Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 Fréttir I>V Þingmaður vill að fjárlaganefnd skoði ferðir flugmálastjórnarvélar: Týndir farþegalistar - samgönguráðherra á met í einkaflugi með TF-FMS GIsli S. Einarsson hefur óskaö eftir því við fjárlaganefnd að nefndin fari fram á loggbók vélar flugmálastjórnar TF-FMS vegna notkunar ráöherra og stjórnmála- manna á henni. Nefndin ræddi málið á fundi á sínum í gær en skiptar skoöanir voru innan henn- ar um það hvort beiðni Gísla væri nægilega rökstudd. Ákveðið var að fresta afgreiðslu málsins þar til í dag. Ólafur Örn Haraldsson, for- maður nefndarinnar, sagði í sam- tali við DV að ekki væri ágreining- ur um aö mál þessi ættu að vera uppi á borðinu. „Máliö snýst um það hvort málið sé í réttum bún- ingi til að nefndin taki á því og þá með hvaða hætti,“ segir Ólafur Örn. í loggbókinni kemur fram hvert er flogið og hve lengi er staldrað viö á hverjum stað. Þar er ekki sagt frá hverjir eru farþegar í hverju tilviki. Fátt um svör Fyrirspum Gísla er fram komin í framhaldi af ítrekuðum spurn- ingum DV um málið allt frá því í apríl á þessu ári. Þá var spurning- um í fimm liðum beint til flug- málastjóra varðandi notkun vélar- innar sem ber einkennisstafina TF-FMS. Spurt var um það hvaða ráð- herrar hefðu nýtt sér vélina á 12 mánaða tímabili til ferðalaga inn- an lands sem utan. Þá var spurt hve lengi hver ferð hefði staðið og óskað eftir sundurgreiningu og timasetningu. Loks var spurt um það hvaöa aðrir aðilar utan flug- málastjórnar hefðu notað vélina og hver kostnaöur væri við ein- stakar ferðir. Svör flugmálastjórnar voru fjarri því að vera í samræmi við spurn- ingar. Þó var blaðinu sent yfirlit um það hvaða ráðuneyti hefðu nýtt vélina á umræddum tíma. Neitað var að upplýsa um það hvaða far- þegar hefðu verið með í för. „Flug- málastjórn telur sig ekki geta gefið upp hvaða einstaklingar á vegum einstakra ráðuneyta og stofnana hafi flogið með TF-FMS og vísar því til ráðuneytanna og stofnananna að svara því, sem og hvert var flogið hverju sinni,“ segir í svarbréfi Heimis Más Péturssonar upplýs- ingafulltrúa. Forseti svarar í framhaldi þessa reit DV öllum ráðuneytum og embætti forseta Is- lands bréf þar sem sömu upplýs- inga var óskað. Spurt var hverjir hefðu flogið hvert, hvers vegna og hve lengi hver ferð hefði staðið. Embætti forseta íslands svaraði spumingum DV af nákvæmni þar sem upplýst var nákvæmlega hverjir hefðu fariö meö TF-FMS í þeim tilvikum sem embættið leigði vélina. Þá svaraði félags- málaráðuneytið spumingunni þar sem fram kom að á árabilinu 1999 til 2001 hefði ráöuneytið einu sinni leigt vélina af flugmálastjórn og þá vegna ferðar tveggja starfsmanna ráðuneytisins á fund sveitar- stjórna á Vestíjörðum. Forsætis- ráðuneytið tók að sér með bréfi, dagsettu þann 23. ágúst, að svara fyrir öll önnur ráðuneyti. Þar er ekki upplýst um farþega í hverri ferð. „Farþegalistar hafa almennt ekki verið varðveittir í einstökum ráðuneytum en yfirleitt er um að ræða ferðir ráðherranna sjálfra og starfsliös þeirra," segir í bréfinu. Þá er því lýst að ráðuneytin leitist við að haga ferðalögum á sem hag- kvæmastan hátt og yflrleitt sé því feröast með áætlunarflugi. Sturla á ferö og flugi Á lista forsætisráðuneytisins kennir ýmissa grasa þegar til þess Flugvél Flugmálastjórnar „Farþegalistar hafa almennt ekki veriö varöveittir í einstökum ráöuneytum en yfirleitt er um aö ræöa feröir ráöherr- anna sjálfra og starfsliös þeirra, sagöi í svari