður sýnt í dag kl. 14
á stóra sviði Þjóðleikhússins. Tónlist eftir snilldar-
hljómsveitina Múm.
■ KRISTNIHALD EFTIR HALLDÓR LAXNESS Leik-
félag Reykjavíkur mun í kvöld setja upp leikritið
Kristnihald undir jökli eftir Halldór Laxness og hefst
sýningin kl.20. Tónlistin er eftir Sölva Blöndal og sér
hljómsveit hans, Quarashi, um að flytja tónlistina.
■ SAGAN AF BLÁA HNETTINUM I dag veröur
barnaleikritið Sagan af Bláa hnettinum eftir Andra
Snæ Magnússon sýnt í Þjóðleikhúsinu og hefst það
kl. 14. Tónlistin er eftir múm en leikritið þykir vel
heppnað i alla staði.
■ TÖFRAFLAUTA MOZARTS íslenska óperan sýnir
í kvöld Töfraflautuna eftir Mozart. Sýningin hefst kl.
17. Sýningin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og er
glæsileg í alla staði.
■ VATN LÍFSINS í kvöld verður leikritið Vatn Trfsins
eftir Benóný Ægisson sýnt á stóra sviöi Þjóðleik-
hússins og hefst það kl. 20. Leikritið var frumsýnt
síðustu helgi og hefur fengið góðar viðtökur.
•Síöustu forvöð
■ HARPA ÁRNA í ASÍ Harpa Ámadóttir sýnir nú
málverk sem unnin eru sem teikningar í Ásmundar-
sal Ustasafns ASÍ. Það versta er að sýningunni lýk-
ur i dag. Harpa er búsett í Gautaborg í Svlþjóð og er
þetta 12. einkasýning hennar. Á þessu ári hefur
Harpa tekið þátt í alþjóðlegum samsýningum eriend-
is, „FromÝsoot to snow" i Brússel og „Camp Lejre"
í danska bænum Lejre. Auk þess sem hún var um-
sjónarmaöur sýningarinnar „Drawing lceland" á
Gautaborgar-tvíæringnum, þar sem hún sýndi teikn-
ingar ásamt öðrum íslenskum myndlistarmönnum.
Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga nema mánu-
daga.
■ SARI MAARIT CEDERGREN í ASÍ Rnnskættaða
myndlistarkonan Sari Maarit Cedergren lýkur mynd-
listarsýningu sinni Veðrabrigði i Gryflu listasafns ASÍ
i dag. Sari sýnir lágmyndir úr gifsi sem endurspegla
samspil íslensks landslags og ýmissa veörabrigða.
Hið hversdagslega veður sem við upplifum daglega
umhverfis okkur er viðfangsefni sýningarinnar. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14-18 alla daga nema mánu-
daga.
■ SÝNINGUM LÝKUR í USTASAFNI ÍSUNDS í
dag lýkur í Listasafni íslands þremur sýningum á
verkum í eigu safnins. í verkum Þorvalds Skúlason-
ar (1906-1984) má sjá þróunarferil hans og mörg
verk sem sættu miklum tíðindum á sínum tíma enda
var hann einn helsti brautryðjandi samtímalistar hér-
lendis. Þrivíðir hlutir og málverk Magnúsar Tómas-
sonar (f. 1943) byggja oft á ögrandi frásögn og kímni
enda vakti hann ásamt félögum sínum í SÚM-hðpn-
um sterk viöbrögö fyrir að brydda upp á nýjungum.
ínaumhyggju (minimalisma) eins og hún birtist
þama í verkum átta fulltrúa hennar I íslenskri mynd-
list má síðan kynnast síðari tíma hugmyndum um
list sem skírskotar aldrei til ytri veruleika heldur vís-
ar aðeins í form og efnivið verkanna sjálfra.
■ SÝNING í STUDIO UMBRA Guðný Magnúsdóttir
lýkur í dag sýningu í vinnustofu sinni, Studio
UMBRA, í tilefhi af flutningum að Lindargötu. Sýning
in er opin miðvikudaga til sunnudaga kl. 14-18 eða
eftir samkomulagi.
■ MARISA NAVARRO ARASON í STRAUMI Marisa
Navarro Arason Ijósmyndari lýkur í dag sýningu í
Listamiðstöðinni Straumi. Marisa er fædd í
Barcelona 1954 og stundaði Ijósmyndanám I heima-
borg sinni á árunum 1981-85. Hún hefur starfað
hérlendis frá 1987 sem Ijósmyndari, bæði fastráöin
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og sjálfstætt með
eigin Ijósmyndaver. Marisa hefur tekiö þátt í flölda
sýninga hér á landi og erlendis frá 1981. Sýningin nú
ber heitiö Áistíðir sem helgast af þeim tíma árs sem
myndirnar voru teknar á og hamur náttúrunnar birt-
ist og breytist þrálátlega árstíðabundiö, að því er
fram kemur ! fréttatilkynningu. Ljósmyndirnar eru
unnar á tölvu - teknar í umhverfi Straums.
