Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Blaðsíða 26
30
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001
Tilvera DV
Levine tekur við
sprotanum í Boston
Hljómsveitarstjórinn, James
Levine, aðstoðarstjórnandi New York
Metropolitanóperunnar, var á sunnu-
daginn tilnefndur nýr aðalhljómsveit-
arstjóri Boston-sinfóníunnar og er
talið að hann muni taka við sprotan-
um fyrir tímabilið 2003 til 2004.
Levine, sem nýlega framlengdi samn-
ing sinn við Metropolitan út árið 2008,
verður þar með fyrsti Bandaríkjamað-
urinn sem ráðinn er í stöðu aðal-
hljómsveitarstjóra hjá Boston-sinfóní-
unni í 120 ára sögu sveitarinnar og
tekur þar við af Seiji Ozawa sem hald-
ið hefur um sprotann síðustu 28 árin.
Ozawa er á fórum til Vínarborgar þar
sem hann mun taka við stjómun rík-
isóperunnar næsta haust.
Quaid fær gamla
kærustu Burtons
í Hollywood skiptast menn á
kærustum eins og íslenskir guttar
skiptust á hasarblöðum í þrjúbíói hér
í den. Texasguttinn Dennis Quaid,
sem missti eiginkonuna til skylminga-
þræls, hefur nú tekið við Lisu Marie,
kærustu leikstjórans Tims Burtons.
Lisa Marie fékk reisupassann um dag-
inn þegar Burton tók upp ástarsam-
band við hina bresku Helenu Bonham
m- Carter, sem lét í Ápaplánetumynd
Burtons. Dennis og Lisa Marie fóru
saman út að borða í síðustu viku og
fengu borð afsíðis þar sem þau gátu
fengið að vera í sæmilegum friði við
að reykja og spjalla. Eins og við mátti
búast segir fulltrúi Lisu að þau sé nú
bara vinir og ekkert meira.
Paul McCartney í
fótspor Jaggers
Bítillinn Paul McCartney mun feta
í fótspor Rollingsins Mick Jaggers í
opinskáu viðtali í næsta hefti Saga
tímaritsins sem höfðar til eldri les-
enda. Viðtal við Jagger var birt í sept-
•> emberútgáfu tímaritsins og varð Jag-
ger æfur eftir birtinguna og sagðist
hafa verið ginntur. Paul, sem er 59
ára, ræðir í viðtalinu um rómantíkina
og samband sitt við kærustuna
Heather Mills, auk þess sem hann not-
ar tækifærið til að ræða nýjasta disk
sinn, Driving Rain, þann fyrsta í heil
fjögur ár. Paul lýsir honum sem fersk-
um og hráum og stútfullum af róman-
tik.
Minningarskákmótið í Ráðhúsinu:
Línur eru farnar að skýrast
Línur eru aðeins famar að skýr-
ast á minningarmótinu, núna þeg-
ar það er hálfnað. Það er líklegt að
þeir Sokolov, Ehlvest og Timman
komi til með að berjast um sigur-
inn. Þó eru eftir 5 umferðir og
fleiri gætu farið á gott skrið, t.d.
Hannes Hlífar sem hefur teflt ágæt-
lega á mótinu, en ekki náð enn þá
að landa hákörlunum. Ivan
Sokolov er efstur eftir sigur á Lars
Schandorff með 4í2vinning. Jaan
Ehlvest og Jan Timman eru í 2.-3.
sæti með 4 vinninga.
Hannes Hlifar Stefánsson og
Amar E. Gunnarsson eru i 4.-10.
sæti með 3,5 vinninga á minning-
armótinu um Jóhann Þóri Jónsson
sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykja-
víkur. Hannes gerði jafntefli við
Peter Heine Nielsen í 5. umferð
sem fram fór í dag. Arnar lagði
sjálfan Friðrik Ólafsson og teflir
vel á mótinu. Annar áfangi að al-
þjóðlegum meistaratitli er í aug-
sýn. Annars saknar maður íslend-
inga í allra fremstu röð. Helgi
Ólafsson, Stefán Kristjánsson,
Ingvar Ásmundsson og Ingvar Þór
Jóhannesson eru meðal þeirra sem
era í 11.-16. sæti með 3 vinninga.
Dagur Amgrímsson þurfti loks að
sætta sig við tap en hann tapaði
fyrir norska alþjóðlega meistaran-
Ivan Sokolov
Hefur forystu eftir fimm umferöir.
um Leif Erlend Johannessen. Guð- fyrsta sigur i kappskák i 35 ár þeg-
mundur Pálmason vann sinn ar hann hafði sigur gegn Lenku
Ptacnikovu og hefur nú 2,5 vinn-
inga en hann tefldi síðast á kapp-
skákmóti árið 1966! (Að vísu tefldi
hann á einu helgarmóti í Grímsey
1980 en þar var þó teflt heilt mót
um eina helgi, ekki ein skák á dag
eins og hér.)
Þeir Bragi Þorfinnsson og Ró-
bert Harðarson eru báðir nálægt
alþjóðlegum meistaratitli. Spurn-
ing hvernig til tekst núna, mögu-
leikinn er fyrir hendi fyrir báða.