forsætisráöuneytis. Mathiesen. Gísli S. Einarsson. Heimir Már Pétursson. Ólafur Ragnar Grímsson. Guöni , Halldór Ágústsson. Ásgrímsson. Sturla Valgeröur Böövarsson. Sverrisdóttir. er litið hvert ráðherrar fara í leiguflugi. Langstórtækast er sam- gönguráðuneytið. Alls hafa sam- gönguráðherra og hans lið leigt vélina sem nemur 58,4 flugtímum á árabilinu 1998 til 2001. Heildar- kostnaður viö flugið er 4,7 milljón- ir króna ef miðað er við að flug- tíminn kosti 80 þúsund krónur eins og gerist í dag. Ekki er ljóst hversu mikið kostar að láta vélina bíða eða hversu lengi hún hefur beðið. Sturla Böðvarssson sam- gönguráðherra hefur víða farið samkvæmt upplýsingum forsætis- ráðuneytisins. 18. júní 1999 brá ráðherrann sér á heimaslóðir í Stykkishólmi en síðan um Vest- firði. Ekki er sagt hvert erindið var. Fimm dögum síðar fékk hann vél flugmálastjórnar aftur og flaug nú til Vestfjarða til að opna at- vinnuvegasýningu. Þann 30. september sama ár flaug hann til Færeyja til að sitja ferðamálaráðstefnu á vegum Vest- norræna ráðsins. Siglufjarðarveg- ur var opnaður 15 október og Sturla mætti þar. í febrúar árið 2000 fór hann til aö taka skóflustungu að hóteli á Tálkna- firði. í mars flaug til fundar við Hornfirðinga þar sem fundað var um samgöngumál. í apríl fór hann til Egilsstaða til að halda ávarp um vetrarþjónustu á ráðstefnu Vegagerðarinnar. Komið var við á Sauðárkróki. Daginn eftir fundaði hann með sveitarstjórnarmönnum á Patreksfirði. 20. júlí flaug TF- FMS til Stykkishólms, þaðan til Akureyrar og aftur til Stykkis- hólms með ráðherrann áður en haldið var heim til Reykjavíkur. Tilefnið var móttaka nýrrar Hrís- eyjarferju. Alls leigði samgöngu- ráðherra vél Flugmálastjórnar 10 sinnum árið 2000. Kostnaðurinn við flugtímana slagaði hátt í 1,4 milljónir króna. Biðin kostaði ekk- ert. Á þessu ári flaug ráðherrann meðal annars til Rifs til að opna hótel á Hellissandi. Þá mætti hann á aðalfund Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Akureyri og undir- ritaði samninga við félagið. I baka- leiðinni var komið viö í Stykkis- hólmi þar sem haldiö var ferða- málahóf í boði ráðherrans. Fjórir dagar á Grænlandi Önnur ráðuneyti komast vart í hálfkvisti við samgönguráðuneyt- ið. Þannig flaug Davíð Oddsson forsætisráðherra aðeins í rúmlega 10 tíma á umræddu árabili. Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra flaug samtals 20 klukkustundir. Þar vegur þyngst 10 tima flug ráð- herrans og föruneytis á viðskipta- kynningu í París 8. október 1999. Vélin beið þar tvo daga. Iðnaöarráðuneytið leigði vél Flugmálastjórnar samtals í 14,8 flugtíma árin 1998 til 2001. Þar veg- ur þyngst ferð Valgerðar Sverris- dóttur til Ilullissat á Grænlandi 29. ágúst. Aö baki þeirri ferð lágu 7,2 flugtímar og vélin beið á Græn- landi í fjóra daga eftir ráöherran- um sem sat fund norrænna orku- málaráðherra. Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra fór í maí sama ár á sama stað til að sitja fund sjávarútvegs- ráðherra Norður-Atlantshafsríkja. Sú ferð tók þrjá daga. Flugtímar voru skráðir 6,3 og kostnaðurinn því um hálf milljón króna. Biðin kostaði ekkert. Frá janúar til júlí 2001 hefur sjávarútvegsráðherra notað TF- FMS meira en aðrir ráðherrar. Hann hefur notað vélina sem nem- ur 5,6 flugtimum en fast á hæla hans koma umhverfisráðherra og samgönguráðherra með 5 flugtíma hvor. Sá ráðherranna sem minnst notar einkaflug Flugmálastjórnar er Guöni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra sem verið hefur i loftinu samtals eina og hálfa klukkustund á kjörtimabilinu. