Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 I>V v. 37 EIR á miðvikudegi Bráðum búið Bóhem Bókhaldió fín- kembt. Meðferð á skattamálum og rekstri súlu- staðarins Bó- hems við Grensásveg er á lokastigi hjá Skattrannsókn- arstjóra. 1 fram- haldinu verður tekin ákvörðum um refsimeðferð málsins. Lögregla og starfsmenn Skattrannsóknarstjóra stormuðu sem kunnugt er í Bóhem fyrir allnokkru og lögðu þar hald á öll tiltæk bókhaldsgögn. Siðan hef- ur málið verið í rannsókn hjá Skattrannsóknarstjóra en þar sjá starfsmenn nú fyrir endann á því. „Það er allt í fullu fjöri hjá mér og alltaf opið,“ segir Guðjón Sverr- isson, súlukóngur í Bóhem. „Samt hefur auraleysi hjá fólki orðið til þess að dregið hefur úr aðsókn og það á ekki bara við hjá mér.“ Götusala bönnuð SjsffrH Göngugatan Sölumennirnir farnir. Götusala í göngugötunni í verslunanniðstöð- inni í Mjódd hefur verið lögð af á meðan kaupmenn á staðnum reyna að átta sig á breyttu rekstrar- umhverfi á höfúð- borgarsvæðinu. Alls stunduðu rnn 20 einstaklingar götusölu í Mjódd og svíður þeim að þurfa að hverfa á brott. „Götusalan var sett í biðstöðu þar sem okkur fannst hún ekki vera rekin með nógu skipulögðum hætti. Það er eins liklegt að hún komi aft- ur þvi kaupmenn hér hafa síður en svo á móti þvi að líf sé í götunni,“ segir Elías Þorvarðarson, verslimar- stjóri í Nettó, sem fer fyrir kaup- mönnum í Mjódd. Götusalamir í Mjódd greiddu 1900 króna daggjald fyrir sölubása sína og settu svip sinn á göngugöt- una á meðan þeir voru og hétu. Nú eru þeir famir. Stendur enn Skúr, sem þjón- ar sem inngangur í þekktasta spila- víti höfuðborgar- innar, stendur enn þrátt fyrir samþykkt borgar- ráðs um að hann skuli rifinn: „Ég hef ekki komist í þetta vegna anna,“ seg- ir Magnús Sædal, byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar, en skúrinn og spilavítið vora frétta- efni fjölmiðla snemma síðasta vor. Þá ætlaði Magnús byggingarfulltrúi að láta rífa skúrinn - helst eftir hádegi þann sama dag. „Eigendumir komu með nýjar teikningar og tillögur um minni skúr og þær hugðist ég leggja fyrir byggingamefnd. Það verður gert innan tíðar,“ segir Magnús. Spilavítið, þar sem spiluð er rúl- letta og black jack og borinn fram ókeypis matur með áfengi, stendur við Suðurgötu en inngangurinn er bakatil í gegnum skúrinn sem stend- ur enn þrátt fyrir gamlar samþykktir um annað. Leiðrétting Ekki er rétt sem komið hefur fram í ákveðnum fjölmiðlum að Vinstri grænir séu á móti öllu. Þeir eru til að mynda hlynntir hægri umferð. Spilavítiö Gömul frétt enn í giidi. Á möguleika á fimm milljónum í sjónvarpsþætti á sunnudaginn: Katrín vill sjóleiðina Katrín Fjeldsted alþingis- maður hefur beint þeirri fyr- irspurn til samgönguráö- herra hvort ekki sé tímabært að huga aö siglingum með farþega til og frá landinu, svo og umhverfis það: „Það eru fjölmargir sem ekki treysta sér til að fljúga á þessum síðustu tímum en burtséð frá því þá stöndum við frammi fyrir þeirri stað- reynd að það er ekki hægt að komast til og frá landinu nema í flugi,“ segir Katrín sem von- ast eftir svari ráðherra sem fyrst. „Mér finnst rétt að athuga hvort skipafélög sjái sér ekki hag 1 því að hefja farþegasiglingar eins og tíðk- uðust hér áður fyrr.