Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 23
27
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 _____________________________________________________
X>v Tilvera
John Le Carré sjötugur
Breski rithöfund-
urinn John Le Carre
á stórafmæli i dag.
Carre er talinn einn
besti njósnasöguhöf-
undur heimsins og hafa mörg snilld-
arverkin á því sviði komið frá hon-
um. Hann hlaut heimsfrægð þegar
hann sendi frá sér Njósnarann sem
kom inn úr kuldanum en hún,
ásamt fleiri bókum hans, hefur
komið út á íslensku. Af öðrum bók-
um hans má nefna njósnarann
Smiley sem Alec Guinness gerði
ódauðlegan í sjónvarpsmyndum. Le
Carre býr í Cornwall ásamt eigin-
konu sinni, Jane.
Gildir fyrir iaugardaginn 20. október
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
» Þú ert búinn að koma
■ M þér í einhver vandræði
og enginn nema þú
sjálfur getur losað
þig út úr þeim.
Happatölur þínar eru 5, 27 og 31.
Fiskarnlr (19. febr.-20. mars):
■ Það ríkir glainnur og
gleði í kringum þig og
fleira er í boði en þú
getur með góöu móti
sinnt. Ferðalag er á döfinni.
Happatölur þínar eru 2, 22 og 28.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
. Vinir þínir eru eitt-
' hvað að bralla sem þú
mátt ekki vita af. Það
skýrist í kvöld hvað
um er að vera.
Happatölur þínar eru 7, 15 og 23.
Nautið (20. april-20. maíi:
/ Einhver biður þig
um greiða og þér
er Ijúft að verða við
þeirri bón. Hugsaðu
þó um það sem þú þarft sjálfur
að gera.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúníi:
Ástin er í aðalhlut-
verki hjá þér og fer
_ X I mikill tími í að sinna
henni. Bjartir tlmar
eru fram undan hjá þér. Þú færð
óvæntar fréttir í kvöld.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Morgunninn verður
I drýgsti tími dagsins til
að sinna nauðsynleg-
um verkefnum. Síðdeg-
is verður þér litið úr verki vegna
truflana sem þú verður fyrir.
Uónið (23. iúlí- 22. ðeúst):
Þú þarft að sinna
mörgu í einu og átt í
erfiðleikum með að
koma öllu sem þér
ftnnst þú þurfa að gera á dag-
skrána hjá þér.
Mevian (23. áaúst-22. sept.):
Gerðu ekkert sem þú
ert ekki viss um að sé
rétt. Einhver er að
' r reyna að fá þig til að
' taka þátt í einhverju vafasömu.
Happatölur þínar eru 5,11 og 21.
Vogln (23. sept.-23. okt.l:
Þér gengur best aö
vinna einn þar sem
aðrir virðast aðeins
trufla þig. Þú nýtur
aukmnar virðingar í vinnunni.
Happatölur þínar eru 9, 14 og 26.
Sporðdrekl (24. okt.-2l. nðv.l:
Gerðu ekkert nema
að vel athugðu máli.
I Það er ýmislegt
sem þú þarft að
varast og því nauðsynlegt að
fara varlega.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2l. des.):
.011 viðskipti ættu að
r ganga einstaklega vel
og þú nýtur þess að
J vasast í þeim. Liklegt
er að þú flytjir búferlum
á næstunni.
Stelngeltln (22. des.-19. ia.nj:
•j - Vertu ekki of trúgjarn,
það gæti komið þér í
rr koll. Það er ekki öllum
að treysta þó að þeir
láti sem svo sé. Gamall vinur
skýtur upp kollinum.
Aniston leitar að
góðu hlutverki
Vinalega leikkonan, Jennifer Ani-
ston, gerir sér vonir um að fá heit-
ustu ósk sína uppfyllta. Óskin sú er
að fá að leika ofurkonuna Wonder
Woman á hvíta tjaldinu.
Vestur í Hollywood eru menn í
óðaönn að undirbúa kvikmynd um
þessa frægu teiknimyndahetju, eins
konar kvenútgáfu Supermans, og
Jennifer hikar ekki við að lýsa yfir
áhuga sínum.
Framleiðendur myndarinnar
höfðu Söndru Bullock í huga fyrir
hlutverkið en nú hefur hún ákveðið
að þiggja það ekki. Það er því aldrei
að vita nema Jennifer fái tilboð sem
hún getur ekki hafnað.
Dylan úthýst af
eigin tónleikum
Gamli tónlistarrefurinn Bob Dyl-
an féll á eigin bragði á dögunum.
Snillingurinn fór fram á að öryggis-
gæsla á tónleikaferð hans yrði hert
til muna og var orðið við þeirri ósk.
Þegar kappinn ætlaði hins vegar
sjálfur að fara inn i tónleikahús í
Oregon fékk hann ekki inngöngu
þar sem hann var ekki með nein
skilríki í vasanum og gat því ekki
fært sönnur á hver hann var. Ekki
er ljóst hvort öryggisverðirnir, sem
voru konur á fertugsaldri, hafi ekki
þekkt stjömuna eða hvort reglunum
var bara fylgt út í ystu æsar.
