Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 I>V REUTER-MYND Forsetar heilsast Jiang Zemin Kínaforseti tók á móti George IV. Bush Bandaríkjaforseta þegar hann kom til fundar þeirra í Shanghai í morgun. Bush hitti Kína- forseta í morgun George W. Bush Bandaríkjafor- seti hitti Jiang Zemin, kínverskan starfsbróður sinn, að máli í Shang- hai í morgun þar sem þeir ætla að sitja leiðtogafund Asíu- og Kyrrhafs- ríkja. Á sama tíma og leiðtogarnir tveir settust niður til að ræða saman bár- ust fréttir um að stjómvöld á Taív- an ætluðu ekki að mæta til leiötoga- fundarins. Taivönum þótti sem Kín- verjar hefðu ekki komið fram við þá eins og þeir áttu skilið. Ferðalag Bush til Shanghai er hið fyrsta sem hann hefur farið í til út- landa frá því hryðjuverkaárásirnar voru gerðar í síöasta mánuði. Hon- um er mjög í mun að reka smiðs- höggið á bandalag Kínverja og Bandaríkjamanna i baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Fylgismenn bin Ladens fyrir dómi Teikning af fjórum fylgismönnum Osama bin Ladens sem dæmdir voru í gær. Fjórir hlutu lífs- tíðardóma Fjórir fylgismenn Osama bin Ladens, sem ákærðir voru fyrir sprengjuárásimar á tvö sendiráð Bandaríkjanna í Afríku áriö 1998, vom í gær dæmdir í lífstíðarfangelsi af bandarískum dómstóli, án mögu- leika á reynslulausn. Þeir dæmdu eru Khalfan Khamis Mohamed, 28 ára Tansaníumaður, sem fundinn var sek- ur um að hafa verið höfuöpaurinn í árásinni á sendiráðið í Des es Salaam í Tansaníu, þar sem 11 manns létu líf- ið og þeir Mohamed al-Owhali, 24 ára gamall Sádi, og Mohamed Odeh, 36 ára Jórdani, fyrir að hafa sama dag staðið að árásinni á sendiráðið í Keníu, þar sem 213 manns létu lífið. Sá íjórði var hinn 41 árs Wadih el Hage af líbönsk- um uppmna, sem fundinn var sekur um hlutdeild í árásunum. Donaid Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði eftir dómsuppkvaðninguna að hún sannaði að hryðjuverkamenn væm nú hvergi óhultir og yrðu eltir uppi. Uppboö Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, þriðjudaginn 23. október 2001, kl. 15.00, á eft- _______Irfarandl eign:____ Drangshlíð, A-Eyjafjallahreppi. Þingl. eig. Jón Guðmundsson. Gerðarbeið- andi er Lánasjóður landbúnaðarins. SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLASÝSLU Ekkert lát á loftárásunum á Afganistan: Sérsveitirnar eru komnar til starfa Bandarískar hersveitir hafa verið að störfum innan landamæra Afganistans og veitt stuðning upp- reisnarmönnum sem berjast gegn talibanastjórninni, að því er hátt- settur embættismaður innan Banda- ríkjahers greindi frá i gær. Talibanar sögðu hins vegar í morgun, á alþjóðlegum degi gegn stríði og ofbeldi, að þeir hefðu ekki fengið neinar fréttir af bandarísk- um hermönnum á yfirráðasvæðum sínum. Enn eru fáir bandarískir her- menn í Afganistan og ólíklegt þykir aö fjöldi þeirra verði nokkurn tíma í líkingu við það sem gerðist í Persaflóastríðinu fyrir tíu árum. Vera þeirra innan landamæranna markar þó þáttaskil í baráttunni gegn talibönum og hryðjuverka- sveitum Osama bin Ladens, sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í síðasta mánuöi. REUTER-MYND Flugkona tilbúin til árásar Bandarísk flugkona býr sig undir aö fara í árásarferö á Afganistan frá flugmóðurskipinu Carl Vinson. Verkefni sérsveitanna í sunnan- veröu Afganistan er að hvetja leiö- toga ættflokks pastúna til að láta af stuðningi sínum við talibana. Talibanar sögðu í gær að loftárás- ir Bandaríkjamanna sem hafa staö- ið í tæpar tvær vikur hefðu orðið allt að níu hundruð manns að bana og að þúsundir hefðu slasast. Don- ald Rumsfeld, landvarnaráðherra Bandaríkjanna, bar brigður á þess- ar fullyrðingar og sagði að hvergi nærri svo margir hefðu fallið í sprengjuregninu. Á heimavígstöðvunum hafa bandarísk stjómvöld boðið eina milljón dollara í verðlaun til þess sem getur veitt upplýsingar um þá sem hafa sent miltisbrandsbakterí- ur á skrifstofur fjölmiðla og Banda- ríkjaþings að undanfömu. Sex manns hafa smitast og þar af hefur einn dáið af völdum sýkingarinnar. Talið er að sendingarnar séu hluti skipulagðs samsæris. REUTER-MYND Allur er varinn góöur viö flokkun póstsins Starfsmaöur póstþjónustunnar í rússneska bænum Ljúbertsí skammt frá Moskvu hefur grímu fyrir andlitinu og er meö hanska á höndunum viö skoöun og flokkun pósts, af ótta viö