Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 10
10 Viðskipti__________ Urnsjón: Vidskiptablaðið 94 milljóna króna tap Nýherja eftir skatta - á fyrstu níu mánuðum ársins Tap Nýherja eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins var 94 m.kr., samanborið við 173 m.kr. hagnað í fyrra en þá var hagnaður aö fjár- hæð 178 m.kr., aö teknu tilliti til áhrifa tekjuskatts vegna sölu eigna. Rekstrartekjur Nýherja hf. voru 2.835 m.kr. fyrstu 9 mánuði ársins en námu 2.424 m.kr. á sama tíma í fyrra og jukust því um 17% á milli ára. Hagnaður samstæðunnar fyr- ir fjármagnsgjöld og afskriftir var 30 m.kr. króna en var 67 m.kr. árið áður. Á meðal rekstrartekna á sama tímabili síðasta árs var 27 m.kr. söluhagnaður eigna og nam því rekstrarhagnaður fyrir íjár- magnsliði, afskriftir og án sölu- hagnaðar 40 m.kr. í fyrra. Gengistap félagsins, ásamt verð- bótum á tekjuskattsskuldbind- ingu, nam 77 m.kr. Auk þess var tap dóttur- og hlutdeildarfélaga 8 m.kr. Vörusala tímabilsins jókst um 23% miðað við sama tímabil síð- asta árs og hefur þar áhrif aukin sala IBM PC-véla, auk góðrar sölu á samskiptabúnaði og skrifstofu- tækjum. Þjónustutekjur voru svip- aðar, borið saman viö sama tíma- bil síðasta árs. Veltufé frá rekstri var neikvætt um 23 m.kr. á tíma- bilinu en var jákvætt um 39 m.kr. árið áöur. Á árinu hefur fallið til umtals- verður kostnaður af þróun nýrra lausna fyrir SAP-hugbúnaðinn og kerfisleigu fyrir SAP sem hefur verið gjaldfærður, auk kostnaðar vegna þróunarstarfsemi í dótturfé- lögunum. Einnig féll til verulegur kostnaður vegna vinnu við SAP-til- boð í fjárhags- og mannauðskerfi fyrir ríkissjóð og stofnanir hans. Þriðji ársfjórðungur hefur á liðnum árum verið rýr í rekstri fé- lagsins og er þessi ársfjórðungur engin undantekning frá því. Rekstrartap var í júlí og ágúst en hagnaður í september. Á liðnum mánuðum hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til þess að bregð- ast við breyttu rekstrarumhverfi og lakari afkomu. Verkefnastaða næstu mánaða er ágæt og áætlað er að hagnaður verði af síðasta ársijórðungi. Tekj- ur félagsins af sölu á vörum og þjónustu eru áætlaðar nærri 4 milljörðum króna á yfirstandandi ári. Starfsemi Nýherja hf. felst í því að veita viöskiptavinum fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviöi upplýsingatækni. Nýherji býður vandaðan hugbúnað, tölvu- og skrifstofubúnað og trausta tækni- og rekstrarþjónustu. Hluta- bréf eru skráð á Verðbréfaþingi ís- lands. Stjórn félagsins skipa Bene- dikt Jóhannesson formaður, Árni Vilhjálmsson og Hilmar B. Bald- ursson. Forstjóri félagsins er Þórð- ur Sverrisson. Smáauglýsingar 550 5000 Ertu að selja bílinn? Viltu birta mynd? • komdu með bílinn og láttu okkur taka myndina •eða sendu okkur mynd á jpg formati á dvaugl@ff.is Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI*.ÍS Viðræður Baugs við Arcadia halda áfram Baugur hefur staðfest að félagið hafi sent stjórn Arcadia kynningartil- boð sem gæti leitt til þess að tilboð yrði gert í öll útistandandi hlutabréf í Arcadia. í þessu kynningartilboði, sem með- al annars er háð stuðningi stjórnar Arcadia, áreiðanleikakönnun og fjár- mögnun, var nefnt verð á bilinu 280 pence til 300 pence á hvem hlut í Arcadia. Slíkt tilboð væri 28 til 37 prósent hærra en lokaverð Arcadia þann 24. október 2001, daginn áður en fréttatilkynning Arcadia var send út, en þá var verðið 218.75 pence á hvem hlut, segir í tilkynningu frá Baugi. Viðræður félaganna eru enn þá á frumstigi og ekki er víst að þær leiði til þess að formlegt tilboð verði gert. í tilkynningu frá Baugi segir að ffekari upplýsingar verði gefnar um leið og ástæða þyki til. • • Ossur gerir upp í dollurum Ákveðið hefur verið að frá 1. janú- ar 2002 verði upplýsingakerfi össurar hf. og uppgjör í Bandaríkjadollurum. Jafnframt hefur verið ákveðið að at- huga með að skipta út hlutabréfum félagsins fyrir hlutabréf í Bandaríkja- dollurum á næsta ári. í frétt frá Össuri hf. er tekið fram að