Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
13
DV
Fréttir
Hæstiréttur dæmdi bónda í Fljótum eignarhald á jörð:
Trúi ekki ööru en
málið sé úr sögunni
- segir bóndinn sem situr jörð löngu látins afa síns
Sigmundi Jónssyni, bónda á
Vestari-Hóli í Fljótum, var dæmt
eignarhald á jörðinni í Hæstirétti
sl. fimmtudag. Héraðsdómur Norö-
urlands vestra haföi komist að
sömu niðurstöðu þegar dómur féll
á liðnu hausti, á grundvelli hefðar-
laga, en þeir aðilar sem höfðu
krafist eignarhluta í Vestari-Hóli
ákváöu að áfrýja málinu og fara
með það alla leið í dómskerfmu.
Frá þessu máli var greint í DV á
sínum tíma en það er mjög sér-
stætt fyrir þær sakir að greinilegt
er að farist hefur fyrir í kerfinu að
þinglýsa eigendabreytingum á
Vestari-Hóli og hefur afi og alnafni
Sigmundar bónda á Vestari-Hóli,
maðm- sem lést nokkru fyrir miðja
síðustu öld, verið skráður eigandi
jarðarinnar fram undir þetta.
Sigmundur, núverandi bóndi,
Þingmenn Samfylkingarinnar:
Telja erfðafjárlög bitna
á landsbyggðinni
- kallar á nýja löggjöf
Örlygur Hnefill Jónsson, varaþing-
maður Samfylkingarinnar á Norður-
landi eystra, hefur í félagi við Kristján
L. Möller og Einar Má Sigurðarson lagt
fram nýtt frumvarp á Alþingi um breyt-
ingar á erfðahárskatti. Ef markaðsverð
fasteignar er talið lægra en fasteigna-
matsverð eignar vilja þremenningamir
að erfingjum verði heimilt að óska eftir
mati um skipti á dánarbúum. Verði þá
heimilt að leggja erfðafjárskatt á mats-
verð, enda fylgi nýleg matsgjörð erfða-
fiárskýrslu.
I greinargerð með frumvarpinu segir
að með semingu laga um erfðafiárskatt
árið 1984 hafi verið lögbundnar reglur
um greiðslu skatts til erfðafiársjóðs af
öllum fiárverðmætum og fiármunarétt-
indum. „Við setningu laganna var geng-
ið út frá þvi að löggjafinn hefði sett regl-
ur sem mismunuðu þegnunum ekki
með tiiliti til skattlagningar. En tímar
breytast og þær reglur sem voru sann-
gjamar og réttlátar við setningu geta
snúist upp í andhverfu sína,“ segir i
greinargerðinni.
Þetta er rökstutt með þeim hætti að
áður hafi söluverð eigna undantekn-
ingalítið verið hærra en gildandi fast-
eignamatsverð, óháð því hvar á landinu
eignir voru og því hvort þær voru í þétt-
býli eða sveit. „Nú er staðan hins vegar
sannanlega önnur. Þeim dæmum fiölgar
stöðugt, og þá sérstaklega i hinum
dreifðu byggðum, að ekki er hægt að
Orlygur Hnefill
Jonsson.
selja eignir fyrir
fasteignamatsverð.
Með öðrum orðum
er fasteignamats-
verð, s'em er gjald-
stofh, í mörgum til-
vikum orðið hærra,
og það mikið
hærra, en raun-
verulegt söluverð
eignanna. Til eru
einnig þau tilvik að
ekki er hægt að koma viðkomandi eign-
um í verð. Því er ljóst að erfingjar geta
staðið ffammi fyrir því að þurfa að
greiða umtalsverðan erfðafiárskatt af
eign sem i raun er miklu minna virði.
Það er því þannig komið að mikið órétt-
læti felst í skattlagningu sem byggð er á
A-lið 9. gr. varðandi fasteignir og hallar
þar mjög á landsbyggðina og erfingja
eigna þar. Hins vegar er ljóst að í öðrum
liðum greinarinnar er gert ráð fyrir að
hægt sé að byggja á matsverði eða
markaðsverði varðandi eignir sem þar
er fiallað um,“ segir i greinargerð frum-
varpsins.