miltisbrandssmit. Rússar hafa boöiö Bandaríkja- mönnum miltisbrandsmótefni og sérfræöiþekkingu vegna miltisbrandsóttans sem heltekur Bandaríkin. ísraelskar skriðdrekasveitir komnar inn í palestínska hluta Jerúsalem: Háttsettur foringi í Fatahsam- tökum Arafats drepinn í gær Eins og flestir bjuggust við kom til blóðsúthellinga á óróasvæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs í gær, í kjölfar morðsins á harðlínuráðherranum Rehavam Zeevi í fyrradag. ísraelski herinn sendi strax í gær skriðdreka- sveitir inn á tvö svæði á yfirráða- svæði Palestínumann á Vesturbakk- anum með tilheyrandi skothríð og þegar upp var staöið lágu að minnsta kosti sex Palestínumenn og einn ísra- elskur hermaður í valnum. Á meðal fallinna Palestínumann var Atef Abayat, háttsettur foringi í Fatah- samtökum Yassers Arafats, en hann mun hafa látist þegar bílsprengja sprakk i bíl hans þar sem hann var staddur í borginni Jerúsalem á Vest- urbakkanum. Abayat mun hafa verið á aftökulista ísraelsmanna, fyrir upp- safnaðar sakir, þar á meðal dauða fimm ísraelsmanna. Tveir félagar Sharon viö leiði Zeevis Ariel Sharon leggur hér krans á leiöi Rehavams Zeevis, sem Hösmaöur Ham- assamtakannna skaut til bana á þriöju- daginn. Sharon hefurgefiö Arafat viku til aö framselja meintan moröingja. Abayats, sem ekki voru á dauðalistan- um, féUu einnig i sprengingunni. Samkvæmt yfirlýsingu frá Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, kannast hann ekki við að sínir menn eigi heiðurinn af sprengingunni og segir líklegt þeirra eigin sprengja hafi sprungið fyrir slysni inni í bílnum. Tíu ára palestínsk stúlka var meðal þeirra sem létust í gær, en hún varð fyrir skoti þegar ísraelsk skriðdreka- sveit hóf skothríð á skólahúsnæði. Palestínumenn svöruðu fyrir sig með skothríð á íbúðabyggðir ísraelsmanna á svæðinu og féU einn óbreyttur borg- ari í Jeríkó. í morgun, á alþjóðlegum degi gegn stríði og ofbeldi, höfðu ísraelskar skriðdrekasveitir komið sér fyrir í palestínska hluta Jerúsalem og sögðu óstaðfestar fréttar að þar hefðu þegar hafist skotbardagar í morgunsárið. NATO veldur deilum Stóru stjórnar- andstöðuflokkamir í Færeyjum, kratar og sambandsmenn, gagnrýna Anfinn Kallsberg lögmann harðlega fyrir að gefa bandarískum flugvélum leyfi tU yfirflugs og til að nota flugvöUinn í Vágum án þess að ráðfæra sig við utanríkismálanefnd lögþingsins. Fyrirspurnin barst frá NATO, fyrir miUigöngu utanríkisráðuneytisins í Kaupmannahöfn. írar sjá opnar dyr írsk stjórnvöld telja að samþykkt framkvæmdastjómar ESB á tak- markaðri ríkisaöstoö við belgíska ríkisflugfélagið hafi opnað dymar fyrir aðstoð við Aer Lingus. Makedónar samþykkja Stjórnmálaforingjar í Makedóníu hafa fallist á að taka boðaðar um- bætur á stjórnarskránni, sem nauð- synlegar eru tU að tryggja frið í landinu, til umfjöUunar í þinginu. Páfi brýnir kristna Jóhannes Páll páfi hvatti kristna menn hvar sem er í heiminum í gær til að gera sitt tU að binda enda á fordóma gegn innflytjendum og ástunda samræður við fólk af öðr- um trúarbrögðum. Winnie Mandela ákærð Winnie Madik- izela-Mandela, fyrr- um eiginkona Nel- sons Mandela í Suð- ur-Afríku, var ákærð í gær fyrir fjársvik og þjófnað. Fjárhæðirnar sem um er að tefla nema vel á áttundu milljón króna, í iUa fengnum bankalánum. Leiðbeint um uppgjöf Bandaríkjamenn nota hægfara flugvél til að fljúga yfir Afganistan og útvarpa leiðbeiningum, á mál- lýskum innfæddra, um hvernig þeir eigi að bera sig að við uppgjöf fyrir bandarískum hermönnum. Cheney varar við Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, varaði landa sina við því í gær að þeir mættu eiga von á fleiri árásum hryðju- verkamanna. I ræðu sem hann hélt á góðgerðarsamkomu sagði hann að óvinurinn hefði sýnt og sannaö að hann gæti valdið miklum skaða og því yrðu menn að búa sig undir fleiri hryðjuverk. Færri ferðamenn Rúmlega 1,3 miUjónir ferða- manna hafa aflýst ferðum sínum tU Indónesíu að undanförnu vegna sí- vaxandi andúðar á Bandaríkjunum í þessu fjölmennasta múslímaríki heimsins. Hóta sjálfsmorðsárásum íslamskur skæruliðahópur sem berst gegn yfirráðum Indverja í Kasmír hefur hótað að gera sjálfs- morðsárásir á indverskar borgir. Spenna fer vaxandi við miðlínuna sem skiptir Kasmír miUi Indverja og Pakistana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.