Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Síða 22
26 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára_______________________ Alfhildur Kristjánsdóttir, Naustahlein 19, Garöabæ. Jónína Símonardóttir, Eyrarvegi 7a, Akureyri. Gísli Konráósson, Oddagötu 15, Akureyri. 80 ára_______________________ Ingibjörg Finnsdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi. Einar Árnason, Brekkubraut 4, Akranesi. Kristín Friöbjörnsdóttir, Mýrargötu 18a, Neskaupstaö. 75 ára_______________________ Hilda Árnadóttir, Lindasíöu 4, Akureyri. 70 ára_________________________________ Þóröur Snæbjörnsson, Heiðmörk 61, Hveragerði. 60 ára_________________________________ Siguröur Líndal Viggósson, tanlæknir, Stigahlíð 84, Reykjavfk. Eiginkona hans er Bryndfs Sigurjónsdóttir. Þau taka á vinum og vandamönnum að heimili sínu frá kl. 17.00. á afmælisdaginn. Valdimar W.D. Sveinsson, Einimel 3, Reykjavík. Erik Haakansson, Safamýri 34, Reykjavfk. 50 ára_________________________________ Þórunn Erla Sighvats, Skarðsbraut 5, Akranes. Eygló Björnsdóttir, Hlfðargötu 8, Akureyri. Guöný Jónasdóttir, Heiðvangi 17, Hella. 40 ára_________________________________ Halldóra Pétursdóttir, Kjalarlandi 31, Reykjavík. Guömundur Már Ástþórsson, Þúfuseli 2, Reykjavík. Örn Þór Arnarson, Holtagerði 72, Kópavogi. Guöfinna Bryndís Jóhannsdóttir, Heiðarbraut 31d, Keflavfk. Guðmundur Hafsteinn Kjartansson, Stillholti 10, Akranesi. Brynjólfur John Gray, Sléttalandi, Hellu. Kristín Guöný Guðmundsdóttir, Hlíðarvegi 1, Hvolsvelli. Smáauglýsingar DV Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 Sjötugur Þórður Snæbjörnsson umboðsmaður VÍS í Hveragerði Þórður Snæbjörnsson, umboðs- maður Vátryggingafélags íslands í Hveragerði og fyrrv. garðyrkju- bóndi, Heiðmörk 61, Hveragerði, verður sjötugur i dag. Starfsferill Þórður fæddist á Snæringsstöð- um í Vatnsdal í Austur-Húnavatns- sýslu, og ólst þar upp fram að ferm- ingaraldri. Hann var við nám að Reykjum í Hrútafirði og lauk síðar gagnfræðaprófi frá MA. Þórður vann ýmis almenn störf á unglingsárum. Hann flutti í Hvera- gerði 1950 og gerðist starfsmaður Garðyrkjuskólans. Þórður settist síðar sjálfur á skólabekk og útskrif- aðist sem garðyrkjufræðingur 1953. Þórður fékkst við ýmis störf í Hveragerði og vann m.a. í sex ár i Trésmiðju Hveragerðis. Hann byggði gróðurhús 1958 og sneri sér alfarið að garðyrkju 1963 og rak gróðrarstöð til 1980. Þá tók við verkamannavinna í tvö ár og hluta- starf á bensínstöð Olíufélagsins 1983-90. Þórður varð umboðsmaður Brunabótafélagsins 1982 og Vátrygg- ingafélags íslands frá 1989 og er það enn. Þórður sat í ýmsum nefndum á vegum Hveragerðishrepps, s.s. raf- veitunefnd og skólanefnd. Hann sat í hreppsnefnd Hveragerðishrepps 1974-82 og gegndi störfum oddvita síðara kjörtímabilið. Hann er einn stofnenda Bridgefélags Hveragerðis, Taflfélags Hveragerðis og Fram- sóknarfélags Hveragerðis og átti sæti í fyrstu stjórn þeirra allra. Þá er hann einn af stofnendum Golf- klúbbs Hveragerðis. Þórður var enn fremur formaður Ungmennafélags Hveragerðis og Ölfus um skeið. Þá var hann deildarstjóri Hveragerðis- deildar KÁ um skeið. Fjölskylda Þórður kvæntist 19.10. 1952 Ingi- björgu Jóhönnu Jónasdóttur, f. 13.2. 1929, húsmóður og fyrrv. starfskonu við Heilsustofnun NFLÍ í Hvera- gerði. Foreldrar hennar: Jónas Sig- urðsson og Guðbjörg Jóhannsdóttir en þau bjuggu á Hafragili í Laxárdal í Skagafirði og síðar á Hvammi í sömu sveit. Börn Þórðar og Ingibjargar eru Guðbjörg, f. 16.4.1952, kennari á Sel- tjarnarnesi, en maður hennar er Björn S. Pálsson, starfsmaður Vinnueftirlits ríkisins, og eiga þau þrjú böm; Sturla Snæbjörn, f. 18.11. 