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, seg- ir að á meðan TF-FMS bíöi eftir þeim sem taka hana á leigu sé gjarnan sinnt tilfallandi verkefn- um. Þannig sé ekki óeðlilegt þótt stofnanir og ráðuneyti greiði að- eins fyrir þá tíma sem vélin sé á lofti. Hann segir útilokað fyrir stofnun sína að svara því hverjir hafi flogið með vélinni hverju sinni. Farþegaskrár séu aðeins færðar vegna trygginga og eftir að flugi lýkur sé þeim hent. Þvi geti flugmálastjórn ekki svarað því hverjir hafi farið í ferðir á vegum ráðuneytanna. Ef marka má svör ráðuneytanna við spurningum DV er ljóst að far- þegalistarnir eru týndir. Uinsjön: Birgir Guömundsson netfang: birgir@dv.is Slæm tímasetning í heita pottinum hafa menn ver- ið að ræða um niðurskurðinn hjá RÚV og neikvæð viðbrögð starfs- manna við áform- um yfir- stjórnar stofnunarinnar. Eitt af því sem sagt er hafa hleypt illu blóði í menn er að á starfsmannafundi sem haldinn var sl. föstudag hófst fundurinn á því sem í eyru pott- verja hefur verið kallað „sakbend- ing“ þar sem menn voru yfir- heyrðir um hver hefði lekið frétt- um af niðurskurðaráformum til annarra fjölmiðla. Segja starfs- menn að þessi tilraun yfirstjórnar til að komast fyrir þennan leka hafi komið á slæmum tíma og á röngum stað - menn stilli einfald- lega ekki heilum starfsmanna- fundi upp við vegg og yfirheryri hann með þessum hætti...! Gamla þýöingin notuð Það hefur vakið athygli menn- ingarsinnaðra pottverja að leikrit- ið Dauðadansinn eftir Strindberg sem Strindberg- hópurinn sýnir nú á litla sviði Borgarleikhúss- ins er í þýðingu Einars Braga. Menn telja sig nefnilega muna að i leikskrá leik- hússins þar sem starfsárið var kynnt á sínum tíma hafi verið talað um að von væri á vísi að Strindberg-hátíð í leikhús- inu þar sem nýjar þýðingar Jóns Viðars Jónssonar væru í aðal- hlutverki. í poitinum kunna menn þær skýringar helstar á því að gamla þýðingin hans Einars Braga er notuð að þeim hafi ekki samið alls kostar um sýninguna þeim Jóni Viðari og Ingu Bjarnason leikstjóra og því hafi verið talið af- farasælast að halda sig við Einar Braga ... Hitnar undir Margréti 'Vandi Samfylkingarinnar er mik'ið ræddur í heita pottinum og ýmsir eru hins vegar farnir að kalla þetta vanda Össurar Skarp- héðinssonar. Enn aðrir kalla þetta raunar: vandinn Össur Skarpéðinsson. Ljóst þykir þó að lítil hætta steðjar að Össuri sem for- manni enda segja menn að fáir séu til þess bærir að velgja honum undir uggum. Hins vegar heyrast nú raddir um að breytingar kunni að verða á öðrum forustumönnum en slíkar raddir heyrast ekki síst innan úr ungliðahreyfingunni. Þannig er óvíst að Margrét Frí- mannsdóttir sé eins örugg í sin- um stól og Össur, en rökin sem heyrast eru að Össur þurfi ein- hvern góðan og ferskan með sér, í varaformennskunni, en Margrét, þó hún sé ekki gömul í árum talið, minni um of á gamla tíma í póli- tíkinni... ríiw Enn um Smáralind Mikið hefur verið rætt um útlit Smáralindar undanfarið og sýnist sitt hverjum um dónalegt sköpu- lag glæsihallar- innar. Hinn kunni hagyrðing- ur Hákon Aðal- steinsson lætur neðanbeltis- húmorinn eiga sig í vísu sem hann gerði á dög- unum um opnun þessarar risavöxnu verslunarmið- stöðvar. Vísan er svona: Hér lifir frelsió og framapotiö framkvœmdin ber ekki vott um nísku. Níu milljaröa kostaói kotiö og Kringlan er ekki lengur i tísku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.