Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 26
34 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 íslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________X>'V Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Heilsustofnunar NLFÍ 90 ára________________________________ Ingunn Júlíusdóttir, Kleifahrauni 2b, Vestmannaeyjar. 85 ára________________________________ Björg Árnadóttir, Aöalgötu 5, Keflavík. 80 ára________________________________ Skarpheiöur Gunnlaugsdóttir, Háholti 20, Akranesi. Hún tekur á móti vinum og ættingjum I veitingastofunni Barbró, Kirkjubraut 11, Akranesi, laugard. 27.10. milli kl. 15.00 og 18.00. Elísabet Guönadóttir, Strandgötu 91, Eskifirði. 75 ára________________________________ Ágúst G. Breiödal, Sogavegi 118, Reykjavík. 70 ára________________________________ Agnes Siguröardóttir, Seljabraut 52, Reykjavík. Lauritz Jörgensen, Asparfelli 6, Reykjavík. Kristín Björnsdóttir, Lágholti 1, Stykkishólmi. 60 ára________________________________ Jón G. Vestmann, Garöavegi 13, Keflavík. 50 ára________________________________ Ragnar Gíslason, Efstalundi 4, Garöabæ. Erla Karelsdóttir, Álfholti 14a, Hafnarfiröi. Shyamaly Ghosh, Sunnubraut 19, Akranesi. Davíö Guðmundsson, Sílatjörn 13, Seífóssi. 40 ára________________________________ Jón ívarsson, Fálkagötu 8, Reykjavík. Ágúst Júlíusson, Sogavegi 172, Reykjavík, Ágúst Guömundsson, Dalseli 38, Reykjavík. Hafdís Magnúsdóttir, Stelkshólum 8, Reykjavík. Hólmfríöur Þorvaldsdóttir, Herjólfsgötu 34, Hafnarfirði. Jónas Rögnvaldsson, Laufási 3, Egilsstööum. Þorgeröur Siguröardóttir, Lagarfelli 8, Egilsstööum. Valgeröur Bjarnadóttir, Stapavegi 1, Vestmannaeyjum. Fólk í fréttum Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Heilsustofnunar NLFÍ, hefur verið í fréttum vegna fyrirhugaðrar byggingar á nýju baðhúsi fyrir Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, Starfsferill Árni fæddist á ísafirði 14.4. 1940. Að loknu almennu námi stundaði hann flugnám í Reykjavík, kynnti sér blaðamennsku í Bandarikjunum og lauk áfangaprófi í heilsuhag- fræði við Endurmenntunarstofnun Hí 1996. Árni var blaðamaður við Alþýðu- blaðið, fréttastjóri þar 1959-65, rit- stjóri 1976-77 og 1985-87, fréttamað- ur og varafréttastjóri við Ríkisút- varpið 1965-76 og fór þá fréttaferð til Víetnam, fréttaritstjóri Vísis um tíma, alþm. Norðurlandskjördæmis eystra fyrir Alþýðuflokkinn 1978-83 og 1987-91 og vþm. 1983-87, starfaði hjá Hjálparstofnun kirkjunnar í hungursneyðinni í Eþíópíu 1985, formaður Hjálparstofnunar kirkj- unnar 1986-90, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins um tíma og hef- ur verið framkvæmdastjóri Heilsu- stofnunar NLFÍ frá 1992. Árni átti sæti í stjórn Blaða- prents og var formaður þar, i stjórn Alprents, formaður Starfsmannafé- lags Ríkisútyarpsins og Blaða- mannafélags íslands, sat í stjórn Landverndar, formaður undirbún- ingsnefndar árs fatlaðra 1982, í stjórn FUJ, SUJ, ritari