Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Blaðsíða 24
28
> íltflllilll
Bandaríski herinn með puttana í tölvuleikjaframleiðslu:
’ Tölvuleikir fyrir þjálfun hermanna
Leikurinn Real War var framleiddur fyrir bandaríska varnarmálaráöuneytiö til þjálfunar á hermönnum. Hann er nú
kominn á almennan markaö einnig og hefur fengiö misjafna dóma hjá leikjafíklum.
Bandaríski her-
inn hefur hafið
samstarf við há-
skólann í Suður-
Kaliforníu auk
kvikmynda- og
leikjafram-
leiðslufyrirtækja í Hollywood um að
hanna tölvuleiki. Markmið leikja
þeirra sem framleiddir verða í þessu
samstarfi er að þjálfa upprennandi yf-
, irmenn í hernum í stjórn á herdeild-
um, bæði i átökum og friði.
ICT-stofnunin, Institute for
Creative Technologies, sem er sameig-
inlega rekin af háskólanum i Suður-
Kaliforníu og bandaríska hernum,
hefur yfirumsjón með þróunarvinnu
og framleiðslu á leikjum fyrir herinn,
sem fjármagnar einnig allt batteríið.
Nú þegar hefur ICT gert samninga við
tvö fyrirtæki um framleiðslu á tveim
leikjum. Annars vegar verður leikur-
inn C-Force framleiddur í samstarfi
við FCS, sem er samstarfsvettvangur
Samstarf á borð við
^ þetta er ekki alveg
nýtt af nálinní.
Síðastliðinn mánudag
kom út almenningsút-
gáfa afleiknum Real
War sem upphaflega
var framleiddur fyrir
varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna.
Sony Pictures ImageWorks og leikja-
fyrirtækisins Pandemic Studios, og
hins vegar CS-12, í samvinnu við
leikjafyrirtækið Quicksilver Software.
Báðir leikirnir ganga út það að
stjórna hópum hermanna. ICS-12 taka
upprennandi yfirmenn að sér að
stjórna heilli herdeild á meðan C-
Force gengur út á að stjórna minni
einingum, svo sem fyrir könnunar-
leiðangra. Richard Lindheim, fram-
kvæmdastjóri ICT, segir að meðal
þess sem spilarar muni þjálfast í er
skipulagning á mannskap og dreifing
upplýsinga. CS-12 verður gerður fyrir
heimilistölvur á meðan C-Force er
ætlaður á annarrar kynslóðar leikja-
tölvur, eins og Playstation 2. Sam-
kvæmt áætlunum eiga leikirnir tveir
að koma út á næstu tveim árum.
Samstarf á borð við þetta er ekki al-
veg nýtt af nálinni. Síðastliðinn
mánudag kom út almenningsútgáfa af
leiknum Real War sem upphaílega var
framleiddur fyrir varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna. Bandaríski her-
inn samþykkti útgáfu leiksins. Hann
gengur út á að þjáifa hermenn í hern-
aðaraðgerðum margra herdeilda í
einu, auk þess sem spilararnir geta
tekið þátt í beinum átökum sem á ein-
hvern einkennilegan hátt eru staðsett
í Miðausturlöndum.
S'úlJ'u
Jajjfir
Kynningarfulitrúi japanska fyrirtækisins Omuron sýnir hér nýjustu afurö fyr-
irtækisins. Þaö er vélkötturinn NeCoRo. Kötturinn er gæddur gervigreind og
getur haft takmörkuö samskipti viö eiganda sinn meö mjálmi og hreyfingum.
v Kötturinn er kominn i búöir í Japan og er falur á litiar 160.000 ísienskar krón-
ur.
Pillan vond fýrir
tilhugalífið
Niðurstöður
rannsóknar sem
birtist í tímarit-
inu Human
Reproduction
sýna að getnað-
arvamarpillur
geta haft neikvæð áhrif á hæfileika
kvenna til að „þefa uppi“ hentugan
bólfélaga. Það hefur lengi verið talið
að þefskyn spili hlutverk í að laða
kynin hvort að öðru. í rannsókninni
var mældur hæfileiki kvenna sem
ekki voru á pillunni til að finna
lykt. Sá hæfileiki reyndist sveiílast
til eftir hvar í tíðahringnum kon-
urnar voru staddar. Lyktarskyn
kvenna var samkvæmt þessari
rannsókn, og öðrum, næmast á
þeim tíma þegar egglos átti sér stað,
tíminn sem konur eru frjóastar.
