Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Síða 13
13 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBBR 2001 DV Af fingrum fram ítalska nóbelsskáldið Dario Fo hef- ur látið hafa eftir sér að hann gangi aldrei frá skriflegu handriti að verk- um sínum fyrr en þau hafa verið frumsýnd. Það þýðir ekki að leikar- arnir sem taka þátt í frumuppfærslu verkanna hafl ekkert í höndunum heldur að textinn taki breytingum fram á síðustu stundu eins og annað á æfingaferlinu. Þetta kann að þykja sjálfsagður hlutur en er það alls ekki þvl það vill oft gleymast að leikhús er ekki bara framsetning á fyrirfram skrifuðum texta. Aðferðirnar við að búa til leiksýningar eru sem betur fer fiölmargar og ein leiðin er hópvinna þar sem allir sem að uppsetningunni koma leggja í púkkið. Við upphaf æf- ingatímans er lagt af stað með ákveðna hugmynd í farteskinu sem síðan er þróuð og spunnin áfram þar til sýningin fær endanlegt form. Leiklist____________ Sýningar sem eru unnar á þennan hátt eru fremur sjaldséðar hérlendis en á miðvikudag var ein slík frum- sýnd í Kaffileikhúsinu, Veröldin er vasaklútur, þar sem segir frá tveimur kvenkyns bökurum, Telmu og Vilmu. Hvar bakaríið þeirra er er látið liggja á miUi hluta en engum leynist breyt- ingin sem verður á lífi þeirra þegar stríð skellur á. Án þess að þær setji sig í stellingar og ákveði að vinna hetjudáðir verða þær hluti af ein- hvers konar andspyrnuhreyfingu og hætta þar með eigin lífi og limum við að bjarga öðrum. „Höfundar" verksins eru sex: leikkonurnar Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir, leikstjórinn Neil Haigh, Katrín Þorvaldsdóttir leik- myndahönnuður, ljósahönnuðurinn Jóhann Bjami Pálmason og Pétur Hallgrímsson sem er höfundur tónlistar. Allir leggja sitt af mörkum en eðlilega er vinna varðar lýsingu og hljóð og því ljóst að mikið mæðir á þeim stöllum. Á stundum fór einbeitingin fullmikið í tæknilegu hliðamar en þess á milli náðu þær sér vel á sprett í leiknum. Aðferðum eins og trúðleik og slap-stick er beitt af kunn- áttu og greinilegt að þær Vala og Ágústa kunna vel að vinna saman. Það sem háir þeim er sú staðreynd að markmiðið með sýningunni er ekki nógu skýrt mótað. Fyrir vikið verður frásögnin sundurleit og of oft er gripið til þess að nota orðræðu eingöngu vegna þess að hún er fyndin. Dramatísku atrið- in líða fyrir þetta og missa stundum marks sem er miður, þvi þó að sýningin eigi að vera skemmtileg er undirtónnínn svo sannarlega alvarlegur. Mér fannst sagan líka undarlega gamaldags og merkilegt að þar væri ekki að finna neinar vísanir í samtímann sem þó ætti að gefa næg tilefni til pælinga um stríð. Margt er skemmtilegt og fallega gert í þessari sýningu þó ekki verði hún jafneftirminnileg og margir af einleikj- um Völu. Einfaldar lausnir Jóhanns Bjarna eins og ljósafjarstýring gáfu óvænta möguleika og leikhljóð voru kap- ítuli út af fyrir sig. Fjölnota bakarofn Katrínar var bráðsnjall og sama gildir um „brúðurnar" sem öðluðust sérkenni með fasi og göngulagi leikkonunnar sem stýrði þeim. Veröldin er vasaklútur er ekki sýning fyrir þá sem fara í leikhús til að lygna aftur augunum og hlusta á mergjaðan texta. Þeir sem vilja upplifa leikhús sem byggir á sköpunarvinnu leikhúsfólks ættu hins vegar að drífa sig í Kaffileik- húsið því þar er reynt að uppfylla há- værar kröfur um einhvers konar til- raunastarfsemi í íslensku leikhúsi. Halldóra Friðjónsdóttir The lcelandic Take Away Theatre sýnlr í Kaffileikhúsinu: Veröldin er vasaklútur eftir aöstand- endur sýningarinnar Bakarar í stríði Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir í Veröldin er vasaklútur. DV-MYND HARI leikkvennanna Völu og Agústu sýnilegust. Þær gegna einnig