Aðstandendur frumvarpsins segja
breytinguna bæði byggðamál og jafn-
réttismál þegar svo sé komið að fólk
sem búsett er á ákveðnum stöðum
landsins þurfi að greiða hlutfallslega
hærri skatta miðað við verðmæti en
þeir sem búsettir eru eða erfa eignir
sem eru t.d. á höfuðborgarsvæðinu. -BÞ
Göngugatan á Akureyri:
Bílar í götuna að nýju
„t>etta er búin að vera slík hringavit-
leysa að það er ósköp eðlilegt að menn
botni ekkert í því sem er að gerast," seg-
ir Ásgeir Magnússon, formaður fram-
kvæmdaráðs Akureyrarbæjar og bæjar-
ráðs, um málefhi göngugötunnar i Hafh-
arstræti sem hafa verið að velkjast í
bæjarkerfinu að undanfómu.
Það er reyndar ekkert nýtt að
göngugatan sé til umfiöllunar i bæjar-
kerfmu. Allt frá því að Hafnarstræti var
gert að göngugötu og umfangsmiklar
breytingar gerðar á Ráðhústorginu hafa
verið uppi óánægjuraddir og menn ekki
á eitt sáttir um breytingamar eða hvort
breyta ætti til að nýju. Gerð var tilraun
um tíma með að hleypa bílaumferð á
götuna sem þótti ekki gefa þá raun að
hugað væri að breytingum á götunni, og
það var ekki fyrr en nú á síðustu miss-
erum og mánuðum, og þá að frumkvæði
Miðbæjarsamtakanna, að farið var að
ræða það af alvöru að nýju að hleypa
bílaumferð í götuna.
Loks þegar bæjaryfirvöld höfðu tekið
ákvörðun um breytingar á götunni sem
gera ráð fyrir bílaumferð voru breyting-
amar boðnar út en tilboðin sem bámst
þóttu of há og var hafnað. Aftur var
verkið boðið út en tilboðstölur sem þá
bámst vom frá sömu aðilum og í fyrra
skiptið og nánast þær sömu.
Þá gerðist það í haust að formaður
*?{" jí'-i}
hefur staðfastlega haldið því fram
að hann hafi eignast jörðina á sín-
um tíma með samkomulagi við
móðurfólk sitt en nokkrir afkom-
endur einnar móðursystur Sig-
mundar hafa haldið öðru fram og
gert tilkall til eignarréttar. Sig-
mundur hefur samningnum til
sönnunar lagt fram bréf frá þáver-
andi hreppstjóra til sýslumanns
Skagfirðinga.
Þar sem Sigmundur, sem kom-
inn er á áttræöisaldur, hefur alla
tíð átt heimili og búið á Vestari-
Hóli þótti héraðsdómi og Hæsta-
rétti sýnt að hann hefði ótvírætt
hefðarlög með sér í málinu. Sig-
mundi var því dæmt í vil, hann
heldur óskoruðum eignarrétti á
jörðinni og gagnaðilum var gert að
greiða honum rúm 600 þúsund i
málskostnað.
„Ég er feginn aö þessi niður-
staða er fengin og trúi ekki öðru
en málið sé hér með úr sögunni,"
sagði Sigmundur. Lögmaður Sig-
mundar var Stefán Ólafsson á
Blönduósi. -ÞÁ.
Sigmundur bóndi í Rjótum
Hæstarétti þótti sýnt að hann hefði ótvírætt hefðarlög með sér í málinu,
enda hefur hann alla tíð átt heimili og búið á Vestari-Hóli.
Göngugatan á Akureyri
Bílar munu aka þar um áður en
langt um líður.
Miðbæjarsamtakanna, sem er hags-
munafélag verslunarmanna við götuna,
sendi bæjaryfirvöldum erindi þess efnis
að bílaumferð yrði hleypt í götuna strax.
Bæjarráð sendi þetta erindi til fram-
kvæmdaráðs sem hafhaði því. Erindið
fór einnig til umhverfisráðs sem sam-
þykkti það og að Hafnarstræti skyldi
verða vistgata sem væri opin fyrir bíla-
umferð alla daga kl. 10-22. Fram-
kvæmdaráð tók erindið fyrir að nýju og
fól framkvæmdadeild bæjarins að gera
nauðsynlegar breytingar á götunni
þannig að bílaumferð geti farið þar um.
Reiknað er með að það verk taki ekki
langan tíma og bilaumferð komist á göt-
una fljótlega í nóvember. Eftir stendur
að bjóða út varanlegar framkvæmdir
við breytingar á götunni í þriðja skipti,
en bæjaryfirvöld stefna á að það skuli
gert fljótlega eftir áramót. -gk
Frjáls og óháður fjölmiðill gegnir því
veigamikla hlutverki að skera á
hinar ýmsu meinsemdir þjóðfélagsins
- og til þess þarf\
beitt blað!