Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Blaðsíða 25
29 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 nx*a tölvu-i t*kní og vísinda Rannsóknir á miltisbrandi ganga vel: Mikilvægar upp- götvanir á eitur- efni bakteríunnar - enn er þó langt í framleiðslu öflugari lyfja Niðurstöður tveggja nýrra rannsókna hafa aukið vonir vís- indamanna um að hægt verði að búa til lyf gegn miltisbrandssýkingum. Miltis- brandsbakterían, Bacillus anthracis, sest að í líkamanum og byrjar að gefa frá sér eiturefni sem síðan valda dauða þess sem sýkist. Góðar líkur eru á að bjarga sýktum með sýklalyfjum nema þegar sýking verður við innöndun. Bakteríurnar geta verið faldar í lungunum í vik- ur eða mánuði án þess að einkenni sjáist. Á meðan gefa þær frá sér eit- urefni sem fer út blóðið og veldur síðar meir dauða. Jafnvel þótt bakt- erían sé drepin með lyflagjöf eftir innöndunarsýkingu er oft nógu mikið komið af eiturefninu i blóðið til að valda dauða. Hópur vísindamanna við Wisconsin-háskólann og læknaskól- ana í Madison og Harvard hefur nú komist að því hvernig þetta eitur- efni drepur. Efnið er samsett úr þrem meginhlutum. Tveir hlutar þess skammstafast EF og LF og sjá um að drepa heilbrigðar frumur þess sem sýkist. Ein og sér geta þau ekki komist í frumur og þar kemur þriðji hlutinn sem skammstafast PA. PA'binst efnaviðtökum á yfir- borði frumna og opnar þar með leið- ina fyrir EF og LF. Vonir eru bundnar við að hægt verði að útbúa lyf sem kæmi í veg fyrir að PA gæti bundist efnaviðtök- unum. Talsmaður vísindamann- anna segir að þótt skrefið sé stórt þá sé ekki að vænta árangurs í fram- leiðslu virks lyfs á næstunni, allavega ekki næsta árinu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að út- búa lyf sem kæmi í veg fyrir að PA gæti bundist efnaviðtökun- um. Talsmaður vís- indamannanna segir að þött skrefið sé stórt þá sé ekki að vænta árangurs í framleiðslu virks lyfs á næstunni, allavega ekki næsia árinu. Annar hópur vísindamanna hjá Burnham-stofnuninni í Kaliforníu- Miltisbrandsbakterían dælir eiturefni út í líkama þess sem sýkst hefur og er það eiturefniö sem veldur dauða hins sjúka. ríki í Bandaríkjunum kynnti einnig niðurstöður sinna rannsókna á miltisbrandi. Þeim hefur tekist að búa til þrivítt módel af LF-hluta eit- urefnisins sem miltisbrandsbakterí- an gefur frá sér. Með því að búa til þrívítt módel geta vísindamenn rannsakað hvernig það vinnur. Vit- að er að LF binst við eitt sérstakt efni í frumu sýktra sem sér um að koma skilaboðum áfram til ónæmis- kerfisins um að alvarleg sýking hafi átt sér stað. Með rannsóknum á virkni þess geta vísindamenn fund- ið sameindir sem gætu komið i veg fyrir slíka bindingu. Talsmaður þessarar rannsóknar eins og hinnar varar við of mikilli bjartsýni og segir lyf ekki vera væntanleg næsta árið. Jafnvel ekki næstu tvö árin þrátt fyrir aukna áherslu á rannsóknir vegna þeirra miltisbrandsmála sem nú eru að koma upp í Bandaríkjunum og víð- ar. Hér gefur að líta nýja gerö pillu sem notuð er til að mynda þau svæöi melt- ingarvegar fólks sem ekki er hægt að ná með venjulegri speglun. Hylkið inniheldur litla upptökuvél, Ijós, sendi, loftnet og rafhlöðu. Þaö er gleypt og tekur lítil tölva sem strengd er meö belti yfir kvið sjúklinga við upplýsingum sem hylkið sendir frá sér. Hylkiö getur tekiö upp í sjö klukkutíma og er helsta hlutverk þess aö leita að blæöingum í görnum. Tæknin sem notuö er viö smiði hylkisins er komiö frá ísraelska hernum og geimferöastofnun Bandaríkjanna, NASA. Örbylgjur gætu nýst viö að leysa upp óeiröir á skaðlausan hátt fyrir óeirðarseggi en efasemdaraddir heyrast. Orbylgjur leysa upp óeirðir * Bandaríski flug- herinn vill nú hefla notkun á nýju vopni til að leysa upp óeirð- ir. Vopnið er diskur, svipaður gervihnattadisk- um, tveir metrar í þvermál. Úr hon- um er skotið mjóum örbylgjugeisla sem hitar upp skinn ólátabelgja og er hægt að láta hann renna yfir hóp fólks eða jafnvel beina honum að einstaka fólki. Hægt er að nota vopnið úr þónokkurri fjarlægð og jafnvel hægt að „skjóta“ því frá flug- vél í lítilli hæð. Tilraunum með vopnið lauk fyrir stuttu og segir flugherinn að vopnið sé alveg skaðlaust fyrir fólk. Sam- kvæmt upplýsingum flughersins ná örbylgjumar aðeins 0,3 millímetra inn i húðina. Þær snögghita þetta þunna húðlag upp í 50° á einni sek- úndu, sem er ofan við sársauka- þröskuldinn, 45°. Tilraunir á mönn- um hafa sýnt að þetta hitastig og þessi tími sé nægur til að fá fólk til að víkja frá örbylgjugeislanum. Til- finningin er sögð svipuð og að snerta heita ljósaperu. Gagnrýnisraddir hafa heyrst vegna nýja vopnsins. Flugherinn heldur því fram að til að brenna vegna örbylgjanna þurfi fólk að standa í geislanum í 250 sekúndur. Sumir halda því þó fram að styrkur örbylgjanna sé of hár, þar sem hita þurfi skinnið upp í 50° á aðeins einni mínútu. Sérstaklega eru áhyggjur af að örbylgjurnar geti skaðað hornhimnu í augum fólks og þannig skaðað sjón þess. Rannsókn- ir á rhesus-öpum sýndu að örbylgj- ur í 2 vatta styrk á fersentímetra Vopnið er diskur, svip- aður gervihnattadisk- um, tveirmetrarí þvermál. Úr honum er skotið mjóum ör- bylgjugeisla sem hiiar upp skinn ólátabelgja og er hægt að iáta m hann renna yfir hóp fólks eða jafnvel beina honum að einstaka fólki. skemmdu hornhimnu þeirra. Leyfi- leg mörk á skinn manna er 10 vött á*~ fersentímetra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.