Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001
íslandsmót taflfélaga:
Hrókur mætir
með sex erlenda
stórmeistara
Islandsmót taflfélaga hefst í Vest-
mannaeyjum í dag. Hátt á annað
hundrað skákmenn eru á leið til
Eyja. í fyrstu deild er útlit fyrir gríð-
arlega spennandi keppni enda hafa
öll stærstu félögin fengið erlenda at-
vinnumenn í lið sín.Ý
Taflfélagið Hrókur, sem oftast hef-
ur verið kennt við Grandrokk, hefur
á aðeins þremur árum unnið sig upp
úr fjórðu deild í þá efstu. Klúbbur-
inn teflir fram sex erlendum stór-
meisturum. Á efstu borðum hjá
Hróknum tefla tveir úr hópi bestu
skákmanna heims, Ivan Sokolov frá
Bosníu og Jaan Ehlvest frá Eist-
landi. Auk þeirra eru í liðinu Nick
De Firmian frá Bandaríkjunum,
Luke McShane, yngsti stórmeistari
Englendinga, Henrik Danielsen frá
Danmörku og Jan Votava frá Tékk-
'■* landi.
Helstu keppinautar Hróksins eru
Taflfélagið Hellir, með fjóra íslenska
stórmeistara og einn sænskan, og
Taflfélag Reykjavíkur, með tvo ís-
lenska stórmeistara og tvo útlenda.
-HK
Sumariö gefur sig ekki
Enda þótt enn lifi aöeins vika afsumrí, en síðasti sumardagur er næsta föstudag, ieikur blíðviöri við iandsmenn.
Hvert hitametið er nú slegið af öðru í Reykjavík en margra ára met var slegið í byrjun vikunnar
og það met var að nýju slegið í gærdag þegar hitinn í borginni fór hátt í sextán gráður.
Myndin er tekin í hauststillunni við Elliðavatn í gærdag.
Delta framleiðir sýklalyf sem gagnast gegn miltisbrandi:
Gríðarleg sala
í Þýskalandi
- ótta vegna miltisbrands samt ekki farið að gæta
Nýtt hitamet
í Reykjavík
Síðdegis í gær var slegið hitamet í
j* Reykjavík þegar hitinn mældist 15,6
gráður. Að sögn Hrafns Guðmunds-
sonar, veðurfræðings á Veðurstof-
unni, var gamla metið í október 15,3
gráður og var það það hæsta sem
mælst hefur frá upphafi mælinga.
Hann segir að djúp lægð vestur af ír-
landi hafi dælt hlýja loftinu upp að
landinu með þeim afleiðingum að
mjög hlýtt hefur verið, þó sérstaklega
á Suðvesturlandinu. „Það lítur út fyr-
ir að það verði þokkalega hlýtt áfram
en það er þó ólíklegt að við sjáum
fleiri hitamet en það er þó aldrei að
vita,“ segir Hrafn. Lægðin sé aðeins
farin að grynnast en sé þó ansi lífseig.
Hlýja loftið er komið frá Bretlandseyj-
um og meginlandi Evrópu. -MA
~ Mest verðbólga
á íslandi
Verðbólga mældist 0,8% í septem-
ber síðastliðnum samkvæmt sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs sem Hag-
stofa íslands birti í gær. í EES-ríkjum
mældist verðbólgan 0,3% í sama mán-
uði. Samkvæmt þessum samræmda
mælikvarða var verðbólgan 8,8% hér
á landi á síðustu 12 mánuðum og hef-
ur verðbólgan í engu öðru EES-ríki
verið meiri á þessum tíma. Holland
kemst þó næst með 5,4% verðbólgu.
Lægst var verðbólgan hins vegar í
Bretlandi, eða 1,3%. Að meðaltali
mældist verðbólgan 2,4% í ríkjum
mk EES á þessu tímabili.
