Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Viðskipti____________________________________________________________________________________________________________PV
Umsjón: Viðskiptablaðiö
Bakkavör Group hf. kaupir Katsouris Fresh Foods Ltd. fyrir 15,6 milljarða króna:
Stærstu fyrirtækjakaup í
íslenskri viðskiptasögu
- taka lán upp á 12,3 milljarða
Bakkavör Group hf. hefur undir-
ritað kaupsamning við eigendur
breska matvælaframleiðslufyrir-
tækisins Katsouris Fresh Foods Ltd.
(KFF). Með kaupunum verður
Bakkavör Group eitt af stærstu fyr-
irtækjum á íslandi, hvort sem mælt
er I hagnaði, veltu eða starfsmanna-
fjölda. Áætluð velta sameinaðs fé-
lags fyrir árið 2002 er um 20 millj-
arðar króna og starfsmenn verða
um 1900 talsins. Bakkavör Group
mun greiða fyrir KFF 101,8 milljón-
ir punda eða sem nemur 15,6 millj-
örðum króna. Þrír breskir bankar
munu fjármagna um helming kaup-
verðsins, auk þess sem fyrri eigend-
ur KFF munu fá hluta kaupverðsins
greiddan í formi hlutabréfa í Bakka-
vör Group sem þýðir það að þetta er
ein stærsta fjárfesting erlendra að-
ila í íslensku félagi. Þessi kaup eru
stærstu fyrirtækjakaup í íslenskri
viðskiptasögu segir í tilkynningu
frá Bakkavör, en greint var frá
þessu í Viðskiptablaðinu í morgun.
KFF, sem er í Wembley í London,
framleiðir einungis kældar tilbúnar
matvörur. Meginhluti framleiðsl-
unnar er tilbúnir réttir (e. Ready
Meals), smáréttir (Snacks), ýmiss
konar meðlæti og ferskar ídýfur. Á
degi hverjum framleiða 1593 starfs-
menn KFF yfir 110 þúsund ferska
tilbúna rétti, um 30 þúsund eining-
ar af smáréttum og rúmlega 150 þús-
und einingar af ferskum ídýfum
sem seldar eru í Tesco og Marks &
Spencer og öðrum breskum mat-
vöruverslunarkeðjum.
Með kaupum sínum hefur Bakka-
vör haslað sér enn frekar völl á
þeim hluta breska matvælamarkað-
arins sem vex hvað hraðast um
þessar mundir en fyrir á Bakkavör
Group dótturfélagið Bakkavör
Birmingham Ltd. sem framleiðir
ferskar salatsósur (Salad-Dressing)
fyrir Bretlandsmarkað. Kaupin á
KFF eru í samræmi við yfirlýsta
stefnu Bakkavarar Group að stækka
með fyrirtækjakaupum og bæta við
vörulínu félagsins í kældum tilbún-
um matvörum. Samhliða kaupun-
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir verða boönar
upp við lögreglustöðina á Húsa-
vík fimmtudaginn 29. nóvember
2001 kl. 1400:
JK-960 PT-962 YK-988___
GREIÐSLA VIÐ HAMARSHÖGG.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir og dráttarvél
verða boðnar upp við lögreglu-
stöðina á Þórshöfn föstudaginn
30. nóvember 2001 kl. 14.00:
FY-502 KR-309 X3177
GREIÐSLA VIÐ HAMARSHÖGG.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boðnir
upp við lögreglustöðina á Þórs-
höfn föstudaginn 30. nóvember
2001 kl. 14.00:
Bellon D6L, sláttuvél, árg. 1997, serialnr.
980162,
GREIÐSLA VIÐ HAMARSHÖGG.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
BakkavÖR
Stntsiot.n 8rcki>aí5tig 22
| MotUtei tri Bakkaslig
Bakkavör
Með kaupum sínum hefur Bakkavör haslaö sér enn frekar völl á þeim hluta breska matvælamarkaöarins sem vex
hvaö hraöast um þessar mundir.
um mun Bakkavör Group komast í
viðskipti við nokkrar af stærstu
verslunarkeðjum Evrópu en alls sel-
ur félagið nú vörur sínar til 15 af 20
stærstu verslunarkeðjum Evrópu.
Lána helming af kaupverðinu
Þrír af stærstu bönkum Evrópu,
Bank of Scotland, Royal Bank of
Scotland og HSBC Bank, lána um
helming af kaupverðinu. Auk þess
munu þeir endurfjármagna öll fyrri
lán Bakkavarar Group en bankarn-
ir hafa skuldbundið sig til að lána
Bakkavör Group 12,3 milljarða
króna. Við lánsfjármögnunina nutu
bankarnir lögfræðilegrar ráðgjafar
lögfræðifyrirtækisins Hammond
Suddard Edge. Vegna þess að engar
skuldir fylgja KFF verður eiginijár-
staða hins sameinaða fyrirtækis
mjög sterk og verður eiginfjárhlut-
fallið 43%. „Við teljum okkur hafa
verið lánsama að ná viðskiptum við
þessa virtu banka enda lána þeir
ekki hverjum sem er,“ sagði Lýður
Guðmundsson framkvæmdastjóri í
spjalli við Viðskiptablaðið sem kom
út í morgun. í máli Lýðs á kynning-
arfundi á Hótel Sögu í gær vegna
kaupanna kom fram að hlutfallið
milli skulda og hagnaðar fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði væri mjög
lágt, eða aðeins 3,2, sem gerði þá fé-
laginu mjög vel kleift að ráða við af-
borganir á skuldum þess.
