Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 7
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 DV 7 Fréttir Olgandi leirhverir dv-myndir gva Fram undan Hverahlíö viö suöausturhorn vatnsins er mjög virkt svæöi meö mörgum misstórum leirhverum. Þarna var áöur fjögurra metra dýpi. • ^ Kleifarvatn streymir enn niður um sprungur: Oflug hverasvæði komin á þurrt - yfirborðið hefur lækkað um fjóra metra á rúmu ári Kristjana G. Eyþórsdóttir, jarðfræð- ingur hjá Vatnamælingum Orkustofn- unar, segir að rennsli úr Kleifarvatni haldi enn áfram. Eins og DV greindi frá i gær er vatnsborð Kleifarvatns nú lægra en mælst hefur allt frá aldamót- Þarna hverfur vatniö niöur Tvær sprungur viröast hafa opnast í jaröskjálftunum í fyrra. um 1900, eða i rúm 100 ár. Þetta þriðja stærsta stöðuvatn á Suðurlandi minnkar því ört. í byrjun ágúst síðastliðins bárust Vatnamælingum Orkustofnunar upp- lýsingar frá glöggum vegfaranda um sprungur við norðurenda Kleifarvatns þar sem vatn fossaði niður. Sprung- Kleifarvatns hefur minnkaö. urnar eru á svæði sem undanfarna áratugi hefur verið undir vatnsborð- inu. Blaðamaður og ljósmyndari DV skoðuðu sprungurnar í gær. Þá fossaði vatn niður um tvær sprungur sem greinilega höfðu opnast í jarðskjálfta. Samkvæmt mælingum Orkustofn- unar hefur leki aukist mjög um sprungur i kjölfar jarðhræringanna i júní 2000. Kristjana G. Eyþórsdóttir jarðfræðingur sagði í samtali við DV að ekkert lát væri á lekanum úr vatn- inu. Því væri erfitt að segja hvenær þetta rennsli stöðvaöist. Þá hafa miklir hverir komið í ljós við suðurenda vatnsins. Þeir eru nú á þurru. Blaðamenn DV skoðuðu verksumerki á þriðjudag og einnig í gær og var virkni mjög mikil í hverunum. Hverasvæðin eru i raun tvö, með nokkur hundruð metra milli- bBi. Annað við Lambatanga, en hitt fram undan Hverahlíð skammt vestan Geithöfða við suðausturhorn vatnsins. Það síðamefnda er þó sýnu öflugra. Þar em margir kraumandi leirhverir og einn áberandi stærstur, líklega um 20 metrar i þvermál. Hverirnir virðast vera á spmngum sem liggja frá suðri tO norðurs. Síðan í júní 2000 hefur vatns- borð Kleifarvatns farið stöðugt lækkandi. Það hefur lækkað um fjóra metra á rúmu ári og var við síðustu mæl- ingar 4. október 136,4 metrar yfir sjó. Em nú grynn- ingar á stómm svæðum við norð- ur- og suðurenda vatnsins komnar 140,5 139,5 137,5 137 ,____ tkn Œca 2000 Lækkun vatnsyfirborðs Kleifarvatns á þurrt. Ekkert rennsli er frá vatninu á yfirborði en leki um botn vatnsins hefur undanfarna áratugi valdið tæp- lega 1 cm lækkun á vatnshæðinni á dag. Er þá miðað við enga úrkomu og fasta uppgufun. Þessi leki tvöfaldaðist fyrsta hálfa árið eftir Suðurlands- skjálftana í júní 2000. Lekinn hefur minnkað aftur en er þó um 50% meiri en var fyrir jarðskjálftana og vatns- borðið lækkar enn. Á 51. degi, eöa frá 14. ágúst til 4. október, hefur yfirborð- ið lækkað um tæpa 30 sentilmetra. Það er nokkru minni yfirborðslækkun en afrennsliö um sprungur gefur til kynna en skýrist af mikilli úrkomu og rennsli í vatnið nú síðsumars. Kleifarvatn var, áður en það tók að minnka, um 10 ferkflómetrar að stærð. Þá hefur það verið talið eitt dýpsta stöðuvatn landsins, með allt að 97 metra dýpi. Mesta dýpið í dag er þó trúlega