“ Sama hugmynd kom upp á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins en fékk Katrin Vill geta valiö á milli flugvélar og skips. ekki hljómgrunn í samgöngunefnd fundarins. Tillaga þessa efnis var þá borin upp úr ræðupúlti og borin undir atkvæði landsfundarfulltrúa en var felld með sjónarmun að mati fundarstjóra sem taldi hendur á lofti i Laugardalshöll þar sem fund- urinn fór fram. Bjór á bensínstöð „Ég þurfti að kasta tveimur milljónum í leyf- ið. Ég fékk það ekki nema byggja eldhús fyrst,“ seg- ir Kristberg Jóns- son sem rekur bensínstöðina Baulu í Borgar- firði á þjóðvegi eitt við Reykholts- og Kleppjárns- reykjaafleggjar- ann. „Það voru út- lendingarnir sem fengu mig til að sækja um vínveitingaleyfið. Þeir vildu fá sinn bjór og fúlsuðu við pilsnernum," segir Kristberg sem rekið hefur Baulu í tvö ár en var áður stýrimaður og skipstjóri í Grundarfirði. Kristberg greiðir 30 þúsund krón- ur á ári fyrir bjórleyfið en nú eru það sveitarstjóm- irnar á hverjum stað sem útdeila leyfunum. Á sumrin eru það útlendingarnir sem kaupa bjór- inn hjá honum en á veturna strák- arnir í Bifröst: „Strákarnir í Bifröst koma hingað til að horfa á fótboltann á Sýn. Þeir ná ekki stöðinni í Verslunarháskólanum," segir Kristberg sem dregur þó ekki dul á að meira mætti seljast af bjórnum á bensínstöðinni. Hann hefur vökult auga með viðskiptavin- um sínum og er reiðubúinn til að kippa í taumana ef bjórþambarar ætla að skella sér út á þjóðveginn að lokinni dós eða tveimur. Bjór og bensín Nýstárleg blanda. DV-MYND BRINK Volgur sopi Unga stúlkan er þyrst og fær sér volgan sopa beint úr spena. Augnaráöiö dularfullt og leitandi í glugga hjá tískuversluninni Sisley í Smáralind. Fjölfróður á vídeóleigunni Ómar í Heimabíói á Njálsgötunni les blöðin og fylgist með Ómar Jóhannsson, kaupmaður í videoleigunni Heimabíó á Njálsgöt- unni í Reykjavík, komst manna lengst i sjónvarpsþættinum Viltu vinna milljón? á Stöð 2 á sunnu- daginn og er kominn upp 1 650 þús- und krónur. í næsta þætti á Ómar möguleika á að vinna milljón svari hann einni viðbótarspurningu rétt og fimm milljónir svari hann tveimur. Ómar er ekki á nálum þrátt fyrir allt: „Ég tek þessu rólega. Þó ég klikki á spumingunum held ég allavega 400 þúsund krónum eft- ir,“ segir Ómar sem þakkar frammistöðu sína því að hafa nennt að fylgjast með og lesa blöð- in reglulega. Ómar er ekki lang- skólagenginn; gagnfræðingur frá Keflavík'og hefur rekiö videoleigu sína á Njálsgötunni í átta ár. Áður starfaði hann í Fríhöfninni á Keílavíkurflugvelli og var fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Suður- nesja. „Erfiöasta spurningin var upp- hafsspurningin sem kom manni í stólinn. Ég þurfti að raða vísinda- mönnum í aldursröð og þaö var strembið. Hitt var leikur," segir Ómar sem enn hefur ekki ákveðið hvað hann gerir viö alla peningana sem nú eru innan seflingar. „Ætli # SKEMMTILEGT /f PARTÍ 0 „Skítt með morgundag- inn, skítt með timbur- mennina, skítt með reikn- inginn." (Formaöur Vinstri grænna um ríkisstjórnina í ræöu á lands- fundi.) VITLAUST PARTÍ „Kristján vinur minn Ragnarsson í LÍÚ spurði: Ertu enn í flokknum?" (Ellert B. Schram í Morgunblaöinu um endurkomu sína á landsfund Sjálfstæö- isflokksins.) SLAPP „Það var enginn handtekinn á landsfundinum, ekki einu sinni ég U (Ellert á sama landsfundi.) HVAÐ VAR í MATINN? „Ætlarðu að gefa í söfnunina til hjálpar Afgöngum?" (Spurning dagsins í Fréttablaöinu.) Omar á Njálsgötunni Ætlar ekki aö kaupa í deCode vinni hann fímm milljónir. FRUMSÝNING „Leikmyndin var óspennandi, búningar klisjukenndir og lýsingin tilþrifalaus." (Úr leikdómi í Morgunblaöinu um Blessaö barnalán á Akureyri.) ég eyði þeim ekki. Allavega ætla ég ekki að fjárfesta í deCODE." Ómar er 49 ára og verður fimm- tugur á gamlárskvöld „... afmælinu mínu er alltaf fagnað með flugelda- skotum," segir hann. Rétta myndin -t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.