Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
I>V
Fréttir
Tæknifrjóvgunardeild Landspítala lokað vegna fjárskorts:
Nær 700 pör á biðlista
- engar nýjar meðferðir fyrr en eftir áramót
Lokað fram yfir áramót
Lokun tæknifrjóvgunardeildar Landspitatans - háskólasjúkrahúss veldur
hundruðum landsmanna áhyggjum og vanlíðan.
Tæknifrjóvgunardeild Landspítal-
ans hefur verið lokað vegna fjár-
skorts til kaupa á frjósemislyfjum.
Nýjar meðferðir vegna tæknisæð-
inga og glasafrjóvgunar verða ekki
hafnar aftur fyrr en eftir áramót.
Langir biðlistar eru eftir hvoru
tveggja, en þeir munu færast yfir á
næsta ár og væntanlega lengjast
enn.
Tæknifrjóvgunardeildin hefur nú
verið starfrækt í tíu ár, aö sögn
Þórðar Óskarssonar, yfirlæknis á
deildinni. Þar til um síðustu áramót
voru lyfi afgreidd samkvæmt lyf-
seðlum í apótekum. Þá ákvað Trygg-
ingastofnun ríkisins að reikna út
hvað þessi lyf hefðu kostað á síðasta
ári, láta spítalann fá það fjármagn
og skyldi hann standa straum af
kostnaðinum á þessu ári. Lyfin
yrðu einungis fáanleg í apóteki spít-
alans.
Fyrir tæpum hálfum mánuði var
haft samband við yfirlækni deildar-
innar og honum tilkynnt að þeir
fjármunir sem hefðu verið veittir
frá Tryggingastofnun til þessara
hluta væru að verða búnir. Leitaö
var til heilbrigðisráðuneytisins
hvort frekari fjármunir fengjust til
að kosta lyfin. Því var hafnað. Frá
og með deginum í fyrradag var því
tilkynnt að ekki yrði um að ræða
nýjar meðferðir fyrr en eftir ára-
mót. Þeir sjúklingar sem byrjaðir
væru i meðferð fengju að ljúka
henni. Hins vegar fá þau 36 pör sem
bíða glasafrjóvgunar og 50 pör sem
bíða tæknisæðinga á þessu ári ekki
meðferð fyrr en á næsta ári.
„Þetta er að mínu viti einsdæmi,"
sagði Þórður. „Ég hef aldrei vitað að
lokað hafi veriö fyrir tæknifrjóvg-
anir í heilu landi. Svona meðferð er
ekki heimiluð utan spítalans. Fólk á
enga möguleika. Það fær ekki lyfin
því þau er einungis afgreidd í apó-
teki spítalans. Ekki er á hvers
manns færi að fara til útlanda því
ríkið tekur engan þátt i kostnaði við
það.“
Um 300-350 glasafrjóvganir hafa
verið framkvæmdar á ári og um 300
tæknisæðingar. Fólk hefur þurft að
bíða meðferðar í um það bil ár,
þannig að á biðlistum nú eru
650-700 pör.
Kostnaður hvers pars við meðferð
er 80-270 þúsund fyrir glasafrjóvg-
un. Fer verðið m.a. eftir því hvort
fólk á barn fyrir eða ekki. Meðal-
kostnaður vegna lyfja er 170-180
þúsund krónur. Fyrir hverja tækni-
sæðingu greiðir parið 18.000 krónur.
Árangur glasafrjóvgunar og
tæknisæðinga hefur verið mjög góð-
ur hér á landi. Á Evrópuþingi
lækna síðastliðið sumar kom m.a.
fram að árangurinn hér á landi í
slíkum meðferðum er sá besti í Evr-
ópu. -JSS
DV Innkaup - nýtt fylgirit með DV á fimmtudögum:
Blað sem
DV Innkaup er létt og áhugavert
fylgirit um innkaup, verslun og þjón-
ustu sem verður í DV í fyrsta sinn á
morgun og síðan alla fimmtudaga.
Áhersla verður á fjölbreytt efnisval og
aðgengilega umfjöllun um allt sem við-
kemur innkaupum Islendinga. Tónn-
inn verður i senn jákvæður og
upplýsandi
þannig að
bæði neyt-
endur og
seljendur
hagnist og
hafi af gagn
og gaman. í DV
Innkaupum fmna lesendur neysluupp-
takt helgarinnar.
