Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 x>v 5 Fréttir Niðurstaða héraðsdóms í máli konu sem ákærð var fyrir að svíkja átta karlmenn: Konan dæmd í fangelsi - 51 milljónar kröfu vísað frá Akærða fyrir héraðsdómi Konan var í gær dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik meö því aö hafa meö blekkingum fengiö sjö karlmenn til að lána sér 29,9 miiijónir króna þrátt fyrir aö henni væri Ijóst aö hún heföi engin tök á aö endurgreiöa þeim. Þórunn Sigurveig Aðalsteins- dóttir, 66 ára íbúi í Breiðholti, hef- ur verið dæmd í tveggja ára fang- elsi fyrir fjársvik með því að hafa með blekkingum fengiö sjö karl- menn til að lána sér 29,9 milljónir króna þrátt fyrir að henni væri ljóst að hún hefði engin tök á að endurgreiða þeim. Konan var fund- in sek um að hafa notað sér ranga hugmynd mannanna um greiðslu- getu hennar og eignir. Þeir vissu ekki af lánveitingum og skulda- stöðu Þórunnar til hinna. Þórunn er dæmd til að greiða 2,1 milljón króna í skaðabætur til fjögurra mannanna og helming af 650 þús- und króna málskostnaði. Skaðabótakröfum upp á 51,5 millj- ónir króna var vísað frá dómi. Þar á meðal var 25,3 milljóna krafa 72 ára karmanns sem býr i Vesturbæ Reykjavíkur - áttunda mannsins í málinu. Þórunn var ekki ákærð fyr- ir fjársvik i þeim þætti heldur gefið að sök að hafa „nýtt sér andleg bág- indi“ mannsins sem var henni háð- ur meðal annars vegna húshjálpar sem hún tók að sér fyrir hann. Henni var gefið að sök að hafa aflað sér samtals 23,7 milljóna króna sem endurgjaldi sem hún áskildi sér fyr- ir að þrífa á heimili mannsins frá því í september 1996. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ekk- ert hefði komið fram í vitnisburði mannsins eða framkomu hans fyrir dóminum sem gæfi visbendinu um að hann „ætti við bágindi að stríða“. Því var Þórunn sýknuð af þessum hluta sakamálsins. Sagöi ósatt um hjartveik eöa nýrnasjúk börn sín I dóminum kemur fram að Þór- unn hafi fengið tvo af mönnunum til að lána sér peninga vegna þess að börn hennar þjáðust af lífshættu- legum sjúkdómum. Þannig sagði hún öldruðum einbúa í Húnavatns- sýslu, sem lánaði henni á níundu milljón, að hún ætti tvö böm sem þjáðust af nýrnasjúkdómi og að hún hefði greint honum frá dauða þeirra beggja meðan á fjárveitingum hans til hennar stóð. Maðurinn sagði fyr- ir dómi að hann hefði talið sig vera að lána Þórunni fyrir sjúkrakostn- aði og síðar útfararkostnaði vegna þessara barna. Þórunn sagði fyrir dómi að þetta hefðu verið ósannindi hjá sér en hún hefði verið að grípa til örþrifaráða. Þegar hún fékk ann- an mann til að lána sér sagði hún honum frá hjartveikri dóttur sem þyrfti að fara í aðgerð erlendis. Þór- unn sagði um þetta að hún ætti ekki hjartveika dóttur en sagan hefði ekki verið sögð til að fá peninga. Þórunn segist ekki hafa afgang af hinum rúmu 50 milljónum króna sem hún fékk hjá framangreindum áttmenningum. Peningarnir hafi farið í „hitt og þetta", skuldir og viðgerðir. Stærstum hluta bótakrafnanna var vísað frá dómi enda höfðu þeir sem áttu stærstu kröfurnar fallið frá þeim, að minnsta kosti á vissu stigi. Þegar Þórunn var spurð að því hvort hún hefði fengið mennina til að falla frá kröfunum eftir að saka- málið fór af stað kvaðst hún ekki hafa beðið þá um að afturkalla kröf- urnar en hefði spurt mennina „hvort þeir vildu gera það“. Einni ákæru í málinu var vísað frá dómi en sonur Þórunnar, sem einnig var ákærður en fyrir minni sakir, var sýknaður. Ekki liggur fyrir hvort Þórunn áfrýjar niður- stöðu héraðsdóms til Hæstaréttar. -Ótt Sigríður ekki í framboð „Þó ég hafl að sjálfsögðu leyfi til að vera i flokki og hafa mínar skoð- anir þá skipti ég mér ekki af sveit- arstjórnarmálum og er þar af leið- andi ekki á leið- inni í framboð,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, sviðsstjóri þjón- ustusviðs hjá Ak- ureyrarbæ, en Sigríður sat lengi i