Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Fréttir _______________ DV
ASÍ mjög óánægt með frammistöðu ríkisstjórnarinnar:
Ekkert nema upp-
sögn í spilunum
- OECD spáir 0,6% samdrætti á næsta ári
„Menn voru alveg sammála á fund-
unum um að það væri ekkert i spilun-
um annað en uppsögn samninga," seg-
ir Halldór Björnsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, en bæði fram-
kvæmdastjóm SGS og síðan um 30
manna hópur forustumanna ASÍ fund-
uðu um uppsögn kjarasamninga í gær.
Forustumenn ASl telja að verðbólgu-
forsendur kjarasamninga séu brostnar
og em ósáttir við að ríkisstjómin skuli
ekki gera eitthvað til að grípa í
taumana. Fátt ef nokkuð geti orðið til
þess að snúa þróuninni við þannig að
hlutimir verði komnir í lag
fyrir febrúar þegar endurkoð-
un á forsendunum fer fram og
færi gefst á að segja samning-
unum upp. Halldór segir að
þetta mál verði áfram rætt á
miðstjórnarfundi ASÍ í dag og
síðan sé ljóst að þann 10. des-
ember muni verða haldinn
formannafundur þar sem lín-
umar verði lagðar um fram-
haldið. Hann segir ASí vera „búna að
tala við þessa menn (ríkisstjómina) síð-
an í byrjun árs og ekkert kemur út úr
því. Ég hlýt að spyrja hvort
það sé yfirleitt einhver áhugi í
ríkisstjórninni fyrir því að
taka á þessu máli?“ segir Hall-
dór. Hann varpaði því fram að
ef stjómvöld væm lens og
hefðu ekkert fram að færa i
málinu vaknaði óhjákvæmi-
lega sú spuming hvort ekki
væri eðlilegt að ríkisstjómin
færi frá og hleypti nýjum og
hugmyndaríkari mönnum að.
OECD hefur birt kafla um íslensk
efnahagsmál þar sem spáð er 0,6%
samdrætti á næsta ári og þar er einnig
varað mjög við því að lækka vexti enn
frekar. í gær náði krónan enn einu
sögulegu lágmarki og fór vísitalan í
fyrsta sinn yflr 149 stig.
Aðspurður um hvort ekki kæmi til
greina að verkalýðshreyfmgin semdi
um einhver önnur form launaupbótar
til að mæta verðbólguþróuninni líkt og
gerðist árið 2000 þegar orlofs- og des-
embemppbót vora hækkuð til að
mæta launamisræmi sem upp hafði
komið taldi Halldór það ólíklegt því nú
væri staðan orðin mun erfiðari. -BG
Halldór
Björnsson.
Umræða utan dagskrár á Alþingi:
50% sjúkraliða
vinna við annað
- átak boðað í að fá sjúkraliða til starfa
. -______________________________________
Framkvæmdir á fullu í Hlíöarflalli
Framkvæmdir viö nýja skíöalyftu í Hlíöarfjalli viö Akureyri eru í fullum gangi
og í gær, þriöjudag, unnu menn viö þaö aö koma upþ grunnstykki fyrir drif-
stöö lyftunnar. Þetta er mikið verk enda um þunga hluti aö ræöa og var verk-
inu, sem upphaflega átti aö vinna á föstudag, frestaö vegna veöurs þar til í
gær. Stefnt er aö því aö lyftan veröi komin í gagniö upp úr miöjum desember
en eins og sjá má þarf aö fara aö huga aö snjódansinum ef hún á aö nýtast
sem skyidi á þeim tíma.
Flugleiðir:
Þriðjungs fækkun í Ameríkuflugi
Um 50% mennt-
aðra sjúkraliða í
landinu vinna
ekki við sjúkra-
liðastörf. Þetta
kom fram hjá heil-
brigðisráðherra,
Jóni Kristjáns-
syni, á Alþingi í
gær þar sem fram
fór umræða utan
dagskrár um verk-
fall sjúkraliða, en umræðan fór fram
að frumkvæði Margrétar Frímanns-
dóttur. Fram kom hjá ráðherra að fyr-
ir dymm stendur að gera átak í að fá
sjúkraliða til starfa og felst það m.a. í
kynningu og því að breyta skilgrein-
ingum á störfum sjúkraliðanna þannig
að þeir geti orðið ánægðari í starfi og
verksvið þeirra verði betur afmarkað.
