Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 27
31
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001__________________________________________________
13V Tilvera
Fagurlega skreytt
Þessi fyrirsæta var fagurlega skreytt
meö rósahúðflúri, skartgripum og
fleira glingri.
Röndótt og útvítt
Röndóttur og útvíður samfestingur
sem minnir óneitanlega á gamla
tíma.
Heitir kvöldkjólar
Meðal þess sem gaf að líta á tísku-
sýningu Fatima Lopes voru heitir
kvöldkjólar í sterkum litum.
Sumarkjóll með slaufu
Ljós sumarkjóll með slaufu frá fata-
hönnuðinum Jose Antonio Tenente.
Tískuvikan í Lissabon hafin:
Húðflúr, húfur og
hefðbundnar flíkur
Flegið fyrir karlmanninn
/ Lissabon mátti einnig sjá sumar-
flíkur fyrir karlmennina en þó er lík-
legt að sumir gætu talið þessa
peysu einum of flegna.
Flegnar karlmannapeysur, skrautleg rósahúð-
flúr, afalegar húfur og útvíðar flíkur voru með-
al þess sem gladdi augu gesta á hinum fljöl-
breytilegu tískusýningum sem haldnar hafa ver-
ið í höfuðborg Portúgals, Lissabon, undanfarna
daga. Þar vilja menn að sjálfsögðu leggja sitt til
málanna varðandi vor- og sumartískuna 2002 og
halda tískuviku eins og aðrar stórborgir
heims.
Þar eins og annars staðar hefur
fatnaðurinn verið margs konar
hjá þeim hönnuðum sem nú
þegar hafa kynnt linur sínar
en margir eiga þó eftir að
kynna sinn fatnað þvi
tískuvikunni lýkur ekki fyrr en í lok vikunnar.
í Lissabon hefur mátt sjá eitthvað fyrir bæði
kynin sem og hefðbundnar og óhefðbundnar
flíkur. Svo virðist sem rauði, hvíti og græni lit-
urinn verði nokkuð áberandi næsta sumar sem
og röndóttur og útvíður fatnaður. Að sjálfsögðu
verður svo nóg um kjóla, stuttbuxur og annan
efnislítinn fatnað eins og sést á þessum
myndum sem teknar voru um helgina í
Lissabon.
-MA
MYNDIR REUTERS
anda afa
Stuttbuxnadress og
húfa í anda afa frá
Paulo Cravo og Nuno
Baltazar.
Glitrandi gegnsætt
Dino Alves heitir
hönnuðurinn sem
hannaði þessa
glitrandi gegnsæju
flík.
Pokalegar buxur
Vægast sagt pokalegar buxur frá
Fatima Lopes.