Óttinn við miltisbrand vex
stöðugt um allan heim. Æ fleiri fá
bréfasendingar sem innihalda sýkil-
inn en enginn veit hverjir sendend-
ur eru. Þeir sem anda að sér eða
komast í snertingu við miltisbrand
eru meðhöndlaðir með lyfjum. Eina
lyfið sem viðurkennt er að fullu í
þessu skyni, af Fæðu- og lyfiaeftir-
liti Bandaríkjanna er CIPRO. ís-
lenska lyfiafyrirtækið Delta fram-
leiðir samheitalyfið cyprofloxacin
sem m.a. er selt á Þýskalandsmark-
aði. Þar hefur veltan vaxiö hröðum
skrefum og fer líklega um 600 millj-
ónum fram úr áætlunum á þriðja
ársfiórðungi þessa árs.
Róbert Wessman, framkvæmda-
stjóri Delta, segir að fyrirtækið sé
ekki í aðstöðu nú til að selja þetta
lyf á Bandaríkjamarkaði. „Það
þyrfti að þróa lyfið með tilliti til
Bandaríkjanna og fá það skráð. Það
er um fimm ára
ferli. Þar fyrir
utan er einkaleyfi
frumlyfsins í
Bandaríkjunum i
gildi fram á
næsta ár ef ég
man rétt, fyrr má
ekki selja þar slík
samheitalyf.
Einkalyfið rann
út í Þýskalandi á
þessu ári. Af því að við náðum
þeirri stöðu að vera fyrst á markað
með samheitalyf náðum viö yfir
50% markaðshlutdeild í Þýskalandi.
Þá er einkaleyfi frumlyfsins að
renna út í Bretlandi í byrjun næsta
árs.“
Ótrúlegur uppgangur hefur verið
í rekstri Delta undanfarin ár. Árið
1998 var heildarveltan um 800 millj-
ónir króna. Eftir að sala á ónæmis-
lyfinu loratandine og sýklalyfinu
ciprofloxacin fór á fullt skrið í
Þýskalandi hefur salan vaxið ört.
Þannig var í ágústlok, löngu fyrir
alla miltisbrandsumræðu, gert ráð
fyrir að salan á ciprofloxacin í
Þýskalandi einu yrði yfir 900 millj-
ónir króna á þessu ári.
Þó bæði sýklalyfin doxycycline og
penísillín hafi verið talin nothæf
gegn miltisbrandi hefur notkun
þeirra í þessum tilgangi valdið ýms-
um erfiðleikum. Auk þess er talið
líklegt að hryðjuverkamenn hafi
yfir að ráöa miltisbrandi sem er að
einhverju leyti ónæmur fyrir báð-
um þessum lyfium.
Róbert Wessman segir að enn sé
þó ekki að merkja aukna eftirspurn
eftir samheitalyfinu þeirra í Þýrska-
landi vegna ótta við miltisbrand.
„Þaö getur hins vegar vel verið að
það gerist." -HKr.
Möguleg sameining Línu.Nets við önnur fjarskiptafyrirtæki:
Það er ekkert fast í hendi
- gæti verið sterkt í ljósi samkeppni, segir Alfreð Þorsteinsson
Sterkur orðrómur hefur verið um
að Orkuveita Reykjavíkur og fiar-
skiptafyrirtækið Lína.Net væru að
íhuga kaup á hlut Norðurljósa í síma-
fyrirtækinu Tali. Alfreð Þorsteinsson,
stjómarformaður Orkuveitunnar, seg-
ir ekkert hæft í þeim vangaveltum.
Hann segir menn hins vegar hafa rætt
lauslega ýmsa hluti, m.a. varðandi
mögulega sameiningu Línu.Nets við
önnur fyrirtæki á fiarskiptasviði.
„Það er þó ekkert fast í hendi með
það. Hins vegar telja menn í Ijósi sam-
keppninnar að það geti veriö sterkt að
sameina einhver fyrirtæki á þessum
markaði," sagði
Alfreð Þorsteins-
son í samtali við
DV.
