Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Page 9
8 ÞRIDJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 x>v Fréttir Úttekt á byggðavandanum á íslandi: Fábreytnin fer með fólkið - ungt fólk vill skipta oft um atvinnu og heimili Margt hefur veriö sagt og skrifað um fólksfækkunina á landsbyggðinni en minna hefur orðið um úrlausnir á þess- um vanda. Hvorki byggðaáætlanir stjómvalda né viðamikil stefhumótun- arvinna ýmissa hagsmunahópa hefur gefist sem skyldi. Svartsýnismenn halda fram að engar mótvægisaðgerðir muni duga og best sé að leyfa þróuninni að eiga sér stað án nokkurra handaflsað- gerða. Fleiri eru þó á öndveröri skoðun en menn greinir enn á um leiðimar. Vandi landsbyggðarinnar er sagður að hluta til dreifbýlingunum sjálfúm að kenna. Bylting í atvinnuháttum íslendingar standa frammi fyrir sömu vandamálum og önnur vestræn ríki. Bylting í atvinnuháttum hefur orð- ið til þess að fólk flytur úr dreifbýlinu. Menntunarstig er orðiö skuggalega lágt á landsbyggðinni miðað við höfuðborg- arvæðið, litlir mennmgar- og afþreying- armöguleikar eru víða, lágt fasteigna- verð, lægri laun; allt em þetta neikvæð- ir þættir. Kostimir eru á hinn bóginn fjölmargir við að búa í fábýli og má þar nefna litla glæpatíðni, persónulegri samskipti, timaspamaö vegna stuttra Helstu landsbyggöar- byggöarkjarnar Ísafjardarbær J Sauöárkrókur • J í Húsavík Akureyrl Akranes + M Reykjanesbær '*Wt Selfoss Kort af landshlutakjörnunum Margir telja að þessir staðir verði hjörtu allrar dreifbýlisbyggðar í framtíðinni. vegalengda, nálægð við náttúru og fleira. Þessir kostir hafa hins vegar ekki náð að vega upp á móti takmörkunum landsbyggðarbúsetu. Næstbest á Akureyri í könnun Félagsvísindastofnunar var reynt að meta hve eftirsóknarvert var talið að búa í nokkmm bæjum á land- inu. Þessir staðir vom fyrir utan höfuð- borgarsvæðið Akureyri, Isaflörður, Reykjanesbær, Akranes og Grindavík. Niðurstaðan leiddi í ljós að eftirsóknar- verðast var talið að búa á höfuðborgar- svæðinu, þar næst á Akureyri, síðan Akranesi, Reykjanesbæ og loks á Isa- firði. Ef strjálbýli á almennt að þrífast á landinu þarf að styrkja nokkra lands- byggðarkjama að mati sérfræðinga. í nýrri skýrslu Byggðastofhunar um byggðamál era slíkir kjamar teknir út og kostir þeirra og gallar greindir. Þess- ir staöir em Borgames, Akranes, ísa- Öörður, Sauðárkrókur, Akureyri, Húsa- vík, Egilsstaðir, Selfoss og Reykjanes- bær. Þeir uppfylla ákveðna staðla sem Byggðastofhun setur um slíkar burðar- einingar og em hjörtu sérhvers lands- hluta. Ef þessi hjörtu hætta að slá hætta fingur og tær dreifbýlisins að hreyfast. Plúsar og mínusar Höfundar skýrslu Byggðastofnunar greina kosti og galla fyrmefndra iands- byggöarkjama með aðstoð fjölmargra íbúa í héraði og er sumt forvitnilegt í samanburðinum en annað í besta falli bamalegt. Þannig segir um Reykjanes- bæ: „ímynd Reykjanesbæjar hefur breyst frá því að vera sjávarþorp og Kanabær yfir að vera bílabær og bítla- bær. Glansmyndin snýst um Hljóma og fótboltann." í stómm dráttum fær Reykjanesbær sæmilega einkunn. Um Akranes segir að þar hafi orðið jafnmik- il fjölgun í fyrra og varð að meðaltali á tíu ámm frá 1990-2000. íbúar Akraness hafa aldrei verið fleiri en nú og er ljóst að Hvalfjarðargöngin hafa styrkt byggð- arlagið mjög. Nálægðin við höfuðborg- arsvæðið er einmitt stór þáttur í vaxtar- möguleikum