Smaladrengirnir
Bragi Þór Vaisson, Hugi
Þóröarson, Óskar Þór
Þráinsson og Daníel
Brandur Sigurgeirsson.
Smaladrengirnir á
Kaffi Reykjavík:
Eina nafn-
iö sem var
laust
„Við ætlum að spila og syngja
alls konar lög og reyna að smita
einhverjum krafti út til gesta -
helst fá þá alla til að syngja með
okkur,“ segir Bragi Þór Valsson,
einn í hópi Smaladrengja, en þeir
ætla að halda útgáfutónleika á
Kaffi Reykjavík í kvöld. Smala-
drengirnir eru kvartett, skipaður
þeim Braga Þór Valssyni, Huga
Þórðarsyni, Óskari Þór Þráins-
syni og Daníel Brandi Sigurgeirs-
syni. Þeir eru að gefa út sinn fysta
disk undir heitinu Strákapör.
Nöfnin Smaladrengirnir og
Strákapör eru svo glaðleg og vina-
leg að undrum sætir. Bragi er
krafinn skýringa: „Ja, það er nú
það. Kallar inn til hinna: „Strákar
af hverju heitum við Smaladreng-
ir? „Þetta var eina hljómsveitar-
nafnið sem var laust er svarað og
hann endurómar það. Þá vitum
við það. Þeir drengir hafa verið
vinsælir sem skemmtikraftar í
veislum og að sögn Braga eru þeir
með blandaða tegund tónlistar,
„hefðbundna rakaratónlist, ís-
lensk þjóðlög í djössuðum stíl og
léttari lög af ýmsu tagi. Svo fáum
við gestasöngvara með okkur á
diskinn, séra Pálma Matthíasson,
Ólaf Þórðarson og sjálfan eyja-
peyjann, Árna Johnsen."
-Gun.
Blessað barnalán frumsýnt á Akureyri
Bráðfyndiö barnalán
- segir Þráinn Karlsson leikstjóri
“Blessað barnalán er bráðsmellinn
gamanleikur og einn af fáum slíkum
íslenskum sem til er. Leikritið hefur
staðist timans tönn býsna vel, enda er
eðli gamanleiksins slíkt,“ segir Þrá-
inn Karlsson. Undir hans leikstjóm
fmmsýnir Leikfélag Akureyrar Bless-
að barnalán eftir Kjartan Ragnarsson
nú á fóstudagskvöld. Leikritið er al-
þekkt; ærslafullur gamanleikur sem
settur var fyrst upp hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir um tuttugu árum.
Leikarar í þessari uppfærslu Leikfé-
lags Akureyrar á Blessuðu barnaláni
eru Saga Jónsdóttir, Skúli Gautason,
Hildigunnur Þráinsdóttir, Laufey Brá
Jónsdóttir, María Pálsdóttir, Þor-
steinn Bachmann, Sunna Borg, Hjör-
dís Pálmadóttir, Siguröur Hallmars-
son, Aðalsteinn Bergdal og Aino
Freyja Jarvelá.
í Blessuðu barnalána, sem gerist
um 1970, segir frá ekkjunni Þorgerði,
sem býr ásamt Ingu, elstu dóttur
sinni, í litlu þorpi austur á fjörðum.
Þorgerður býr við mikið og blessað
barnalán, en yngri börnin hafa öll
hleypt heimdraganum fyrir margt
löngu og búa víða um heim.
Mæðgumar fá þá hugmynd að smala
öllum börnunum saman og halda eins
konar ættarmót í húsi þeirra fyrir
austan. Fyrst fær hugmyndin góðar
undirtektir en svo boða systkinin for-
fóll, hver á fætur öðru. Því grípur
Inga til þess örþrifaráös í einlægri
viðleitni sinni til að ná öllum hópnum
saman að senda öllum samtímis
skeyti: „Mamma er dáin. Komið strax.
Inga.“ Þá mæta systkinin öll og við
tekur sérkennilegur feluleikur og
hver uppákoman rekur aðra.
„Þetta leikrit gæti þess vegna gerst
í dag en við færum söguþráðinn aftur
á áttunda áratuginn, til áranna á milli
1970 og 1980. Klæðaburður leikara er
frá þeim tima og sviðsmynd öll. Sögu-
þráðurinn er ýktur, óraunverulegur
og bráðfyndinn," segir Þráinn Karls-
son. Hann segist vona að leikhúsgest-
um þyki sýningin bráðfyndin en flétt-
an í leikritinu sé þannig að menn
ættu að hafa ærna ástæðu til að skella
upp úr. -sbs
Ærslafullur gamanleikur
Skúli Gautason og Saga Jónsdóttir í hlutverkum sínum í Blessuöu barnaláni.
MYND SBS
Hljómsveitin
PAPARNIR
Laugardag kl. 14.00: Man. Utd. - Bolton
Sunnudagskvöld: Karioke-keppni útvarpsstöðvarinnar Létts 96,7 frá kl. 21.00
Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfmannafélög. Stórt og gott dansgólf.