Ríkisstjómin sætti nokkurri gagnrýni
af hálfu stjómarandstæðinga fyrir lág-
launastefnu gagnvart umönnunar- og
kvennastéttum og að vera þar með að
vinna gegn yfirlýstum eigin markmið-
um í jafnréttismálum. Ýmsar tillögur
komu fram um hvað brýnt væri að
gera og talaði Katrín Fjeldsted m.a. um
mikilvægi þess að sjúkraliðar gætu
bætt ofan á nám sitt frekara námi og
þannig aukið framgang sinn á vinnu-
stað og í launum. Guðmundur Ámi
Stefánsson sagði engan ágreining um
að staðan væri al-
varleg og að launa- j
kjör sjúkraliða j
væm bág. Hins j
vegar taldi hann
erfitt fyrir heil-
brigðisráðherra að
taka á málum
vegna þess að j
greinilegt væri að
samstarfsflokkur-
inn drægi lappim-
ar í málinu. Sjálfstæðismenn eru, að
mati Guðmundar Áma, að reyna að
veikja heilbrigðiskerfið innan frá j
þannig að hægt yrði að fara út í einka-
væðingu.
Drífa Hjartardóttir gerði grein fyrir
þeim ákvörðunmn sem liggja fyrir um
framtíðarmöguleika sjúkraliða á Land-
spítalanum en þar er verið að endur-
skilgreina starfssvið þeirra þannig að
ófaglært fólk er fengið til að vinna þau
störf sem ekki krefjast sérstakrar
menntunar en sjúkraliðar hins vegar
einbeita sér að þeim störfum sem era
við þeirra hæfi.
Margrét Frímannsdóttir taldi um-
ræðuna hafa verið gagnlega og undir-
strikaði hve mikilvægt og alvarlegt
málið væri með því að vitna til talna
um að skortur á sjúkraliðum væri víð-
ast hvar um landið á milli 75 og 80%
miðað við þörf. -BG
Farþegum í millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði um 20% í október í
samanburði viö sama tíma í fyrra.
Farþegar félagsins í október voru
95.106 en 199.253 í október árið
2000. Farþegum sem áttu erindi til
eða frá iandinu fækkaði um 10%
en þeim sem fljúga yfir N-Atlants-
hafið um ísland fækkaöi um tæp
30%.
Fyrstu 10 mánuði ársins hefur
farþegum Flugleiða fækkað um
2,3% í millilandaflugi. Fækkun far-
þega til og frá landinu er 1,4% og
3,3% fækkun farþega á leið um ís-
land yflr N-Atlantshafið. Sætanýt-
ing á tímabilinu hefur versnað um
0,6%, sætaframboð er 1,5% minna
og sala farmiða hefur minnkað um
2,4%. -aþ
Jón
Kristjánsson.
Margrét
Frímannsdóttir.
Bakkavör Group kaupir matvælaframleiðandann Katsouris Fresh Food Ltd.:
Gæti mettað alla íslendinga
- stærstu fyrirtækjaviðskipti íslandssögunnar
Bakkavör Group kaupir Katsouris Fresh Food Ltd.
Stofnendur og aöaleigendur fýrirtækisins, Ágúst og Lýöur Guömyndssynir,
kynntu kaupin á blaðamannafundi á Hótel Sögu í gær.
Bakkavör Group hf. hefur undirrit-
að kaupsamning við eigendur breska
matvælaframleiðslufyrirtækisins
Katsouris Fresh Foods Ltd. (KFF). Er
þar um að ræða stærsta kaupsamning
sem gerður hefur verið í íslensku við-
skiptalífi fyrr og síðar. Verður Bakka-
vör Group nú eitt af stærstu fyrir-
tækjum á íslandi. Sem dæmi um
stærð og umfang KFF þá gæti fram-
leiðslulína þess hæglega annað
matseld á málsverði fyrir alla íslend-
inga á einu bretti.
Áætluð velta sameinaðs félags fyr-
ir árið 2002 er um 20 milljarðar króna
og starfsmenn verða um 1900 talsins.
Mun Bakkavör Group greiða fyrir
KFF 101,8 milljónir punda eða sem
nemur 15,6 miiljörðum króna. Fram-
leiðir fyrirtækið fyrst og fremst kæld-
ar hágæða-matvörar m.a. í formi til-
búinna rétta sem seldir eru í kæli-
borðum stórmarkaðanna. Er varan
þá framleidd undir merkjum stór-
markaðanna sjálfra. Framleiðir fyrir-
tækið á degi hverjum 110 þúsund ein-
ingar slíkra rétta sem hver um sig
getur siðan t.d. verið ætluð tveim til
fjórum einstaklingum. Því myndi fyr-
irtækið hæglega anna einum dagleg-
um málsverði fyrir alla íslensku þjóð-
ina.
Þrír breskir bankar munu fjár-
magna um helming kaupverðsins,
auk þess sem fyrri eigendur KFF
munu fá hluta kaupverðsins greiddan
í formi hlutabréfa í Bakkavör Group,
að upphæð um 1.800 milljónir króna.