•Bíó
■ Mjg MÍR sýnir Önnu um hálsinn f dag kl.15 í sýn-
ingarsal félagsins að Vatnsstíg 10. Myndin er með
enskum tima
■ RÍDDU MÉR AFTUR Á EGILSSTÓÐUM Ríddu
mér verður endursýnd í kvöld kl.20 á sama stað og
seinast.
mánudagur
I_______________________'JZl
•Krár
■ GEIR ÓLAFS Á GAUKNUM Sveiflukóngur íslands,
Geir Ólafsson, mætir ásamt big bandi sínu á Gauk
á Stöng og tjúttar feitt.
•Síðustu forvöð
■ SIGURBJÖRN JÓNSSON í HAFNARBORG j dag
lýkur sýningu á málverkum Sigurbjörns Jónssonar i
Hafnarborg i Hafnarfirði. Sigurbjörn Jónsson lauk
námi við Myndlista- og handiðaskóla íslands árið
1982. Að því loknu fór hann til New York, fyrst í Par-
sons School of Design 1984 -1986 og síðan í New
York Studio School of Drawing, Painting and Sculpt-
ure 1986 -1987. Sigurbjörn hefur haldið einkasýn-
ingar bæði hér og i New York. Siöast í Gerðarsafni
árið 1997 og i Unibank Gallery New York árið 1999.
þar að auki hefur Sigurbjörn haldið vinnustofusýning-
ar i desember árlega frá 1996. Sigurbjörn er með
vinnustofur í Reykjavík og New York.Sýningin er opin
alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17.
_______i_____________________Ú_______
•Krár
■ STEFNUMÓT Á GAUKNUM Hljómsveitin Singa-
pore Sling spilar á Stefnumótakvöldi á Gauki á
Stöng ásamt öðrum góðum sveitum.
^ðvUiudagurj
17/10
______________1____
■ þriðjudagur
•Popp
■ AIRWAVES Á GAUKNUM Rokksveitirnar Sólstaf-
Ir, Vigspá, Snafu, I adapt og Andlát spila á Airwa-
vestónleikum á Gauki á Stöng.
■ AIRWAVES Á HVERFISBARNUM Dj. Habit sér
um skífusteikingar á Hverfisbarnum á fyrsta Air-
vaweskvöldinu.
Á miðvikudag hefst tónlistarhátíðin lceland alrwaves
og stendur hún fram á sunnudag.
fiirwaves byrjar
Hátíðin hefst með tónleikum í
Listasafhi Reykjavíkur, Hafnar-
húsinu, á miðvikudag en þar
koma fram stöllurnar Védís
Hervör og Emiliana Torrini
ásamt Citizen Cope frá Banda-
ríkjunum. Sama dag kl. 21 hefj-
ast tónleikar á Gauki á Stöng en
þeir verða lagðir undir tónlist í
þyngri kantinum. Þar munu
troða upp sveitirnar Vígspá,
Snafu, I adapt, Andlát og Sól-
stafir. Svo kl. 22 verður smá-
upphitun fyrir það sem koma
skal en plötusnúðurinn DJ
Habit mun þá þeyta skífum á
Hverfisbarnum. Á fimmtudegin-
um mun Sigur Rós svo halda
tónleika í Listasafni Reykjavíkur
í Hafnarhúsinu og hefjast þeir
kl. 19 en að þeim loknum er
hægt að rölta yfir Tryggvagötuna
og sjá ögn harðari tónlist á
Gauknum. Hljómsveitirnar
Mínus, Strigaskór no.42, Klink
og Fidel munu þar troða upp
ásamt The Apes frá Bandaríkj-
unum upp úr kl. 21. 1 Þjóðleik-
húsinu verður einnig margt um
að vera þetta kvöld en þá ætlar
JFM að mæta ásamt Bandaríkja-
mönnunum í Lake Trout en það
hefst kl. 22. Hljómsveitirnar
Fuga, Stolið, Bris, Utopia og
Suð munu svo spila á Spotlight
þetta sama kvöld og stígur fyrsta
sveitin á svið um kl 21. A Astro
verður gleði með Metalheadz
plötusnúðnum Doc Scott frá kl.
22 en ásamt honum verða DJ
Reynir, DJ Kristinn og Chico
Rockstar einnig á svæðinu. Það
verður sem sagt nóg um að vera
í tónlistarlífi íslendinga næstu
vikuna en tónlistarhátfðin mun
standa fram yfir helgi.
■ AIRWAVES í HAFNARHÚSINU Védis, Emiliana
Torrini og Citizen Cope, frá Bandaríkjunum spila á
tónleikum í tengslum við Alrwaveshátíöina í Hafnar-
húsinu.