Síðustu ár hefur rekstur KFF
skilað góðum hagnaði samhliða
örum vexti. Félagið velti á síðasta
rekstrarári 10,8 milljörðum króna
og áætluð velta þessa árs er 12,2
milljarðar. Hagnaður KFF á síðasta
rekstrarári var um 2.030 milljónir
króna fyrir skatta og áætlaður
hagnaður þessa árs er um 2.350
milljónir króna fyrir skatta. Félagið
skilaði hagnaði fyrir afskriftir og
fjármagnsliði upp á um 2.450 millj-
Fiskaflinn dregst saman
um 13.500 tonn í október
- lakari aflabrögð í síld skýra muninn að mestu
Fiskaflinn í
nýliðnum októ-
bermánuði var
92.314 tonn. Afl-
inn í október-
mánuði í fyrra
nam 105.847
tonnum og er
samdrátturinn
því 13.533 tonn.
Lakari aflabrögð
á síld skýra að
mestu þennan
mun því síld-
veiði síðastlið-
inn október var
15.880 tonn en náði 37.005 tonnum í
október 2000 sem er munur upp á
rúmt 21 þúsund tonn.
Fram kemur i frétt frá Hagstof-
unni að heildarsíldveiðiafli ársins
er enn fremur 125 þúsund tonnum
lakari í ár en í fyrra. Kolmunnaafl-
inn er svipaður á milli ára, var
29.061 tonn í október í ár sem er 800
tonna aukning frá í fyrra.
Kolmunnaafli ársins er orðinn rúm
318 þúsund tonn og er það aukning
um rúm 75 þúsund tonn frá fyrra
ári.
Botnfiskaflinn síðastliðinn októ-
bermánuð var 41.520 tonn sem er
nokkru meiri afli en á sama tíma í
fyrra þegar 35.878 tonn bárust á
land. Þannig fengust nú 22.723 tonn
af þorski en í
fyrra veiddust
15.950 tonn. Þá var
ufsaaflinn 719
tonnum betri nú
en októberafli á
karfa dregst sam-
an á milli ára um
rúm 2.800 tonn.
Þess ber þó að
geta að í október í
ár fengust 2.150
tonn af út-
hafskarfa en ekk-
ert fékkst á sama
tímabili í fyrra.
Nokkru betri skel- og krabbadýra-
afli barst á land, eða 5.819 tonn í ár
á móti 4.704 tonnum í október í
fyrra. Þetta er aukning um 1.112
tonn og skýrist munurinn af aukn-
um afla í úthafsrækju, 639 tonn,
innfjarðarrækju, 225 tonn, og
kúfiski, 843 tonn. Hörpudisksafli er
þó tæpum 600 tonnum lakari í októ-
bermánuði þessa árs, samanborið
við árið 2000.
Heildarafli fyrstu 10 mánuði árs-
ins er 1.774.990 tonn sem er nokkru
minni afli en á sama tíma í fyrra,
þegar 1.825.201 tonn hafði veiðst, og
er munurinn rúm 50 þúsund tonn.
Stóraukinn kolmunnaafli nær því
ekki að vega upp á móti minni síld-
ar- og botnfisksafla.
Fiskaflinn
Heildarafli fyrstu 10 mánuöi ársins er
1.774.990 tonn sem er nokkru minni
afli en á sama tíma í fyrra.
ónir króna á síðasta ári og áætlanir
KFF gera ráð fyrir að hagnaður
þessa árs verði um 2,8 milljarðar.
KFF er skuldlaust fyrirtæki við
kaupin.
„Við kaup Bakkavarar Group á
KFF verður til eitt af stærstu fyrir-
tækjum á íslandi og við gerum ráð
fyrir að hagnaður sameinaðs félags
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
verði um 4,2 milljarðar króna á
næsta ári,“ segir Lýður Guðmunds-
son, forstjóri Bakkavarar Group.
Farþegum
Flugleiða
fækkar mikiö
Farþegum i millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði um 20,2% í október
miðað við október á síðasta ári. Þeir
voru 95,106 nú en 119.253 í október
2000. í október minnkaði sætafram-
boð Flugleiða um 6,9% og salan um
22,7% sem leiddi til þess að sætanýt-
ing var í mánuðinum 12,6 prósentu-
stigum lakari en í október i fyrra.