Er það jafnframt stærsti eignarhlutur
útlendinga sem skráður hefur verið í
íslensku fyrirtæki á Verðbréfaþingi
íslands. Bresku bankarnir munu
veita vilyrði fyrir lánum upp á rúma
12,3 milljarða króna sem m.a. verða
nýttir tÚ endurijármögnunar eldri
lána samsteypunnar.
Bakkavör hf. var upphaflega stofn-
uð 1. ágúst 1986 í litlum bilskúr í
Keflavík af Ágústi og Lýð Guðmunds-
sonum. Þeir eru enn stærstir eigenda.
í kjölfar aukinna umsvifa félagsins
erlendis var ákveðið að stofna nýtt fé-
lag utan um starfsemina á íslandi.
Nafni móðurfélagsins var breytt þann
1. janúar 2000 í Bakkavör Group og
nýja félagið fékk nafnið Bakkavör Is-
land hf. Fyrirtækið á nú mörg öflug
dótturfélög víða um lönd. -HKr.
Akureyringar á móti
Valgerður Sverr-
isdóttir, viðskipta-
og iðnaðarráðherra,
segir að viðhorf
stjórnarformanns
Norðurorku til
sameiningar
RARIK og Norður-
orku komi sér mjög
á óvart. Hún segir að viðræður um
sameinigu fyrirtækjanna gangi
samkvæmt áætlun. Meirihlutinn í
bæjarstjórn Akureyrar hafi hins
vegar ekki sýnt sameiningunni mik-
inn áhuga að undanfórnu. - RÚV
greindi frá.
Byggðastofnun kanni áhrif
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur
óskað eftir því við Byggðastofnun
að hún geri úttekt á því hver áhrif
breyting á ýsu-, ufsa- og stein-
bítsveiðiheimildum hafi á atvinnu-
líf í Vestmannaeyjum verði frum-
varp sjávarútvegsráðherra þar um
samþykkt á Alþingi. - Mbl. greindi
frá.
Tap OZ minnkar
Bókfærðar tekjur OZ-samstæð-
unnar fyrstu níu mánuði ársins
námu 10,3 milljónum Bandaríkja-
dollara. Er tekjuaukningin að með-
töldum frestuðum tekjum þvi 95,1%.
Tap af reglulegri starfsemi
(EBITDA) var 2,6 milljónir USD. Að
frádregnum áhrifum dótturfélaga,
afskriftum og fjármagnskostnaði er
það 56,2% minna tap en á sama tíma
í fyrra.
Nýtt kortatímabil
Ákveðið hefur verið að nýtt
greiðslukortatímabil hefjist laugar-
daginn 8. desember. Gildir það um
allar verslanir sem eru með samn-
inga við Visa og Eurocard. Er þetta
gert vegna sameiginlegrar óskar
Samtaka verslunar og þjónustu,
Þróunarfélags miðborgarinnar,
Kringlunnar og Smáralindar.
Þannig nást þrjár verslunarhelgar í
stað tveggja fyrir jól.
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra sat fund
dómsmála- og inn-
anrikisráðherra
ESB í Brussel í gær.
Komu þá saman til
fundar um friðar-
gæslu utanríkisráð-
herrar, varnarmálaráðherrar og
dómsmála- og innanríkisráðherrar
Evrópusambandsins, evrópskra
NATO-ríkja utan ESB og umsóknar-
ríkja um aðild að ESB. Markmiðið
er að koma upp 60 þúsund manna
hraðliði samtakanna.
Hraðlið ESB
Útlendingar fjölmennir
Erlendir ríkisborgarar, sem flutt
hafa hingað til lands síðustu 4 ár,
hafa ráðist í fjórða hvert nýtt starf
sem til hefur orðið. Innflytjendur
koma hingað fyrst og fremst til að
vinna og er atvinnuþátttaka þeirra
yfir 90%. Erlendir ríkisborgarar eru
rúmlega 3% landsmanna eða tæp-
lega 9000. - RÚV greindi frá.
-HKr.
Haldið til haga
í frétt DV sl.
mánudag var því
haldið fram að ís-
lensk erfðagreining
hafi gert þrotabúi
Genealogia Island-
orum tilboð í erfða-
fræðigrunn fyrir-
tækisins. Þetta er
rangt að sögn Páls Magnússonar,
framkvæmdastjóra samskipta- og
upplýsingasviðs ÍE. Þvert á móti
hafl grunnurinn verið sérstaklega
undanskilinn í tilboði sem ÍE gerði
í aðrar eigur þrotabúsins.