Akraness, Borgamess, Sel- fosssvæðisins og Reykjanesbæjar. Mannfiöldatölur hafa sýnt aðra og gleði- legri niðurstöðu í þessum bæjarfélögum undanfarið en almennt í byggðum sem em fjær Reykjavík. Hvað galla Akranes- bæjar varðar nefnir Byggðastofnun skort á landrými auk þess sem stór- gjaldþrot og neikvæð mál hafi komið upp nýverið. Þar er nefnt svokallað „sýslumannsmál“ og ÞÞÞ-gjaldþrotið. Tækifæri staðarins felast aftur á móti ekki síst í fyrirhugaðri stækkun Norð- uráls. Veik sjálfsmynd Borgnesinga Svo hringveginum sé fylgt áfram norður á bóginn segir um Borgarnes að háskólamir í nágrenninu séu bæjarfé- laginu mikill styrkur. Borgnesingar njóta ekki síður en Akurnesingar stór- iðjustarfsemi í nágrenninu og er fallegt umhverfi og jákvæð ímynd meðal kosta staðarins. Dæmi um galla er aftur á móti að sjálfsmynd íbúa er fremur veik að mati Byggöastofhunar. Þá hefur ekki tekist að skapa einingu um staðinn með- al nágrannanna. Fólksfækkun á ísafirði Sjávarútvegur hefur löngum verið lif- æð ísafjarðarbæjar en skýrsluhöfundar taka fram að atvinnulíf þar sé býsna Forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar er bjartsýnn: Fólksflóttinn í rénun - byggðamálaráðherra segir að atvinnumálin lofi góðu fyrir landsbyggðina Dr. Bjarki Jó- hannesson, for- stöðumaður þró- unarsviðs Byggða- stofnunar, segir að þeir landsbyggðar- kjarnar sem standi vel séu staðirnir nálægt höfuðborg- arsvæðinu, svo og Akureyri. Borgar- nes og Sauðár- krókur séu i sæmilegu jafnvægi en ísa- fjörður, Húsavík og Egilsstaðir eigi undir högg að sækja. Hvernig sér Bjarki fyrir sér að hægt sé að styrkja þessa kjama? „Ef menn hyggjast flytja opinber störf út á land ættu þeir að hugsa um að styrkja þessa þrjá síðastnefndu staði. Síðan þarf að efla nýsköpun. Upplýsingatækni gefur þessum stöðum mikla möguleika. Það kom fram í at- hugun sem gerð var í Finnlandi varð- andi flutning flarvinnsluverkefna að stærri kjarnarnir ættu betri möguleika þar sem þeir hafa á að skipa fólki sem getur tekið að sér flóknari verkefni en mjög litlar byggðir. Til dæmis hafa Húsvíkingar verið að skrá gögn fyrir Þjóðminjasafnið sem varla væri hægt að gera í mjög litlum plássum. Það er sem sagt þetta þrennt: Opinber störf, fjarvinnsla og nýsköpun sem mér finnst að megi efla í þessum kjömum." Bjarki segir sem dæmi i þessu sam- hengi að Akureyri hafi grætt mjög á eigin háskóla i þessum efnum. Fjarskiptin ekki nógu góö Valgerður Sverrisdóttir ráðherra er æðsti yfirmaður byggðamála á landinu og hefur því meira vald en aðrir póli- tíkusar til að hafa áhrif á búsetuþró- un. Hún segist vera bjartsýn á að hægt sé að stöðva fólksflóttann. Ákveðin atvinnu- tækifæri lofi góðu, s.s. stóriðjumálin fyrir austan og fiskeldi víða um land. Einnig er ráð- herra bjartsýnn á að upplýsingatækn- in verði landsbyggðarfólki akkur og þá með frumkvæði einstaklinganna. Fjar- skiptin séu hins vegar alls ekki nógu góð en uppi séu áform um að stórbæta aðgengi landsbyggðarinnar með auk- inni ADSL-þjónustu. Framsóknarmenn hafa verið gagn- rýndir fyrir aðgerðaleysi í byggðamál- um en Valgerður minnir á að mála- flokkurinn hafi aðeins verið undir for- ræði flokksins siðustu tvö ár. Hún seg- ir að aukin bjartsýni ríki nú hjá lands- byggðarfólki og hugarfarsbreytingin sé mikilvæg. „Auðvitað skiptir miklu máli í þessu sambandi að fólkið sjálft sé tilbúið að taka á. Sveitarfélögin hafa ekki heldur verið stikkfrí í þessu efni,“ segir ráðherra. Valgerður segir um Byggðastofnun að nýverið hafi rikisstjórnin samþykkt að láta stofnunina fá 300 milljónir króna aukalega til lánveitinga á þessu ári og fjárveitingar til stofnunarinnar hafi aukist verulega. Þess vegna sé bet- ur staðið að Byggðastofnun núna en áður en á hinn bóginn sé þörf fyrir- tækja óvenjumikil. „Það hafa ekki borist áður jafnmargar umsóknir um lánveitingar og núna.