Hvítt: Bragi Þorfinnsson
Svart: Róbert Harðarson
Benkö-bragð. Minningarmót Jó-
hanns Þóris Reykjavík (4),
27.10.2001
d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5
a6 5. b6 d6 6. Rc3 Rbd7 7. Rf3 g6
8. e4 Bg7 9. Be2 0-0 10. 0-0 Hb8
11. Rd2 Rxb6 12. a4 e6 13. a5 Ra8
14. Rc4 exd5 15. exd5 Rc7 16. Bf4
Rfe8 17. Re4 Rb5.
Svartur hefur náð þægilegri
stöðu og stendur aðeins betur.
Bragi fer út i vafasamar flækjur og
að þessi sinni ganga þær ekki upp.
Hvítur tapar manni. 18. Rxc5 g5!
19. Bg3 f5 20. Re6 Bxe6 21. dxe6
f4 22. Bh5 fxg3 23. Bf7+ Kh8 24.
fxg3 d5 25. Rb6 Rf6 26. Ha4 Rd6
27. De2 De7 28. Dxa6 Rxf7 29.
exf7 De3+ 30. Khl.
Nú kemur afskaplega óþægileg-
ur leikur (fyrir hvítt!) og afgangur
skákarinnar aðeins tæknilegt at-
riði! 30. -Re4! 31. Hxe4 Dxe4 32.
Rd7 Hxb2 33. Hgl Bd4 34. Dfl
Hf2 35. RxfB Hxfl 36. Hxfl Bg7
37. Rd7 De7 38. Í8D+ BxfB 39.
RxfB d4 40. a6 De2 41. Hbl Dxa6
42. Rd7 Dd6 43. Rb6 Dc6 44. h4
gxh4 45. gxh4 d3 0-1.
Heiðursmenn Sérstæður dans
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Guömund- Bambusstangadans frá Filippseyjum.
ur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjaröabyggö, og Albert
Eiriksson, framkvæmdastjóri hátíöarinnar.
Hjálpast að
Góður rómur var geröur aö frábærri matargerö,
hvort sem hún var frá íslandi, Færeyjum, Græn-
landi, Taílandi, Búlgaríu eöa Póllandi hins vegar.
Þúsund manna Þjóðahátíð á Austurlandi:
Þátttaka fór fram úr björtustu vonum
DV-MYNDIR: EG
Tælenskur dans
Aö öllum skemmtiatriöunum ólöstuðum vakti dans Taílendinganna mesta hrifningu enda meyjarnar einstaklega falleg-
ar og vel búnar.
Rauði kross íslands, ásamt fjöl-
mörgum Austflrðingum af 35 þjóð-
ernum, stóð fyrir fyrstu Þjóðahátíð
Austflrðinga síðastliðinn laugardag
og er hún haldin að fyrirmynd Þjóða-
hátíðar Vestfirðinga sem hefur verið
haldin nokkur undanfarin ár. Á ann-
að þúsund manns sóttu hátíðina og
er það mun meiri fjöldi en forsvars-
menn hennar gerðu sér vonir um.
Framkvæmdastjóri hátíðarinnar var
Albert Eiríksson á Fáskrúðsfirði. f
tilefni þessara tímamóta var geflð út
blaðið Þræðir sem er ritað á ís-
lensku, ensku og pólsku.
Þjóðahátíðin var haldin í Fjarða-
byggð, í íþróttahúsinu á Reyðar-
firði, og hófst með ávarpi forseta ís-
lands, herra Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Auk hans flutti í byrjun sam-
komunnar ávarp formaður Rauða
kross íslands. Kynnir á hátíðinni
var Smári Geirsson, forseti bæjar-
stjómar Fjarðabyggðar.
Meðal dagskráratriða var pólskur
kór, taílenskur dans, hörpuleikur,
kántrídans, filippeyskur dans,
Barnakór Egilsstaðaskóla og Sam-
kór Suðurfjarða og margt fleira má
upp telja. Á eftir skemmtidag-
skránni í iþróttahúsinu var kynn-
ing á þeim þjóðlöndum sem að há-
tíöinni stóðu. Þar leituðust þessir
nýju Austflrðingar við að kynna
land sitt og menningu með ýmsum
hætti, meðal annars með því að
bjóða gestum að smakka gómsæta
rétti. Eins og fyrr segir býr nú fólk
af 35 þjóðemum á Austurlandi. Af
þeim var kynning á 24 þeirra.
Svo mikil örtröð var við sum
veisluborðin að færri komust að en
vildu og var almennt gerður góður
rómur að frábærri matargerð, hvort
sem hún var frá íslandi, Færeyjum
eða Grænlandi annars vegar eða
Taílandi, Búlgaríu eða Póllandi
hins vegar. Fram kom í máli Al-
berts Eiríkssonar að stefnt væriað
slíkri hátíð árlega. Miðað við að-
sóknina að þessari fyrstu hátíð er
Ijóst að miklu stærra hús þarf til há-
tíðarinnar. -Eg