Meðal efhis í DV Innkaupum á
morgun er ítarleg úttekt á tilboðum
verslana og umQöllun um nýjar vörur
og þjónustu. Farið verður í innkaup
með Karli Ágústi Úlfssyni leikara,
hallað um bijóstahaldararáðgjöf í Deb-
enhams, sagt frá fyrsta bil Valgerðar
Sverrisdóttur ráðherra, fjallað um vín,
kaffi og ost vikunnar. Gefm eru ráð
um verðbréfamarkaðinn og viðtal
verður við verslunarkonu sem pakkar
borgar sig
inn gjöfum af stakri snilld. Straumar í
tækjum og tólum fá sinn sess og ýmis
fróðleikur verður um vörur og þjón-
ustu sem tengjast daglegu lífi. Er þá
fátt eitt nefht.
Vikulega verður dregið úr hópi
áskrifenda DV.
Fær sá heppni
þrjú 5 þúsund
króna gjafakort
í verslunum
Bónuss, sam-
tals 15 þúsund
krónur.
Hefðbundin umfjöllun DV um neyt-
endamál verður áfram á fréttasíðum
blaðsins, þar með taldar verðkannanir.
DV Innkaup vill eiga náið samstarf
bæði við neytendur og seljendur vöru
og þjónustu - fá fréttir af nýjungum,
tilboðum og áhugaverðum uppákom-
um auk ábendinga um það sem vel er
gert. Neytendur og seljendur eru hvatt-
ir til að hafa samband símleiðis,
bréfleiðs eða með tölvupósti.
Netfangið er innkaup@dv.is.
Heimilisfangið er: DV Innkaup,
Þverholti 11,105 Reykjavik. -hlh
Viðbygging brann við Lund
Viðbygging við bæinn Lund í
Kópavogi brann um kvöldmatarleyt-
ið í gærkvöldi. í upphafi leit út fyr-
ir að um stórbruna gæti verið að
ræða og var allt tiltækt lið á höfuð-
borgarsvæðinu kallað út.
I ljós kom að eldurinn var í einu
útihúsa við bæinn, en þar hefur fyr-
irtækið Litbolti haft aðsetur. Mik-
inn reyk lagði frá útihúsinu yfir
Hafnarfjarðarveg og um tíma þufti
að loka Nýbýlavegi vegna þess að
talin var hætta á að gaskútar sem
voru í húsinu myndu springa.
Eldurinn komst aldrei í aðrar
byggingar og gamli bærinn var
aldrei í neinni hættu. Slökkvistarfi
var lokið um klukkan 22 en vakt var
höfð við húsið fram á nótt, en það er
mjög mikið skemmt eftir eldinn.
Rannsókn á eldsupptökum átti að
hefjast í birtingu í morgun. -gk
Mikill samdráttur í tekjum Þjóðleikhússins:
Undirboð hinna opinberu
- segir Leikfélag íslands. Mismunandi aðsókn, segir þjóðleikhússtjóri
Hrun varð á
tekjum Þjóðleik-
hússins á milli ár-
anna 1999 og 2000 á
sama tíma og
rekstrartekjur
stórhækkuðu.
Eins og DV
greindi frá drógust
tekjur saman um
30 milljónir á milli
ára. Þar af drógust
tekjur af miðasölu saman úr því að
vera 134 milljónir árið 1999 í 118 millj-
ónir árið 2000. Stjómendur Leikfélags
íslands hafa ítrekað bent á misræmi i
styrkjum eftir því hvort um er að ræða
opinber leikhús eða einkarekin.
„Þetta styður þá skoðun okkar að
opinbem leikhúsin hafa bragðist við
samkeppni einkareknu leikhúsanna
með undirboðum," segir Sæmundur
Norðfjörð, stjómarmaður í Leikfélagi
íslands, vegna rekstramiðurstöðunn-
ar. Hann segir að niðurstaða ársreikn-
ings Þjóðleikhússins undirstriki að um
Sæmundur
Norðfjörö.
undirboð sé að
ræða. Stjómendur
Borgarleikhússins
hafl þó gengið enn
harkalegar fram í
undirboðum.
„Fyrir sjö árum
voru miðar boðnir
á tvöfóldu til þre-
fóldu bíómiða-
verði. Við vitum
að verið er að
bjóða miða í hópafsláttum á verði sem
er um 1400 krónur. Þá hafa verið boðn-.
h tveir fyrir einn í Borgarleikhúsinu.
Á síðasta ári var hægt að fá miðann á
þúsund krónur. Þetta er eitthvað sem
við getum ekki keppt við. Við þurfum
sjálf að standa undir rekstrinum með
eigin aflafé að mestu. Opinberir styrk-
ir til okkar nema tæplega 5 prósentum
af kostnaði. Við getum ekki sent reikn-
ing vegna hallareksturs á almenning
og ætlumst ekki til þess. Þama skilur
á milli okkar og opinbem leikhús-
anna,“ segir Sæmundur.
Stefán
Baidursson.
Leikfélag Islands
Stjórnendur saka hina opinberu um
undirboð.