þessar breytingar séu með fyrir- vara um að þær verði mögulegar samkvæmt lögum en eins og kunnugt er hefur ríkisstjómin lagt fram laga- frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að íslenskum fyrirtækjum verði heimilt að gera upp í erlendri mynt. Ástæður fyrirhugaðra breytinga hjá össuri hf. em að þess er vænst að hin nýja tilhögun auðveldi félaginu að ná framtíðarmarkmiðum sínum um vöxt þar sem breytingin ryður úr vegi hluta þeirra hindrana sem era á að ná til fjárfesta utan íslands. Goodwin segir af sér James Goodwin, forstjóri banda- ríska flugfélagsins United Airlines, sagði af sér um helgina eftir harða gagnrýni i fjölmiðlum og víðar í kjöl- far þess að bréf, sem hann ritaði til starfsmanna félagsins, þar sem hann sagði að flugfélagið kynni að verða gjaldrota í kjölfar hryðjuverka- árásanna 11. september sl., var birt op- inberlega. Höfðu tvö stéttarfélög starfs- manna flugfélagsins krafist afsagnar Goodwins en þau sökuðu hann um að valda viðskiptavinum og starfsmönn- um félagsins óþarfa ótta. Héldu þau fram að með ummælum sínum hefði hann verið að leitast við að fá starfsmenn til að sætta sig við launa- lækkun, sem og að bæta samningsstöðu United Airlines í við- ræðum við bandarisk stjómvöld um frekari ríkisstyrki. Stjóm félagsins samþykkti að ráða John W. Creighton til að leysa Goodwin af hólmi en Creighton tók sæti í framkvæmda- stjóm félagsins árið 1998. Með upp- sögninni lauk 34 ára starfsferli Good- wins hjá United Airlines. ÞRIDJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 I>V HEILDARVIÐSKIPTI 1.882 m.kr. - Hlutabréf 676 m.kr. j - Húsbréf 498 m.kr. MESTU VIÐSKIPTi 3 íslenskir aðalverktakar 234 m.kr. © Delta 203 m.kr. © Össur 56 m.kr. MESTA HÆKKUN © Össur 3,2% i ©Íslandssími 1,7% © Landsbankinn 1,0% MESTA LÆKKUN © Flugleiöir 8,6% © Opin kerfi 6,5% © Jarðboranir 3,4% ÚRVALSVÍSITALAN 1.097 stig - Breyting O -0,20% Efnahagur Norðurland- anna stöðugur Fjármála- og efnahagsráð- herrar Norður- landa segja stöð- ugleika vera áfram ríkjandi í efnahagsþróun landanna þrátt fyrir hryðjuverka- árásina 11. september sl. en þetta kom fram á sameiginlegum blaða- mannafundi ráðherranna í Kaup- mannahöfn i gær. Sögðu þeir jafn- fram að hagvöxtur yrði nokkru minni en áður var búist við en áfram verði afgangur af ríkisbúskap allra landanna. Samkvæmt spám sem gerðar hafa verið eftir hryðjuverkaárásina i Bandaríkjunum er búist við 1-1,5% hagvexti í Noregi á þessu og næsta ári og í Danmörku er búist við því að vöxturinn verði 1,2% á þessu ári og 1,7% á næsta ári. Samsvarandi tölur komu ekki fram fyrir Svíþjóð og Finnland á blaðamannafundin- um en ráðherrarnir sögðu allir að hryðjuverkaárásin myndi ekki valda verulegum breytingum á hag- vaxtarspám enda heföu merki efn- hagslægðarinnar verið orðin skýr löngu fyrir hana. Tveggja ára efna- hagskreppa fram undan í Japan Japan gæti átt fyrir höndum sér verstu efna- hagskreppu síð- an eignabólan sprakk fyrir áratug ef að spár japanska seðla- bankans ganga eftir. Iðnaðarfram- leiðsla dróst saman um 2,9% milli ágúst- og septembermánaðar sem er það lægsta síðan í janúar 1994. Sam- drátturinn á einu ári nemur 12,7% sem er sá mesti síðan í maí 1975. Seðlabankinn segir að hagkerfið muni dragast saman um 1,2% á reikningsárinu sem endar 31. mars og að samdrátturinn verði 1,1% á næsta ári. 30.10.2001 M. 9.15 KAUP SALA HISDollar 103,760 104,290 fesSpund 150,890 151,660 1*1 Kan. dollar 65,800 66,210 CBIPönsk kr. 12,6070 12,6760 EHNorsk kr 11,7490 11,8140 KSsænsk kr. 9,7980 9,8520 tfc^FI. mark 15,7723 15,8671 UÍFra. franki 14,2964 14,3823 1 liBelg. franki 2,3247 2,3387 U Sviss. franki 63,7000 64,0500 QhoII. gyiiinj 42,5546 42,8103 ^Þýskt mark 47,9479 48,2360 U.it. líra 0,04843 0,04872 ^QAust. sch. 6,8151 6,8561 JPort. escudo 0.4678 0,4706 ^Spá. peseti 0,5636 0,5670 [•Jjap. yen 0,85100 0,85610 i : lirskt pund 119,073 119,788 SDR 132,5000 133,3000 Hecu 93,7779 94,3414

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.