bæjarstjórn Ak- ureyrar fyrir Al- þýðubandalagið. Þær sögur hafa fengið byr undir báða vængi að undanfórnu að Sig- ríður sé á leið í bæjarmálapólitíkina að nýju, ekki sist eftir að hún kom fram á opinberum fundi Vinstri- grænna um bæjarmálin á dögunum. Sigríður segir að hér sé um algjöran misskilning að ræða. „Ég hef fengið ótal fyrirspurnir vegna þessa máls en ég mætti á þennan fund sem embættismaður bæjarins vegna þess að eftir því var óskað. Ég út- skýrði þar þau mál sem upp voru borin og undir mig heyra og var far- in af fundinum þegar umræður hófust þar,“ segir Sigríður. Hún seg- ist enn vera félagi í Samfylking- unni. Til að kynda enn frekar undir þeim misskilningi að Sigríður sé gengin til liðs við VG er að alnafna hennar er formaður Reykjavíkurfé- lags flokksins og hefur verið tals- vert í fjölmiðlum að undanförnu vegna viðræðna VG við R-listann um framboðsmál. Sigriður á Akur- eyri segir að þeim nöfnum sé mikið ruglað saman en ítrekar það að hún hafi engin afskipti af sveitarstjórn- armálum, hvorki á einum vettvangi né öðrum. -gk Sigríöur Stefánsdóttir. Hæstiréttur: Borgarbyggð sýknuð Hæstiréttur staðfesti á föstudag dóm Héraðsdóms Vesturlands um að Borg- arbyggð skyldi sýknuð af kröfum Óla Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi bæj- arstjóra í Borgar- byggð, sem var sagt upp og gert að rýma skrifstofu sína fyrirvara- laust. Óli krafðist launa til loka samningstímans sem var tvö ár auk sex mánaða en á það var ekki fall- ist. 1 dómi Hæstaréttar segir meðal ann- ars: Sveitarfélagið Borgarbyggð sagði bæjarstjóranum upp störfum áður en ráðningartími hans rann út. Óli krafð- ist launa til loka umsamins tveggja ára ráðningartíma og í sex mánuði til við- bótar. Með hliðsjón af sérstöku eðli starfs bæjarstjóra var talið að umdeilt ákvæði ráðningarsamnings aðila, um starfslok Óla fyrir lok ráðningartím- ans, bæri að skýra á þann veg að í því fælist gagnkvæm heimild samningsað- ila til uppsagnar samningsins. Ákvæði samningsins um rétt Óla til launa „í sex mánuði frá þeim tírna" var túlkað svo samkvæmt orðanna hljóðan að þar væri bæði vísað til loka ráðningartímans og þess tíma er störfum bæjarstjóra kunni að ljúka í raun sé það fyrr. Var Borgarbyggð því sýknuð af kröfu Óla til frekari launagreiðslna. Þar sem ekki voru lagaskilyrði til að fallast á miskabótakröfu Óla var Borg- arbyggð einnig sýknuð af þeirri kröfú, enda þótt fallist væri á það með Óla að Borgarbyggð hefði gengið óþarflega hart fram við uppsögnina. DV innti Óla Jón eftir viðbrögðum hans við dómnum. „Ég er vitaskuld ósáttur við þann dóm Hæstaréttar að vegna sérstaks eðlis starfs bæjarstjóra sé hægt að rifta tímabundnum ráðning- arsamningi án bóta, en meginreglan er sú að tímabundnir ráðningarsamningar eru óuppsegjanlegir. Hæstiréttur stað- festir aftur á móti þá skoðun mína að brottvikningin hafi verið óeðlilega harkaleg," sagði Óli Jón við DV. -DVÓ Tilboð 960 þús. MMC Lancer Wagon 1,6 n.skr. 05.97, ek.72 þ. km, ssk. Verð 850 þús. kr. Kia Shuma RS 1,5 n.skr. 07.98, ek. 48 þ. km, bsk. Verð 770 þús. kr. Suzuki Vitara JLX SE n.skr. 01.99, ek. 35 þ. km, ssk. Verð 1.190 þús. kr. MMC Lancer GLXi 1,3 n.skr. 09.96, ek.113 þ. km, ssk. Verð 650 þús. kr. Hyundai Accent GLS 1,5 n.skr. 09.00, ek.12 þ. km, bsk. Verð 1.160 þús. kr. Kia Clarus GLX 2,0 n.skr. 10.99, ek. 8 þ. km, bsk., álfelgur. Verð 1.390 þús. kr. Nissan Almera 1,6 n.§kr. 06.99, ek. 63 þ. km, ssk. Verð 990 þús. kr. Nissan Micra GX 1,3 n.skr. 05.99, ek. 8 þ. km, bsk. Verð 760 þús. kr. Notaðir bílar Þar sem þú færð notaða bíla á kóresku verði! FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • www.kia.is Kia Sportage Classic 2,0 Hyundai Starex 4x4, dísil n.skr. 09.00, 2,5 n.skr. 06.99, ek.12 þ. km, bsk. ek. 65 þ. km, bsk. Iferð 1790 þús. kr. Verð 1.750 þús. kr. dcjfe KIA ÍSLAND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.