“ Atvinnuþróunarfélög lofa góðu Forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar er sammála Valgerði og fleiri um að það sé ekkert svart- nætti fram undan fyrir landsbyggðina. Hann bendir á að síðustu ár hafi dreg- ið úr fólksflóttanum og spáir því að styrking atvinnuþróunarfélaga hafi sitt að segja um eflingu landsbyggðar- innar. Þau starfi náið með Byggða- stofnun og muni efla tiltrú fólks á dreifbýlið í framtíðinni. „Þetta er að skila sér, hægt og hægt,“ segir Bjarki Jóhannesson. Aöfluttir umfram brottflutta - , • MMg|g| 200 0 ■200 -600 -1.000 -1.400 ,2 800 Ti! höfuöborgarsvæöis 71 72 73 J4 '75 ‘76 ‘77 78 *79 ‘80 ‘81 '82 ‘83 ‘84 ‘85 ‘86 ‘87 ‘88 ‘89 *90 ‘91 ‘92 ‘93 *94 ‘95 ‘96 *97 ‘98 ‘99 ‘00 ‘01 Stöplarit sem sýnlr nettóflutninga frá landsbyggöinni til höfuðborgarsvæöisins Mestir voru þessir flutningar árið 1997 en síðan hefur dregið úr þeim. Um 1800 manns fluttu það ár en í fyrra nam fjöldinn „að- eins" um 700 manns. Athyglisverð erþróunin um miðjan áttunda áratuginn þegar fólk flutti frá höfuðborgarsvæöinu. W: II IP fjölbreytt. Þar hefur hins vegar orðið fólksfækkun og er fjárhagurinn slæmur. Mestan þátt á þar ofgnótt félagslegs hús- næðis sem reyndar íþyngir sveitarfélög- um um allt land. Mikið var byggt á ní- unda áratugnum af þessu húsnæði en minna hefúr verið um spurn eftir þvi þar sem fólk hefúr leitað burt. Um ímynd ísaflarðarbæjar segir að hún sé röng. Almenningur hafi á tilfinningunni að þar snúist allt um sjávarútvegskvóta og undir þetta tekur bæjarstjóri ísa- fjarðarbæjar í samtali við DV. ítrekað kemur fram í samtölum blaðsins við fólk úti á landi að íbúarnir sjáifir hafi stuðlað að neikvæðari og einhæfari ímynd landsbyggðarinnar en efni standi til. Þeir séu fastir i hlekkjum hugarfars- ins. Akureyri vart landsbyggð Um Sauðárkrók segir að staðsetning bæjarins sé á landsvísu góð, „réttum megin við Akureyri". Þar er fjölbreytt atvinnulif, starfræktar verksmiðjur og rekinn öflugur framhaldsskóli. Eins og á fleiri bæjum er hins vegar Qárhags- staða sveitarfélagsins Skagafjarðar fremur slæm. Jákvætt er aftur talið að sagan drjúpi af hverju strái hjá Skag- firðingum og verða þeir seint vændir um veika sjáifsmynd. í skýrslunni segir að Akureyri hafi um margt rétt vel úr kútnum undanfar- ið enda búi bærinn við fólksfjölgun. Margt lofsamlegt er tilgreint um höfuð- stað Norðurlands, enda bærinn sá langstærsti í úrtakinu. Fjölbreytni er fyrir vikið alla jafna mun meiri en ann- ars staðar á landsbyggðinni en minna má á að bæjaryfirvöld á Akureyri hafa velt upp þeirri spumingu hvort rétt sé að setja bæinn í hóp með annarri lands- byggð. Húsavík hefur sterka sjáifsmynd en hefur goldið fyrir neikvæð mál sem ratað hafa í fjölmiðla að mati skýrslu- höfunda. Mikið afhroð hefur orðið í at- vinnulifi bæjarins undanfarið bæði í sjávarútvegi og með hmni Kaupfélags Þingeyinga. Göng og álver breyta Egilsstaðir njóta margra kosta en ál- ver við Reyðarfjörð gæti breytt