Alþýðu- flokksins, i flokksstjórn og fram- kvæmdastjórn, var varaborgarfull- trúi 1970-74, forseti Neðri deildar Alþingis 1979 og 1989-91, sat í út- varpsráði, útvarpslaganefnd og hef- ur setið um árabil í útvarpsréttar- nefnd, formaður menningarmála- nefndar Norðurlandaráðs 1980-81, átti sæti í Vestnorræna þingmanna- ráðinu, var varaformaður Jafnrétt- isráðs og formaður Stjórnarnefndar Ríkisspítalanna. Fjölskylda Árni kvæntist 27.7. 1962 Hrefnu Filippusdóttur, f. 30.1.1942, húsmóð- ur. Foreldrar hennar: Filippus Gunnlaugsson frá Ósi í Steingríms- firði, nú látinn, og k.h., Sigríður Gissurardóttir frá Drangshlíð undir Eyjafjöllum. Dætur Árna og Hrefnu eru Sigrið- ur Ásta, f. 14.10.1963, flugfreyja, gift Rúnari Aðalsteinssyni flugvirkja; Gunnhildur, f. 17.11. 1983, nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík. Systir Árna er Valgerður Þor- björg, f. 8.12. 1942, húsmóðir í Seattle í Bandaríkjunum, gift Jónasi Friðrikssyni verkfræðingi. Foreldrar Árna: Gunnar Stefáns- son, f. 24.3. 1915, fórst með Glitfaxa 31.1. 1951, starfsmaður hjá Ferða- skrifstofu ríkisins, og k.h., Ásta Árnadóttir, f. 6.7. 1911, húsmóðir. Ætt Gunnar var sonur Stefáns, b. á Ósi á Skógarströnd Guðmundsson- ar, b. þar Björnssonar. Móðir Gunn- ars var Valgerður Hallvarðsdóttir, b. í Litla-Langadal, bróður Daníels, langafa Sigfúsar Daðasonar skálds og Kristínar, móður Ingólfs Mar- geirssonar. Hallvarður var sonur Sigurðar, b. í Litla-Langadal, Sig- urðssonar, hreppstjóra þar og skálds Daðasonar. Móðir Sigurðar var Þorbjörg Sigurðardóttir, systir Sigurðar, langafa Eliasar, afa Elías- ar Snæland, fyrrverandi ritstjóra Dags. Móðir Hallvarðs var Ingibjörg Daðadóttir, systir Sigurðar skálds. Þorbjörg var dóttir Sigurðar, b. á Setbergi, Vigfússonar og Solveigar Sigurðardóttur. Móðir Solveigar var Sigríður Magnúsdóttir, systir Jar- þrúðar, langömmu Ólafs, langafa Pálma, afa Einars Guðmundssonar rithöfundar. Móðir Valgerðar var Guðný Sveinsdóttir, b. í Purkey, Jónssonar og Steinunnar Hannes- dóttur, b. í Knarrarnesi, bróður Brynjólfs, langafa Sigurbjargar, ömmu Friðjóns Þórðarsonar, fyrrv. ráðherra, og langömmu Svavars Gestssonar sendiherra. Móðir Stein- unnar var Guðný Guðmundsdóttir, b. á Þverfelli, Bjarnasonar, bróður Ingibjargar, langömmu Ingibjargar, langömmu Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hagfræðings. Ásta er dóttir Árna, skipstjóra á ísafirði, Jónssonar, húsmanns á Sæ- bóli, Jóakimssonar. Móðir Árna var Sigurfljóð, systir Ingibjargar, langömmu rithöfundanna Jakobínu og Fríðu Sigurðardætra. Bróðir Sig- urfljóðar var Sakarías, langafi Rannveigar Guðmundsdóttur alþm. Sigurfljóð var dóttir Sakaríasar, b. í Stakkadal, Guðlaugssonar, b. í Efri- Miðvík, Jónssonar, bróður Jóns, langafa Oddnýjar, ömmu Óla Þ. Guðbjartssonar, fyrrv. ráðherra. Móðir Sigurfljóðar var Björg Árna- dóttir, hreppstjóra á Látrum, Hall- dórssonar og Ástu Guðmundsdótt- ur, pr. á Stað í Aðalvík, Sigurðsson- ar. Móðir