Hún var 61,7% í október í ár en
74,3% á síðasta ári. Samdrátturinn
er fyrst og fremst rakinn til hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum 11. sept-
ember sl.
í frétt frá Flugleiðum kemur fram
að farþegum hefur fækkað um 2,3%
í millilandaflugi Flugleiða fyrstu tíu
mánuði ársins. Þeir voru 1.216.481 í
ár en 1.245.342 á sama tíma í fyrra.
Á fyrstu tíu mánuðum ársins varð
1,4% fækkun farþega á leið til og frá
íslandi og 3,3% fækkun farþega á
leið um ísland yfir Norður-Atlants-
hafið miðað við sama tímabil árið
2000.
Sætanýting á þessu tímabili hefur
versnað um 0,6 prósentustig. Hún
var 72,7% fyrstu tíu mánuði þessa
árs en var 73,3% sömu tíu mánuði á
árinu 2000. Sætaframboð hefur ver-
ið 1,5 prósentustigi minna í ár en á
síðasta ári og salan hefur minnkað
um 2,4%.
HEiLDARVIÐSKIPTI 7.254 m.kr.
- Hlutabréf 316 m.kr.
- Húsbréf 2.322 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Össur 139 m.kr.
Jarðboranir 37 m.kr.
Baugur 31 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O íslenski hlutabréfasjóöurinn 4.5 %
O Nýherji 2.0 %
© Baugur 1.9 %
MESTA LÆKKUN
© Landsbankinn 3,2 %
© Hlutabréfasj. Búnaðarb. 3,1 %
© Eimskip 2,0 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1.073 stig
- Breyting O 0,58 %
Starfsmaður
Kaupþings í
gæsluvarðhald
Starfsmaður Kaupþings hefur verið
úrskurðaöur í gæsluvarðhald í eina
viku vegna grunsemda um brot á lög-
um um verðbréfaviðskipti og auðgun-
arbrot samkvæmt almennum hegning-
arlögum, en um verulegar fjárhæðir
mun vera að ræða. Maðurinn var
handtekinn í fyrradag ásamt tveimur
meintum samverkamönnum - starfs-
manni íslandsbanka og starfsmanni
Lífeyrissjóðs Hlífar en þeir voru síðan
látnir lausir eftir yfirheyrslur.
Fram kom i fjölmiðlum í gær að mál-
ið hefði verið til rannsóknar hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra um
nokkurra vikna skeið. Ábending hefði
borist frá Islandsbanka um að grun-
semdir hefðu vaknað um að starfsmað-
ur þar stundaði peningaþvætti. Rann-
sókn á ákveðnum færslum viðkomandi
starfsmanns leiddi síðan lögregluna að
grunsamlegum hlutabréfaviðskiptum
sjóðstjóra hjá Kaupþingi sem talin
voru geta varðað lög um verðbréfavið-
skipti og auðgunarbrot gagnvart al-
mennum hegningarlögum.
Jafnframt kom fram að efnahags-
brotadeildin hefði notið náinnar að-
stoðar Kaupþings við rannsókn máls-
ins og að Kaupþing hefði nú lagt fram
kæru á hendur þessum starfsmanni
sínum. Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem mál af þessu tagi kemur upp á ís-
landi.
Samruni P&O
Princess og
WCaribbean
markaðinum töluvert á
óvart þegar skipafélögin P&O Princess
og Royal Caribbean Cruise tilkynntu
um „samruna jafningja" i dag. Mark-
aðsverðmæti sameinaðs fyrirtækis er
um 6 milljarðar dollara og um leið er
það stærsta fyrirtækið í rekstri
skemmtiferðaskipa í heiminum, með
41 skip og 75.000 manns í áhöfnum.
Richard Fain, aðalforstjóri Royal
Caribbean, sem verður stjórnarfor-
maður og aðalforstjóri hins nýja fé-
lags, sagði að sameinuðu félagi væri
núna gert kleift að hámarka þá lang-
tímamöguleika sem væru til staðar í
þessari atvinnugrein.
21.11.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
|S=3 Dollar 108,770 109,320
SSEÍPund 154,380 155,170
1^1 Kan. dollar 68,040 68,470
fig! Dönsk kr. 12,8610 12,9320
jgfisi Norsk kr 12,1210 12,1880
SB Sænsk kr. 10,1800 10,2360
9H n. mark 16,1047 16,2015
|| Fra. franki 14,5977 14,6854
U Belg. franki 2,3737 2,3880
_j Sviss. franki 65,6900 66,0500
C3 Holl. gyllini 43,4515 43,7126
1^^ Þýskt mark 48,9585 49,2526 ;
ít- Bra 0,04945 0,04975
Aust. sch. 6,9587 7,0006
itfLfjl Port. escudo 0,4776 0,4805
'U J Spá. peseti 0,5755 0,5790
1 < 1 Jap. yen 0,88260 0,88790
H i írskt pund 121,583 122,313
SDR 137,2400 138,0700 j
J^ECU 95,7544 96,3298