vaxtar- möguleikum bæjarins tO hins verra. Hætt er við að mati Byggðastofnunar að álver og göng milli Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsQarðar myndu hafa nokkur áhrif á þróun búsetu á Egilsstöðum. Aukin- heldur er galli staðarins að Egilsstaðir liggja ekki aö sjó. ÞRIDJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 DV 9 Fréttir DV-MYND EÓL. Á Suöurleiö Flutningar fólks á þrítugsaldri hafa verið gríðarlegir undanfarið og er það sérstakt áhyggjuefni fyrir landsbyggðina og þjóðfélagið alit. Þar með fer vaxtarbroddur héraðanna forgörðum. Myndin er sviðsett. Selfoss fær ágæta umsögn enda talar mannfjöldaþróun sínu máli þar. Mikil fjölgun hefúr orðið meðal íbúa en í seinni tíð hafa störf tapast, t.d. með hræringunum í kringum Goða. Vaxtarbroddurinn deyr Hér að ofan er aðeins stikiað á stóm hvað varðar möguleika landsbyggðar- kjamanna en hvaða tilgang hefur það að gera svona úttekt? Því svarar dr. Bjarki - Jóhannesson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, í skýrsl- unni. Hann segir vinnuna leitast við að finna staðbundin sóknarfæri varðandi atvinnu og búsetu á landsbyggðinni. íbúum hafi fækkað víðast hvar á lands- byggðinni sem og störfum. Þeir aldurs- hópar sem flytja mest milli landsvæða sé fólk á þrítugsaldri, þ.e. vaxtarbrodd- urinn í hveiju sveitarfélagi, sem geri þessa hluti enn alvarlegri. „Mest hefur íbúum fækkað utan þéttbýlis, en breyt- ingar á þéttbýlisstöðum em minni. Þó er þar víða um alvarlegt vandamál að ræða. Fækkun ársverka fylgir nokkurn veginn sama mynstri." Mismunandi landsvæði hafa að mati Bjarka mismun- andi eiginleika og möguleika til að bregðast við búseturöskuninni og því er mikilvægt að þekkja svæðin vel. Það gefi heimamönnum vísbendingu um hvar helst sé að leita fanga og stjóm- völdum vísbendingu um hvar mismun- andi byggðaaðgerðir séu líklegastar til að skila árangri. Hver vegna flytur fólk? Atvinnumál era aðeins einn af þeim þáttum sem ráða búsetuvali fólks. Áður fyrr var oft hægt að stýra staðarvali fyr- irtækja með opinberam reglum og styrkjum. Nú em breyttir tímar og fyr- irtæki framleiða oft háþróaðar vömr og þjónustu sem krefjast mikillar starfs- þekkingar. Framboð á menntuðu vinnu- afli er meðal þeirra þátta sem mikilvæg- ir em fyrir staðarval fyrirtækja. Það er ekki lengur nóg að staðsetja fyrirtæki einhvers staðar og halda siðan að fólk komi sjálfkrafa og búi þar. Ljóst er því að laga verður byggðaaðgerðir að ósk- um fólks um búsetu. Þessu hefúr e.t.v ekki verið sinnt sem skyldi. Mikilvæg orsök búseturöskunar er breytt gildis- mat ungs fólks. Það stafar af aukinni menntun, ferðalögum og Qölmiðlum. Stórauknar kröfur Ungt fólk kýs æ meiri hreyfanleika í búsetu og atvinnu. Það er ekki lengur sátt við að búa á sama stað alla ævi og stunda sama starf alla ævi. Þetta leiðir til aukinna búferlaflutninga og þeir staðir eru eftirsóknarverðastir sem bjóða upp á fjölbreytni í búsetu og tæki- færi til að skipta um starf. Ungt fólk ger- ir einnig æ meiri kröfur til framboðs, fjölbreytni og sveigjanleika í menningu og afþreyingu. Föst félagasamtök upp- fylla ekki lengur þarfir þess. Einnig þetta hefur áhrif á búsetuval fólks og þeir staðir em eftirsóknarverðir sem bjóða upp á fjölbreytni í þessum efnum. Hér hefur höfuðborgarsvæðið forskot á landsbyggðina. Römm er sú taug Af framangreindu má ljóst vera að þótt fólksflutningunum hafi verið líkt við