hlutverki „tæknimanna" hvað Tónlist Frábær skemmtun Þeir voru hreint út sagt frábærir tónleikarnir hjá Sinfóníuhljómsveit íslands í gærkvöld. Fróð- ir menn gátu sagt sér sjálfir á grundvelli efnis- skrárinnar að þetta yrði gaman, en enginn hefði beinlínis getað spáð svona gleði. Hljómsveitarstjórinn á tónleikunum, Bern- harður Wilkinson, vann stórsigur. Hann hefur stýrt hljómsveitinni ítrekað en aldrei hefur hún lagt sál sína með jafn miklu trúnaðartrausti í hendur hans. Það er nefnilega ekki alltaf sem hljómsveitin okkar gefur sig alla. Bernharður brást ekki þvi trausti sem hann hafði greinilega áunnið sér og stýrði feikilega vel. Fyrsta verkið á efnisskránni var hin ótrúlega klassíska sinfónía Prokofievs, nr.l. Þá kom strax í ljós hve'rsu vel stjórnandinn þekkti salarkynn- in. Sjaldan hefur hljómgöllum hússins verið bet- ur mætt, jafnvægi betur tryggt og um leið allir möguleikar rýmisins til mismunandi litbrigða með tilliti til jafnvægis betur nýttir. Þetta gaf stóru verkunum á efnisskránni hreint ótrúlega vidd og hlustandinn fékk á tiifinninguna að framsetningin hefði verið íburðarmikil en um leið fáguð. Fágunin fékk þó ekki síst notið sín í verki Mozarts, Sinfonia concertante í Es-dúr, K297B. Verkið er skrifað fyrir litla hljómsveit með fjór- um einleikurum, í þessu tilfelli eru hljóðfærin óbó, klarínett, fagott og hom. Blásarakvintett Reykjavikur hélt á þessum tónleikum upp á 20 ára starfsafmæli. Kvartettinum á sviðinu var því stýrt af fimmta félaga kvintettsins, títtnefnd- um Bernharð, flautuleikara þeirra. Það er engin tilviljun að maður hefur ekki heyrt þetta verk Mozarts oft. í stíl stendur það mun nær óperu- tónlist tónskáldsins en hans glæsilegu sinfóní- um. Þó hefur það ekki til að þera nema að litlu leyti þá töfra sem lita margar aríur skáldsins. Þetta er um margt látlaus tónlist sem gælir við hlustimar og sálina með allt öðrum hætti en menn kannski leyfa á tónleikum. Ákveðin ein- kenni stofutónlistar verða til þess að menn verða að gleyma stund og stað og hverfa inn í heim hinnar fáguðu framvindu. Hljóðfæraleik- urinn var eins og búast mátti við framúrskar- andi. Þeir félagar eru allir frábærir tónlistar- menn og samslípun þeirra fullkomnuð. Síðust á dagskrá kvöldsins var sinfónían nr. 8 í G-dúr, op. 88, eftir Antonín Dvorák. Verkefna- valsnefnd á hrós skilið fyrir að setja þessar tvær sinfóníur, þá númer eitt og svo þessa, saman á tónleika. Þær eru svo ótrúlega ólíkar á bragðið en samt er keimurinn sá sami. Þessar frjóu gæl- ur við hefðina og fínleg en úthugsuð fráhvörf frá henni. Sinfónía Dvoráks er snilldarleg smíð og var túlkunin í gærkvöld alveg sérlega kraftmik- il, tær og rík. Nægir i því sambandi að nefna hugarvikkandi hljóm trompetanna, mjög vel út- færð snögg umskipti í styrk hjá hljómsveitinni, safaríka steíjameðhöndlun hjá bæði sellóum og öðrum hljóðfærum og dásamlega sveiflu í valsin- um. Allt gekk upp og heildin varð ómótstæðUeg. í lokin er óhjákvæmUegt í ljósi stöðunnar að nefna að það að eiga svo góða hljómsveit, stjórn- anda og einleikara og geta haldið tónleika sem þessa er ekki sjálfgefinn hlutur. Það er ótrúlega stutt síðan slíkt var ómögulegt. Að baki eru ára- tugir uppeldis, náms og þrotlausra æfinga. Ef ekki verður staðið myndarlega að lausn mála hjá tónlistarkennurum nú er ljóst að afleiðing- amar munu koma niður á þvi menningarlífi sem samfélagið býður bömunum okkar. Fiöl- breytni í menningarlífi er nauðsynleg í nútíma- samfélagi. Vonandi mun valdhöfum lánast að stýra farsæUega þannig að til verði í landinu þegnar sem hafa haft möguleika á mótunar- skeiði tU þess að kynnast þeim grundvaUargild- um sem tónlistarunaðurinn byggir á. í því tiUiti er ekkert jafn áhrifamikið