1954, starfsmaður við vélaverkstæði í Reykjavík, en sambýliskona hans er Eva Hreinsdóttir og á hann tvö börn með fyrrv. sambýliskonu sinni, Halldóru Eyrúnu Bjarnadótt- ur; Herdís, f. 5.5.1958, framkvæmda- stjóri Heilsugæslustöðvar Hvera- gerðis, en maður hennar er Sigurð- ur Egilsson og á hún tvö börn með fyrrv. manni sínum, Hafsteini Haf- steinssyni; Jónas Þór, f. 6.4. 1960, rafvirki og flugvirki hjá Öryggis- gæslu Islands, búsettur í Hvera- gerði; Ingibjörg Erna, f. 1.8. 1962, starfsmaður við Heilsugæslu Hvera- gerðis, en maður hennar er Sveinn Guðmundsson og á hún þrjú börn með fyrrv. manni sínum, Guðmundi Antonssyni. Systkini Þórðar voru Jón Hann- es, f. 10.11. 1924, d. 6.9. 1985, starf- rækti Vélabókhaldið í Reykjavik; Fjóla Snæbjörnsdóttir, f. 1938, d. sama ár; Bjami, f. 7.7. 1939, starfs- maður hjá Vinnueftirliti ríkisins; Guðmundur Þór, f. 10.6. 1942, d. Guðmundur H. Kjartansson kjötiðnaðarmaður á Akranesi Guðmundur Hafsteinn Kjartansson, kjötiðnaðar- maður hjá Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi, Stillholti 10, Akranesi, er fertugur i dag. Starfsferill Guðmundur fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann var við nám í Lýðhá- skólanum Triggheim í Noregi árið 1984, stundaði síðan kjötiðnaðarnám í Iðnskólanum í Reykjavík og út- skrifaðist þaðan 1991. Guðmundur starfaði í nokkurn tima hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, við Verslunina Brekkuval í Kópa- vogi og hjá Sláturfélagi Suðurlands eftir að hann lauk kjötiðnaðarnámi. Hafsteinn hefur m.a setið í stjórn KFUM og K á Akranesi og í stjórn sumarbúðanna í Ölveri frá því 1985. Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Þuríður Baldursdóttir, f. 24.9.1967, húsmóðir. Hún er dóttir Baldurs Hlöðversson- ar, vélvirkja í Kópavogi, og Grétu Magnúsdóttur húsmóður í Kópavogi. Börn Guðmundar og Þuríðar eru Atli Þór Guð- mundsson, f. 18.4. 1991; Guðlaug Sif Guðmunds- dóttir, f. 30.6. 1995; Jó- hanna Gréta Guðmunds- dóttir, f. 22.1. 1997. Tvíburabróðir Guð- mundar er Hörður Kjartansson, f. 19.10. 1961, lagerstjóri, búsettur - i Reykjavík. Alsystur Guðmundar eru Kolbrún Kjartansdóttir, f. 12.3. 1950, starfs- maður við Hrafnistu í Reykjavík, bú- sett í Reykjavík; Elín Hanna Kjart- ansdóttir, f. 2.8. 1954, skrifstofumað- ur, búsett á Akranesi. Hálfbróðir Guðmundar, samfeðra, er Guðni Kjartansson, íþróttakenn- ari, búsettur i Keflavík. Foreldrar Guðmundar eru Kjartan Guðmundsson, f. 18.6. 1923, blikk- smiðameistari á Akranesi, frá Búð- um í Hlöðuvík, og Auður Elíasdóttir, f. 28.8. 1930, húsmóðir frá Þingeyri í Dýrafirði. Guðmundur tekur á móti gestum í tUefni afmælisins í Sumarbúðun- um Ölveri laugard. 20.10. kl. 14.00. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 DV 10.11. 1942. Foreldrar Þórðar: Snæbjörn Jóns- son, f. 30.10. 1897, d. 1985, lengst af bóndi á Snæringsstöðum og síðar verkamaður í Reykjavík, og k.h., Herdis Sigríður Emilía Guðmunds- dóttir, f. 6.7. 1898, d. 1967, húsfreyja. Ætt Snæbjörn var sonur Jóns, b. í Þórormstungu og síðar á Undorn- felli í Vatnsdal, Hannessonar, b. á Haukagili, Þorvarðssonar pr., síðast á Prestbakka á Síðu, Jónssonar, pr. á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þor- varðssonar, smiðs á Björgum í Kinn Þórðarsonar. Herdís var dóttir Guðmundar Þorleifssonar á Gelti í Súgandafirði, Jónssonar. Móðir Herdísar var Þóra Jónsdóttir, b. og hreppstjóra á Hóli í Bolungarvík, Guðmundssonar, b. í Ytrihúsum í Arnardal, Ásgrímsson- ar, b. í Arnardal fremri, Bárðarson- ar, ættfóður Arnardalsættar, Illuga- sonar. Þórður verður að heiman á af- mælisdaginn. Fertugur Hörður Kjartansson lagerstjóri í Reykjavík Hörður Kjartansson, lagerstjóri hjá Máli og menningu, Kleppsvegi 54, Reykjavík, er fertugur i dag. Starfsferill Hörður fæddist á Akra- nesi og ólst þar upp i foreldrahúsum. Hann stundað nám í Biblíuskóla í Fjellhug í Noregi árið 1980. Þá stundaði hann nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði blikksmíði og lauk prófum í þeirri iðngrein 1986. Hörður