náttúruhamfarir telja hinir brott- fluttu að ákvörðun þeirra hafi verið til góðs. En römm er sú taug sem rekka dregur og t.d. hafa skoðanakannanir meðal brottfluttra Akureyringa sýnt að þeir vilja upp til hópa snúa aftur en telji sig ekki geta vegna óviðunandi atvinnu- tækifæra. Hitt er einnig sýnt að höfuð- borgarsvæðið hefur verið í vandræðum með að taka á móti landsbyggðarfjöldan- um undanfarið og menn eru sammála um að óhagkvæmt sé að hafa byggð á aðeins einum stað. Búferla- þróun Þegar tölur yfir mannfjölda á Is- landi era skoðaðar kemur i ljós að 108.380 manns bjuggu á landsbyggð- inni árið 1981. Tíu árum seinna hafði þeim fiölgað í 110.095 og fyrsta desem- ber á síðasta ári var fiöldi íbúa á landsbyggðinni 107.858. Á sama tíma hefur ibúafiöldi á höfuðborgarsvæð- inu sífellt aukist. Hér fyrir neðan gef- ur að líta íbúafiölda í fimm sveitarfé- lögum sem valin voru af handahófi og eru víðs vegar á landinu. Á þessum tæpu tuttugu ámm hefur íbúum í þessum fimm sveitarfélögum fækkað talsvert en í einu þeirra hefur þó orð- iö örlítil fiölgun frá 1991 til 2000. Allt landió 1981 231.958 1991 259.577 2000 282.849 Höfuðborgarsvœóið 1981 123.578 1991 149.482 2000 174.991 Súóavík 1981 260 1991 224 2000 227 Raufarhöfn 1981 472 1991 378 2000 341 Vestmannaeyjar 1981 4.752 1991 4.933 2000 4.522 Siglufjöróur 1981 2.012 1991 1.759 2000 1.560 Vopnafjöröur 1981 914 1991 912 2000 757 Megum ekki væla okkur dauð DV spurði nokkra íslendinga um þeirra sýn á byggðamálin og eiga viðmælendur það sameiginlegt að hafa tengst þessum málaflokki á beinan eða óbeinan hátt. Helstu spurningarnpr voru hvort fólksflótt- inn af landsbyggðinni mundi halda áfram, hvort sporna bæri við ástandinu, með hvaða hætti þá og hvaða einkunn þeir gæfu Byggða- stofnun. Byggðastofnun er „kommissaraveldi“ Kristjdn Þór Júlíusson, bœjar- stjóri á Akureyri: Hann setur fyrirvara við hugtak- ið landsbyggð og telur að landið sé of lítið fyrir „deildaskiptingu“. Hann telur skilgreiningarmun á byggðunum úti á landi og Reykja- víkursvæðinu óþarfan og hyggur að núverandi hug- takanotkun ýti undir fordóma. Kristján áætlar að þéttbýlis- myndun muni halda áfram af sama krafti og undanfama ára- tugi, en fólk muni horfa til fleiri stórra þéttbýlisstaða en höfuðborgarsvæð- isins, þ. á m. Akureyrar. Kristján segist vera talsmaður þess að stjómvöld sporni gegn ástandinu. Þau eigi að vinna að því að landiö byggist upp með sem hag- kvæmustum hætti. Byggð á aðeins einum stað sé vondur kostur fyrir þjóðfélagið. „Byggðastofnun hefur verið póli- tískt kommissaraveldi sem hefur ekki skilað viðunandi árangri. Ef draga á Byggðastofnun eina til ábyrgðar, sem er mikil einfóldun, fær hún falleinkunn," segir Kristján. Fóbíueinkenni dreifbýlinga Hákon Aóalsteinsson, skógarbóndi á Héraöi og hagyrðingur: Hann telur vondar samgöng- ur á landsbyggð- inni eiga stóran þátt í vanda dreif- býlisins og fólks- fækkun. „Það verður alltaf fólksflótti á landsbyggðinni ef fólki finnst það vera innilokað.“ Hákon segir eitt helsta atriðið til bjargar í þessum efnum sé að fólk í dreifðari byggðum breyti opinberri framkomu sinni í fiölmiðlum. „Að það væli ekki stanslaust út af ástandinu í sinni heimabyggð. Að það væli sig ekki dautt heima hjá sér.