Ástu var Ingibjörg Vern- harðsdóttir, pr. í Otradal, Guð- mundssonar, bróður Þorláks, föður Jóns, pr. og skálds á Bægisá. Móðir Ástu er Þorbjörg Magnús- dóttir, b. á Gaul, Jónssonar og Ing- unnar, systur Steinunnar, ömmu Ólafs Thors. Ingunn var dóttir Jóns, b. í Beigsholtskoti, Sveinssonar. Móðir Jóns var Vigdís Ólafsdóttir, á Lundum, langafa Ólafs, langafa Bjarna forsætisráðherra, föður Björns menntamálaráðherra. Góður þílótjÓM Shyamali Ghosh lífefnafræðingur hjá íslenskri erfðagreiningu Shyamali Ghosh, líf- efnafræðingur hjá ís- lenskri erfðagreiningu, Sunnubraut 19, Akranesi, er fimmtug í dag. Starfsferill Shyamali fæddist í Kalkútta á Indlandi og ólst þar upp. Hún lauk Ph.D.-prófi i lífefnafræði við Calcutta University. Shyamali kenndi við Calcutta University 1983-98. Þá flutti hún til íslands þar sem hún hefur síðan stundað rannsóknarstörf hjá ísl- enskri erfðagreiningu. Fjölskylda Shyamali giftist 25.7. 1975 Dipu Ghosh, f. 17.6.1940, íþróttamanni og þjálfara i badminton á Akranesi og jafnframt þjálfari unglingalands- liðsins í þeirri grein. Dipu er fyrrv. Indlandsmeistari í badminton en hann lék fyrir Indland á öllum al- þjóðlegum mótum í badminton til 1973 og var landsliðsþjálfari fyrir ír- an 1973-77. Sonur Shyamali og Dipu er Sayan Ghosh, f. 21.11. 1977, rafmagns- og rafeindaverkfræðingur hjá Solomon Smith & Barney Investments í Bankina í Singapore. Systkini Shyamali eru Suhita Ganguly, f. 6.9. 1954, landfræðingur og kennari í Hyderabad á Indlandi en hún er gift og á eina dóttur; As- him Mukeijee, f. 22.11. 1957, raf- magnsfræðingur, í Bombay á Ind- landi en hann er kvæntur og á eina dóttur. Foreldrar Shyamali: B.S. Mukerjee, rafmagnsverkfræðingur í Kalkútta á Indlandi, og Pratima Mukerjee húsmóðir sem lést 1990. Fertugur Halldór Svanur Jóhannsson verkamaður, Kolsholtshelli í Villingaholtshreppi Halldór Svanur Jóhannsson, verkamaður í Kolsholtshelli í Vill- ingaholtshreppi, er fertugur í dag. Starfsferill Halldór fæddist á Selfossi en ólst upp í foreldrahúsum í Kolsholts- helli við öll almenn sveitastörf. Hann var í barnaskóla í Villinga- holti og í skóla að Þingborg í Hraungerðishreppi um skeið. Halldór stundaði landbúnaðar- störf í Kolsholtshelli hjá foreldrum sínum á unglingsárunum, var í byggingarvinnu í Reykjavík 1983-85 og vann við rörasteypu hjá Ósi í Kópavogi 1985-86. Hann flutti þá aft- ur austur og hefur verið þar búsett- ur síðan. Eftir að Halldór kom aftur austur stundað hann fyrst landbúnaðar- störf og ýmis almenn verkamanna- störf en hefur lengst af unnið við uppsetningar á girðingum hjá verk- taka á vegum Vegagerðar ríksins frá 1993. Fjolskylda Systkini Halldórs eru Brynjólfur Þór Jóhannsson, f. 13.4. 1965, bóndi í Kolsholtshelli; Guðrún Ósk Jó- hannsdóttir, f. 20.3. 1967, bóndi að Markarskarði í Hvolhreppi, maður hennar er Jón B. Ingvarsson, bóndi þar; Dagmar Jóhannsdóttir, f. 12.8. 