starfaði hjá Blikksmiðj- unni hf., Reykjavík, um skeið og hjá Blikksmiðnum í nokkur ár eftir að hann námi lauk en er nú lagerstjóri hjá Máli og menningu í Reykjavík. Hörður hefur m.a. setið í stjórn Félags blikksmiðja, í stjórn sumar- búðanna KFUM í Vatnaskógi, í stjórn Björgunarsveitarinnar Ásfells í Reykjavík og á Seltjarnamesi. Hann stundar köfun og er í leitar- og björgunarstörfum samfara því. Fjölskylda Eiginkona Harðar er Þórunn Elidóttir, f. 1.8.1957, kenn- ari við Hamraskóla. Hún er dóttir Elis Auðunsson- ar, húsamíðameistara í Reykjavík, og Guðrúnar Magdalenu Bimir fóstru. Böm Harðar og Þórunn- ar eru Elí Harðarson, f. 5.7. 1988; Kjartan Harðar- son, f. 9.11. 1989. Tvíburabróðir Harðar er Guð-mundur Hafsteinn, f. 19.10 1961, kjötiðnaðarmaður, búsettur á Akranesi. Alsystur Harðar eru Kolbrún Kjartansdóttir, f. 12.3. 1950, búsett í Reykjavík; Elín Hanna Kjartansdótt- ir, f. 2.8. 1954, búsett á Akranesi. Hálfbróðir Harðar, samfeðra, er Guðni Kjartansson íþróttakennari, búsettur í Keflavík. Foreldrar Harðar eru Kjartan Guðmundsson, f. 18.6. 1923, blikk- smíðameistari á Akranesi, frá Búð- um í Hlöðuvík, og Auður Elíasdóttir, f. 28.8. 1930, húsmóðir á Akranesi, frá Þingeyri Dýrafirði. Hörður verður að heiman á afmælisdaginn. Guðni Steingrimsson múrarameistari, Lækjarkinn 16, Hafnarfiröi, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfiröi þriöjud. 16.10. Sólrún Guömundsdóttir, Ránargötu 2, Grindavík, lést á Heilbrigöisstofnun Suö- urnesja aöfaranótt þriðjud. 16.10. Jarð- arförin auglýst síðar. IJrval - gott í hægindastólinn Merkir íslendingar__________________ Sigurbjörn Sveinsson barnabókahöfundur fæddist að Kóngsgarði í Bólstaðarhlíðar- hreppi í Austur-Húnavatnssýslu 19. október 1878. Sigurbjörn var ungur er hann missti föður sinn, Svein Sigvaldason skósmið, og ólst hann upp hjá móður sinni eins og víða kemur fram í sögum hans. Sigurbjörn lærði skósmíði í Reykja- vik, bjó síðan á Akureyri, var kennari við Bamaskóla Reykjavíkur 1908-1919 og kennari i Vestmannaeyjum 1919-1932. Auk þess kenndi hann ensku og hljóðfæraleik í einkatímum. Sigurbjörn er tvímælalaust einn merkasti barnabókahöfundur okkar og brautryðjandinn í þeirri bókmenntagrein. Hann er fyrsti íslenski rithöfundurinn sem skrifar gagngert fyrir börn frá þeirra sjónar- Sigurbjörn Sveinsson hóli og reynsluheimi og án kennivalds og siða- predikana. Einlægni Sigurbjörns og kristal- tær, einfaldur ritstíllinn gerir barnasögur hans sígildar enda hafa helstu verk hans verið margsinnis endurútgefin og hafa í heildina komið út í mörgum tugum þús- unda eintaka. Margar sögur Sigur- bjöms voru auk þess prentaðar í les- bókunum sem lesnar vom í barnaskól- um landsins um áratuga skeið. Má þar nefna söguna um margfóldunartöfl- una, Glókoll. Margar kynslóðir íslend- inga hafa því lesið sögur eftir Sigur- björn án þess að fólk geri sér alltaf grein fyrir því. Þekktustu ritverk Sigurbjörns eru Bernskan I—II. þá sendi hann frá sér ljóðabækur og gaf út skákdæmi enda góður skákmaður. Hann lést 2. febrúar 1950. Guðrún Hafdís Jóhannsdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi, veröur jarðsungin frá Kópa- vogskirkju föstud. 19.10. kl. 13.30. Margrét Guömundsdóttir, Barmahlíö 23, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstud. 19.10. kl. 13.30. Þórður Hinriksson, Strandgötu 33, Akur- eyri, veröur jarösunginn frá Akureyrar- kirkju föstud. 19.10. kl. 13.30. Úlfar Einar Kristmundsson, Huldulandi 4, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju föstud. 19.10. kl. 13.30. Brynjar Þorsteinsson, sem lést miö- vikud. 10.10., veröur jarösunginn frá Lágafellskirkju föstud. 19.10. kl. 13.30. Björn Pálsson, fyrrv. lögregluvaröstjóri, Sæviöarsundi 19, veröur jarösunginn frá Áskirkju í Reykjavík föstud. 19.10. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.