Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Side 22
... Á HANDBOLTALEIK
Þessi svokallaða „þjóðaríþrótt", ef frá er talin
glíman, okkar Islendinga stendur ansi höllum
fæti um þessar mundir. Það er sorglegt að horfa
upp á þessar örfáu hræður sem sitja á áhorf-
endapöllunum og styðja sitt lið enda saman-
standa þær aðallega af foreldrum, mökum og
börnum leikmanna, auk nokkurra krakka úr
yngri flokkunum. Handboltinn þarf á þér að
halda ...
...í FRAMBOÐ
Bæjarstjómarkosningar verða næsta vor og
flokkarnir eru ýmist farnir að stilla upp listum
sínum eða halda prófkjör. Ymsir eru búnir að
gefa kost á sér í gegnum árin og ná kjöri en af
hverju ekki þú? Starfinu fylgja alls kyns fríð-
indi og góð laun eru f boði. Farðu fram!
...Á INGÓLFSTORG
Enn er hlýtt í veðri og hægt að fá sér ís,
slappa af og njóta mannlífsins í góða veðrinu.
Þegar þurrt er úti eru hjólabrettakapparnir
aldrei langt undan þannig að þú getur fylgst
með þeim leika listir sfnar eða detta á hausinn
og meiða sig ef fólk hefur gaman af slíku ...
...MEÐ STÖKU
Listin að kveðast á virðist vera að líða undir
lok en það þykir mörgum slæmt mál því þetta
er eitthvert elsta afþreyingarefni Islendinga,
auk þess að vera merkur menningararfur sem
hefur fylgt þjóðinni svo öldum skiptir. Taktu
þig til og skjóttu einni stöku á náungann og
sjáðu hvað hann segir ...
erjir ^erða hvar?
Nemendaleikhúsið, leikhús útskriftarárgangs leiklistarnema við
Listaháskóla íslands, frumsýnir i kvöld, kl. 20, verkið Túskildingsóp-
eruna eftir Bertolt Brecht í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13. Fókus
fræddist um leikritið og líf í fjölmenningarlegum skóla.
Farsakennd óperustæling
„Fólk má ekki taka það þannig að við séum að setja upp ein-
hverja heilaga óperu heldur er þetta frekar óperustæling á
köflum og sýningin öll mun léttari og nokkuð farsakennd,"
segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, útskriftamemi í leiklist við
Listaháskóla Islands, þar sem hún og Unnur Osp Stefáns-
dóttir sitja fyrir svörum um fyrstu uppsetningu Nemenda-
lcikhússins á þessum vetri. Þær stöllur segja verkið vera mjög
ólíkt því sem í gangi hafi verið í leikhúsum hér á landi und-
anfarið. Raunveruleikinn sé alveg kvaddur og f staðinn fái
áhorfendur innsýn í algerlega ólíkan heim. Verkið er eftir
Berolt Brecht og tónlistin er samin af Kurt Weil og er þetta
fyrsta verkið af þremur sem útskriftamemar eru að setja upp í
vetur.
Að sögn Unnar byggði Brecht leikritið á eldra verki eftir
Bretann John Gay. Það verk var meiri satíra á ítölsku óper-
una en Brecht var með meiri kommúnískan áróður, með
ádeilu á skinhelgi kirkjunnar og stéttaskiptingu síns tíma.
Leikritið segir frá krimmanum Makka hníf sem er mjög upp
á kvenhöndina. Konur koma líka mjög við sögu í verkinu og
flækja tilraunir Makka við að koma sinni ár fyrir borð í lífs-
kapphlaupinu.
Bekkjarfélagar Unnar og Vigdísar eru þau Tinna Hrafns-
dóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Ólafur Egill Egilsson, Brynja
Valdís Gísladóttir, Ivar Örn Sverrisson og Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir. Aðspurðar hvað það væri sem ræki fólk f leiklistar-
nám svara þær því til að um ástríðu sé að ræða. „Þetta er líka
krefjandi en skemmtilegt nám. En jafnframt er það rosalega
súrrealískt að þurfa að vinna með eigin tilfinningar og eyða
fjórum árum alltaf með sama fólkinu," segir Unnur. Vigdís
bætir við að þetta sé eins og vera læst inni í skáp með sjö öðr-
um sem maður valdi ekki sjálfur og klykkir út í gríni: „Það
hlakka allir rosalega til að útskrifast og losna hver við annan.“
Þær segja það auðvitað vera þreytandi á stundum að vera í
svona nánu samneyti við sama fólkið en í leiðinni sé það
einnig mjög gefandi. „Þetta eru forréttindi því maður lærir
svo mikið inn á mannleg samskipti,“ segir Vigdís.
Túskildingsóperan verður sýnd fram í lok nóvember og
segja Unnur og Vigdís að stefnan sé að reyna að sýna fjórum
sinnum í viku. Miðaverði er stillt í hóf og verður litlar þúsund
krónur. Leikstjóri sýningarinnar er Viðar Eggertsson og tón-
listarstjóri Tryggvi Baldursson. Hljómsveit skipa að mestu
nemendur nýstofnaðrar tónlistardeildar við Listaháskólann.
Með útlitshönnun sýningar fara þau Filippía I. Elísdóttir
búningahönnuður og Vytautas Narbutas sér um leikmynd.
Ljósahönnun og tæknistjórn er í höndum Egils Ingibergs-
sonar.
í kvöld ætla ég að vera heima hjá
mér og borða pitsu með pepperoni,
þistilhjörtum og halapenos á meðan
ég glápi á Predator 2, Mad Max 2 og
Mimic 2. Á morgun ætla ég svo að
fara á Asíu og fá mér steiktar
eggnúðlur með kjúklingakjöti og um
eftirmiðdaginn mun ég örugglega
borða kartöfluflögur. Um kvöldið
ætla svo ég að grilla mér ostborgara
áður en ég fer út að skemmta mér. Á
sunnudagsmorgun mun ég væntan-
lega ekki borða mikið annað en tún-
fisksalat og kókómjólk en um eftir-
miðdaginn ætla ég að fá mér plómur
og rúgbrauð og síðan kjötbollur og
soðið kál í kvöldmat. Hvar verð ég?
Heima.
Pórarinn Hugleikur Dagsson, kvik-
myndagagnrýnandi Tvíhöfda.
I kvöld er ég að spá í
að kíkja út á lífið með
vinkonum mínum og
ætli Astró verði ekki
fyrir valinu. Laugardag-
urinn verður hins vegar
ofurseldur vinnuveit-
endum mínum og nýtt-
ur í að græða peninga.
Svo ætla ég að reyna að
slappa af og hlaða aftur
batteríin fyrir næstu
viku á sunnudaginn. En
ég gæti reyndar þurff að
vinna þá líka...
Halldóra María Ein-
arsdóttir mótorgella.
Enginn veit sína ævina fyrr
en öll er en í kvöld veit ég að
ég ætla að dj-ast á Nelly’s. A
morgun er svo merkisdagur, jú
það var rétt, árshátíð Hagkaups
verður haldin á Broadway og
þar ætla Milljónamæringarnir
ásamt okkur söngvurunum
fimm að spila. Á sunnudag fer
ég svo í matarboð til Moniku
Abendroth hörpuleikara.
Annars ætla ég að reyna að fara
í Ræktina á hverjum degi um
helgina. Ég er kominn í svona
heilsuátak og er orðinn svo
flottur að það hálfa væri nóg...
Páll Óskar Hjálmtýsson tón-
listarmaður