Guðlaugur Þór
Þórðarsson, borg-
arfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, hef-
ur mjög gagnrýnt
það sem hann kall-
ar botnlaust braðl
varðandi uppbygg-
ingu Línu.Nets. Þar hafi 1,1, milljarði
verið eytt í Linu.Net og fyrir liggi að
miklu hærri fiárhæðum þurfi að verja
í það til viðbótar. Hann segir þetta
sambærilegt og 11 ára framlög til
kaupa á félagslegu húsnæði hjá
Reykjavíkurborg.
„Ég hef heyrt þetta víða. Það er al-
veg ljóst að meirihlutinn er aö upp-
hugsa eitthvað til að losa sig úr þeim
botnlausu vandræðum sem eru í
tengslum við Línu.Net. Hvaða leið
þeir fara veit ég ekki. Eitt veit ég þó
að þeir munu örugglega ekki ræða
það á vettvangi borgaranna innan
hinna lýðræðislegu stofnana, ef ég
þekki þessa kappa rétt,“ segir Guð-
laugur Þór. -HKr.
íslensk knattspyrna:
100 prósent
aukning áhorf-
enda á 5 árum
96.845 áhorfendur komu á níutíu
leiki í úrvalsdeild karla í sumar.
Þetta er 12.671 fleiri áhorfendur
miðað við metaárið 1987. í ár mættu
einnig í fyrsta skipti að meðaltali
fleiri en 1.000 áhorfendur á hvern
leik. Gleðilegt þykir einnig hjá
knattspyrnumönnum að áhorfend-
um hefur nú Qölgað fimm sumur í
röð. Á þessum tíma hefur áhorf-
endafiöldi tvöfaldast.
Þetta þýðir að 490 áhorfendur
mættu í ár á hvern einasta leik að
meðaltali miðað viö árið 1996. KR,
Fylkir og ÍA og FH voru fengu á bil-
inu 19.618 til 30.350 áhorfendur til
sín á tímabilinu sem er þykir mjög
gott.
Á íþróttasíðum DV í dag er fróð-
leg og ítarleg úttekt DV-Sports á
ýmsum staðreyndum í þróun á
áhuga okkar íslendinga á knatt-
spymunni. Bestu leikirnir eru tí-
undaðir og aðsókn hjá liðum hverju
fyrir sig.
Sjá bls. 16-17. -Ótt
Bensínlækkun
- um mánaðamót
Verð á eldsneyti mun lækka um
næstu mánaðamót. Þróunin hefur
verið á einn veg, verðið hefur farið
stöðugt lækkandi á síðustu vikum,
með örlitlum sveiflum þó. Ekki er
enn vitað hversu mikil lækkunin
verður, en hún hlýtur aö verða all-
nokkur, sé tekið mið af heimsmark-
aðsverði og stöðugleika gagnvart
dollar að undanförnu.
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti
hefur ekki verið lægra um tveggja
ára skeið. Verð á tunnu af hráolíu
var í gær komið niður i 19 dali.
Ástæða verðlækkunarinnar er eink-
um talin vera samdráttur i efna-
hagslífi Bandaríkjanna. -JSS
Byssuskotá
Fjarðarheiðl
Rjúpnaskytta sem var skammt frá
Felli á Fjarðarheiöi í fyrradag gekk
fram á stærra byssuskot þar en notuð
eru við hefðbundnar veiðar.
Skotið var um 40 cm langt og nokk-
uð svert. Talið er víst að það sé frá því
á stríðsárunum. Ekki var hreyft við
skotinu, enda stórhættulegt, og er von
á sprengjusérfræðingum austur til að
gera það óvirkt. -gk
rother merkiuéiin
Rafport
fyrir fagmenn
og fyrirtækl,
heimili og
skóla, fyrir röð
og reglu, mig
og þig.
nybytauegl 14 • sfml 554 4443 • If.ls/rafporf
i
*
*
*
*
i
*
*
Útiljós
Rafkaup
Armúla 24 • S, 585 2800