“ Ef byggðarlag sé ítrekað í fiöl- miðlum þar sem kvartað er undan ömurlegu ástandi smiti það út frá sér. Fólk fái fóbíu og langi brott. Enga höfuðborgarbúa langi að sama skapi til að flytja til slíkra staða. „Heimamenn eiga töluverða sök á því hvernig komið er. Eilifar um- kvartanir og kröfur um peninga að sunnan eru af hinu illa. Næg tæki- færi era í heimabyggð um landið þvert og endilangt. Málið snýst bara um að nýta þau. Menn eiga ekki að bíða eftir því að aðrir komi með úr- lausnir." Hann segir Byggðastofnun vera fyrirgreiðslustofnun og því miður allt of halla undir pólitikina. „Að- gerðir hennar verða eins og smá- skammtalækningar hér og þar um landið og virðast því miður snúast allt of mikið um atkvæðaveiöar. Byggöastofnun er þarft fyrirbæri en ekki nógu sjálfstætt," segir Hákon. Jákvæöara viðhorf sveitarfélaganna Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjaróarbœjar: Hann vill ekki notast við orðið fólksflótta. Búferlaflutningar síð- ustu ára séu hluti af ákveðnu ferli í byggðaþróun. Þróun undangeng- inna ára bendi til að flutningarnir haldi áfram en ef miðað sé við möguleika kjarnasvæöanna sé raun- hæft að stefna að viðsnúningi. Hann segir brýnt að spyrna við fótum, enda dýrt fyrir samfélagið í heild aö hafa aðeins byggð á einum stað. Fjölgun atvinnutækifæra skipti þar sköpum. Halldór segir að ríkið eigi að leggja áherslu á að framfylgja þeim þætti byggðaáætl- unar sem snúi að atvinnumálum. „Það hefur margt gengið upp í byggðaáætlun- inni en ekki at- vinnumálaþátt- urinn, ekki flutn- ingur stofnana, ekki fiarvinnsla. Númer eitt er að auka fiölbreytni á kjamastöðunum með því að sjá ný opinber störf verða til úti á landi.“ Hann vill að næsta nýja ríkisstofn- un verði gróðursett úti á landi. Um Byggðastofnun segir Halldór: „Hún er fiárvana. Það er minni fiármunum varið til byggðamála hér á landi en t.d. á Bretlandseyj- um, Noregi og Svíþjóð. Byggðastofn- un sem miðstýringarapparat er ágæt út af fyrir sig en ég legg miklu meiri áherslu á styrkingu atvinnu- þróunarfélaganna í landinu. Þau eru þriggja til fiögurra manna félög í dag en ég vildi sjá tíu manna í hverjum landsfiórðungi.“ Skattaafslátt á landsbyggöarfólk Kolbrún Halldórsdóttir þingmað- ur: Hún segir vandann gífurlegan, heilu byggðarlögin séu nánast að leggjast í eyði. Horfumar í þessum efnum sé því miður slæmar ef eng- ar nýjar stjómvaldsaðgerðir komi til. Fyrri aðgerðir hafi reynst gagnslitlar og ekki dugað til að halda fólki í heimabyggðum. „Við eigum að sporna við þróun- inni með því að þingmenn og þjóðin öll leggi saman í nýjan tillögupott. Álþingi á að efna til sérstaks byggðaþings. Stjórnvöld hafi lofað flutningi starfa út á land en það hafi ekki virkað. Við þekkjum aðal- vanda byggðanna sem er gífurleg einhæfni í atvinnu- lifi og það verður að gera meira en að tala sig út úr þeim vanda. Kolbrún vill veita sérstaka fiár- muni til landshlutanna og byrja á Austfiörðum. Þar lítur hún til Nor- egs sem fyrirmyndar, t.d. hvað varð- ar skattaívilnanir dreifbýlisbúa. „Fólk úti á landi er að borga tals- vert meira fyrir að vera til en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Það verður að leiðrétta." Kolbrún segir að Byggðastofnun þurfi að skoða sérstaklega og þar þurfi að stokka upp spilin. Ekki sé nóg að kalla eilíflega á meiri fiár- muni ef þeir nýtist ekki. „Fólk er iðulega að gagnrýna yfirbyggingu stofnunarinnar. Hún tekur afskapa- lega mikið fé til sín. Ég tel að pen- ingarnir nýtist ekki grasrótinni."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.