Þegar þefvísi kvenna sem notuðu
getnaðarvarnarpillur var mæld
reyndist lítill munur vera á hversu
næmt lyktarskyn þeirra var frá degi
til dags. Hóparnir tveir voru svo
bornir saman. Lyktarskyn þeirra
sem voru á pillunni reyndist álíka
næmt og lyktarskyn þeirra sem
ekki tóku pilluna var rétt fyrir
blæðingar. Rannsóknin var fram-
kvæmd af Catania-háskólanum á
Ítalíu og sagði dr. Salvatore Caruso,
sem stjórnaði rannsókninni, að
fleiri rannsóknir þyrfti að gera á
þessu máli. T.d. væri ekki enn vitað
hvort sjálf kynhvöt kvenna breyttist
þegar þær byrjuðu á pillunni.
Þefskyn hefur lengi veriö taiiö tengjast kynhvötinni og svo viröist sem pill-
an hafi áhrif virkni þess.
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001
Stafræn afslöppun
Nú standa yfir
rannsóknir við
tækniháskól-
ann banda-
ríska, Georgia
Tech, um hvernig hægt sé að
nýta sýndarveruleika til að
hjálpa fólki við að slappa af í
stressi vestrænnar efnishyggju.
Tilraunir ganga út á það að
fólk er látið setja upp hefð-
bundinn sýndarveruleika-höf-
uðbúnað og getur horft þar á
sólarupprás og aðrar róandi
senur úr náttúrunni með hljóð-
um. Tilraunirnar hafa tekist
vel.
Afslöppun sem þessi er hugs-
uð fyrir fólk sem á annaðhvort
erfitt með að einbeita sér við
hefðbundnar slökunaraðferðir,
eins og jóga og hugleiðslu, eða
hefur hreinlega ekki tíma til að
róa sig niður sjálft fyrir vel
heppnaða hugleiðslu.
Pungun meö klónun
ítalski læknir-
inn Severino
Antinori segir
það vera raun-
hæfan mögu-
leika að honum takist að
þunga konu með klónunar-
tækni á næstu 12 mánuðum.
Antinori er umdeildur á meðal
lækna og annarra vísinda-
manna. Hann berst fyrir að
klónunartækni sé notuð til að
hjálpa hjónum sem ekki geta
eignast barn með eðlilegum
leiðum eða gervifrjóvgun.
Antinori segir það sitt starf að
aðstoða slikt fólk og vill heyra
sterkari rök gegn klónun
manna. Sérfræðingar í klónun
á dýrum segja að þau klónuðu
dýr sem lifi eigi oftar en ekki
við ýmsa kvilla að stríða og
klónunartækni sé langt í frá
nægilega fullkomnuð til að það
réttlæti klónun manna. Auk
þess fylgja klónun manna
margar siðferðilegar spurning-
ar sem ósvarað er.
Ómeðvitaður lærdómur
Svo virðist sem
fólk geti lært án
vitundar um
það samkvæmt
niðurstöðum
rannsóknar ,sem gerð var í
Boston-háskólanum. Sjálfboða-
liðar voru látnir horfa á bókstafi
á skjá og nefna þá upphátt. Á
meðan fóru litlir blettir um skjá-
inn, að því er virtist í tilviljana-
kenndar áttir. Hins vegar fór
einn af hverjum tuttugu í sömu
áttina. Sömu sjálfboðaliðar voru
síðan beðnir að taka eftir blett-
um sem fóru í sömu áttina.
Þeim gekk mun betur en þeim
sem höfðu ekki tekið þátt í fyrri
rannsókninni. Niðurstöður
rannsóknarinnar eru sagðar
benda til hæfileika mannsheil-
ans til að aðlaga sig umhverfinu
og taka eftir á stigi undirmeðvit-
undarinnar. Þeir sem fram-
kvæmdu rannsóknina segja að
þessi hæfileiki hafi hjálpað
manninum til að aðlagast um-
hverfi sínu á fyrri stigum þró-
unar mannkyns.
i'JÚlli
'Jí-
ffibui
...