1969, húsmóðir og starfsmaður við þvottahús í Hveragerði, maður hennar er Óskar Helgi Helgason verslunarmaður. Foreldrar Halldórs: Jóhann Guð- mundsson, f. 11.2. 1920, d. 1999, bóndi og skipasmiður i Kolsholts- helli, og k.h., Gyða Oddsdóttir, f. 10.7. 1936, húsfreyja. Ætt Jóhann var sonur Guðmundar Kristins Sigurjónssonar, b. í Kols- holtshelli, og k.h., Mörtu Brynjólfs- dóttur. Gyða er dóttir Odds, b. í Kols- holtshelli, Jónssonar, og k.h., Svan- hildar Sigurðardóttur. Einar Einarsson, Álfaskeiöi 74, Hafnar- firði, lést á Landspitala viö Hringbraut sunnud. 21.10. Erlendur Þóröarson, Engihjalla 11, lést föstud. 19.10. Ragnheiöur Kristín Magnúsdóttir, Gull- smára 11, andaðist á Landspítala Foss- vogi mánud. 22.10. Hulda Gunnarsdóttir Larson lést í Kali- spell, Montana í Bandaríkjunum, 14.10. Jaröarförin hefur fariö fram. Kristín Siguröardóttir, Ólafsvegi 9, Ólafsfiröi, lést sunnud. 21.10. Kristinn Sigvaldi Valdimarsson frá Skarði á Skagaströnd lést á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi að morgni laugard. 20.10. Aöaibjörg Zophoníasdóttir, áöur að Birkimel 6a, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi föstud. 19.10. Merkir Islendingar Karl Ottó Runólfsson Karl Ottó Runólfsson tónskáld fæddist í Reykjavík 24. október 1900. Hann var sonur Runólfs Guðmundssonar, sjpmanns og verkamanns í Reykjavik, frá Árdal í Andakílshreppi i Borgarfirði, og k.h., Guðlaugar Margrétar Guðmundsdóttur frá Saltvík á Kjalamesi. Karl lærði við Iðnskólann í Reykja- vik, lauk sveinsprófi 1918 í prentiðn og stundaði þá iðju til 1925. Hann hélt þá til Kaupmannahafnar og stundaði nám á trompetleik, fiðluleik og útsetningum fyrir lúðrasveitir. Hann stundaði síðan nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 1934-39 þar sem hann lærði tónsmiöar hjá Frans Mixa og hljómsveitarútsetningar hjá Victor Urbancic. Karl æfði íslenskar lúðrasveitir, öðrum fremur, um árabil. Hann kenndi og stjórn- aði Lúðrasveit Ísaíjarðar og Lúðrasveit Hafnarfjarðar, var einn af stofnendum Lúðarsveitar Reykjavíkur, meðlimur hennar og formaður í fjölda ára, stjórn- andi hennar 1941-42, stjórnaði Lúðra- sveitinni Svani í tuttugu og eitt ár og Lúðrasveit barna- og unglingaskóla Reykjavíkur. Þá var hann formaður Sambands íslenskra lúðrasveita fyrstu tíu árin. Auk þess lék hann á trompet meö Sinfóníuhljómsveitinni og kenndi hljómfræði og trompetleik við Tónlistar- skólann. Síöast en ekki síst var hann mik- ilsvirt tónskáld en mörg sönglaga hans eru bísna vinsæl. Hann lést 29. nóvember 1970. Stefán Bogason læknir, Sporöagrunni 19, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni miövikud. 24.10. kl. 15.00. Valgeröur S. Þóröardóttir, Baröaströnd 31, Seltjarnarnesi, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju miövikud. 24.10. kl. 10.30. Sólrún Guðmundsdóttir, Ránargötu 2, Grindavík, veröur jarösungin frá Grindavíkurkirkju miövikud. 24.10. kl. 15.00. IJrval — gott í hægindastólinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.