og tónlistariðkun á unga aldri. Það er gagnslítið að byggja ofan á grunn sem verður látinn morkna innan frá. Tón- listariðkun almennings er þessi grunnur og lyk- Ulinn að góðri rækt er góð kennsla. Sigfríður Bjömsdóttir Athugiö aö tónleikarnir veröa endurteknir í kvöld kl. 19.30 í Háskólabíói. ___________Menning Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir Einleikstónleikar Guönýjar Fyrir nákvæmlega tveimur árum ætlaði Guðný Guðmundsdóttir, fiðlu- leikari og konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar íslands, að halda ein- leikstónleika í Salnum i Kópavogi. Það varð öllum áhugamönnum um tónlist harmsefni þegar hún veiktist skyndi- lega svo að feUa þurfti tónleikana nið- ur og breyta öUum áætiunum einleik- arans marga mánuði fram í tímann. En nú verða þessir tónleikar haldnir á sunnudagskvöldið kl. 20 í Salnum og verða áreiðanlega þeim mun betri sem eftirvænting aðdáenda Guðnýjar er orðin meiri. Peter Máté píanóleikari, annar fé- lagi Guðnýjar í Tríói Reykjavíkur, leikur með henni á tónleikunum, og hafa þau undirbúið einstaka efnisskrá, fjölbreytta og spennandi, með virtúósa verkum fyrir einleiksfiðlu ásamt tví- leiksverkum sem spanna samanlagt 201 ár. Elsta verkið, Adagio kv 261 eft- ir Wolfgang Amadeus Mozart, var samið árið 1776, en það yngsta, Fratres eftir eistneska snUlinginn Arvo Párt, var samið árið 1977. Önnur verk á tónleikunum eru Sónata KV 454 eftir Mozart, Sónata fyr- ir einleiksfiðlu eftir íslenska tónskáld- ið HaUgrím Helgason, kraftmikið verk með sterkan hrynjanda, ákaflega vel samið fyrir hljóðfærið, Havanaise op. 83 eftir Frakkann CamiUe Saint Saéns, blóðheitt og glæsilegt spánskt smálag, Písen lásky (Ástarsöngur) eftir Tékk- ann Josef Suk og loks Polonaise de concert op. 4 i D-dúr, eitt frægasta verk pólska fiðluleikarans Henri Wi- eniawski. Miðasala er þegar hafin. Kórtónleikar Samkór Kópavogs heldur afmælis- tónleika í Salnum í Kópavogi á morg- un kl. 16 í ttiefni af 35 ára afmæli kórs- ins. Stjórnandi kórsins er Julian Hew- lett, píanóleikari er Jónas Sen og ein- söngvarar með kórnum á afmælistón- leikunum eru þau HaUveig Rúnars- dóttir sópran og Þorbergur Skagfjörð Jósefsson bassi. Efnisskrá tónleikanna er afar íjölskrúðug, islensk og erlend lög í bland. Velgengni Guöbergs Á bókastefnunni í Frankfurt kom fram mikill áhugi á verk- um Guðbergs Bergs- sonar og er verið að semja um útgáfu á bókum hans allt frá Noregi til Kína. Meðan á bókastefnunni stóð komu út á þýsku Jólasögur úr samtímanum í þýðingu Karl-Ludwigs Wetzig. Þetta er þriðja bókin sem Steidl-útgáfan í Þýskalandi gefur út eftir Guðberg og hafa bækur hans hlotið framúrskar- andi móttökur þar í landi. Svanurinn hefur hlotið aíbragðs móttökur á Ítalíu og selst í yfir tíu þús- und eintökum síðan í vor og er upp- seld. Hún verður endurprentuð í inn- bundinni útgáfu þegar Guðbergur fer til Italíu til að fylgja bókinni eftir í næsta mánuði. Guðbergur var reyndar á Ítalíu í september siðastiiðnum og birtust viðtöl við hann í mörgum helstu fjölmiðlum ítaliu. Italski útgef- andinn er að vonum glaður og hefur þegar ákveðið að gefa Svaninn út i kiljuútgáfu til fjöldadreifingar haustið 2002 auk þess sem hann hefur óskað eftir itölskum útgáfurétti á skáldsögu Guðbergs Sú kvalda ást sem hugar- fylgsnin geyma. Spænskur útgefandi Guðbergs hefur nú keypt rétt til útgáfu á fyrsta bindi skáldævisögu hans: Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar sem hlaut ís- lensku bókmenntaverðlaunin og var tUnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Svanurinn og Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma hlutu mjög góðar viðtökur Spánverja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.