orðið innan við 93 metrar. -HKr. Tvo hverasvæöi viö Kieifarvatn eru nú á þurru Skóiakrakkar ganga þarna á fyrrum botni Kleifarvatns og viröa fyrir sér hverasvæöin. Nær er svæöiö viö Lambatanga, en fjær sést enn öflugra hverasvæöi fram undan Hverahlíö. Hvammstangi: Lögbanni afstýrt Þessa dagana eru að hefjast að nýju framkvæmdir við byggingu íþrótta- húss á Hvammstanga, en náðst hefur samkomulag við arkitekta sundlaug- arinnar, þá Ormarr Þór Guðmunds- son og Örnólf Hall sem hótuðu lög- banni á íþróttahússbygginguna. Arki- tektarnir töldu að húsið sem verktak- arnir Tveir smiðir völdu, hentaði ekki útliti sundlaugarinnar sem iþrótthús- ið byggist við. Niðurstaðan var sú að Tveir smiðir breyttu um hús og verður byggt hús með rislaga þaki eins og sundlaugin, í stað þess bogalaga húss sem uppruna- legur verksamningur gerði ráð fyrir. Gengið hefur verið frá samkomulagi. Guðmundur Haukur Sigurðsson, oddviti Húnaþings vestra, kvaðst ánægður með lausn málsins. Húsið verður ekki afhent fyrr en i vor og mun því ekki nýtast við grunnskóla- kennslu 1 vetur eins og gert var ráð fyrir, þegar byggingin var boðin út á siðasta ári. -ÞÁ Umboðsmaður barna: Skriflegum erindum fjölgar Skriflegum er- indum sem Þór- hildi Líndal, um- boðsmanni barna, berast hefur fiölgað mjög mikið á síð- ustu árum. í árs- skýrslu embættis- ins kemur fram að nýskráð erindi árið 2000 voru 120 en árið áður voru þau 86 og árið þar áður 41. Þrátt fyrir þessa aukningu er starfsmannafiöldi enn óbreyttur og vinnuálag því oft mikið. Jafnvægi virðist hins vegar vera á þeim fiölda símaerinda sem berast á ári hverju. Árið 2000 voru skráð síma- erindi alls 977 en voru 978 árið 1999. Flest símaerindin sem upp komu á síðasta ári snertu vandamál sem upp koma innan fiölskyldna, til að mynda í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Algengast er að erindi varði bamið og fiölskylduna, menntun og skólamál og Sérstaklega er kvartað yfir flóknu kerfi og seinagangi við meðferð ein- stakra barna. Nærri helmingi fleiri símaerindi berast frá konum en körl- um og nokkuð er um að erindi komi frá börnunum sjálfum. Til dæmis kvartaði lítið barn yfir svikum móður við sig og annað barn vildi kæra kennarann sinn fyrir ofbeldi, svo eitt- hvað sé nefnt. -MA Blesgæsir kveðja Hvanneyri: 2500 gæsir og 20 vísindamenn Sá tími sem blesgæsir dvelja á hverju hausti á Hvanneyri á leið sinni austur yfir haf til vetrardvalar er senn á enda. Ný árangursrík aðferð var að þessu sinni notuð til að verja sérstakar túnspildur fyrir ágangi gæs- arinnar. Að þessu sinni fylgdust er- lendir vísindamenn með gæsinni á meðan hún dvaldi á Hvanneyri. Þeir hafa komið nokkrum sinnum áður í sömu erindagjörðum, en þá að vori og er þetta í fyrsta sinn sem þeir koma að haustinu. Þegar mest var dvöldu á Hvanneyri um 2.500 gæsir og um 20 vísindamenn. Gæsin hefur sömu skoðun og kým- ar á gæðum túngrasa, og bestu túnspildur og nýræktir hafa stundum orðið illa úti, en flest varnarráð hafa gegnum tíðina reynst hafdlítil. í haust var prófað að „girða“ yfir nokkur til- raunalönd með því að strengja bagga- bönd þvert yfir þau, raunar líka langs svo út komu 12-15 m möskvar. DVÓ/GJ Þórhildur Lindal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.