■ MANNAKORN í SALNUM Afmælistónleikar
Mannakoma verða fluttir í þriðja sinn vegna flölda
áskorana. Dæmið hefst klukkan 21 í Salnum í Kópa-
vogi. Nokkur sæti iaus. Verð kr. 2.000
•Leikhús
■ HVER ER HRÆDDUR VH> VIRGINÍU WOOLF? í
kvöld á stóra sviði Þjóðleikhússins verður leikritið
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? eftir Edward Al-
bee sett upp. Sýningin hefst kl. 20 og enn eru örfá
sæti laus.
fimmtudagur
1 I 18/10
lii__£_________________É_________
•Popp
■ AIRWAVES Á ASTRÓ Doc Scott úr
Metalheadz og 31 Records, DJ Reynir
og DJ Kristinn verða í dansherbergi
Astró og Chico Rockstar verður uppi.
■ AIRWAVES Á BAR 101 Ingó and
the escape artlst kemur fram ð Bar
101.
■ AIRWAVES Á GAUKNUM
Rokksveitirnar óliku Fidel, Kllnk,
Strigaskór nr. 42, Mínus og The Apes
frá Bandarikjunum spila á Gauk á
Stöng. Tónleikarnir eru í tengslum viö
Airwaveshátíöina.
■ AIRWAVES Á HVERFISBARNUM
Audio 54 sér um tónlistina á Hverfis-
barnum.
■ AIRWAVES Á KAFFIBARNUM Dj. Kári
sér um skífuþeytingar á Kaffibarnum.
■ AIRWAVES Á PRIKINU Súpergellan
Dj. Sóley þeytir skífum á Prikinu.
■ AIRWAVES Á SPOTLIGHT Fuga, Bris,
Stollö, Útópía og Suð rokka á Spotlight.
■ AIRWAVES Á THOMSEN Plötusnúða-
kvöld á Kaffi Thomsen.
■ AIRWAVES Á VEGAMÓTUM Dj.
Sammi þeytir skifum á Vegamótum.
■ AIRWAVES 'l LEIKHÚSKJALLARAN-
UM JFM, Óskar og Lake Trout frá
Bandaríkjunum spila i Leikhúskjallaran-
um.
■ SIGUR RÓS í HAFNARHÚSINU Stór
sveitin Sigur Rós heldur loks tónleika
hér á landi og geta þyrstir aödáendur
skeilt sér í Hafnarhúsiö til að hiýöa á
drengina. Tónleikarnir eru hluti af Airwa-
veshátíðinni.
• Krár
■ ABSOLUT GROOVE Á ATLANTIC Það
er að sjálfsögðu Absolut Groove á Atl-
antic Bar i miöbænum í kvöld.
Desmín(loops&sax) kemur fram og held-
ur fólkinu vakandi.
•Leikhús
■ BEÐIÐ EFTIR GODOT í dag kl. 20 sýn-
ir Leikfélag Reykjavíkur Beöiö eftir
Godot í Borgarleikhúsinu eftir Samuel
Beckett í þýöingu Árna Ibsen. Þaö eru
Hilmir Snær Guðnason og Benedikt Er-
lingsson sem fara meö hin rómuöu hlut-
verk Estragons og Vladimirs.
■ KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI Leikfé-
lag Reykjavíkur mun i kvöld setja upp
leikritiö Kristnihald undir jökli eftir Hall-
dór Laxness og hefst sýningin kl.20.
Tónlistin er eftir Sölva Blöndal og sér
hljómsveit hans, Quarashi, um aö flytja
tónlistina.
■ PÍKUSÓGUR í BORGARLEIKHÚSINU
Pikusögur eftir Evu Ensler verður sýnt á
þriöju hæö Borgarleikhússins i kvöld kl.
20.
■ VATN LIFSINS EFTIR BENÓNÝ ÆG-
ISSON í kvöld veröur leikritið Vatn lífs-
ins eftir Benóný Ægisson sýnt á stóra
sviöi Þjóöleikhússins og hefst það kl.
20. Enn eru örfá sæti laus.
■ VIGINÍA WOOLF ÞJóðleikhúsið sýnir I
kvöld leikverkiö Hver er hræddur viö
Virginíu Woolf? eftir Edward Albee og
hefst sýningin kl. 20.
•Síöustu forvöö
■ ÁRNI INGÓLFSSON í GALLERÍI
SÆVARS KARLS Árni Ingólfsson mynd-
listarmaöur lýkur sýningu i Gallerí Sæv-
ars Karls I dag. Á sýningunni eru 15 ný
verk og segja þau hvert fyrir sig sögu,
stutta eöa langa, fyndna eöa sorg-
lega.vekja spurningar hjá áhorfandan-
um, eins og listin á aö gera. Eöa hvað?
I fréttatilkynningu segir aö sýning þessi
sé ein sú athyglisverðasta á þessu ári.