„Allt er þetta spuming um að sam-
keppnisaðstaðan á markaðnum sé í
lagi. Gæta þarf jafnræðissjónarmiða í
styrkveitingum til leikhúsa enda er
það í samræmi við niðurstöðu Sam-
keppnisstofnunar í vetur þar sem
skýrt segir að misræmi i opinberum
stuðningi stríði gegn markmiðum
samkeppnislaga. Krafa okkar er ein-
fóld. Hlúa þarf að samkeppni og gæta
jafnræðis," segir Sæmundur.
Rokkandi aðsókn
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri
segir að skýringar á samdrættinum
felist einfaldlega í því að aðsókn að
verkum leikhússins sé mismunandi
milli ára.
„Aðsókn milli leikára getur rokkað
á heilmiklum Qölda. Munurinn getur
legið í aðsókn á bilinu 70 þúsund til 100
þúsund manns. í því felst skýringin,"
segir Stefán.
Hann segir að árið í ár hafl farið vel
af stað og i góða aðsókn stefni.
Stefán þvertekur fyrir að Þjóðleik-
húsið hafi staðið að undirboðum til að
klekkja á einkareknu leikhúsunum.
„Sú skilgreining er alveg fáránleg.
Samkeppnisráð hefur þegar úrskurðað
um þetta mál. Þar var um að ræða
kæru í þremur liðum og úrskurðinum
fyigdi 27 blaðsíðna greinargerð. Niður-
staða Samkeppnisstofnunar var sú að
ekki væri tilefhi til íhlutunar," segir
Stefán.
-rt
Lög um fasteignakaup
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra kynnti
nýtt frumvarp um
fasteignakaup á rík-
isstjórnarfundi í
gær. Meginefni
frumvarpsins snýst
um réttindi og
skyldur kaupenda og seljenda, svo
sem kaupsamninga, kostnað,
áhættu, galla og aðrar vanefndir. Þá
getur löggiltur skoðunarmaður sem
gerir úttekt á fasteign orðið skaða-
bótaskyldur vegna tjóns sem kaup-
andi verður fyrir ef leyndir gallar
koma fram.
Harpa strandar
Nótaveiðiskipið Harpa VE tók
niðri í innsiglingunni í Grindavík
skömmu fyrir klukkan átta í gær-
kvöld. Veður var gott og hætta ekki
á ferðum.
Byggðakjarnar veikir
í nýrri skýrslu Byggðastofnunar
um byggðarlög í vörn og sókn segir
að byggðakjarnar á landsbyggðinni
séu víðast hvar taldir of veikir til að
geta staðið undir uppbyggingu við-
komandi svæða. Undantekning séu
kjarnar í námunda við höfuðborgar-
svæðið og Akureyri.
Kveikt í bíl í Keflavik
Kveikt var í bíl í Keflavík um
klukkan 3 í nótt og sáust tveir menn
hlaupa af vettvangi sem var við
Kirkjuteig. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Keflavik mun
mun svokölluðum „Molotovkokk-
teil“ eða bensínsprengju hafa verið
kastað í bílinn. .
Játar fjárdrátt
Aðalbókari
Flugleiða hefur
játað að hafa
dregið að sér
rúmar ellefu
milljónir króna
á þessu ári og
því siðasta. Málið telst upplýst og
hefur verið kært til efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra.
Uppsagnir hjá ÍSAL
Starfsmönnum verður fækkað um
20 hjá ísal á næstu mánuðum eða
sem nemur um 4%. Alcan, sem á og
Írekur álverið í Straumsvík, hyggst
fækka starfsmönnum sínum um 3600
vegna þrenginga á álmörkuðum.
Ekki endurgreidd
I Skólagjöld verða ekki endur-
| greidd í tónlistarskólum í Reykjavík
þótt kennsla falli niður vegna verk-
falls. Ákvörðunin er tekin í sam-
ræmi við tvö lögfræðiálit sem Sam-
tök tónlistarskóla í Reykjavík hafa
látið gera.
Tapar 400 milljónum
Jón Karl Helga-
son, framkvæmda-
stjóri Flugfélags ís-
lands, ségir í viðtali
við Fréttablaðið að
eiginfjárstaða fé-
lagsins sé sterk eft-
ir að félagið seldi
flugvélcir og aðrar
eignir. Hann telur tap félagsins í ár
verða svipað og í fyrra en stefnt sé
að hagnaði á næsta ári.
Borga meira
Hlutur sjúklinga af lyfjaverði er
tvöfalt hærri nú en fyrir fjóram árum
að sögn framkvæmöastjóra LyQa og
heilsu. Hann segir sjúklinga þurfa að
greiða enn hærri hlut eigi Trygginga-
stofnun að njóta afsláttar af lyQaverði
eins og almennir viðskiptavinir. RÚV
greindi frá.
-aþ/gk